Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1988, Qupperneq 30
■30
FIMMTUDAGUR 13. OKTOBER 1988.
Lífestm
Steikin tilbúin á borðinu og borin fram með tómötum og spergilkáli.
Tilraunaeldhús DV
Lambalæri - íyllt með mptu og sveppum
Jafnið skinkublöndunni innan í læ-
riö, DV-myndir KAE
1 lambalæri (miðlungsstórt)
1 dl sérrí eða madeiravín
/i dl fínt söxuð myntublöð (fersk eða
þurrkuð)
200 g smátt saxaðir sveppir
2 msk. smjör
3 msk. smátt söxuð skinka
1-2 marin hvítlauksrif
% msk. edik (7%)
1 tsk. paprikuduft
salt og pipar
Úrbeinið lærið eins og sýnt er hér
á síðunum. Blandið myntu, svepp-
um, smjöri, skinku, hvítlauk, ediki,
paprikudufti, salti og pipar vel sam-
an. Hentugt er að blanda öllu saman
í blandara.
Smyrjið kjötið aö innan með blönd-
unni og bindið það þétt og snyrtilega
saman með bómullargarni.
Leggið lærið á grind yfir ofnskúöu
og hafiö nóg af vatni í skúffunni.
Vatnið og soðið af kjötinu er síðan
notað í sósuna.
Setjið kjötið inn í 180° heitan ofn
og steikið í ca l'A tíma eða þar til
kjöthitamælirinn sýnir 70°. Kjötiö á
að vera ljósrautt við miðju.
Látið kjötið bíða í 10-15 mínútur
og gerið sósuna á meöan.
Sósan:
Soðið úr ofnskúífunni er síað í pott
og það mesta af fitunni fleytt ofan af.
í soðið er settur /i dl af fínt sax-
aðri myntu (ferskri eða þurrkaðri).
Bragðbætið sósuna með sérríi, salti
og pipar.
Berið steikina fram með ofnbökuö-
um kartöflum, spergilkáli og fylltum
tómötum eða því grænmeti sem til-
tækt er hverju sinni.
-JJ
Bindió utan um lærió með bómullargarni, þétt og snyrtilega. Ekki er víst
að öll fyllingin komist í lærið enda ekki nauðsynlegt.
Lambalæri meö blaðlauksböku
Hvítlaukur og rauöur pipar gefa
þessari lambasteik sérstakt og fram-
andi bragð. Sömu aöferð má nota við
að krydda úrbeinaðan lambabóg en
þá er kryddið minnkað um helming.
Lambalæri fyllt með hvítlauk og
rauðum pipar
2-2 Vi kg lamabalæri
4 hvítlauksrif
1-1 /i ferskur eða þurrkaður pipar
1 Vi tsk. salt
Sósan:
1 msk. smjör
4 msk. tómatmauk
2 teningar grænmetiskraftur
5 dl vatn
2 msk. sojasósa
síað soðið af kjötinu
Úrbeinið kjötið eins og sýnt er hér
að ofan. Hitið ofninn í 175°. Merjið
hvítlaukinn eða saxið mjög smátt.
Takið fræin úr pipamum og saxið
hann mjög smátt. Setjið blönduna
innan í kjötið og saltið.
Bindið kjötiö saman og leggið á
grind yfir ofnskúffu. Setjið kjöthita-
mælinn í mitt kjötið og steikið þar
til mælirinn sýnir 72°, eða í u.þ.b.
V/t-V/i klukkustund. Hafið vatn í
ofnskúfunni á meðan á steikingu
stendur.
Takið kjötið úr ofninum og látið
bíða í tíu mínútur áður en bandiö er
tekið af því og kjötið sneitt niður.
Sósan:
Bræðið smjörið í potti og hrærið
tómatmaukinu saman við. Blandið
síðan afganginum af efnunum saman
við og látið sjóða. Bragðbætið sósuna
eftir smekk og berið fram vel heita.
Berið kjötið fram með papriku-
sneiðum og blaðlauksböku.
Blaðlauksbaka
4 dl hveiti
200 g smjör/smjörlíki
2 msk. vatn
Fyllingin:
200 g smálaukar, 10 stk.
1 lítill blaðlaukur
3 egg
2 dl rjómi
% tsk. salt
Hitið ofninn í 175°. (í blástursofni
má hita bökuna um leið og kjötið er
steikt.) Myljiö smjörið út í hveitiö og
vætiö í meö vatninu. Hnoðið vel.
Klæðið smurt bökumót með deiginu.
Afhýðið smálaukana og sjóðið í tíu
mínútur. Hreinsið blaðlaukinn og
skerið í þunnar sneiðar. Steikið blað-
laukinn í smjörinu án þess hann
brúnist.
Bakið deigskelina í 10 mínútur.
Þeytið saman egg, rjóma og salt og
blandið blaðlauknum síðan saman
viö.
Dreifið smálaukunum yfir böku-
skelina og hellið blaðlauksblöndunni
yfir. Bakið bökuna í 10 mínútur eða
þar til fyllingin stífnar og tekur Ut.
-JJ