Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1989, Blaðsíða 9
ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1989.
9
i>v Útlönd
Gengið að kröf um
verkfallsmanna
Bush Bandarikjaforseti hefur nú hafið baráttu fyrir því að fá John Tower
samþykktan sem varnarmálaráðherra. Símamynd Reuter
Hart barist fyrir Tower
í morgun mátti víðs vegar sjá her-
menn og skriðdreka í Kosovohéraði
í Júgóslavíu þar sem námuverka-
menn af albönskum uppruna hafa
nú hætt verkfalli sínu eftir að hafa
neytt þijá leiðandi stjórnmálamenn
í kommúnistaflokknum til að segja
af sér.
Fyrsti verkamaðurinn, sem kom
upp úr námunni þar sem verkfalls-
menn höfðu hafst við í viku, var bor-
inn á hörum. Margir höltruðu og
nokkrir féllu í yfirlið. Fjöldi sjúkra-
bOa var til taks og flutti námuverka-
mennina á sjúkrahús.
Námuverkamennirnir vildu með
verkfaliinu mótmæla fyrirhuguðum
breytingum á stjómarskrá Serbíu
sem þeir segja að skerði sjálfstæði
Kosovo. Leiðtoga kommúnista-
flokksins sögðu þeir vera verkfæri í
höndum yfirvalda Serbíu og kröfðust
þess vegna afsagnar þeirra. Afsagnir
leiðtoganna vora mikið áfall fyrir
leiðtoga kommúnistaflokks Serba,
Slobodan Milosevic, sem hafði stutt
þá.
Margir höföu tekið þátt í samúðar-
verkfalli með námuverkamönnun-
um en í gær efndu um átta hundrað
Serbar og íbúar Svartfjallalands til
verkfalls í mótmælaskyni við kröfur
Albana. í Serbíu eru tæpar tvær
milljónir íbúanna af albönskum upp-
runa en um tvö hundrað þúsund era
Serbar. Reuter
Lögregla á verði í Pristina, höfuð-
borg Kosovohéraðs. Símamynd Reuter
Bush Bandaríkjaforseti er nú kom-
inn heim til Bandaríkjanna, eftir
fimm daga Asíuferð, til að hvetja öld-
ungadeildina til að samþykkja John
Tower sem vamarmálaráðherra.
Haldinn var sérstakur baráttufund-
ur í Hvíta húsinu.
Robert Dole, leiðtogi repúblikana í
öldungadeildinni, sagði að afloknum
fundinum með John Sununu, starfs-
mannastjóra Hvíta hússins og öðr-
um, að enginn uppgjafartónn væri í
mönnum. Bush hefur boðið nokkr-
um öldungadeildarþingmönnum til
sín í Hvíta húsið í dag til þess að
reyna að ná stuðningi þeirra.
Þó svo að Tower hafi yfirgefið
Hvíta húsið án þess að tala við frétta-
menn segja stuðningsmenn hans að
hann sé staðráðinn í því að beijast
fyrir útnefningu sinni og hitta að
máli hvern þann öldungadeildar-
þingmann sem vill ræða ásakanirnar
um kvennafar og áfengissýki á hend-
ur honum. Hann gekk meira að segja
svo langt á sunnudaginn að lofa að
hætta að drekka áfengi ef hann fengi
embætti varnarmálaráðherra.
Búist er við hörðum deilum í öld-
ungádeildinni þar sem Tower þarf
atkvæði 51 þingmanns til þess að
hljóta útnefningu. Demókratar eru
með 55 þingmenn í deildinni á móti
45 mönnum repúblikana. Nokkrir
þingmenn úr báðum flokkum hafa
ekki enn ákveðið hvernig þeir ætla
að greiða atkvæði.
Reuter
Margir verkfallsmannanna blinduðust þegar þeir komu upp úr námunni
eftir átta daga dvöl þar. Símamynd Reuter
Verkfall í
Grikklandi
Grískir sorphreinsunarmenn á-
kváðu í gær að halda áfram fimm
daga verkfalli sínu sem hefur valdið
því að haugar af rusli eru nú á götum
úti. Flugumferðarstjórar ákváðu
einnig í gær að stöðva allt flug annað
kvöldið í röð.
Um 35 þúsund opinberir starfs-
menn, þar á meðal 6 þúsund sorp-
hreinsunarmenn, hófu verkfall á
miðvikudaginn í síðustu viku. Verk-
fallinu átti að ljúka í kvöld en ákveð-
ið var að framlengja það þar til á
sunnudaginn.
Verkfallsmenn krefjast meðal ann-
ars 15 prósenta launahækkunar.
Stjórnvöld hafa sett þak á launa-
hækkanir og mega þær ekki vera
hærri en 3 prósent umfram verð-
bólgu sem var 14 prósent á síðasta
ári. Atvinnurekendur hafa boðið 9
prósenta hækkun.
Reuter
Erfitt er að komast leiðar sinnar í
Aþenu vegna rusls sem safnast hef-
ur á götum úti á meðan sorphreins-
unarmenn eru í verkfalli.
Símamynd Reuter
á
FRAMKVÆMDASJÓÐUR ÍSLANDS
öðru nafni
Hótel Örk
Hótelið var byggt árið 1986. Stærð hússins er um 5200 fermetrar á fjórum hæðum
og stærð leigulóðar er um 17000 fermetrar. f hótelinu eru 59 tveggja manna her-
bergi og 5 veitingasalir fyrir allt að 500 gesti.
Heilsuræktaraðstaða er í byggingunni og fullkomin útisundlaug.
Frekari upplýsingar eru veittar hjá Framkvæmdasjóði íslands, Rauðarárstíg 25, sími 624070, og hjá
Hróbjarti Jónatanssyni hdl., Skeifunni 17, Reykjavík, sími 688733.