Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1989, Síða 3
ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1989.
3
Fréttir
Skuldir ísaf jarðar um 100
milljónir umfram árstekjur
Bæjarsjóður ísafjarðar á við gífur-
legan íjárhagsvanda að etja. Svo er
komið að skuldir bæjarfélagsins
verða líklega um næstu áramót um
100 milljónum hærri en áætlaðar
tekjur. Langtímaskuldir eru um 230
milljónir og vanskilaskuldir eru um
80 milljónir. Bæjarstjóm ísafjarðar
áætlar að taka um 100 milljónir að
láni á þessu ári. Því stefnir í að skuld-
ir í árslok verði á fimmta hundrað
milljónir króna. Gert er ráð fyrir að
heildartekjur bæjarsjóðs í ár verði
um 310 milljónir.
íbúar á ísafirði hafa ávallt verið
meðal tekjuhæstu íbúa landsins. í
mörg ár hafa þeir verið hæstu út-
svarsgreiðendur. í fyrra drógust þeir
eitthvað aftur úr hvað útsvars-
greiðslur áhrærir.
Ástæðuna fyrir bágri fjárhagsstöðu
bæjarsjóðs vilja menn meðal annars
rekja til þess hversu illa hefur veriö
staöið að flestum áætlunum. Sem
dæmi má nefna að á árinu 1987 var
fjármagnskostnaður vanáætlaður
um nærri 200 prósent. Nú er svo
komiö að nær ekkert verður um
verklegar framkvæmdir á vegum
bæjarfélagsins á næstu áram. Þó
verða á milli fimm og sex milljónir
settar í sjúkrahúsið og áætlað er að
setja um 25 milljónir í íþróttahús.
Að öllum líkindum verða þær teknar
að láni. Fjárhagsáætlun verður til
umræðu á bæjarstjórnarfundi á
morgun. Eftir þann fund munu loka-
niðurstöður liggja fyrir. Bæjarstjórn
ísafjarðar hefur samþykkt að veita
um 40 milljónir til Dvalarheimilisins
Hlífar. Þær 40 milljónir vantar í fjár-
hagsáætlunina og ef bæjarstjórn
Akranes:
Opin vika í Fjöl-
brautaskólanum
Sigurgeir Sveinsson, DV, Akranesi:
Dagana 28. febrúar til 3. mars verð-
ur svonefnd „opin vika“ í Fjölbrauta-
skóla Vesturlands á Akranesi. Þetta
er árlegur viðburður í félagslífi nem-
enda skólans og dagana, sem hún
stendur yfir, er skruddum og skræð-
um hent út í horn á meðan unnið er
að margvíslegum verkefnum á fjöl-
mörgum námskeiðum og í hópum
jafnt innan veggja skólans sem utan.
Fjöldi fyrirlesara heimsækir skól-
ann og fræðir nemendur um allt
milli himins og jarðar. Ferðaiög, fjöl-
tefli og tónleikar og margt fleira flétt-
ast inn í dagskrána.
Á meðan opna vikan stendur munu
nemendur starfrækja útvarpsstöð-
ina Blómið sem verður starfrækt
innan veggja skólans. Slíkur út-
varpsrekstur hefur verið fastur liður
á vikunni undanfarin ár. Sent verður
út tíöni FM-91.0 og útvarpað stans-
laust frá því kl. 18 mánudaginn 27.
febrúar til miðnættis 2. mars. Dag-
skrá Blómsins verður útvarpað um
Akranes og nágrenni og þar með
gefst bæjarbúum jafnt sem sem
bændum og fólki á höfuðborgar-
svæðinu tækifæri á að fylgjast með
uppákomum nemenda. Útvarpsstjóri
er Ásgeir Eyþórsson.
Siglufjörður fluttur?
Guömundur Daviösson, DV, Siglufiröi:
í nýútkominni handbók, sem nefn-
ist Gula bókin, er Siglufjörður stað-
settur á Norðurlandi eystra. Sam-
kvæmt upplýsingum frá útgáfu bók-
arinnar er sennilegt að þessi mistök
megi rekja til þess að svæðisnúmer
síma er hið sama á Siglufirði og Ak-
ureyri en þó læðist að manni sá grun-
ur að ýmsir geti frekar staðsett rétt
sólarlandastaði í Suður-Evrópu en
mikilvæg sjávarpláss í eigin landi.
stendur við loforð sitt munu skuld-
irnar aukast sem því nemur.
Einn viðmælenda DV sagði að til
tals hefði komið að ef ekki rættist
verulega úr á næstunni mundi fé-
lagsmálaráðuneytið neyðast til að
grípa inn í fjárhagsstjórn bæjarfé-
lagsins. -sme
vildii sveiglanleika
Þegar
fjárfest er í vélum og tækjum skiptir verulegu
máli að sú fjármögnunarléið sem valin er
veiti nauðsynlegan sveigjanleika, þannig að
fjárfestingin skili þeim arði sem vonast er
eftir. Kaupleiga og fjármögnunarleiga Glitnis
gefur ótrúlega mikinn sveigjanleika.
-Leigugreiðslur
geta tekið mið af væntanlegum tekjum t.d.
verið lægri á vetuma en hærri á sumrin.
-Fjármögnun
véla og tækja getur verið 2 til 7 ár og Ijár-
mögnunarhlutfall fer að sjálfsögðu eftir ósk-
um hvers og eins allt upp í 100%.
-Fjármögnunarieiðir
Glitnis gefa kost á að velja það tæki sem
hagkvæmast ér án t'llits til eigin framlags.
Láttu ekki tækifærin framhjá þérfara.
Okkar peningar vinna fyrir pig
Glitnírhf
NEVI - ÐNAÐARBANKINN -SLEIPNER
Ármúla 7,108 Reykjavík, sími: 91- 6810 40