Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1988, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1988, Qupperneq 12
12 LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 1988. Erlendbóksjá * *cx*ax» « * wm WftRt MIMMCXU. W»«WJUCt«r> <MBftí «*- WOMtfltitvtit ALEXAMDERBORBÉLY Af hverju þurf- umvið að sofa? Þaö hefur lengi vafist fyrir vís- indamönnum aö komast til botns í því, hvaða hlutverki svefn og draumar gegna í lífi mannsins. Hvers vegna þurfum viö að sofa? Hvers vegna dreymir okkur? Einn þeirra vísindamanna. sem þekktur er fyrir rannsóknir á svefni og draumum, er svissneski prófessorinn Alexander Borbély. I þessari bók rekur hann rann- sóknir sínar og annarra á svefni bæði manna og dýra. í læsilegri frásögn hans kemur fram aö þekking vísindamanna á þessum fyrirbrigðum, sem hafa lengi valdiö ýmsum miklum heilabrotum, hefur aukist stór- lega á undanfórnum árum. Meö skipulögðum mælingum hefur þannig tekist aö greina ólík stig svefns, en þær breytingar eru meðal annars tengdar draumun- um. En þrátt fyrir stórstígar framfarir er margt enn á huldu um orsakir og áhrif, eðli og til- gang svefns og drauma. Mörgum lykilspurningum er því enn ósvarað, eins og prófessorinn við- urkennir í bókarlok. SECRETS OF SLEEP. Höfundur: Alexander Borbély. Penguln Books, 1988. ARÁBELLA MELVILLE AND COLIN JOHNSON IMMUNITY HOW TO BE HEALTHYIN AN AGE OFNEWINFECTIONS Heilbrigt líf Hvernig á að verja sig gegn þeim farsóttum sem herja á okk- ur í nútímanum? Með því aö hugsa betur um sjálfan sig og efla varnir líkam- ans segja höfundar bókarinnar „Immunity plus“. Þau leggja þar megináherslu á fimm atriði: Að boröa nóg af góðum mat. Að forð- ast mengun, sérstaklega þó tó- baksreyk. Aö reyna á sig líkam- lega á reglubundinn hátt. Að hvíla sig nægilega. Að hugsa já- kvætt um sjálfan sig. Allt virðist þetta nú vera nokkuð sjálfsagt, en eins og höfundarnir benda á hefur mörgum reynst erfitt að beina lífsvenjum sínum inn á svo heilbrigðar brautir. Aöalkostur bókarinnar er þó sú fræðsla sem þar er veitt um hvernig best sé að veijast smiti af ýmsu tagi. Þar er bæði fjallað um minni háttar farsóttir og al- varlegar, svo sem kvef, flensu, salmonellusýkingu og eyöni. Þá eru einnig ráð gegn ofnæmi af ýmsu tagi og leiðir til aö auka mótstöðuafl gegn alvarlegum sjúkdómum eins og krabbameini. IMMUNITY PLUS. Höfundar: Arabella Melville og Colin Johnson. Penguin Books, 1988 Hver myrti saksóknarann? Það gengur mikið á þegar aðstoðar- saksóknari í bandarískri borg, ung og fógur kona, finnst myrt í íbúð sinni. Ekki síst vegna þess að kosn- ingar standa fyrir dyrum og hart er deilt um dugnaö eða dugleysi lög- regluyfirvalda við að upplýsa afbrot í bænum. í þessu andrúmslofti pólitískrar og persónulegrar baráttu berast böndin að lögregluforingja sem fékk það verkefni að stjórna rannsókn morð- málsins. Hann er nefnilega einn margra sem stóð í ástarsambandi við aðstoðarsaksóknarann og ýmis verksummerki benda til þess að hann sé morðinginn. Hann er því handtekinn og ákærður fyrir morðið. En er hann sekur? Það er lykilspurningin í þessari æsispennandi sakamálasögu og henni er ekki svarað fyrr en undir lokin. Öll sönnunargögn benda ein- dregið til þess að lögregluforinginn sé sekur. En hann fær sér afar sleipa lögfræðinga sem reyna að sanna að sum þeirra gagna hafi verið „lag- færð“ af ákæruvaldinu í póhtískum tilgangi. Höfundur þessarar bókar, sem er lögfræðingur, blandar hér saman glæpasögu og lýsingu á pólitískum átökum í bandarískri borg þar sem kosið er til allra æðstu embætta, m.a. í löggæslu, en slíkt fyrirkomulag býður gjaman upp á pólitískan þrýsting á gang sakamála og í sum- um tilvikum fjárhagslega spilhngu og mútustarfsemi. Stundum er sagt um spennusögur að þær verði vart lagðar niöur fyrr en komið er að bókarlokum. Það á vel við í þessu tilviki. PRESUMED INNOCENT. Höfundur: Scoft Turow. Penguln Books, 1988. Hvað er á bak við grímumai? Það á enn frekar við um Salvador Dalí en flesta aðra listamenn að hann gerði líf sitt að eins konar listaverki. Dalí bjó sífellt til ný hlútverk fyrir sjálfan sig; setti upp nýjar grímur og beindi þannig að sér kastljósi íjöl- miðla og listunnenda. Þessar margbrotnu grímur Dalí hafa sett ævisöguritara í mikinn vanda. Hvað er raunveruleiki og hvað er skáldskapur hans sjálfs? Er yfirleitt hægt að trúa nokkrum hlut sem hann hefur sagt um sjálfan sig? Er mögulegt að komast á bak við all- ar grímumar og horfast í augu við Dalí sjálfan? Höfundur þessarar ævisögu fer hefðbundnar leiðir í leit að Salvador Dalí. Hún hefur rætt við fjölda fólks sem átt hefur samskipti við hsta- manninn einhvern tíma á ferli hans, aht frá barnæsku til elháranna. Þar á meðal em ýmsir sem hafa verið honum mjög nákomnir á sumum tímaskeiðum í lífi hans. Þær upplýs- ingar, sem hún hefur aflað sér með þessum hætti og hefðbundinni könn- un annarra gagna, ber hún svo sam- an við yfirlýsingar Dalí sjálfs, bæði í sjálfsævisögunni og á öðrum vett- vangi gegnum tíðina. Secrest fer þá leið að blanda hér saman annars vegar frásögn af lit- skrúðugum æviferli Dalí og sambúð hans við sína nánustu og aðra lista- menn og hins vegar leit sinni að sannleikanum um þennan sérstæða listamann. Þessi aðferð gefst hér vel eins og oft áður. Ömurleiki síðustu ára Dalí, sérstaklega eftir að hann lenti í eldsvoða árið 1984, fær hér ít- arlega umfiöllun, þótt þungamiðja verksins sé líf og starf listamannsins á hugmyndaríkustu sköpunarárum hans. Bókina prýða nokkrar ljósmyndir af Dalí, konu hans Gala og sumum nánum samstarfsmönnum. Einnig fylgir skrá um nokkrar helstu bæk- ur, þar sem fiallað er um ævi Dalí og listaverk, og listi yfir skrár sem gefnar hafa verið út vegna sýninga á verkum hans. SALVADOR DALÍ: THE SURREALIST JESTER. Höfundur: Meryle Secrest. Paladin Grafton Books, 1988. Metsölubækur Bretland Söluhæstu kitjurnar: 1. Dick Francis: THE EDGE. 2. D. Adams: THE LONG DARK TEA-TIME OF THE SOUL. 3. Jelfrey Archer: A TWIST IN THE TALE. 4. Salman Rushdie: THE SATANIC VERSES. 5. David Lodge: NICE WORK. 6. Joan Collins: PRIME TIME. 7. Cleese & Booth: COMPLETE FAWLTY TOWERS. 8. Bruce Chatwln: UTZ. 9. Graham Greene: THE CAPTAIN AND THE ENEMY. 10. Jilly Cooper: RIVALS. Rit almenns eðiis: 1. Maureen Lipman: SOMETHING TO FALL BACK ON. 2. Richard Elimann: OSCAR WILDE. 3. Elkington & Haíles: THE GREEN CONSUMER GUIDE. 4. Keith Floyd: FLOYD ON BRITAIN & IRELAND. 5. Bob Ogley: IN THE WAKE OF THE HURRI- CANE. 6. James Oram: NEIGHBOURS: BEHIND THE SCENES. 7. Rosemary Conley: THE HIP AND THIGH DIET. 8. Eamon Dunphy: UNFORGETTABLE FIRE: THE STORY OF U2. 9. Jílly Cooper: TURN RIGHT AT THE SPOTTED DOG. 10. John Stalker: STALKER. (Byagl á The Sunday Times) Bandarikin Metsölukiljur: 1. Stephen King: THE DARK TOWER: THE GUNSLINGER. 2. Margaret Truman: MURDER IN THE CIA. 3. John Jakes: HEAVEN AND HELL. 4. Píers Anthony: HEAVEN CENT. 5. Jude Deveraux: THE MAIDEN. 6. Gail Godwin: A SOUTHERN FAMILY. 7. Harold Coyle: TEAM YANKEE. 8. Marilyn Frence: HER MOTHER’S DAUGHTER. 9. Louis L’Amour: LONIGAN. 10. Gar og Judith Reeves-Stevens: MEMORY PRIME. 11. Tom Clancy: PATRIOT GAMES. 12. V. C. Andrews: FALLEN HEARTS. 13. Scott Turow: PRESUMED INNOCENT. 14. Martha Grimes: THE FIVE BELLS AND BLADE- BONE. 15. Toni Morrison: BELOVED. Rít almenns eðlis: 1. Ann Rule: SMALL SACRIFICES. 2. Bernle S. Siegel: LOVE, MEDICINE & MIRACLES. 3. M. Scott Peck: THE ROAD LESS TRAVELED. 4. Joseph Campbell, Bill Moyers: THE POWER OF MYTH. 5. Peter Wright/Paul Greengrass: SPYCATCHER. 6. Bob Woodward: VEIL. 7. Pamela Des Barres: l’M WITH THE BAND. 8. Suzanne Somers: KEEPING SECRETS. 09. Shirley MacLalnc: trS ALL IN THE PLAYtNG. 10. Allan Bloom: THE CLOSING OF THE AMEfliC- AN MIND. 11. Joseph Campbell: THE HERO WITH A THOUSAND FACES. (Byggt á Now York Times Book Review) Danmörk: Metsölukiljur: 1. André Brink: PESTMUREN. (1). 2. Isabel Allende: ANDERNES HUS. (2). 3. Klrsten Thorup: HIMMEL OG HELVEDE. (10) 4. Jean M. Auel: HULEBJORNENS KLAN. (3). 5. Jean M. Auel: MAMMUTJÆGERENE. (4). 6. Isabelle Allende: KÆRLIGHED OG M0RKE. (6). 7. Milan Kundera: TILVÆRELSENS ULIDELIGE LETHED. (7). 8. Jean M. Auel: HESTENES DAL. (5). 9. SMAGSPR0VER. (-). 10. Herman Bang: VED VEJEN. (8). (Tölur Innan sviga lákna röð bókar vikuna A undan. Byggt á Polltikon Sondag.) Umsjón: Elías Snæland Jónsson Frakkland nútímans Hvemig hefur daglegt líf al- mennings í Frakklandi breyst á síðustu áratugum og þá alveg sérstaklega í valdatíð sósíalistans Mitterrands? Þeirri spurningu svarar breski blaðamaðurinn John Ardagh í löngu og ítarlegu máli í nýrri út- gáfu bókar sinnar um franskt þjóðlíf. Hann leggur meginá- herslu á að sýna breytt viðhorf og lífskjör almennings á undanf- ömum árum og gerir nokkra grein fyrir áhrifum ríkjandi stjórnarstefnu á mannlífið. Hér eru ítarlegir kaflar um vandamál dreifbýlisins og kröf- urnar um aukna sjálfsstjóm ein- stakra héraða, landbúnaðar- vandann hrikalega, baráttuna fyrir bættum lífsgæðum í stór- borgunum, breytta stöðu fiöl- skyldunnar, áhrif vaxandi vel- megunar á lífsstíl almennings, vandamálin sem bíða úrlausnar í skólamálum og framþróun eða afturfór í menningu og hstum þar sem frumleg listsköpun hefur verið í verulegri lægð. Ardagh hefur sem blaðamaður haft löng kynni af Frökkum og býr yfir mikilli þekking á frönsk- um málefnum. FRANCE TODAY. Höfundur: John Ardagh. Penguin Books, 1988. í regnskógi hugaróra Mo, sem er mannfræðingur að mennt, horfir með hryllingi á hvernig öldur tfifinninga koma afdrifaríku róti á líf sumra félaga hennar og samstarfsmanna. Það er því keppikefli hennar að hafa sem best skipulag á lífi sínu og starfi. Öllu skal raðað í afmark- aöa fleti, böndum komið á óskapnað stjórnlausra tilfinn- inga. En innra með Mo búa sterkar langanir og þegar hún er við rannsóknir í regnskógum Borneó, fiarri þeirri vernd sem veggir háskólans veita, reynist henni harla erfitt að hafa stjórn á tilfinningum sínum. Böndin bresta og breyta lífi hennar. Það er stundum nokkuö snúið að gera sér grein fyrir mörkum hugaróra og raunveruleika í þessari forvitnilegu skáldsögu, þar sem sterkar tilfinningar verða skynseminni yfirsterkari svo um munar. RAINFOREST. Höfundur: Jenny Dlski. Penguin Ðooks, 1988.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.