Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1989, Síða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1989, Síða 21
(fpr 't f- f'TJíRHr,T ? SHT.'UíI’IMíVM MÁNUDAGUR 6. FEBRÚAR 1989. • Guðni Bergsson hefur betur ■ baráttu við Ralph Milne, sóknarmann Manchester United, í leiknum á Old Trafford í gær. Guðni komst ágætlega frá leiknum en var tekinn út af rétt fyrir leikslok. Simamynd Reuter Enska knattspyman: Enn einn sigur United - vann Tottenham, 1-0, á Old Trafford í gær Gunnar Sveinbjömsson, DV, Englandi; Óhætt að segja að Manchester United og Tottenham hafi valdið 40 þúsund áhorfendum á Old Trafford vonbrigðum, sem og öllum hinum sem sátu heima og horfðu á 1. deildar leik liöanna í beinni sjónvarpssend- ingu í gær. Leikurinn reis aldrei undir nafni en United vann sinn fimmta leik í röð, nú 1-0, og komst með þvi í 5. sæti 1. deildar. Fyrri hálfleikur var frekar slakur og báðum hðum gekk mjög erfiðlega að skapa sér færi. Hvorugt náði tök- um á miðjunni og því var mest um barning fram og til baka. Baráttan var mikil og fjórir leikmenn áminnt- ir en þó varð leikurinn aldrei grófur. Erik Thorstvedt, markvörður Tott- enham, varði ágætt skot frá Bryan Robson og sló yfir skot frá Clayton Blackmore. Leikmenn vöknuöu örhtið meira í síðari hálfleik sem var skömminni skárri á að horfa. United náði foryst- unni á 57. mínútu þegar Gordon Strachan sendi boltann á Mark Hug- hes, fékk hann aftur og sendi á McClair sem skoraði af markteig, 1-0. Skömmu síðar fékk Tottenham eitt sitt besta færi, David Howehs komst inn fyrir vörn Man. Utd eftir varnarmistök hjá Mal Donaghy og átti hörkuskot sem Jim Leighton varði á síðustu stundu. Leikmenn Tottenham höfðu greini- lega gleymt skotskónum í Lundún- um, sérstaklega Paul Stewart því hann fékk ein þrjú ágæt færi í síðari hálfleik. Skömmu fyrir leikslok, er hann skahaði fram hjá af markteig, varð ljóst að þetta var ekki dagur Tottenham. Guðni fellur betur og betur inn I leikTottenham Guðni Bergsson lék í sömu stöðu og fyrr hjá Tottenham, á hægri vængnum, og er ahtaf að falla betur og betur inn í leik liðsins en þarf greinilega meiri tíma. Hann átti þokkalegan leik, skhaði boltanum vel frá sér og gerði engin teljandi mistök. Guðni átti eitt marktæki- færi, skahaði beint á Jim Leighton eftir aukaspyrnu frá Casgoigne. Hon- um var skipt út af á lokamínútunum ásamt Howells og Mitchell Thomas og Paul Walsh komu inn á en það breytti engu - Tottenham tapaði og situr því enn fyrir neðan miðja 1. deildina. Waddle meiddist Chris Waddle, enski landshðsmað- urinn hjá Tottenham, varð fyrir meiðslum í nára í leiknum. Hann verður því’ekki með Englendingum er þeir mæta Grikkjum í vináttu- landsleik í Aþenu á miðvikudags- kvöldið og Bobby Robson hefur nú bætt Gary Pallister frá Middlesboro í hópinn. „Verðum að fara að vinna leiki“ Sigurður Jónsson lék á ný með til aö skora mörk. Annað marka Shefffeld Wednesday á laugardag- Villa var kolólöglegt, það voru ein- inn eftir að hafa afplánað þriggja ir þrír leikmenn hðsins rangstæðir leikja bann. Hann fór beint í byrj- þegar það var skorað. Við verðum imarhðiö en hann og félagar hans að fara að vinna leiki og ef það tekst höföu ekki erindi sem erfiði gegn veröum við fljótir aö fara upp töfl- Aston Viha á Viha Park í Birming- una því fá stig skilja okkur frá hð- ham og töpuðu 2-0. Sheff. Wed. er unum sem eru í efri hluta deildai-- nú í þriðja neðsta sæti 1. deildar innar,“ sagöi Sigurður í samtali við og hefúr ekki unnið leik í deildinni DV í gær. síöan í nóvember. Nigel Cahaghan, sem Aston ViUa „Þaö voru nokkur viðbrigði að keypö frá Derby á fimmtudag, byrja aö spila aftur eftir svona hlé skoraði strax á upphafsmínútum þó ég hafi auðvitað æft mjög vel á leiksins og David Platt bætti öðru meðan ég var í banninu. Við áttum marki viö áöur en fyrri háhleikur okkar færi í leiknum en klúðruðum var útL þeim iUa og vantar enn einhvern -VS Inter Milano er óstöðvandi enn taplaust í ítölsku 1. deildinni Inter Milano hefur þriggja stiga forskot að loknum fyrstu leikjum síð- ari umferðar ítölsku 1. dehdarinnar í knattspymu. í gær fékk Inter lið Torino og sigraði, 2-0, með tveimur mörkum frá Aldo Serena sem bæði komu á fyrstu 20 mínútum leiksins. Inter er enn taplaust eftir 16 leiki og hefur hlotið 28 stig, Napoli kemur næst með 25 og síðan Sampdoria með 22 stig. Napoli sigraði Pisa, 0-1, á útivelh. Andrea Carnevale skoraöi sigur- markið í fyrri hálíleik. Sampdoria vann Lazio, 1-0, heima með marki frá Roberto Mancini. Marco Van Basten tryggði AC Milano 2-0 útisigur á botnliðinu As- coh með því að skora eitt mark í hvorum hálfleik. Atalanta, sem er í 4. sæti, tapaði óvænt fyrir Lecce, 2-1, og Juventus mátti þakka fyrir 1-1 jafntefli í Pescara. Brasilíumaðurinn Tita kom Pescara yfir en Rui Barros frá Portúgal jafnaði fyrir Juventus. Loks vann Bologna 1-0 sigur á Fior- entina en þar brutust út ólæti meðal áhorfenda og fjórir voru fluttir á sjúkrahús. -VS £ íþróttif 1. deild: Arsenal - West Ham............2-1 Aston Villa - Sheff. Wed...2-0 Charlton - Norwich.........1-2 Derby - Southampton........3-1 Everton - Wimbledon........1-1 Luton - Nottm. Forest......2-3 Middlesbrough - Coventry...1-1 Newcastle - Liverpool......2-2 QPR - MillwaU..............1-2 Manch. Utd - Tottenham.....1-0 2. deild: Bamsley - Brighton.........2-2 Blackbum - Bradford........2-1 Bournemouth - WBA..........2-1 Ipswich - Cr. Palace.......1-2 Leeds - Sunderland.........2-0 Leicester - Hull...........0-2 Oldham - Watford...........3-1 Plymouth - Birmingham......0-1 Portsmouth - Manch. City...0-1 Shrewsbury - Stoke.........1-2 Walsall - Chelsea..........0-7 Swindon - Oxford...........3-0 3. deild: Aldershot - Northampton....5-0 Blackpool - Wigan..........2-0 Bristol Rovers - Cardiff...O-l Bury - Chesterfield........2-1 Chester - Reading..........3-0 Fulham - Huddersfield......1-2 Gillingham - Brentford.....0-0 Notts County - Mansfield...2-1 Port Vale - Wolves.........0-0 Sheff. United - Bolton.....4-0 Southend - Preston.........2-1 Swansea - Bristol City.....1-1 4. deild: Burnley - Torquay..........1-0 Carlisle - Scunthorpe......0-3 Crewe - Hereford...........2-1 Doncaster - Rochdale.......1-1 Exeter - Darlington........2-1 Grimsby - Wrexham..........0-1 Halifax - Stockport........2-2 Hartlepool - York..........0-1 Leyton Orient - Rotherham..3-1 Lincoln - Cambridge........3-0 Peterborough - Tranmere....1-1 Scarborough - Colchester...0-0 t --ZP— á England f stadan 1. deild: Arsenal .22 14 5 3 48-23 47 Norwich .23 12 8 3 35-25 44 Coventry ..23 10 7 6 32-23 37 Nott. For .23 9 10 4 34-26 37 Manch. Utd.. .23 9 9 5 32-19 36 Liverpool ..23 9 9 5 30-20 36 Millwall ..22 10 6 6 34-28 36 Derby ..22 10 5 7 26-17 35 Everton ..22 8 7 7 27-24 31 Middlesboro..23 8 6 9 30-35 30 Aston Villa... ,.23 7 8 8 33-36 29 Wimbledón. ..22 8 5 9 26-30 29 Tottenham.. ..23 6 8 9 33-35 26 Luton ..23 6 8 9 26-29 26 Southampton23 6 8 9 35-45 26 QPR ..23 6 6 11 24-24 24 Charlton ..23 5 8 10 25-34 23 Sheff. Wed... ..22 5 8 9 18-31 23 Newcastle... ..23 4 6 13 19-42 18 9.3 4 s 14 20-41 17 2. deild: Chelsea ..27 14 9 4 56-27 51 Man. City.... ..27 14 8 5 39-24 50 Watford ..27 14 5 8 41-28 47 Blackbum... ..27 14 5 8 44-38 47 WBA ..27 12 9 6 45-26 45 Cr. Palace.... ..26 11 8 7 41-33 41 Bamsley ..27 11 8 8 38-36 41 Leeds ..27 10 10 7 33-25 40 iDswich ..27 12 4 11 42-35 40 Sunderland...27 10 10 7 36-29 40 Boumem. ... ..27 12 4 11 30-32 40 Stoke ..27 11 7 9 34-44 40 Portsmouth...27 10 8 9 37-34 38 Swindon ..26 9 10 7 36-32 37 Plymouth.... ..27 10 6 11 35-39 36 Leicester ..27 9 9 9 33-37 36 Hull ..27 9 8 10 36-39 35 Bradford ..27 7 10 10 27-33 31 Oxford ..27 8 6 13 41^3 30 Brighton ..27 8 5 14 38-45 29 Oldham ..27 6 9 12 42-46 27 Shrewsbury ..27 4 11 12 22-40 23 Birmingham .27 4 7 16 19-50 19 Walsall ..27 2 8 17 21-51 14 Markahæstir í 1. deild: Alan Mclnally, A. Villa......21 Alan Smith, Ársenal..........19 Dean Saunders, Derby.........15 Mark Hughes, Man. Utd........14 Tony Cascarino, Millwall.....14

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.