Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1989, Qupperneq 5
ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1989.
5
Atviimumál
Kvörtun til umboðsmanns Alþingis vegna skipulags á kartöflusölu:
Andstætt stjórnar-
skrá og landslögum
Hér er verió aó landa úr einum
ísafjaröartogaranum i siðustu
viku. DV-mynd Sigurjón
Ekkert lát
á aflahrotunni
fyrir vestan
Enn er ekkert lát á aflahrotunni
á Vestfjarðamiðura eftir aö hafís-
inn lónaði burt á dögunum. ís-
fjarðartogaramir fjórir lönduöu
fyrir nokkrum dögum 140 til 270
lestum eftir 5 daga veiði Þeir
héldu svo út aftur í síðustu viku
og hafa aflaö mjög vel.
„Það þykir mjög gott að fá 15
lestir á sólarhring en ég heyrði
af því aö Júlíus Geirmundsson
hafi verið að fá 25 lestir yfir sólar-
hringinn eftir að hann fór út aft-
ur. Hinir togaramir hafa Ifka ver-
ið að fá góðan afla, þannig að
segja má að aflahrotan haldi
áfram,“ sagði SturlaHalldórsson,
yfirhafnarvöröur á Isafirði, í
samtali viö DV. Hann sagði að
aflinn í hrotunni heföi veriö fall-
egur fiskur. Þegar hún hófst hafi
verið áberandi mikið af stórum
þorski.
Sturla sagði að nú væri hætt
að vigta afla togaranna á hafnar-
vogjnni. Fiskurinn er aliur í kör-
um og fer vigtun þannig fram aö
tekin eru nokkur kör af handa-
hófi og þau vigtuð. Engir opin-
berir eftírlitsmenn fylgjast með
vigtuninni, sem fer fram í fisk-
vinnsluhúsunum.
„Þaö em margir sjómenn afar
óánægðir með þetta fyrirkomu-
lag. Reyndur skipstjóri sagöi viö
mig á dögunum að þessi aðferö
væri algerlega ófær,“ sagði Sturla
Halldórsson. -S.dór
Elsta skipið var
smíðað árið 1912
Elsta íslenska fiskiskipið, sem
enn er á sjó, var smíðað áriö 1912
en það er Nakkur SU 380 frá
Djúpavogi. Skipið var smíðað í
Færeyjum úr fum og eik og er 8
rúmlestír aö stærð. Annars er
meðalaldur íslenska fiskiskipa-
flotans nú 18,8 ár en var 19,0 ár
í fyrra.
Lægstur meðalaldur er á skip-
um af stærðarflokknum 0-9 lestír
eða 15,0 ár. Næstlægsti meðalald-
ur er á skipum af stærðinni 500
lestir og stærri eða 15,7 ár. Hæsti
meöalaldur er aftur á mótí á skip-
um af stærðarflokknum 50-99
lestir eða 28,0 ár. Síðan snarlækk-
ar hann á skipum af stærðinni
100-149 lestir eða niður í 19,0 ár.
Síðan hækkar hann aftur á
stærðarflokknum 150 til 199 lestir
eða S 22,2 ár. Meðalaldur minni
togaranna, sem eru í stærðar-
flokknura 300-499 lestir, er 15,1
ár.
Á skipaskrá 1. janúar í ár em
skráð 1103 þilfarsskip. Fiskiskip
rainni en 100 brúttólestir eru 534,
skip 100 til 499 lestir eru 297 og
af stærðinni 500-999 lestir em 42
skip. Tvö fiskiskip em meira en
1.000 brúttólestir. Meðalstærð
þeirra fiskiskipa, sem mæld era
í brúttólestum, var 1. janúar síð-
asthðinn 135,1 lest. -S.dór
-Umboðsmanni Alþingis hefur bor-
ist kvörtun frá Hauki Hjaltasyni fyr-
ir hönd Dreifingar hf. Þar kvartar
Haukur yfir ráðgjöfum í landbúnað-
arráðuneyti, landbúnaðarráðherra,
embættismönnum, ráðgjöfum í fjár-
málaráðuneyti og fiármálaráðherra.
Er kæran vegna ýmissa meintra
brota varðandi dreifingu og sölu á
kartöflum.
í kærunni er kvartað yfir: „Mis-
Vetrarvertíðin:
Vænn
þorskur
áberandi í
aflanum
„Það er rétt að þó nokkuð veröur
nú vart við vænan þorsk í aflanum,
en ég þori ekki að fullyröa neitt um
hvort það er óvenju mikið. í leiðangr-
inum á Dröfn á dögunum urðum við
varir við talsvert af stórum þorski,
þetta 10 til 15 kflógramma þungum
þorski," sagði Hafsteinn Guðfinns-
son sjávarlíffræðingur, forstöðu-
maður defldar Hafrannsóknastofn-
unar í Vestmannaeyjum.
Hann benti á að alltaf yrði þó nokk-
uð vart við vænan fisk á hrygninga-
svæðunum yfir vetrarvertíöina.
Menn mættu heldur ekki gleyma því
að hrygningastofn þorsksins væri á
bilinu 200 tfl 300 þúsund lestir og hjá
því gæti aldrei farið að innan um
væri nokkuð af stórum fiski.
Loðnubátar hafa verið að fá 1 tfl 2
tonn af vænum þorski í loðnunæt-
umar nærri Vestmannaeyjum und-
anfarið, en þorskurinn liggur nú í
æti þar sem loðnan er. Netabátar
hafa aflað sæmflega þegar gefur og
hefur allmikið af vænum fiski verið
í afla þeirra. Hafsteinn sagði að erf-
iðara væri að fylgjast með afla troll-
bátanna, þar sem þeir seldu afla sinn
á erlendan markað, en eftír því sem
hann hefði frétt væri afli þeirra góð-
ur. -S.dór
Svartur sjór
af síld
fyrir Suður-
landinu
Sjómenn á loðnuveiðiskipunum
segja aö fyrir Suðurlandi sé svartur
sjór af sfld. Meðan skipin voru að
leita að loðnunni á dögunum kom
fyrir að menn töldu síld vera loðnu
og köstuðu á hana. Ef kastað er á
sfld verður að sleppa henni úr nót-
inni.
„Sfldin er sjálfsagt fyrirferðarmikil
þama enda á ég von á því að allur
stofn Suðurlandssíldarinnar, 400
þúsund lestir, sé á þessu svæði,“
sagði Jakob Jakobsson, forstjóri Haf-
rannsóknastofnunar í samtah við
DV.
Meðan loðnan gengur yfir ákveðið
svæði fyrir Suðurlandinu, á leið til
hrygningarsvæða sinna, truflar sfld-
in loönuveiðamar. Að öðm leyti
blandast þessar tegundir ekkert sam-
an, að sögn Jakobs. -S.dór
beitingu valds og heimildarákvæða í
lögum. Mismunun milli atvinnu-
greina. Brot á reglum um réttindi og
skyldur opinberra starfsmanna." Þá
er einnig varpaö fram hvort um,
„meint auðgunarbrot ráðgjafa ráð-
herra geti verið að ræða.“ Einnig er
spurt hvort hér sé um að ræða, „ógn-
un við viðskiptahagsmuni íslands."
Einokunaraðstaða er nefnd en
spurt er hvort gerð hafi verið tilraun
tfl aö skapa „sérréttindahópi einok-
unaraðstöðu, við afurðasölu, með
álagningu ofurgjalda á söluvörur
samkeppnisaðila."
Þá fær fiármálaráðuneytið sinn
skammt: „... vegna brota á tollalög-
um, um undanþágur og niðurfelling-
arheimildir, með tilvísun til reglu-
gerðar 69/jan. ’88. Mismunun milli
atvinnugreina.”
í athugasemd með kvörtuninni
segir: „Mismunun, annars vegar við
innflutning á kartöflum og hins veg-
ar viö innflutning á grænmetí, getur
hvorki samrýmst stjórnarskrá né
landslögum. Hér er um að ræöa fár-
ánlega og óeðlflega valdaaðstöðu
nokkurra atvinnurekenda og hags-
munavörslu stjórnvalds yfir sér-
hagsmunum. Þessu er stefnt gegn
samkeppnisaðilum á kostnað neyt-
enda.“ -SMJ
Ný sjDortvöruverslun
UTSALA fao*
% 7 >
-jS®0
15-40% afsláttur
af öllum vörum
*o
Útsölunni lýkur
laugardaginn 4. mars.
ATH. Allt nýjar vörur
s'»Ur:
nú
ÚTI SPORT
VERSLUNARHÚSINU SF.,
GERÐUBERGI 1
Sími 72277.
ÖDÝRT - Á MEÐAN BIRGÐIR ENDAST - ÖDÝRT
Frábært teppatilboð
á meðan birgðir endast
JLVölundur
Teppadeild
Hringbraut 120
Sími 28600
I dag og næstu daga á
meðan birgðir endast
bjóðum við nokkrar
gerðir af gólfteppum á
sérlega hagstæðu verði.
Dæmi: 4 metra breið
lykkjuteppi frá kr. 560
ferm.
Hér er um að ræða teppi
af mörgum gerðum,
bæði þykk og þunn, 2-4
m á breidd.
Ef þig vantar gólfteppi
þá sleppir þú ekki þessu
einstæða tækifæri.
Við bjóðum hagstæð
greiðslukjör.
JLVölundur
ÓDÝRT - Á MEÐAIM BIRGÐIR ENDAST - ÓDÝRT