Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1989, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1989, Page 14
14 MÁNUDAGUR 6. FEBRÚAR 1989. Frjálst.óháÖ dagblaö Útgáfufélag: FRJALS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÖNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Askriftarverð á mánuði 800 kr. Verð í lausasölu virka daga 75 kr. - Helgarblað 90 kr. Ríkissjóðshallinn Hallinn á iiKissjóði er áætlaður rúmir sjö milljarðar króna á siðasta ári. Er þó engan veginn víst að öll kurl séu komin til grafar því þetta eru bráðabirgðatölur. Fjár- málaráðuneytið hefur áður gefið út bráðabirgðatölur og það er i .ki lengra síðan en í september að ráðuneyt- ið spáði sjö hundruð milljóna króna halla. Nú hefur sú tala tífaldast. Æth halhnn fari ekki að nálgast tíu mhlj- arða áður en yfir lýkur? Menn geta velt tveim ríkisstjórnum upp úr þessum hroðalegu niðurstöðum. Stjórnmálaflokkarnir munu eflaust hefja rifrildi um það hverjum sé um að kenna. Almenningur mun auðvitað ekki verða neinu nær og sú deila mun aðeins undirstrika ábyrgðarleysið sem ríkir á þessum vettvangi. Sömuleiðis er hægt að hafa ríkissjóðshahann í flimtingum og hæðast að óráðsíunni og vanþekkingu ráðuneytisins á stöðu ríkisijármálanna. Það er með hreinum ólíkindum hvernig hægt er að áætla í september sjö hundruð mihjónir í haha þegar hann reynist svo sjö milljarðar þegar upp er talið. En fjármál ríkisins eru ekki gamanmál og þjóðfélagið er htlu bættara þótt skuldinni sé skeht á þennan eða hinn. Halli á fjárlögum er ekki nýtt fyrirbæri og hefur verið fylgifiskur flestra fjármálaráðherra þótt sjaldan eða aldrei hafi hann verið eins geigvænlegur og nú. Auðvitað eru th skýringar á þessum halla og eru þar nefndar til sögunnar minni tekjur og margvíslegar björgunaraðgerðir fyrir atvinnuhfið sem ekki skal gert htið úr. Ástæða er líka th að halda að ýmsum og stórum útgjöldum hafi verið velt yfir á síðasta ár rétt fyrir ára- mótin og þannig slakað á aðhaldi og bremsum. Kjarni málsins er samt sá að ríkisfjármálin eru í dæmalausum ólestri. Útgjöldin fara fjóra mihjarða fram úr áætlun, án tihits th tekjuhhðarinnar. Þrátt fyrir fóg- ur loforð og fyrirheit virðist bruðhð taumlaust og eyðsl- an óseðjandi þegar ríkisreksturinn er annars vegar. Sama hver á í hlut. Aðhaldsaðgerðir eru boðaðar á hveiju ári og af hverjum fjármálaráðhera en þegar upp er staðið blasir sama niðurstaðan við. Halh og aftur halh. Rekstur íslenska ríkisins er ekki mikhl eða merkheg- ur í samanburði við önnur þjóðfélög. Fjárlögin eru minni en í meðalstóru fyrirtæki erlendis. Auðvelt er að hafa yfirsýn yfir slíkan rekstur. Það er á færi eins eða tveggja Qármálastjóra hjá vel reknum fyrirtækjum. Ef fjármálastjóri í einkageiranum skilaði frá sér þeim haha, sem nú blasir við hjá íslenska ríkinu, væri hann umsvifalaust rekinn. Hér á íslandi er fjármálaráðherra ekki alráður. Hann býr við fjölmennisstjórn þar sem meðráðherrar hans eru með í ákvarðanatökunni. Hann er háður pólitískri stjórn, hann er upptekinn við aðra stjórnsýslu, bundinn lögum og lögbundnum útgjöldum og mannahaldi, sem gera honum erfitt fyrir. Þær hugmyndir hafa verið settar fram að binda skuli í stjórnarskrá að Qárlög fari ekki fram úr ákveðnu hlut- falli af þjóðartekjum. Þetta er ein hugmynd og ekki verri en hver önnur. Það þarf að stöðva þann hugsunar- hátt að ríkissjóður sé botnlaus hít. Skuldir ríkissjóðs við Seðlabankann kosta einn og háhan mihjarð í vexti. Ríkissjóðshallinn kahar á meiri skatta. Þetta gengur auðvitað ekki lengur. Það vantar aðhald, ábyrgð og vald til að stemma stigu við stjórnlausum ríkisrekstri. Ríkissjóðshahinn er ekkert gamanmál. Ehert B. Schram Nú er (möskva)- mælirinn að verða fullur í DV á miðvikudagimi var réðst fram á ritvöliiim vörpulegur starfs- maöur Landhelgisgæslu íslands með ýmsar aðdróttanir í garð þess fyrirtækis er undirritaðir starfa hjá. Margt var skemmtilegt í grein þessari og þykir okkur t.d. vænt um að sjá starfsmanninn kvarta undan því að fiskimenn séu að „verja í gríð og erg framleiðand- ann“ (þ.e. Hampiðjuna). Kannski sjómenn geri það vegna þess að á milli þeirra og Hampiðjunnar ríki gagnkvæmur skilningur á þeim málum sem fengist er viö hveiju sinni? Hampiðjan hefur ævinlega kappkostað að eiga gott samstarf við þá aðila er henni tengjast. Má þar t.a.m. minna á víðtækar rann- sóknir á hegðun fisks gagnvart veiðarfærum, sem Hampiðjan hef- ur staðið að í samvinnu við Haf- rannsóknastofnun, veiðarfæra- gerðir og sjómenn. Einnig má nefna samvinnu Hampiðjunnar, Hafrannsóknastofnunar, sjávarút- vegsráðuneytis og Landhelgis- gæslu þegar reglugerö um 155 mm lágmarksmöskvastærð í þorsk- pokum var sett áriö 1977. Löglegt verður ólöglegt Þetta góöa samstarf hélt síðan áfram í mörg ár, eða alit þar til á síðasta ári að Gæslan kaus að ijúfa það. Þau rof hófust þegar Land- helgisgæslan tók einhhða og án nokkurs samráðs, ekki einu sinni við viðkomandi ráðuneyti, í notkun nýjan möskvamæh sem mældi möskvann minni en sú aðferð sem hafði verið notuð í ellefu ár. Með því „dæmdu“ þeir ólöglegan, á einni nóttu, möskva sem hafði ver- ið löglegur í áratug. Umræddur starfsmaður segist ekki kannast við þær mæhreglur sem um ræðir, þ. e. að nota skuli 10 kg lóð neðan í möskvamæhnn leiki vafi á um mæhnguna. Svo kann að vera. Því látum við úr- drátt úr bréfi sjávarútvegsráðu- neytis fylgja hér með, en í því voru fyrirmæli þess til Landhelgisgæsl- unnar um mæhaðferðir. Betra seint en aldrei. Möskvasvindl fyrir sunnan- skip Er þá komið að aivarlegri hluta greinarinnar, þar sem ýjað er að þvi að Hampiðjan hnýti vísvitandi þorskpoka með minni möskvum fyrir skip frá suðvesturhomi landsins en fyrir skip frá öðrum landshlutum. Þessi aðdróttun er í alla staði röng, fáránleg og jaðrar að okkar mati við atvinnuróg. Hvort svo er veröur lögfræðingum falið að kanna nánar. Öh net fyrirtækisins fyrir ís- lenskan markað eru hnýtt á ná- kvæmlega sama hátt og enginn greinarmunur gerður á því hvort þau eru seld norður, suður, austur eða vestur. í rökleiðslum, sem starfsmaðurinn byggir aðdróttanir sínar á, býr hann til forsendur um að pokarnir hafi þegar verið orðnir teygðir þegar Gæslan mældi þá, dregur þá tognun síöan frá niöur- stöðum mæhnganna og fær út úr því möskvastærö sem er töluvert undir lágmarksmöskva! Þetta er auðvitað gersamlega út í hött. Mis- munandi tognun á pokum sunnan- skipa og norðanskipa á sér eðhlega skýringu. Það er alkunna að mörg sunnanskipanna eru mest á karfa- veiðum en langtum minna á þorsk- veiðum. Þess vegna eru karfapokar sunnanskipa nokkuð teygðir en þorskpokar síður. Þá getur möskvi í poka, sem lítiö er notaöur, átt það til aö mælast örhtið minni með tím- anum þegar losnar um spennu í Kjallariim Gunnar Svavarsson forstjóri Guðmundur Gunnarsson sölustjóri hjá Hampiöjunni hf. garninu og frumþráðum þess eða er óhreinindi setjast í garnið. Einblínt með blinda auganu Starfsmaður Gæslunnar gerir einnig létt grín að þeim netum sem Hampiöjan framleiðir. Hann kveð- ur þau ekki þola sól, ekki að veðr- ast, þau þoli hvorki slor né gróður, ekki kulda og að netin hhti bara engum venjulegu lögmálum. Nú er það svo að netin þola þetta aht og það ágætlega enda hefur hráefni þeirra (polyethylen) orðið fyrir val- inu sem botntrohsefni hjá flestum þjóðum heims. Menn verða að skilja að verið er aö vinna með net sem búið er til úr teygjanlegum plastþráðum en ekki net steypt úr stáh. Horfi menn einstrengingslega fram hjá þessari staðreynd er ekki við góðu að búast. Það er ekki lengra síðan en í desember að einn yfirmaður Gæslunnar í landi lýsti því yfir í vitna viðurvist að þeir færu nú ekki að taka menn fyrir „smotterí", eins og hann orðaði það, og á þá væntanlega við nokkra millímetra tíl eða frá í möskva- stærð. En annað hefur verið uppi á teningnum. Skipi var nýlega snú- ið í land og skipstjóri færður fyrir dómstóla vegna fráviks í möskva- stærð sem nemur þykkt á haus á eldspýtu. Sé þetta sú alúð sem talað var um í umræddri kjallaragrein DV þá þykir okkur nú sem lög um vemdun fiskistofna séu túlkuð í gegnum blinda augað. Millímetrastríölð Vissir starfsmenn Landhelgis- gæslunnar hafa reynt að snúa möskvamálinu upp í mhhmetra- stríð gegn Hampiðjunni. En slíkt stríö hefði víðtækari áhrif. Útgerðir „...Landhelgisgæslan tók einhliöa og án nokkurs samráös, ekki einu sinni við viðkomandi ráðuneyti, í notkun nýjan möskvamæli sem mældi möskv- ann minni en sú aðferð sem hafði verið notuð í ellefu ár.“ Úrdráttur úr bréfi sjávarútvegsráðuneytis. „Möskvamælir í 55 mm möskva. - Þykkt eldspýtuhaussins skilur á milli ranglátra og réttlátra hjá Landhelgisgæslunnl." . nv?> h.andáraki. Samkvsrr.t þcssu ska.l 10 kc ÍÓÖ hcnct í spjaldiA, þe^ar vafi loikur á því hvort netió sé af löglegri ct.-crö eöa • ckki. Fari spjaldiö i gegnum möskvann stendur hann mal annars ekki. í landinu eiga þegar við nægan vanda að etja, þó ekki bætist við togstreita um mæliaðferðir og milhmetra, sem kosta útgeröirnar mihjónir. Einnig er afar óskemmti- legt fyrir skipstjóra að eiga það stöðugt yfir höfði sér að vera færð- ir til hafnar sem sakamenn fyrir það eitt að rækja starfið í góðri trú. En nú er mál að linni. Við mun- um á öðrum faglegum vettvangi gera nánari grein fyrir ýmsum at- riðum er snerta þetta mál. Sjávar- útvegsráðuneytið hefur fahð Haf- rannsóknastofnun að gera tihögur að breyttri reglurgerð um möskva- stærð botnvörpu og flotvörpu. Þær thlögur veröa væntanlegá kynntar hlutaðeigandi aðhum sem þá fá tækifæri th að koma athugasemd- um og ábendingum á framfæri. Það eru tilmæli okkar að menn fái vinnufriö við þetta verkefni og jafnframt er það eindregin von okkar aö hið góða samstarf, sem áður ríkti mhli allra hagsmunaað- ha í máli þessu, takist á nýjan leik. Þótt kjallaragreinarhöfundur hafi einungis óskað góðs samstarfs við sjómenn þá viljum við í Hampiðj- unni hafa það samstarf víðtækara og bjóðum m.a. Landhelgisgæslu fuha aðstoð og samvinnu í þessu máli. Gunnar Svavarsson, Guðmundur Gunnarsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.