Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1988, Qupperneq 19
Anjetii
timel
MIÐVÍKÚDÁGUR 12. ÖKTÖBÉR 1988.
Bannað að ganga á grasinu!
Komdu þér burt, annars..., gæti þessi nashyrningur veríð að segja viö
Ijósmyndarann. Nashyrningurinn er einn af fáum sem eftir aru af þessari
tegund og hann lifir í skjóli friðaðs þjóðgarðs i Suður-Afriku. Flestir af þess-
ari tegund eru ekki eins heppnir vegna þess að margir þeirra falla á
hverju ári fyrir gráðugum veiðimönnum sem geta fengið tvær og hálfa
milljón fyrir horn þeirra i Miðausturlöndum og Asfu.
19
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Klng Kong gnæfir hér yflr Atomium i BrUssel er þar var opnað stærsta
kvikmyndahús f helmi á dögunum. i húslnu eru tuttugu og sjö sallr og
sjö þúsund áhorfendur geta skemmt sér i elnu.
Eddie Murphy búinn
að finna þá réttu
Anjelica
Huston
- dóttir Johns Huston og fyrrum
sambýliskona Jacks Nicholson -
er nú aö gera míníseríu sem nefn-
ist Dúfan einmana. Margir segja
að þessi titill geti eins átt við um
leikkonuna sjálfa því að hún sé
mjög einmana kona. Fyrir nokkr-
um árum flutti hún út frá Nic-
holson þótt enn séu þau kær-
ustupar en hann hefur vist aldrei
getað hætt að elta stelpur, ungar
og gamlar. Hún segist sjálf hafa
gert sér grein fyrir því fyrir löngu
að ef hún ætlaði að elska Jack
Nicholson þýddi það aö hún
mætti ekki spyija of margra
spurninga.
M
Mark Harmon
- leikarinn sæti - var ekki alltaf
leikari. Tuttugu og tveggja ára
gamall var hann framkvæmda-
stjóri hjá skófyrirtæki. Hann seg-
ir að sig hafi samt alltaf langað
til að verða leikari en ekki þorað
fyrr en hann fékk algerlega nóg
af að kasta lífi sínu á glæ bak við
skrifborð og þurfa þar að auki að
vakna til að fara í vinnuna á
hverjum morgni. Þar kom að
hann fékk nóg og sagði upp.
Framhaldið þekkjum við öll.
Eddie Murphy er búinn að trúlofa
sig stórglæsilegri átján ára gamalli
stúlku sem er í skóla og þau ætla að
gifta sig í desember.
Hann gaf Musönnu Overr dem-
antstrúlofunarhring. Hún er í How-
ard háskólanum í Washingtonborg.
„Dóttir mín, Musanna, ætlar að
giftast Eddie Murphy og okkur finnst
þetta æðislegt," sagði Elaine Overr,
mamma Musönnu.
„Ég er yfir mig hrifm vegna þess
að Eddie er dásamlegur maður. Hann
er mjög hændur að mömmu sinni og
hver sem er hændur að mömmu
sinni mun verða góöur eiginmaður.
Hann er fullkominn og þetta er allt
saman eins og í draumi. Eddie sagði
mér að hann hefði langað að finna
einhverja sem hann gæti gifst og
elskað en að það væri erfitt í
skemmtanaiðnaðinum. Ég held að
þetta hafi verið orðiö mjög erfitt hjá
honum, og þá fann hann dóttur
mína.“
Musanna, sem er frá Los Angeles,
hitti Eddie, sem er tuttugu og sjö
ára, í júlí þegar hún var i samkvæmi
í íbúð hans á L’Ermitage hótehnu í
Beverly Hills en þar býr hann þegar
hann er á vesturströndinni.
Eddie bauð henni út og fljótlega var
ástin komin í spilið, að því er vinir
þeirra segja.
Eftir nokkrar vikur þeirra saman
þurfti Eddie að fara heim til New
Jersey og hann mun hafa beðið Mus-
önnu að koma með sér. Hún bjó
heima hjá honum í nokkrar vikur
og skötuhjúin stunduðu Broadway-
sýningar á meðan á sælunni stóð.
„Rétt áður en Musanna átti að
byija aftur í skólanum var hún að
hjálpa Eddie að binda hálsbindið sitt,
er hann spuröi hana hvort hún vildi
giftast sér,“ sagði vinur þeirra.
Musanna sagði þessum vini að
Eddie hefði sagt sér aö hann hefði
lisa Bonet
Musanna og Eddie eru búin að heimsækja foreldra hvort annars og eru allir
i skýjunum yfir ráðhagnum.
aldrei elskað neina fyrr en hann hitti
hana og að hann gæti ekki hugsað
sér að lifa án hennar, og svo heföi
stóra spurningin komið.
„Ég missti næstum andann þegar
hann spurði mig en einhvem veginn
tókst mér aö kreista upp , já“. Hann
brosti og renndi demantshring á
fingur mér og sagði: „Þú velur dag-
inn.“
Ég sagði honum að ég vildi halda
áfram í skólanum en hann sagði að
hann vildi ekki bíða þar til ég útskrif-
aðist. Úr varö að við ætlum að gifta
okkur í desember, þegar ég er í jóla-
fríi. Síðan ætla ég að skipta um skóla
og fara í Rutgers háskólann, sem er
rétt hjá húsinu hans."
„Trúlofunarhringurinn, sem Eddie
gaf Musönnu, er hreint æði,“ sagði
móðir hennar. „Hann er yndislegur,
með fullt af demöntum.
Musanna biður mig oft á dag um
að klípa sig því að hún segist ekki
trúa því að hún sé að fara að giftast
Eddie Murphy.“
Parið ástfangna hefur farið í heim-
sókn hvort til annars foreldra og
báðar íjölskyldurnar eru í sjöunda
himni.
Murphy sagöi einum vini sínum
að hann væri ekki viss um að hann
gæti beðið þar til í desember. „Helst
Hér sést trúlofunarhringurinn sem
rr.amma Musönnu er svo hrifin af.
vildi ég hlaupast á brott meö henni
núna óg hafa móttöku fyrir fjölskyld-
urnar seinna. Ég vil ekki taka áhætt-
una á að missa hana.“
Þrátt fyrir að Murphy hafi ekki
verið við eina fjölina felldur í
kvennamálunum segir hann nú við
vini sína að í þetta sinn sé um sanna
ást aö ræða.
„Ég hef aldrei kynnst konu eins og
Musönnu. Hún er vel gefm, falleg og
yndislegasta kona sem ég hef hitt,“
sagði Murphy viö gamlan vin sinn.
„Ég hafði ekki um neitt að velja.
Ég varð ástfanginn og varð aö giftast
henni. Ég er bara þakklátur fyrir að
hún skyldi segja já.“
verður látin hætta bæði í Cosby
þáttunum og einnig í A Different
World vegna þess að hún er nú
bamshafandi. Henni finnst þetta
mjög svo ósanngjarnt og segir að
sér finnist sér vera refsað fyrir
að vera ólétt. Hún segist vera
voðaiega hissa á Bill Cosby og
hafa haldið að hann væri meiri
maður. Hún gleymir því hins veg-
ar að þegar hún gifti sig varaði
Cosby hana við því að verða
bamshafandi vegna þess að það
passaöi ekki hlutverki hennar og
því yröi hann að láta hana hætta
ef svo færi fyrir henni.