Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1989, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1989, Síða 2
2 MÁNUDAGUR 6. FEBRÚAR 1989. Fréttir Fimmta einvígisskák Jóhanns og Karpovs: Meistaraleg drottningarfórn tryggði Karpov jafntefli „Átti ekki von á því aö vinna þriðju skákina,“ sagöi Karpov Jón L. Ámason, DV, Seattte: Áhorfendur í Lakeside skólanum í Seattle klöppuðu Jóhanni Hjartar- syni og Anatoly Karpov lof i lófa er þeir tókust í hendur og innsigluðu jafntefli í 5. einvígisskákinni, sem lauk um hálffimm í morgun að ís- lenskum tíma. Jóhann bauð Karpov jafntefli er hann sá enga möguleika lengur í stöðunni. Þar með sigraði Karpov í einvíginu, hlaut 3,5 v. gegn 1,5 vinningum Jóhanns. Skákmeistararnir sátu í um hálfa klukkustund á sviðinu að skákinni lokinni og skoðuðu möguleikana. Skákin var mjög spennandi, staðan flókin og vandmetin framan af eftir spænska byrjun. Karpov fómaöi peði og síðan kom hann öllum á óvart með því að láta drottninguna fyrir hrók og biskup. Fléttan tryggði hon- um jafntefli því að Jóhann komst hvergi í gegnum vamarmúrinn. „Þetta var besta skákin í einvíg- inu,“ sagði Karpov í stuttu spjalli við DV, „en Jóhann langaði til að tapa henni,“ bætti hann við. „Er hann bauð jafntefli ætlaði hann aö leika drottningu sinni á d3 en þá hefði hann tapaö taflinu," sagði Karpov og rakti afbrigðin. Karpov kvaðst ekki hafa átt von á því að vinna 3. skákina með svörtu mönnunum - eftir það hefðu úrslit í einvíginu nánast verið ráöin. „Jó- hann gerði hræðileg mistök í þeirri skák er hann lék riddara sínum frá b5 til c3,“ sagði Karpov. „Einvigiö var áhugavert, einkum frá fræöileg- um sjónarhóli. Allar skákimar höfðu þýöingu fyrir byrjanafræðina." Skák Jón L. Árnason Hvítt: Jóhann Hjartarson Svart: Anatoly Karpov Spænskur leikur I. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. (W) Be7 6. Hel b5 7. Bb3 d6 8. c3 0-0 9. h3 He8 10. d4 Bb7 11. a4 í þriðju skákinni tók Jóhann aðra stefnu, með þvi aö leika 11. a3, en þar kom hann ekki að tómum kofunum. Textaleikurinn er skarpari enda er nú að duga eða drepast. II. - h6 12. Rbd2 Bf8 13. Bc2 exd4 14. cxd4 Rb4 15. Bbl bxa4 Karpov tók sér góðan tíma á fyrstu leikina. Hann hefur eflaust óttast heimarannsóknir Jóhanns eftir 15. - c5 16. d5 Rd7 17. Ha3, eins og Kasp- arov og Karpov hafa í tvígang teflt. Hann sneiðir hjá þessu „tískuaf- brigði" og hverfur aftur að leik sem hann lék sjálfur gegn Balashov á Skákþingi Sovétríkjanna 1983. 16. Hxa4 a5 17. Ha3 Ha6 18. Rh2 Fram að þessu haföi Jóhann aðeins eytt 6 mínútum en nú hugsaði hann í 25 mínútur. Balashov lék 18. Hae3 en komst lítt áleiðis. g6 19. Rg4 Rxg4 20. Dxg4 c5! Þetta mun vera nýr leikur í stöð- unni. Svartur nýtir tækifærið til að bijóta upp miðborðsstöðuna meðan hvítur getur ekki svarað með 21. d5 - svartur myndi einfaldlega drepa á d5, því að e-peðið er leppur. 21. dxc5 dxc5 22. e5 Dd4 23. Dg3 Reynir að halda spennunni í stöð- unni en þetta er tvíbentur leikur. Svartur kemur sér nú vel fyrir á miðborðinu. Mögulegt var að fara í drottningakaup en svartur ætti að halda sínu í endataflinu. 23. - Hae6 Eftir langa umhugsun. Flestir bjuggust við 23. - c4!? strax, sem hót- ar 24. - Rd3. 24. Hae3 c4 25. Bf5! Jóhann átti hálfa klukkustund eftir er hann hafði lokið þessum leik, Karpov 48 mínútur. „Staðan er afar tvísýn," sagði stórmeistarinn Benj- amin í skákskýringasalnum og klór- aði sér í kollinum. Næsti leikur Karpovs er nánast þvingaður því að ekki getur hann leyft 25. - H6e7? 26. e6! o.s.frv. með sterkri sókn. 25. - Rd3 26. Bxd3 Ekki 26. Bxe6? Hxe6 og riddari svarts ræður ríkjum á borðinu. Jó- hann virðist nú vera að vinna peö en Karpov hefur snjall Hxcl Karpov hefur fengið hrók og bisk- up fyrir drottninguna og nú hótar hann að tvöfalda hrókana á 1. reita- röðinni. Staða svarts er afar traust og hvergi snöggan blett að sjá. 30. Rf3 Hc5! 31. Hd7 Bxf3! 32. Dxf3 Hf5 Jóhann tapar nú f-peðinu, því að 33. Dg3 Bg7! með hótuninni 34. - Be5 er hagstætt svörtum. Hann tók því þann kostinn að bjóða jafntefli og Karpov var fljótur að þiggja. Ætlun Jóhanns var að leika 33. Dd3 (að sögn Karpovs er best að leika 33. Ddl Hxf2 34. Hd2 með jafntefli) en eftir skákina benti Karpov á að þessi leikur tapar. Framhaldið yrði 33. - Hxf2 34. Hd8 Hxd8 35. Dxd8 Hxb2 36. Dxa5 Bd6 + 37. Kgl Bg3! 38.Dd8 + Kh7 39. Ddl h5 og síðan leikur svartur h5-h4 og hvitur er vamarlaus gagn- vart tilfæringunni Hf2-f5-e5 Jóhann Hjartarson: „Erfitt að fá frum- gegn Karpov“ Eftir jafnteflisskák þeirra Jóhanns Hjartarsonar og Karpovs í nótt er ein- víginu lokió meó sigri Karpovs. Hann fékk þrjð og hálfan vinning gegn ein- um og hálfum vinningi Jóhanns. Með þeim á myndinni er Carol Jarecki skákdómari. Austfirðir: Allir vegir eru ófærir kvæði Jón L. Ámason, DV, Seattle: „Að loknu þessu einvígi flnnst mér mestu skipta sú reynsla sem íslensk- ir skákmenn í fremstu röð hafa öðl- ast við þetta og hún á vonandi eftir að koma að góðum notum síöar," sagði Jóhann Hjartarson í samtali við DV eftir að hann og Karpov höfðu samið um jafntefli í fimmtu einvígis- skákinni. „Ég hefði getað geflð mér betri tíma til undirbúnings en spurning er hverju það hefði breytt. Mér finnst kjánalegt að eyða öllum kröftum í eitt sex skáka einvígi sem tekur tvær vikur og láta allt annað sitja á hakan- um. Annars var undirbúningurinn mjög góður en það er erfitt að eiga við svona gengi sem Karpov hefur í kringum sig. Hann er með nýjungar Amarflugsmaliö: Viðbrögð fráKLM „Við höfum fengið viðbrögð frá KLM og fleirum en máhð er á það viðkvæmu stigi að útilokað er aö fjalla ítarlega um þátt einstakra fjár- magnsaöila fýrir opnum tjöldum. Máhð er enn mjög opið,“ sagði Krist- inn Sigtryggsson, forstjóri Amar- flugs, viö DV. „Það er verið að reyna að setja saman dæmi sem gengur upp þannig aö fyrirtækið geti starfaö áfram án greiðsluerfiðleika. Lausn sú sem reynd var fyrir tveimur árum reynd- ist of lítil og við ætliun ekki að brenna okkur á því aftur." -hlh á takteinum sem ekki er hægt aö átta sig á nema með mikilli yfirlegu." „Karpov virðist hafa óvenju þrosk- aöa óttatilfinningu og finnur á sér þegar verið er að brugga honum launráð. Það er erfitt að tefla við Skák Jón L. Árnason hann - erfitt að fá frumkvæði í skák- unum, sem maður er vanur aö fá gegn öðrum í a.m.k. annarri hverri skák. Hann er gríðarlega öruggur skákmaður. Ég er ekki ánægður með tafl- mennsku mína en gangur einvígisins kemur þó ekki á óvart. Mér fannst erflðast að eiga við hann í byrjunum. Þegar hann er kominn með betra mega menn hafa sig alla við aö halda sínu. Mér tókst að koma honum á óvart í 4. skákinni og þá gat ég teflt við hann á jafnréttisgrundvelli,“ sagði Jóhann Hjartarson. Mörg verkefni bíða Jóhanns að loknu einviginu við Karpov. Næst heldur hann á stórmeistaramótið í Linares sem hefst 18. þessa mánaður. Karpov verður einnig meðal þátttak- enda þar en mótið verður af 16. styrk- leikaflokki. Síðan teflir Jóhann á fjögurra manna móti í Amsterdam, ásamt Short, Timman og Ivantsjúk. í apríl er heimsbikarmótið í Barcel- ona á dagskrá og heimsbikarmót í Rotterdam bíður Jóhanns í júní. Nánast allir vegir á Austfjörðum voru ófærir í morgun. Vegna mikill- ar snjókomu var ekkert farið að huga að mokstri. í gærkvöld féllu tvö snjó- flóð á veginn í Vattamesskriðum sem hggur á milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar. Ófært er á milh ahra þéttbýhsstaöa á Austurlandi. í morgun var versta veðurvíðafyriraustan. -sme Skýring á t£ Peysai ipi Jóhanns: hvarf sér til Seattle en önnur peysa átti þó að íæra Jóhanni lukku, skák- Jíra L. Ámasan, DV, Seatde íslendingamir sem fylgdust með einvíginu í Seattle höfðu skýringar á reiðum höndum á því hvers vegna Jóhann beið lægri hlut. Þeir peysa sem FUippía Sigurðardóttir á Húsavík prjónaði og sendi Halh. Hahur pakkaöi peysunni niður í teiju orsoKiud vera amaruuu peysuhvarf. Hallur Hallsson, fréttamaður þjá Skák Sjónvarpinu, vakti þjóðarathygh er Jóhann gllmdi við Kortsnoj i Jón L. Árnason Saint John fyrír grænu peysuna sfna. Sumir trúöu þvf að Jóhann ynni þegar Hallur væri f peysunní, en tapaði annars. Hallur haföi grænu peysuna með feröatösku en er hann var kominn th Seattle fannst hún ekki, hvemig sem hann leitaði. Þykir þetta peysuhvarf með raestu ólfMndum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.