Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1989, Side 11
ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1989.
11
Bush prófar nýja hjólið sem forsætisráðherra Kina, Li Peng, gaf honum á laugardaginn.
Bush löðrungaður
segja sendimenn
Vinningsröðin 25. febrúar:
211 -121 -121 -XX1
Kínverjar löðrunguðu Bush
Bandaríkjaforseta með því aö koma
í veg fyrir að leiðandi andófsmaður
sæti kveðjuveislu forsetans í Peking.
Þetta sögðu vestrænir stjómarerind-
rekar í gær. Segja þeir að með þvi
hafi kínversk yfirvöld sýnt að þau
standi fast við þá stefnu sína að bæla
niður andóf innanlands.
Kínverskir leiðtogar em sagðir
hafa gert Bush grein fyrir því, á
meðan á tveggja daga heimsókn hans
í Kína um helgina stóð, að þeir
myndu ekki þola óstöðugt ástand í
landinu né íhlutun frá öðrum lönd-
um.
Bush lýsti yfir áhyggjum sínum við
varaforseta Kína, Wu Xueqian,
vegna atviksins og bað bandaríska
sendiherrann í Kína að fylgja málinu
eftir. Kínverskir embættismenn neit-
uðu að tjá sig um atvikið og opinber
fréttablöð í Kína fjölluðu ekki um það
í gær.
Móðgaði gestgjafana
Vestrænir stjórnarerindrekar
segja að Bush, sem verið hefur sendi-
herra Bandaríkjanna í Kína, hefði
móðgað gestgjafa sína alvarlega með
því að bjóða andófsmanninum Fang,
sem rekinn var úr kommúnista-
flokknum fyrir tveimur árum, og
tveimur öðrum andófsmönnum í
grillveislu sem forseta Kína, Yang
Shangkun, og mörg hundruð öðrum
gestum var boðið í.
Stjómarerindrekarnir segja að
Kínverjum sé sama um þó að álit
þeirra út á við hafi beðið hnekki
vegna atviksins. Til þess skipti stöð-
ugleiki innaniands of miklu máh.
HVERVANN?
5.170.799 kr.
12 réttir = 4.348.030 kr.
Einn var með 12 rétta - og fær í sinn hlut kr. 4.348.030,-
11 réttir = 822.767.
14 voru með 11 rétta - og fær hver í sinn hlut kr. 58.769,-
-ekkibaraheppni
meira að segja að hafa sagt við Bush
að lítill hópur manna í Kína aðhyllt-
ist vestrænt fjölflokkalýðræði sem
yfirvarp til þess að hræra upp í kín-
versku þjóðfélagi. Zhao réðst einnig
á ónefnda aðila í Bandaríkjunum
sem styðja kínverska andófsmenn.
George Bush Bandaríkjaforseti lýsir
yfir áhyggjum sínum við varaforseta
Kína, Wu Xueqian, vegna þess að
kínverskum andófsmanni var mein-
að að sitja boð hans á sunnudaginn.
Símamynd Reuter
Valdabarátta
Stjómarerindrekar segja að und-
anfama mánuði hafi sá orðrómur
verið á kreiki að valdabarátta sé haf-
in innan kínverska kommúnista-
flokksins. Samtímis hafa leiðtogam-
ir áhyggjur af verðbólgu og spillingu,
áframhaldandi sjálfstæðisbaráttu í
Tíbet og beiðni menntamanna í þess-
um mánuði um náð til handa sam-
viskuföngum.
Þrátt fyrir skarpar viðvaranir til
andstæðinga sinna lögðu kínverskir
leiðtogar áherslu á mikilvægi þess
að halda góðu sambandi við Banda-
ríkin samtímis því sem reynt er að
bæta samskiptin við Sovétríkin.
Reuter
NUNA?
Utlönd
Nauðungaruppboð
Annað og síðara sem auglýst var í 130., 133., og 137. tölubl. lögbirtingar-
blaðsins 1987 á fasteigninni Brákarbraut 7, Borgarnesi, þingl. eign Eggerts
Hannessonar og Þóreyjar Valgeirsdóttur fer fram að kröfu Iðnlánasjóðs,
innheimtumanns rikissjóðs og Byggðastofnunar á skrifstofu embættisins
mánudaginn 6. mars nk. kl. 11.
__________________Sýslumaður Mýra- og Borgarfjarðarsýslu.
Söluskattur
Viðurlög falla á söluskatt fyrir janúarmánuð 1989
hafi hann ekki verið greiddur í síðasta lagi 2. mars.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir hvern
byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau eru orðin
20%, en síðan reiknast dráttarvextir til viðbótar fyrir
hvern byrjaðan mánuð, talið frá og með 16. mars.
Fjármálaráðuneytið.
Stöðugleiki mikilvægur
Deng Xiaoping leiðtogi kvaðst von-
ast til þess að erlendir vinir Kínverja
myndu skilja að það væri mikilvægt
fyrir Kína að stöðugleikinn héldist.
Leiðtogi kommúnistaflokksins, Zhao
Ziyang, sem talinn er verða eftirmað-
ur Dengs, sagði Bush að Kína hermdi
ekki eftir öðrum löndum. Hann á
Þetta eru tölurnar sem upp komu 25. febrúar.
Heildarvinningsupphæð var kr. 4.828.641,-
1. vinningur var kr. 2.223.253,- Einn var með fimm tölur réttar.
Bónusvinningurinn (fjórar tölur + bónustala) var kr. 386.036,-
skiptist á 4 vinningshafa og fær hver þeirra kr. 96.509,-
Fjórar tölur réttar, kr. 665.856,- skiptast á 136 vinningshafa, kr. 4.896,- á mann.
Þrjár tölur réttar, kr. 1.553.496,- skiptast á 3.963 vinningshafa, kr. 392 á mann.
Sölustaðir eru opnir frá mánudegi til laugardags og er lokað 15 mínútum fyrir útdrátt.
BÓNUSTALA