Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1989, Side 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1989.
Utlönd
Najibullah lofar sovéskum loftárásum
Alganskur hermaöur slhir á skriödreka sínum viö Salang veginn i norður-
hluta landsins. Símamynd Reuler
Najibullah, forseti Afganistan, segir í viðtali sem birt er í breska blað-
inu Guardian í dag að hann geti farið fram á sovéskar loftárásir gegn
skæruliöum þrátt fyrir aö sovéski herinn sé farinn frá Afganistan.
Natjibullah segir aö þetta sé samkvæmt bindandi samningi milh ríkj-
anna um sameiginlegar vamir gegn utanaðkomandi ógnun.
Hann gagnrýnir Bandarikin fyrir aö senda vopn til skæruliða og segir
að vegatálmanir skæruliða hafi nú orðið þess valdandi að matar- og elds-
neytisskortur sé i Kabúl.
Forsetinn fagnar hins vegar þeirri ákvörðun Bandaríkjastjómar að bíða
með aö viðurkenna útlagasfjóm skæruliða sem mynduö var í síðustu viku.
Ráðhevrar á móti takmörkunum
Viðskiptaráðherrar Evrópubandalagsins höfnuðu í gær kröfum um að
takmarkanir verði settar á það magn af bandarísku siónvarpsefni sem
senda má með gervihnöttum inn á heimili í Evrópu.
Ráðherramir neituðu að setja ákvæði um lágmarkstíma sem þyrfö aö
veija til sýninga á efni tengdu Evrópu og bandalaginu.
Það vom Bretar og Þjóðverjar sem fengu þetta í gegn með stuðningi
HoEendinga en Frakkar, ítalir, Spánveijar og Lúxemborgarar vildu setja
takmarkanir.
Óeirðir í Venesúela
Svona mótmæla menn veröhækkunum I Venesúela. Slmamynd Reuter
Þúsundir Venesúelabúa gengu berserksgang í gær, rændu og mpluöu,
kveiktu í böum og lokuöu hraöbrautum í mótmælaskyni við mikla verö-
hækkun á bensíni og strætísvagnafargjöldum.
Vitni sögðu að aörar eins óeirðir hefðu ekki sést í Venesúela síðan 1958
þegar gerð var stjómarbylting í landinu.
Aö minnsta kostí þrettán menn særöust í átökunum, þar af fjórir lög-
reglumenn. Kveikt var í að minnsta kostí sex fólksflutningabílum og fólk
gekkumverslanirogrændiogmplaði. Reuter
Um fimmtán manns halda á borðum og spjöldum með slagorðum gegn Irönum við sendiráð Irana I Moskvu I gær.
Simamynd Reuter
íranir slíta sam
bandi við Breta
íranska þingið samþykkti í morg-
un að slíta stjómmálasambandi við
Bretland í mótmælaskyni viö við-
brögð Breta gagnvart morðhótunum
írana gegn Salman Rushdie.
íranska útvarpið skýrði frá því að
þingið heíði samþykkt nær sam-
hljóða að slíta sambandi við Breta.
Leiðtogum breskra múhameðstrú-
armanna mistókst í gær aö fá bresku
ríkisstjómina til að breyta lögum um
guðlast þannig að auðveldara verði
fyrir þá að sækja fyrir dómstólum
mál sitt gagnvart bókinni Söngvar
Satans eftir Salman Rushdie.
Fimm manna sendinefnd frá varn-
arráði múhameðstrúarmanna kom
af fundi með John Patten, aðstoðar-
innanríkisráðherra, og skýrði frá því
að hann hefði aftekið með öllu að
gerðar yrðu breytingar á lögum um
guðlast.
„Ráðhecrann sýndi einlægan skiln-
ing á tilfinningum múhameðstrúar-
manna en greindi frá vandamálum
sem yrðu samfara því að breyta lög-
um um guðlast," sagði talsmaður
sendinefndarinnar, Iqbal Sacranie.
Khomeini, erkiklerkur í íran, hefur
krafist þess að Salman Rushdie verði
myrtur en sendinefndin hafnaði of-
beldiskalli hans. í staðinn ætla þeir
að skora á Viking Penguin útgáfuna
um að innkalla öll eintök bókarinn-
ar, lofa að hætta að dreifa henni, biðj-
ast afsökunar og gefa peninga til góð-
gerðarstarfsemi á vegum múha-
meöstrúarmanna.
Hópur múhameðstrúarmanna í
borginni Bradford í norðurhluta
Englands segist telja að hægt sé að
sækja mál vegna bókarinnar sam-
kvæmt núgildandi lögum um guð-
last. Segja þeir að í bókinni sé minnst
á Abraham sem bæði kristnir og
múhameðstrúarmenn telja spá-
mann.
í Moskvu voru mótmæli við ír-
anska sendiráðið og hélt fólk á borð-
um með slagorðum gegn Khomeini
og trúarofstæki írana.
Reuter
Stórkostlegar viðgerðir nauðsynlegar
í skýrslu, sem gerð verður opinber
í dag í Bandaríkjunum, kemur fram
aö bandarísk flugfélög verða að gera
við gamlar flugvélar og yrði það
stærsta viöhaldsherferð sögunnar í
flugmálum, að sögn New York Ti-
mes.
Viðgerðirnar myndu fara fram á
nokkurra ára tímabili og er taliö lík-
legt að allt að eitt þúsund flugvélar
verði teknar í gegn.
Samtök flugfélaga hafa unnið að
skýrslunni síðan í fyrrasumar. Það
er hins vegar tílviljun að skýrslan
er gerð opinber nú, svo skömmu eft-
ir að gat kom á nítján ára gamla
Boeing 747 þotu flugfélagsins United
Airlines yfir Kyrrahafi.
í skýrslunni kemur fram að nauð-
synlegt sé að gera um tvö hundruð
viðgerðir á sjö hundruð þotum. Um
eitt hundrað viðgerðir þarf að gera á
fimm hundruð þotum.
Skýrslan er unnin vegna tíðra slysa
að undanfomu á gömlum flugvélum
þar sem eitthvað hefur farið úrskeiö-
is í tækjabúnaði eða byggingu. Reuter
Khomeini ánægður með Sovétríkin
Frakkar og Bretar standa saman
Margrét Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, og Francoís Mitterrand,
torseti Frakklands, á fundl með fréttamönnum i Paris I gær. Par áttu
þau árlegan fund sinn að þessu slnni. Pau hétu þvi að standa saman
I málinu sem skapast hefur vegna deilnanna um bók Salmans Rushdie,
Söngva Satans. íranar slltu í morgun stjórnmálasambandí við Bretland
og þá er að sjá hvort sams konar breyting veröur á samsklptum Frakk-
lands og Írans. Slmamynd Reuter
Stjómvöld í íran og Sovétríkjunum
lýstu í gær yfir mikilli ánægju með
að nýr kafli hefði hafist í samskiptum
ríkjanna. Eduard Sévardnadse, utan-
ríkisráðherra Sovétríkjanna, hélt í
gær heim á leið eftir þriggja daga
heimsókn í Teheran.
Við brottfórina lýsti Sévardnadse
því yfir að sjóndeildarhringurinn í
samvinnu ríkjanna hefði víkkað. Ali
Akbar Velayati, utanríkisráðherra
írans, sagði að fundurinn heföi
markað kaflaskil.
Sévardnadse varð á sunnudag
fyrsti erlendi utanríkisráðherrann
sem fær að hitta Khomeini erkiklerk
sem lýstí ánægju sinni með sam-
bandið við Sovétríkin. í síðustu viku
sagði hann að þau væru uppivöðslu-
söm.
Brottfbr sovéska hersins frá Afgan-
istan og endalok Persaflóastríðsins,
þar sem Sovétmenn sáu írökum fyrir
vopnum, hafa rutt brautina að bætt-
um samskiptum og minnkað spennu.
Heimsókn sovéska utanríkisráð-
herrans kemur í kjölfar þess að íran-
ar hafa átt í miklum útístöðum við
vestræn ríki vegna morðhótunar
Khomeinis við Salman Rushdie, höf-
und bókarinnar Söngvar Satans.
Ali Khamenei, forsetí írans, bað
Sovétmenn 1 gær um aö aðstoð við
að beita íraka þrýstingi til að þeir
kalli heim þá hermenn sem enn eru
á írönsku landi.
1 „Við teljum að sovéska ríkisstjórn-
in getí beitt þessum þrýstingi betur
en nokkrir aðrir,“ sagði hann viö
Sévardnadse og bætti við aö eftir að
írakar væru famir heim væri hægt
aö leysa öll önnur vandamál og koma
á varanlegum friði á svæðinu.
Útvarpið í Teheran sagði að utan-
ríkisráðherrarnir hefðu skrifað und-
ir tvær yfirlýsingar um aukin stjóm-
málaleg og menningarleg tengsl milh
landanna.
Útvarpið sagði að sovéska sendi-
nefndin hefði lagt til að haldinn yrði
fundur með fulltrúum frá nágranna-
löndum Afganistans þar sem rædd
yrðu vandamál landsins.
íranar samþykktu að íhuga tillög-
una vel. Hún myndi hafa í fór með
sér að íranar, Sovétmenn, Pakistan-
ar og Kínveijar myndu hittast á
fundi. Reuter
Sévardnadse, utanríkisráðherra Sovétrikjanna, t.v., á tundi með Ali Khame-
nei, forseta írans, t.h. Simamynd Reuter