Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1989, Blaðsíða 31
MÁNUDAGUR 6. FEBRÚAR 1989.
31
Fréttir
Á sjötta hundrað voru á fundinum.
DV-mynd Stefán
Enginn nemandi
Grunnskóla
Borgarness reykir
- á sjötta hundraö á fundi um vandamál vimueöia
Stefin Haialdsson, DV, Borgamesi:
Ráðstefha um vímuefnavandamál
var haldin fimmtudaginn 19. janúar
á Hótel Borgarnesi og var hún mjög
vel sótt. Milh 500 og 600 unglingar
komu úr skólum í héraðinu ásamt
kennurum.
Á fundinum fluttu stutt erindi Ing-
þór Friðriksson læknir, Ástþór
Ragnarsson sálfræðingur og nokkrir
nemendur, að ógleymdum Bubba
Morthens sem talaði þar af eigin
reynslu. Að loknum umræðum hélt
Bubbi hljómleika við góðar undir-
tektir. Fundurinn var haldinn að til-
stuðlan Brit Bieltvedt, félagsmála-
stjóra í Borgamesi.
Þess má til gamans geta að ekki
einn einasti nemandi í Grunnskóla
Borgamess reykir og er þaö með
ólíkindum í svo stórum og fjölmenn-
um skóla.
Raufarhöfii:
„Ráðhús við höfnina"
Hólmfriðux Friðjónsdóttir, DV, Ranfirhöfn:
Gámngar segja að nú hafi Raufar-
hafnarbúar eignast sitt „ráðhús við
höfnina“. Tiiefnið er flutningur
hreppsins á skrifstofum sínum í eigið
húsnæði á neðstu hæð hússins að
Aðalbraut 2 sem stendur í norður-
hluta þorpsins við höfnina. Á efri
hæö hússins er starfrækt hótel -
Hótel Norðurljós.
Nýja húsnæðið, sem er um 100 fer-
metrar, var áður frystiklefi fyrir fisk-
verkun. Það var innréttað sem skrif-
stofuhúsnæði af starfsmanni hrepps-
ins, Óskari Stefánssyni.
Að sögn Sigurbjargar Jónsdóttur
sveitarstjóra er nýja húsnæðið helm-
ingi stærra en það gamla. Sé því
mikill munur á aliri starfsaðstöðu
enda veiti ekki af þar sem umsvif
hreppsins aukist nú ár frá ári. Kostn-
aður við þessar breytingar var tæp-
lega þijár milljónir króna.
Sigurbjörg Jónsdóttir sveitarstjóri ásamt starfsfólki Raufarhafnarhrepps.
DV-mynd Hólmfríður
Gauksmýri keypt á
tíu og hálfa milljón
Þórhallur Asmundsson, DV, Sauðáxkróki:
Gengið hefur verið frá kaupsamn-
ingi deilda félagsins Þroskahjálpar í
Norðurlandskjördæmi vestra í
Skagafirði og Húnavatnssýslu á jörð-
inni Gauksmýri í Kirkjuhvamms-
hreppi í Vestur-Húnavatnssýslu.
Kaupverðið er 10,5 milljónir, hús
með 3 íbúðum svo og annar húsa-
kostur á jörðinni og 1700 hektarar
lands. Það sem vakir fyrir Þroska-
hjálp með kaupum á jörðinni er að
þar verði komið upp sambýh fyrir
fatlaða. Að sögn stjórnarmanna
Þroskahjálpar hggur fyrir að vist-
heimih fyrir fatlaða, eða svokallaðar
sólarhringsstofnanir, verði lagðar
niður og sambýli muni leysa þau af
hólmi. Er reiknað með að á Gauks-
mýri verði komið á fót sambýh fyrir
6-8 einstaklinga. Á Sólborg á Akur-
eyri, sem er eitt þeirra vistheimila
sem ákveðið hefur verið að leggja
niður sem shkt og breyta starfsemi
á, eru nú 14 vistmenn héðan af Norð-
urlandi vestra.
jr
Ahrifaríkasti megrunarkúrinn
** NOTKUNARREGLUR
MEGRUNAREIGINLEIKAR
U.S. GRAPE SLIM
taflnanna eru fyrst og fremst vegna
tilverknaðargrapeávaxtarins, en hann
flýtir fyrir meltingunni og styttir þann
tíma sem maturinn dvelur í meltingar-
veginum.
KYRRAHAFSÞARINN KELP
ieem notaður er í U.S. Grape Slim er
ræktaður úti fyrir ströndum Kaliforníu.
Kelp er mjög ríkur af steinefnum og
öðrum snefilefnum. Asíu-megin
Kyrrahafsins er kelp notaður sem
nauðsynleg fæðuuppbót hjá Japön-
um og Kóreubúum til að vega upp á
móti næringartapi sem varð þegar
þessar þjóðir tóku að neyta hýðis-
lausra hrísgrjóna i meira mæli. Hinn
heimsþekkti svissneski náttúrulæknir
og næringarfræðingur dr. A. Vogel
segir i bók sinni, „Litli læknirinn"
(Der Kleine Doktor), að jöfn neysla á
kelp jafni líkamsþyngdina.
LECITIN
er fosfat sem m.a. breytir næringarefn-
um í vatn, kolsýru og orku og örvar
niðurbrot fitunnar í likamanum. í U.S.
Grape Slim er það fengið úr sojabaun-
um. Lecitin er hluti af varnarkerfi lík-
amans og er framleitt I lifrinni. Það
hefur verið nefnt „góða kólesterólið"
því það vinnur á móti kransæðastíflu
og er byggingarefni í frumuhimnum
og hvatberum.
E-VÍTAMÍN
er þráavarnarfjörefni sem hindrar ox-
un fjölómettaðra fitusýra auk vítamína
og amínósýra. E-vítamín hjálpar við
að halda þér unglegri með því að
seinka frumöldrun vegna oxunar. Það
eykur úthald líkamans, dregur úr
þreytu, kemur I veg fyrir og leysir upp
blóðkekki, virkar sem þvagræsir og
vinnur gegn of háum blóðþrýstingi.
C-VÍTAMÍN
hjálpar öðrum vitamínum að vinna
betur. Það gerir vefjum líkamans kleift
að breyta fitu í orku og spara þannig
aðalorkugjafann, fjölsykruna glyko-
gen.
EPLAEDIKIÐ
er vatnslosandi og er almennt þekkt
fyrir að brjóta niður blóðfituna og
styrkja þannig starfsemi hjartans og
kransæðanna.
SAMVINNA ÞESSARA EFNA
leiðir til þess að líkaminn jafnar þyngd
sína sem næst kjörþyngdinni, ef
fæðuval er rétt og magni haldið innan
skynsamlegra marka. Þannig eykst
vellíðan sem eðlilega hlýst af réttri
þyngd og betra ástandi meltingarfær-
anna.
ÁRANGURINN
hjá flestum þeim sem eiga við þyngd-
arvandamál að stríða og fara eftir leið-
beiningunum er á bilinu 1,5-2 kg
þyngdarmissir á viku. Þetta er hins
vegar mjög breytilegt eftir einstakling-
um og til eru dæmi þess að fólk hafi
misst um eða yfir 10 kg fyrstu tvær
vikurnar, án þess að hafa svelt sig eða
haft tilfinnanleg óþægindi. Þess ber
að geta að viðkomandi aðilar þurftu
þó nauðsynlega á megrun að halda,
heilsu sinnar vegna.
MATSEÐILLINN
skiptir að sjálfsögðu miklu máli. Með
því að fara eftir matseðlinum sem fylg-
ir hverri dós eða uppskriftum úr Scars-
dale kúrnum má auka þyngdartapið
tvöfalt meira a.m.k. eða í um 3-5 kg
fyrstu vikuna.
eru þær að taka 2 töflur (þrjár fyrir
magastóra) um 30 mínútum fyrir
hverja máltíð. Töflurnar skal helst
tyggja vel og renna niður með vatni
eða hreinum ávaxtasafa. Fullkomlega
er leyfilegt að gleypa þær án þess að
tyggja en þá er betra að taka þær
nokkru áður, t.d. 60 mínútum fyrir
máltíð. Matseðillinn, sem fylgir, er alls
ekki heilagur og út af honum má
breyta með skynsemi en sérstök
áhersla skal lögð á að styðjast við
hann til að tryggja betri virkni.
HÁTÍÐAHÖLD
með miklum matarveislum eru ekki
skynsamleg þegar kjörþyngdinni er
náð. Kjörþyngdin erviðkvæmtfjöregg
sem venja þarf líkamann við. Rétt er
að minnka rólega neyslu á U.S. Grape
Slim úr 2 töflum niður I 1 töflu fyrir
máltíðir uns neyslan verður aðeins 1
tafla á dag og hætta svo.
SJÁLFSÖGUN
er þrátt fyrir allt stærsti galdurinn við
að halda kjörþyngd sinni. Hver maður
verður að gera sér grein fyrir að þrátt
fyrir að U.S. Grape Slim sé einn áhrifa-
ríkasti kúrinn á markaðnum eru það
ætíð matarvenjurnar sem eiga síðasta
orðið. Það er ekki að ástæðulausu
sem talað er um venjur þvi þótt efna-
skipti manna séu með misjöfnum
hætti er það í flestum tilfellum rangt
mataræði eða of mikill matur sem
veldur offitu og það verður ávani.
Aðalatriðið er því að nota U.S. Grape
Slim til að taka upp nýja og betri
„ávana" í mataræði.
BANNVÖRUR
s.s. salt, sætindi og áfengi er betra að
láta algjörlega eiga sig meðan á megr-
un stendur. Meira en nóg er af salti í
daglegri fæðu og það bindur vatn í
líkamanum sem eykur líkamsþyngd
að nauðsynjalausu. Betra er að nota
hunang eða gervisætu i stað sykurs
út í te og kaffi.
U.S. GRAPE SLIM
er algjörlega skaðlaust og I því eru
engin lyf heldur aðeins fæða og fjör-
efni. U.S. Grape Slim er skráð sem
hrein náttúruvara í löndunum um-
hverfis okkur og hefur verið skoðað
og samþykkt af íslenskum heilbrigðis-
yfirvöldum.
Barnshafandi konum er aldrei ráðlagt
að fara í megrun án samráðs við heim-
ilislækni.
Fólk, sem vill losna við óeðlilega mikla
þyngd, ætti alltaf að ráðfæra sig við
lækni, sama hver megrunarkúrinn er.
Fæst í apótekum
og heilsubúðum
Kristín
innflutningsverslun
Box 366
Símar 611659 og 641085
BOKAMARKAÐUR V O K U HELGA F EL L S
Dæmi um nokkur scitilboð
á bókamarkaðnum: Vcnjulegt Tilboðs- Af-
Kvöldgestir vcrð verð sláttur
JónasarJónassonar .. 1686,- 345,- 80%
Kvermeð útlendum kvæðum Jón Helgason þýddi ..987,- 95 90%
Hagleiksverk Hjálmars í Bólu eftir dr. Kristján Eldjárn .. 1686,- 195,- 88%
Keli köttur í ævintýrum Guðni Kolbeinsson/Pétur Halldórsson ..860,- 345,- 60%
Ljóðmæli SteingrímsThorsteinssonar ..1990,- 295,- 85%
Markaðurinn stendur
tilll. febrúar.
HELGAFELL
Síðumúla 29 • Sími 688 300.