Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1988, Qupperneq 3
FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER' 1988
DV
'3
Fréttir
Kindaskrokkunum var sturtað i þar til gerða gryfju og síðan mokað yfir.
DV-mynd Geir
Riðufé urðað
í Svarfaðardal
Húsdýr í búrum
í Laugardalnum
- framkvæmdir við dýragarðinn vel á veg komnar
„Undirbúningur dýragarðs í Laug-
ardalnum gengur ágætlega og er vel
á veg kominn," sagði Davíð Oddsson
borgarstjóri er DV ræddi við hann.
Búið er að ganga frá bílastæðum sem
eiga að þjóna dýragarðinum. Einnig
er búið að skipta um jarðveg á svæð-
inu, gera lítinn garð og „breiðstræti".
í sumar og fyrrasumar var hafm
ræktun á háum trjám eins og til-
heyra á slíkum stað. í vor verður svo
hafin bygging á dýrageymslum.
Stefnt er að því að opna garðinn á
vormánuðum 1990. Getur svo farið
aö hluti hans verði opnaður strax
næsta haust.
„Þetta verða aðallega íslensk hús-
dýr sem við verðum með þarna, þessi
dýr sem nútímakrakkarnir þekkja
ekki öðruvísi en af bókum,“ sagði
borgarstjóri. „Jafnframt verðum við
þarna með lítinn hljóðlátan
skemmtigarð þar sem verða tæki
meö loftpúðum svo og vélarlaus
verkfæri. Þarna verður hávaði út-
lægur,“ sagði Davíð. „ Þessi garður
er hugsaður fyrir yngstu krakkana
frá 2-12 ára.“
Davið sagði að ef dýragarðurinn
mæltist vel fyrir yrði stefnt að því
að stækka hann og taka inn fleiri
dýrategundir. „Á veturna verður svo
hægt að fara með skólabörn í heim-
sókn í Laugardalinn og sýna þeim
dýrin í húsum sínum.“
Geir Guösteinsson, DV, Dalvflc
Eftir sláturtíðina í Svarfaðardal í
haust var öllu riðufé í dalnum slátrað
í sláturhúsinu og ekið á bílum í land
Hamars í Svarfaðardal og urðað þar.
Alls var slátrað um fjögur þúsund
fjár í haust og er dalurinn þá án alls.
sauðfjár í vetur og fram á haustiö
1989.
„Má segja að hér
sé alK í biðstoðiT
Gylfi Kiistjánsson, DV, Akureyri:
„Það má alveg eins segja aö hér sé
allt í biðstöðu," segir Armann Pét-
ursson á skjálftavaktinni við Mývatn
en hann hefur umsjón meö þeim
mælum er sýna skjálftavirkni og
landris á óróasvæðinu við Kröflu.
„Það hefur verið rólegt hér að und-
anförnu og htil hreyfing," sagði Ár-
mann. „Hæðin á landinu er svipuð
og í sumar og meiri hæð hefur ekki
verið hér áður.“
Ármann sagði að menn þyrðu ekki
að reikna með að þaö ástand væri
liðið. Búast mætti við frekari tíðind-
um frá Kröflu og auövitað væri hætta
á ferðum ef spenna myndi fara vax-
andi í jörðinni.
Pálmi Lórensson, veitingamaður í Vestmannaeyjum:
Fékk greiðslustöðvun
þegar bjóða átti upp
Pálmi Lórensson, veitingamaöur
í Vestmannaeyjum, hefur fengið
greiðslustöövun til þriggja mán-
aðá. Það var á fimmtudagsmorgun,
sjötta október, sem greiðslustöðv-
unin var veitt Þann sama dag og
næsta dag á eftir átti að fara fram
önnur nauðungarsala á sjö eignum
Pálma Lórenssonar.
Á miðvikudag lagði Pálmi Lór-
ensson fram beiðni um greiðslu-
stöðvun. Meðfylgjandi var greinar-
gerö um hvemig Pálmi hygðist
leysa sín mál ánþess að til uppboða
þurfi að koma. A grundvelli grein-
argerðar Pálma var honum veitt
greiðslustöðvun til 6. janúar 1989.
Hæstiréttur úrskurðaöi síöasthð-
iö vor að uppboðsmál á hendur
Pálma Lórenssyni ættu að fara
fram á ný. Á fimmtudag og fóstu-
dag var ætlun embættis bæjarfóg-
eta í Vestmannaeyjum aö hefja
uppboðsmáhn á ný. Fyrirsjáanlegt
er að allt aö þriggja mánaða bið
verður á framgangi uppboðsmál-
anna.
-sme
STÖDIN SEM HLUSTAD SR ’A!
4 TOPPNUM!
Hallgrímur Thorsteinsson
REYKJAVÍK SÍÐDEGIS - HVAD FINNST ÞÉR?
Hallgrímur á nýjum brautum i Reykjavik siðdegis, sem nú er vettvang-
ur fyrir hlustendur sem vilja koma skoðunum sínum á framfæri. Hall-
grímur svarar í síma 61 11 11 frá kl. 18.10-19.05 og spjallar við hlust-
endur um hvað sem er.