Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1988, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÖBER 1988.
9
Útiönd
Afturhaldið
heldur velli
Ríkisstjóm Tékkóslóvakíu sagði af
sér í gær í kjölfar þess að forsætisráð-
herrann, Lubomir Strougal, sagði af
sér í fyrradag. Nýr forsætisráðherra
verður Ladislav Adamec sem er tal-
inn mun íhaldssamari en fyrirrenn-
ari hans.
Utanrílpsráðherra verður Jaromir
Johanes, í stað Bohuslavs Chnoup-
eks. Einnig fellur í ónáð Colotka,
fyrrum aðstoðarforsætisráðherra,
sem verður að draga sig úr stjóm-
málaráði flokksins ásamt Strougal. í
stað þeirra tveggja, sem þóttu nokk-
uð umbótasinnaðir, verða settir
fimm menn, allir fremur ungir og
handgéngnir Milos Jakes, leiðtoga
flokksins.
Jakes þykir hafa styrkt stöðu sína
mjög innan flokksins með þessum
uppstokkunum í æðsta valdakerfi
flokksins og ríkisstjóminni.
Þrátt fyrir að tékkneski Kommún-
istaflokkurinn hafi í orði fagnað end-
urbótastefnu Mikhails Gorbatsjov
Sovétleiðtoga hafa æðstu menn í
Tékkóslóvakíu ekki sýnt neinn vilja
í þá átt að færa tékkneskt þjóðfélag
í umbótaátt.
Þessar breytingar boða áframhald-
andi afturhald í Tékkóslóvakíu og
Jakes flokksleiðtogi hefur tryggt tök
sín á stjóm landsins.
Adamec mun hafa verið umbóta-
sinnaður á árum áður. Nú hefur
hann skipað sér í hóp afturhalds-
manna í flokknum en áhrif hans em
ekki talin vera mikil. Johanes utan-
ríkisráðherra er einnig talinn áhrifa-
lítill þannig að þessar breytingar em
einungis taldar styrkja Jakes og aft-
urhaldið í flokknum. Til merkis um
það er að Vasil Bilak, hugmynda-
fræðingur flokksins, sem er einn af
þeim afturhaldssömustu í flokknum,
heldurembættisínu. Reuter
Jafnframt þvf sem lagðar voru fram ákærur f gær á hendur starfsmönnum Alþjóða viðskipta- og verslunarbank-
ans fyrfr aö hafa „hreinsað" ágóða af ffkniefnasmygli sýndi lögreglustjórinn i Los Angeles fréttamönnum átta
hundruð kfló af kókaíni og hálfa milljón dollara sem gert var upptækt I vikunni. Simamynd Reuter
Alþjóðabanki í
viðskiptum við
fíkniefnasmyglava
undir hjá kólumbískum fíkniefnasöl- bankinn sem er nefndur í ákæru um
um og starfsmönnum Alþjóðabank- fíkniefnasölu.Hannhefurútibúísjö-
ans. Eftir að hafa áunnið sér traust tíu og þremur löndum, þar á meðal
hinna ákærðu létu þeir til skarar fimmtán í Bandaríkjunum. Banda-
skríða. rískyfirvöldsögðuíviðtaliviðfrétta-
Hinir dulbúnu lögreglumenn buðu menn í gær að ágóðinn af sölu fíkni-
nokkrum „vinum“ sínum, fikniefha- efnanna hefði verið lagður inn á
sölum og starfsmönnum Alþjóða- reikninga fikniefnasalanna í útibúi
bankans til piparsveinaveislu í til- bankansíFlórídafylkiogþaðanhefði
efni brúðkaups eins þeirra. Þegar honum verið dreift mn útibú hans
gestimir mættu í veisluna beið viða um heim. Bankinn hefði einnig
þeirra fríður hópur löggæslumanna lánað fíkniefnasölunum háar fjár-
og í stað þess að skemmta sér fram hæðir en fjármagnið var í raun tekið
á rauða nótt máttu þeir dúsa í fanga- út af reikningum fikniefnasalanna.
geymslum alríkislögreglimnar. Allt var þetta gert til að fela ágóðann
Brúðkaupið átti sér að sjálfsögðu fyrir frániun augum tollayfirvalda.
aldrei stað. Talið er að Noriega hershöfðingi í
Daginneftirvoruháttíþijátíuaðr- Panama, sem var ákæröur fyrir
ir, sem grunaðir voru um aðild að fíkniefnasmygl til Bandaríkjanna í
samsærinu, handteknir í Bandaríkj- febrúar síðasthðnum, sé meðal.
unum, Suður-Ameríku og Evrópu. þeirra sem á viðskipti við útibú
Alþjóða verslunar- og viðskipta- bankans í Panama. Noriega var ekki
bankinn, sem hefur höfuðstöðvar meðal þeirra áttatíu og fiögurra sem
sínar í Luxemburg, er fyrsti alþjóða- voru ákærðir.
Steinurtn Boðvarsdóttir, DV, Washingtoru
Bandarísk yfirvöld lögðu í gær
fram ákærur á hendur áttatíu og fjór-
um mönnum, þar á meðal níu hátt-
settum starfsmönnum Alþjóða versl-
unar- og viðskiptabankans, um sam-
særi í tengslum við fíkniefnasölu.
Mennimir voru ákærðir fyrir að
koma ágóðanum af rúmlega þijátíu
milljóna dollara fikniefnasmygli í
umferð með því að leggja haiin inn
á reikninga Alþjóðabankans í mörg-
um útibúum hans.
Hátt í fjörutíu hinna ákærðu eru
nú í vörslu yfirvalda í Bandaríkjun-
um eða Suður-Ameríku. Ákæran
fylgir í kjölfar tveggja ára rannsókn-
ar tollayfirvalda á dreifingu og sölu
fíkniefna sem Medellinsamtökin í
Kólumbíu hafa á sinni könnu. Rann-
sóknarlögreglumenn, dulbúnir sem
fíkniefnasalar, kaupsýslumenn og
fjármálabraskarar, komu sér inn
I vandræðum
vegna kosn-
ingaloforðs
Ágúst Hjörtur, DV, Ottawæ
Kosningabarátta Fijálslynda
flokksins hér í Kanada hefur farið
hálfbrösulega af stað. Leiðtogi
flokksins, John Tumer, lenti í vand-
ræðum í síðustu viku vegna kosn-
ingaloforðs um nýja stefnu í hús-
næðismálum.
Virtist hann ekki vita hvaða kostn-
að hún hefði í fór með sér eða hvem-
ig aflað yrði fjár til að framkvæma
hana.
Um helgina kom svo upp á yfir-
borðið ágreiningur innan flokksins í
Quebecfylki vegna framboðsmála.
Var Tumer og stjóm flokksins sökuð
um að troða sínum mönnum í fram-
boð í stað þess að láta hinn almenna
félagsmann velja frambjóðendur.
Samkvæmt síðustu skoðanakönn-
unum er mjög á brattann að sækja
fyrir Fijálslynda flokkinn og hafa
atburðir síöustu viku vart hjálpaö
mikið. íhaldsflokkurinn er í upp-
sveiflu og virðist ætla að endurtaka
kosningasigur sinn frá 1984. Fjöldi
þeirra sem enn hafa ekki ákveðið sig
er þó mikill svo enn þá getur allt
gerst.
VERÐ FRA
KR. 24.000,
Landsins
mesta
úrval af
hvíldarstólum
Opið laugardag
til kl. 17.00,
sunnudag kl. 14.00-17.00
TMHÚSGÖGN Húsgagnasýning um helgina
SIÐUMÚLA 30 SIMÍ 686822 .