Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1988, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1988, Blaðsíða 32
40 T .ifcstTll MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 1988. DV Vanda skal val á gólfefni Fyrsta spurningin sem vert er að hafa í huga þegar gólfefni er valið er yfirleitt: á hvaða flöt á að leggia það? Og hvaða kröfur eru gerðar til efnisins. Á að leggja teppi, dúk, park- et, flísar eða marmara? Varðandi lögn á gólf eru mjög margir þættir sem hafa ber í huga til þess að kom- ast að því hvað það er sem maður vill. Oftast er fyrst hugsað um fer- metraverð efnisins og tiskusveiflur koma vafalaust í kjölfarið. Eftirfarandi þætti skyldi gjarnan athuga áður en gólfefni er ákveðið: Ending, mýkt og hljóðeinangrunar* eiginleika, vatnsþol, kröfur og mögu- leika til hreinsunar, andrúmsloft, þörf á viðhaldi, verð á fermetra og heildarkostnað við lögn. Smekkur fólks og fjárráð ráða oftast miklu en það er gott að hafa áöurnefnd atriði i huga sé hugsað fram í tímann. Viðhorf breytast með tíðaranda Það er ekkert launungarmál að parket er í tísku í dag. Hins vegar halda teppi ávallt sínu striki. Sam- kvæmt nýlegri könnun seljast árlega þrisvar sinnum fleiri fermetrar af teppum en af parketi. Þegar híbýli skipta um eigendur er gjarnan ráðist í aö skipta um gólfefni og að mála veggi. Þar ræður oft smekkur og fjár- hagur umfram þörf. Skynsamlegast er að fara eftir grundvallarreglum um gólfefni sem henta í mismunandi vistarverum. Á gang, eldhús og bað er heppilegast aö setja efni sem þola vatn og raka. í svefnherbergi og í Heimilið stofur er gott að hafa mjúkt undir fæti - eitthvað hlýlegt. í gangi og holi er stundum gengið um á skóm sem í rauninni krefst sterks gólfefn- is. Sum dúkaefni án líms Dúkaefni eru heppileg á baðher- bergi og í eldhús. Stundum eru flísar lagðar í eldhús. En þær eru harðar undir fót og fólk þreytist því við að standa mikið á þannig gólfi. Sætti maður sig við það er ráðlegast að velja sterkar flisar sem ekki er hætta á að kvamist upp úr og eru ekki hálar. Yfirleitt þarf fagmann til að leggja dúka. Hins vegar eru komnir dúkar á markaðinn sem ekki þarf að líma niður - ótrúlegt en satt, þessar teg- undir liggja vel við gólfið. Þessi efni eru nokkuð þykk og vel hægt að leggja sjálfur - ekkert lím, það þarf aðeins að leggja lista meðfram veggj- um. Dúkarnir eru til í mörgum mynstr- um - marmara eöa jafnvel parket- mynstri. Kostir ólímds dúks em ótví- ræðir sé tekið tillit til lagnarkostnað- ar. Þar sparast lím sem kostar a.m.k 50-60 kr. á hvern fermetra og lagnar- kostnaður fagmanns. Ef skipta á aft- ur um gólfefni er auðvelt að fjar- lægja ólímda dúkinn. Dúkar þola vel vatn og gott er að þrífa þá. Korkurinn hljóðeinangrandi Korkflísar eru unnar úr náttúm- legum efnum frá suðrænum löndum. Þéttar loftfylltar holur gera hann mjúkan, hljóðeinangrandi og það er þægilegt að ganga á honum. Varast Korkflisar út náttúrulegu efni eru mjúkar undir fæti. Mikilvægt er að þær séu lakkaðar til að verjast bleytu sem best. DV-mynd KAE Helsti kostur parkets er gott andrúmsloft. Þó þetta gólfefni sé mikið í tísku nú seljast þó þrisvar sinnum fleiri fermetrar af teppum en af parketi árlega hér á landi. DV-mynd GVA skal að blautskúra korkflísar, rök tuska á að duga og forðast skal salm- íak. Korkur krefst þess að hann sé vel lakkaður eigi ekki illa að fara þegar vatn kemur aö honum. Mikilvægt er að samskeyti lokist og að hann sé vel lakkaður. Korkefni má halda við með nokkmm umferðum af lakki. Þannig slitnar lakkið við ágang en korkefnið sjálft heldur sér að mestu leyti. Þegar korkur er keyptur er vert að spyrja sölumenn um samþjöppun efnisins, þ.e. hve mikið efnið hefur verið pressað í vinnslu. Hafi það verið pressað með 480 kg á rúmmetra er það nægilega sterkt. Vinylhúðað korkefni hefur til samanburðar verið pressað með 700 kg á rúmmetra. Það er tiltölulega dýrara að leggja kork en dúk. Ekki er ógætilegt aö ætla til þess um 300-500 krónur með lögn og lími. í stað þess að skera út ræmur er hægt að fá tilbúna vegg- lista úr sama efni og korkflísarnar - það gerir lögn auðveldari. Korkflísar eru helst settar á eldhús- og baðgólf. Verð teppa fer eftir gæðum Á markaðnum er mjög mikið úrval af teppum. Helstu kostir þeirra eru góð hijóðeinangrun, mýkt og hlýleiki - andrúmsloft gjörbreytist þegar teppalagt er og þau binda ryk. Það má finna teppategundir til allra nota. Óhætt er þó að segja að það henti ekki að leggja teppi á bað og eldhús. Algengast er að teppi séu í stofu og holi. Helsti ókostur við teppi er að erfitt getur verið að þrífa úr þeim bletti og óhreinindi. Þó ber að geta þess að hægt er að leigja teppahreinsivélar, álíka umfangsmiklar og ryksugur, til að hreinsa þau. Auk þess er úðun nú oft innifalin í teppakaupunum. Nú eru komin á markaðinn dúkaefni sem ekki þarf að líma - aðeins þarf að sniða og leggja lista meðfram veggjum. DV-mynd KAE

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.