Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1988, Page 6
6
MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 1988.
Sandkom
Umsjón: «H)Ufj6n
JónKristjáns-
son.framsóta-
artröliafAust-
urlandi.ermó-
urbroíiniunað-
ana.Hannstóö
íþeirritrúað
haíagegutlyk-
astaþingi.há
varblessnnin
hannJónfor-
uraf.Núkemst
hannloksaö
þvíhvaðþetta
OlafhrG.
Jón var svo stoltur af. Þetta er biturt
fyrirhinn ágæta mann, Jón Kristj-
ánsson, framsóknarmann af Austurl-
andi. Hann sem hélt lengi vel að hann
væri einn af vaMameiri tnönnum
þingsins.
Varrekinn-villnú
Þaö vilja tnarg-
firieysaHraöi
Gunnlaugsson
afhjáStjón-
varpinu.Hrafh
eraðfaraítjög-
uraárafrífrá
störfura.
Hrafnhafi
reyndai'verið
mtiraifriien
vinnufráþvi
iamn hófstörf
hjaSjónvarp-
inu. Jæja, hann hefur nú sótt um frí
starfið er maður sem áöur atarfaðl
um fyrir nokkru. Nú sæidr maðurinn
um að komast í starf þeas sem hafði
áður rekið hann frá starfi.
reyndirstarfs-
mcnnhjáút-
varpiogajón-
varpi.þeirlngi-
Hrafhs.Þegar
þeirkönnuðu
stuðnipgvið
Fréttir
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra á beinni línu DV í gærkvöldi:
Segi af mér ef bráða-
birgðalögin verða felld
Steingrímur Hermannsson forsæt-
isráðherra sagði á beinni línu DV í
gærkvöldi að hann hefði ákveðið að
bráðabirgðalög ríkisstjómarinnar
yrðu tekin fyrir á Alþingi hið fyrsta.
Steingrímur sagði ennfremur að ef
þau yrðu felld myndi hann biöjast
lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt
enda teldi hann að ríkisstjóminni
væri ekki sætt ef svo færi að Alþingi
felldi lögin. Aftur á móti sagðist for-
sætisráðherra ekki trúa því að svo
færi.
Þá svaraði Steingrímur spumingu
varðandi hina umdeildu yfirlýsingu
Skúla Alexanderssonar um að hann
muni víkja af þingi ef upp koma mál
sem hann getur ekki stutt ríkis-
stjómina í. Sagði forsætísráðherra
að Skúli þyrfti ekki annað en boða
venjuleg forfóll, eins og þingmenn
gera oft, og þá kæmi varaþingmaöur
inn. Þess vegna hefði fullyrðing Sig-
urðar Lándals lagaprófessors um
lagabrot Skúla ef til þessa kæmi ver-
ið afar hæpin.
Að þessari beinu línu unnu blaða-
meimimir Siguijón Magnús Egils-
son, Gunnar Smári Egilsson, Jó-
hanna Sigþórsdóttir, Jóhanna Jó-
hannsdóttir, Jón G. Hauksson,
Haukur Láras Hauksson og Sigurdór
Sigurdórsson.
-S.dór
Omarkviss stjomun
peningamálanna
Hreinn Eliiðason, Akureyri, spurði:
- Ríkisbankamir hafa haldið fyrir-
tækjum 1 sjávarútvegi gangandi í
sumar. Þess vegna finnst okkur
bindiskyldan svolítið hjákátleg en
hún verður til þess að bankamir
þurfa að borga refsivexti til Seðla-
bankans láni þeir of mikið. Síðan er
Jóhannes Nordal seðlabankastjóri
spurður að því fyrir hvað hann byggi
sína höll og hann svarar að það sé
fyrir eigið fé bankans.
„Ég er einn þeirra sem oft hafa lýst
efasemdum um stjóm peningamál-
anna. Við erum að tala um fijálsræði
í peningamálum en peningamagnið
er bundið í annan endann, það er aö
segja aö framboðið er afar takmark-
að, og þá er þetta náttúrlega ekkert
fijálsræöi.
Með því að binda mikið fé leiðir það
aftur til hækkunar vaxta á útlána-
hliðinni. Það sem mér finnst enn
verra er að þessi binding nær ein-
göngu til bankanna og það em ein-
göngu þeir sem þjóna okkar grund-
vailarframleiðsluatvinnuvegum. En
aðrir á markaðinum, eins og verð-
bréfafyrirtækin, hafa leikið lausum
hala.
Ég sé því ekki betur en að ein meg-
inástæðan fyrir því að svo illa hafi
farið í efnahagsmálum sé að peninga-
málastjómunin hefur ekki verið
markviss. Peningar, sem takmarkað
framboð hefur verið á, hafa farið í
alls konar byggingar hér á höfuð-
borgarsvæðinu þar sem mörg fyrir-
tækin em því miður að rúlla en
grundvallaratvinnuvegimir hafa
ekki getað nálgast þetta íjármagn.
Hitt er svo að ef losað yrði um bind-
inguna þá mundi þenslan aukast því
þá yrði meira fiármagn til útlána."
Niðurskurðurinn
er óskapiegt dæmi
Hreun Elliöason, Akureyri, spurði:
- Mér finnst ríkisstjómin eyða allt
of miklu í óarðbærar framkvæmdir
þegar við höfum engan veginn efni á
því. Síðan sest hún niöur og eykur
bara skattana hjá fólki. Stendur til
að endurskoða fiárútlát ríkisstjóm-
arinnar?
„Það stendur svo sannarlega til.
Það stendur núna til aö draga saman
um einn miUjarö og fimm hundrað
miiljónir og við höfum nú verið að
skoða það að undanfómu hvemig
það verður gert og það vil ég segja
þér að er alveg óskaplegt dæmi.
En menn verða að minnast þess að
heilsugæslan er líklega með um 45
prósent af öllum tekjum hins opin-
bera og menntakerfið er með nálægt
20 prósent. Opinberar framkvæmdir
hafa dregist saman. Þær vora í
kringum 14 prósent fyrir nokkrum
árum en era nú komnar niður 1
kringum 7 til 8 prósent. En engu aö
síður erum við nú að draga saman
um einn og hálfan miiljarð og það
er afar erfitt dæmi.
Hitt er svo eflaust rétt að það em
ýmsar framkvæmdir og ýmislegt
sem hið opinbera ráðstafar flár-
magni til sem má falla út og að því
er verið að leita eins og nál í hey-
stakki."
Mistök að af-
nema verðbygg-
ingu launa
Steingrímur var spurður hvort þaö
hefðu ekki verið mistök að afnema
verðtryggingu launa áriö 1983:
„ Jú, það vom mistök. Ég vil að vísu
segja að þetta var mjög erfitt við að
eiga. Ég ræddi við lögfræðinga á
þeim tíma um þessi mál. Þeir héldu
því fram að ekki væri hægt að breyta
grundvelh gerðra samninga. Nefnd-
in, sem skilaði áhti í júlí, var á ann-
arri skoðun. Það kom mér mjög á
óvart að þeir lögfræðingar, sem í
nefndinni vora, skuh vera á annarri
skoðun. Það kemur í Ijós nú hvort
þetta er hægt.“
- Sá enginn afleiðingamar fyrir?
„Ég hef oft hugsað um þetta. Ég
verð að segja, því miður, að í stjóm-
armynduninni var aldrei minnst á
þetta þegar það kom upp. Það sá þetta
enginh fyrir þó að þetta ætti að vera
hveijum manhi Ijóst þegar verð-
tygging launa var afnumin og launa-
hækkanir ákveðnar, með lögum,
langt undir verðbólgu. Ég man aldrei
eftir í þeirri vinnu að nokkur minnt-
ist á þetta.“
Sendi mér rós
Hefur því fólki, sem verst varð úti,
verið híálpað?
„Ég er sannfáerður um það að ráð-
gjafarþjónustan, skuldbreytingar og
breytingar á lánum Húsnæðismála-
sljómar hafa gert mörgum mjög
mikið gagn. Það var mikill fjöldi fólks
sem kom til mín. Ég er enn að fá
þakkarbréf frá sumum, þó svo ég
hafi átt lítinn þátt í því nema benda
þeim á að fara til ráðgjafarþjón-
ustunnar. Mér þótti mjög vænt um
aö einstæð móðir sendi mér heim rós
vegna þessa. Ég fékk síðar bréf frá
henni þar sem hún sagðist vera kom-
in vel fyrir vind. Ég veit að það em
margir sem hafa fengið lausn sinna
mála. En vitanlega hjálpaði þetta
ekki öllum.“
Égskal viður-
kenna það
Steingrímur var spurður hvers
vegna verðbólga hjá okkur væri svo
miklu meiri en í nágrannalöndim-
um:
„Ég veit ekki hvort nokkur treystir
sér til að svara þessari spumingu.
Ég birti eitt sinn með áramótaávarpi
mínu línurit sem ég tel hafa verið
ákaflega fróðlegt. Línuritið sýndi
samhengi afla, þjóðartekna og verð-
bólgu. Það var afar áberandi að þegar
afli jókst virtist alltaf byija hér verð-
bólga fljótlega á eftir - þá byrjaði
þensla. Við erum með verðjöfnunar-
sjóð sem að mínu mati er eitt af því
allra besta sem viðreisnarsljómin
gerði en hann hefur aldrei verið full-
virkur. Sjávarútvegurinn hefur ráð-
ið honum og ekki sett í hann nema
þegar honum hefur þóknast. Það
hefur alltaf byrjað þensla. Síðan
kemur kreppa af einhveijum ástæð-
um alltaf á 14 til 15 ára fresti; við
höfum aldrei dregið úr þá. Hvemig
brúum við kreppuna? Við fellum
gengið. Það leiðir strax til verð-
hækkana. Ég held að þetta sé frum-
orsökin hjá okkur: þensla sem byrjar
á góðu árunum. Það er nákvæmlega
það sem gerðist núna. Þegar staðið
er svo frammi fyrir því að samdrátt-
ur verður þá lækkum við ekki laun-
in; ætlum að gera tilraun til þess en
það gerist ekki.
Á góðu árunum 1986 og 7 tókst
okkur ekki að slá á þensluna. Launa-
skriðið fór upp úr öllu valdi. Verð-
bólga héma er alltof mikil og miklu
meiri en í löndunum í kringum okk-
ur. Það komu fjórir miUjarðar um-
fram áætlun árið 1987 af erlendu fé
inn til landsins."
- Hefðir þú viljað hafa þetta öðm-
vísi?
„Já, þaö hefði ég viijað. Staðreynd-
in er sú að farið er að gefa lausan
tauminn 1985 og þetta gekk nokkuð
vel 1986. Sparifé jókst og það virtist
vera nokkurt jafnvægi. Síðan byijar
peningamarkaðurinn að fara úr jafn-
vægi. Hann byijar að leita burtu frá
undirstöðuatvinnuvegunum í alls
konar spekúlasjónir, sumar góðar og
sumar illar. Grái markaðurinn fer
að vaxa. Hann er settur af stað án
þess um hann að gildi nokkur lög -
það em engin lög til þegar kaupleig-
umar fara af stað. Þetta gerist um
áramótin 1986 og 7. Ég er ekki að
varpa allri sök af mér. Eg skal viður-
kenna það að 1986 fannst mér eins
og efasemdir mínar um þessa pen-
ingastjómun væm ekki á rökum
reistar, sem sagt að þetta væri í
nokkuð góðu lagi. Spamaður fór vax-
andi, verðbólga lækkandi og útlána-
vextir vora í kringum 5 prósent. Það
virtist allt vera í góðu lagi. Síðan fór
allt smám saman að hallast.“
Ríkisábyrgðir
óþarfár?
Guðmundur Ingvar Guðmundsson,
Hraunbæ 16, Reykjavík, spurði:
- Er ekki óþarfi að vera með ríkis-
ábyrgðir á alls konar lánum fyrir
atvinnureksturinn?
„Það er markviss stefna bæði þess-
arar ríkisstjómar og síðustu tveggja
að minnsta kosti að draga úr ríkis-
ábyrgðum fyrir atvinnureksturmn.
Það em t.d. nokkur ár síðan felld var
niður opin heimild sem áður var á
ríkisábyrgðum til togarakaupa. Hins
vegar era hvílandi á ríkisábyrgða-
sjóði óhemjumiklar gamlar skuld-
bindingar.
í nýlegu yfirliti, sem ég sá um þessi
mál, hafa afar fáar og nánast engin
af ríkisábyrgðum vegna atvinnuveg-
anna falliö á almenning. Hvað gerist
núna í því slæma ástandi, sem er,
skal ég ekki segja. Nú er miklu oftar
um að ræða ríkisábyrgðir vegna
ýmiss konar fiárfestinga á vegum
ríkissjóðs eða skipakaupa á veguni
ríkisins. Þá hefur ríkisábyrgðasjóður
vissulega hlaupið undir bagga, t.d.
með flugvélakaup Flugleiða. Það var
ailt greitt og lenti ekkert á ríkis-
ábyrgðasjóði. Ljóst er þó að mjög
varlega þarf að fara í þessi mál.“
Vextír keyrðir niður
Guðmundur Ingi Guðmundsson,
Hraunbæ 14, spuröi:
- Verður ekki að fara varlega í að
keyra niður vexti þegar svona lítið
sparifé er til í landinu?
„Við eigum aUs ekki að keyra niður
vexti þannig að vextir af sparifé verði
neikvæðir. Þeir eiga að vera jákvæð-
ir. Og ég er þeirrar skoðunar að ef
sparifé er rauntryggt, fellur ekki í
verðgildi og nýtur einhverra hóf-
legra raunvaxta þá sé þess vel gætt.
Ég vek athygli á því að í öllum lönd-
imum í kringum okkur em raim-
vextir af sparifé 1-2 af 100 og sums
staðar engir, svo sem í Sviss.“
Mætt andstöðu hjá
Landsviriýun eins
ogalttsemlagtertil
- Meðalþesssemríkisstjóminætl-
aöi að gera til bjargar frystingunni
var aö lækka raforkuverð um íjórð-
ung. Með hvaða hætti verður þetta
gert?
„Eins og þetta er orðað núna þá er
talafl um að lækka raforkuverð til
frystiiðnaðar og fiskvinnslu þar sem
sólarhrings- og ársálag er það jafnt
að það gefi tilefni til. Það fór fram
hjá mér þegar þessu var breytt í
frystingu. Það er ekki hægt aö að-
skilja frystingu, saltfisk og fleira.
Skoðun mín sem rafmagnsverkfræð-
ings er sú að ekki sé nægjanlegt tiilit
tekið til þess hvað mikið af álagi
frystingarinnar er jafnt. Frystiklef-
amir ganga allan sólarhringinn og
því er hægt að bjóða þeim betri kjör.
Ég vil vekja athygli á því að fiskeldi
hefur samið um miklu betri kjör en
felast í þessu, lækkun um 50 af
hundraöi ef ég man rétt, vegna þess
að álagið þar er alveg jafht. Þetta er
í athugun og hefur náttúrulega feng-
ið harða andstöðu hjá Landsvirkjun
og orkubúunum eins og allt sem íagt
er tU.“
Kvóli á inn-
flutning bða
Helga Þorsteinsdóttir, Gerðum,
Suðurnesjum, spurði:
- Hefur ráðamönnum þjóðarinnar
dottið í hug að selja kvóta á innflutn-
ing á nýjum bfium vegna sífelldra
slysa í umferðinni?
„Nei, það hefur ekki komið tfi
greina að setja kvóta á innflutning-
inn. Við erum í afarmiklum erfiðleik-
um með allt slíkt því við höfum gert
viðskiptasamninga við Fríverslunar-
bandalagið og Evrópubandalagið.
Samkvæmt þeim viðskiptasamning-
um er okkur ekki leyft aö takmarka
þannig innflutning, enda veita þeir
okkur tollfrjálsan aðgang með sjáv-
arafurðir. Með öllu slíku er fylgst
mjög nákvæmlega af sendiráðum
þeirra landa sem þama eiga hlut að
máli.
Spumingin er aftur á móti hvort
hækka eigi verð á bílum þannig að
fólk kaupi færri. Ég er þér sammála
um að bílar em orðnir alltof margir
í landinu."