Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1989, Síða 27
MÁNÚDAGUR 6. 'fÉBRÚá'r 198^
Ein skærasta handknattleiksstjaman hér á landi í DV-viðtali:
„Það kitlar
mig að leika
erlendis“
- segir ungi Hafhfirðingurinn úr FH, Héðinn Gilsson
Héðni Gilssyni, handknattleiks-
manni úr Hafnarfirði, skaut upp á
stjömuhimininn ekki alls fyrir
löngu. Þó ungur sé að árum hefur
Héðinn verið í landsliðshópnum frá
árinu 1986. Stærstu félagsliðin í Evr-
ópu hafa fylgst grannt með piltinum
og sum þeirra hafa lýst áhuga sínum
að fá hann til sín. Eins og kemur fram
í viðtalinu við Héðin verður þess
örugglega ekki langt að bíða að hann
hverfi á braut og spreyti sig með er-
lendu félagi og það jafnvel strax i
haust, hugur hans stefnir þangað.
Byrjaði að æfa
handbolta átta ára
Ekki er ólíklegt að Héðinn hafi feng-
ið áhuga að handknattleik frá foður
sínum, Gils Stefánssyni. Hann var
um árabil einn af okkar fremstu lí nu-
mönnum og vann fjölmarga íslands-
meistaratitla meö FH. Gils þótti einn-
ig sterkur varnarmaður og munu
eflaust margir, sem komnir eru á
miðjan aldur, eftir honum í því hlut-
verki.
„Ég byrjaði að æfa handknattleik
átta ára gamall og að sjálfsögðu með
FH, annað kom ekki til greina. Síðan
klifraði ég upp alla flokka félagsins.
Fyrsta íslandsmeistaratitilinn vann
ég á síðara ári í 3. flokki og tveir titl-
ar komu svo í röð fyrstu árin í 2.
flokki. Árin í yngri flokkunum voru
skemmtilegur og lærdómsríkur tími.
Ég var einnig að sprikla í fótbolta og
körfuknattleik en þessar íþrótta-
greinar heilluðu mig ekki. Að vísu
vann ég íslandsmeistaratitil í 4.
flokki með Haukum.
Skoraði fjögur mörk í
fyrsta meistaraflokksleiknum
„1985 lék ég minn fyrsta leik með
meistaraflokki, þá 16 ára gamall. Ég
var kallaöur til á íslandsmótinu ut-
anhúss sem fram fór á Seltjamar-
nesi. Mér gekk ágætlega í leiknum
og mig minnir að ég hafi skorað fjög-
ur mörk. Ástæðan fyrir því að mér
gafst þarna tækifæri var að máttar-
stólpar liðsins á þessum árum voru
farnir utan til að freista gæfunnar.
Þetta voru þeir Kristján Arason,
Hans Guðmundsson, Sveinn Braga-
son og Pálmi Jónsson. Þessir strákar
uðru íslandmeistarar árið áður.“
- Hvenær klæddist þú fyrst íslensku
landsliðspeysunni?
„Ég steig mín fyrstu skref með ís-
lenska landshðinu á friðarleikunum
í Moskvu 1986. í þessari ferð fengu
nokkrir leikmenn sína eldskírn með
liðinu. Leikreyndustu leikmennirnir
gáfu ekki kost á sér í ferðina og því
var leitað til yngri leikmanna. Þessir
leikar voru stuttu eftir heimsmeist-
arakeppnina í Sviss. Miðað við nýliða
komst ég þokkalega frá þessu dæmi
í Moskvu.
„Eigum alla möguleika
í b-keppninni í Frakklandi“
- Nú dregur óðum að b-keppninni í
Frakklandi. Hvað vilt þú segja um
möguleika okkar í keppninni?
„Mér líst vel á keppnina í Frakk-
landi. Við eigum alla möguleika á að
komast í millriðilinn. Það fer fyrst
að reyna á getu okkar í milliriðlin-
um. Innst inni hef ég samt góða trú
á að við komust áfram. í undirbún-
ingi okkar hefur gengið upp og ofan.
Besti leikurinn var fyrri leikurinn
gegn Austur-Þjóðverjum á dögun-
um.“
„Landsliðið hefur orðið fyrir mik-
illi gagnrýni að undanfömu og mér
finnst hún á margan hátt sanngjörn.
Gagnrýni sem á rétt á sér er af hinu
góða. Þreyta sat í landsliðsmönnum
eftir ólympíuleikana fram að ára-
mótum en að undanförnu hefur mér
fundist að leikgleðin sé að koma upp,
á nýjan leik. Ég er bjartsýnn á að við
endurheimtum sætið meðal a-þjóða.
Leikreynsla hðsins verður sterkasta
vopn þess í keppninni."
„Bogdan hefur náð
frábærum árangri“
- Nú er Bogdan að kveðja landsliðið
og arftaki hans verður ráðinn á næst-
unni. Hvernig hefur Bogdan*að þínu
áhti staðið sig með landsliðið?
„Það er engin spuming að Bogdan
er mjög góður þjálfari. Hann er engu
að síður umdeildur. Sumir eru ekki
sáttir við hans aðferðir en þær hafa
samt sem áður skilað árangri, sem
er fyrir mestu. Bogdan notar mikið
til sömu leikmennina og gefur nýhð-
um fá tækifæri, sem kannski er mjög
eðlilegt. Bogdan hefur náð frábærum
árangri með landshðið og Víkinga, á
því leikur enginn vafi.“
„Hlynntur ráðningu
Paul Tidemanns“
„Hver verður arftaki Bogdans er er-
fitt að segja fyrir um. Ég persónulega
yrði ánægður með ráðningu Paul
Tiedemanns frá Austur-Þýskalandi.
Þar er á ferðinni frábær þjálfari.
Viggó Sigurðsson er færasti þjálfar-
íþróttir
• Alvarlegur svipur Héðins Gilssonar leynir sér ekki á myndinni. Aldrei
að vita nema knötturinn hafi legið í marki andstæðingsins stuttu síðar.
inn hér á landi að mínu mati. Sam-
starf þeirra í milli er góður kostur.
Viggó er frábær skipuleggjandi og
hefur náð góðum árangri með FH.
Það er hins vegar alfarið ákvörðun
eftirmanns Bogdans hvern hann hef-
ur sér til aðstoðar."
„Að leika erlendis
kitlar mig óneitaniega“
- Nú hafa erlend félagslið sýnt þér
áhuga. Stefnir hugurinn í atvinnu-
mennskuna?
„Ég ætla utan að leika handknatt-
leik, það er ekki spurning. Ég veit
ekki hvenær af því getur orðið, þetta
er sífellt að bijótast í mér. Úrvals-
deildin í Vestur-Þýskalandi freistar
mín. Þar er mun meiri breidd en
annars staðar í Evrópu. Það hafa
nokkur félagslið í Vestur-Þýskalandi
haft samband við mig og í fyrrasum-
ar gerði eitt félag mér tilboð. Ég var
ekki tilbúinn þá, vil fyrst taka út
ákveðinn þroska. Þetta dæmi kitlar
mig óneitanlega. Hverveit nema ég
leiki erlendis á næsta hausti,“ sagði
Héðinn Gilsson og var þar með rok-
inn út á stefnumót við strákana í
landsliðinu.
-JKS
•'V
.... ..
--------' ' V. V,,. '
• Héðinn Gilsson á fullri ferð i deildarleik með félagi sínu fyrir skömmu. Varnarmenn andstæðinganna þurfa að hafa góðar gætur á Héðni og er oft
settur yfirfrakki honum til höfuðs.
Fullt nafn:
Héðinn Gilsson.
Félag: FH.
Aldur: 20 ára.
Hæð: 2,01 m.
Þyngd: 94 kg.
Starf: Húsasmíða-
nemi.
Maki: Ókvæntur.
■L...