Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1989, Side 12
12
ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1989.
Spumingin
Finnst þér að Bogdan eigi
að vera áfram þjálfari
íslenska landsliðsins
í handknattleik?
Sigurgeir Kristgeirsson nemi: Mér
finnst aö hann eigi aö hætta á toppn-
um. Hann hefur gert vel til þessa en
nú á að skipta um.
Leifur Örn Dawson málari: Ég sé
enga ástæðu til þess aö skipta um
þjálfara nú þegar gengur svona vel.
Ingimar Sigurðsson járnsmiður. Ég
vil endilega skipta um. Það þarf að
fá nýtt blóð í þetta.
Sigríður Hjelm sjúkraliði: Endilega
ekki. Liðið hefur sýnt mjög góða
frammistöðu undir hans stjórn.
Heimir Ársælsson afgreiðslumaður:
Ég vil að Þjóðveijinn Tiedemann
verði ráöinn í stað Bogdans, það er
kominn tími til.
Kjartan Jónsson sölumaður: Bogdan
á að vera áfram. Ég get ekki séö neina
ástæðu til þess að skipta.
Lesendur
Staðsetnlng varaflugvallarins:
Utan logsogu
landeigenda
Flugmaður skrifar:
Það er eins og fyrri daginn þegar
mál sem varða NATO og þátttöku
okkar íslendinga i þeim þörfu sam-
tökum ber á góma er eins og menn
missi ráö og rænu og umræður líkj-
ast gargi á andapolli, Þannig hefur
ekki linnt ásökunum og aðdróttun-
um þeirra sem finnst þéir séu
skyldugir að vetja landið fyrir
tækniframfórum í garð hinna sem
ekki standa á móti slíkum fram-
förura.
Ekkert hefur enn verið ákveðiö
sem ætti að valda sllku offorsi í
málflutningi þjóðernis- og land-
verndarsinna og hvað varðar
„innrás“ í ríki náttúrunnar við
Mývatn, Laxá eða annars staðar
fyrir norðan þá eru þeir einum of
fijótir á sér til að efna til andófs eða
mótmæla staðsetningu varaflug-
vallar fyrir innlent og erlent flug á
okkar fiugumferðarsvæði.
Sannleikurinn er sá að, eins og
Ómar Ragnarsson komst réttilega
að orði í sjónvarpsfréttum nýlega,
er um nóga staöi að veija á Norð-
ur- og Norðausturlandi sem geta
þjónaö sem landsvæði fyrir stóran
varafiugvölL Það ætti einmitt að
keppa aö því að finna strax aöra
nothæfa staði þar sem undirlendi
er nóg. Melrakkaslétta er einn
þeirra staða sem kanna þarf mun
betur.
Þaö er ástæöulaust að láta lan-
deigendur og nokkra bændur
standa í vegi fyrir að haldiö sé
áfram við að fmna heppilegt svæði.
Varaflugvöllur ætti einmitt að vera
utan allrar lögsögu landeigenda og
þar með er vandinn leystur. Þau
eftirmál, sem urðu við Laxá forð-
um, ættu að vera búin að kenna
okkur að engin skynsamleg rök
hníga aö því aö leita samninga viö
landeigendur þama nyrðra og þeir
ættu því ekki að þurfa að vera með
neinar heitingar í garð þeirrar
nauðsynlegu og aðkallandi fram-
kvæmdar sem varaflugvöllur á ís-
landi verður að teljast.
Hraunhafnartangi Rifstangi
leirhöfn J ^"nRif 1 MELRAKKAS Raufarhöfn
Axarjjörður \ SLÉTTA Þistils- } Jjörður
Kópasker
DI’JRJ 1
„Melrakkaslétta er efnn þelrra staða sem kanna þarf mun betur,“ segir
m.a. i brétinu.
Æðsti yfirmaður dómsvalds
Magnús Hafsteinsson skrifar:
Eins og komið hefur fram er mjög
ólíklegt að afskipti Halldórs As-
grímssonar dómsmálaráðherra af
málum Magnúsar Thoroddsen, fyrr-
verandi forseta Hæstaréttar, sé í
samræmi við stjómarskrána.
Valdkerfi þjóðfélags okkar byggist
á þrískiptingu valdsins, þ.e. dóms-
valdi, framkvæmdavaldi og löggjaf-
arvaldi, og fólk verður að gera sér
grein fyrir því að það er forseti
Hæstaréttar en ekki dómsmálaráð-
herra sem er æðsti maður dóms-
valds.
Það er að mínu mati stór galli á
stjómkerfi okkar að framkvæmda-
valdið skuli útnefna dómara og býð-
ur m.a. þeirri hættu heim að viðkom-
andi ráðherra álíti fulltrúa þess und-
irmenn sína.
En það er nokkuð ljóst að sam-
kvæmt stjómarskránni em þrír
valdamestu menn þjóðarinnar for-
seti Hæstaréttar, forseti sameinaðs
þings og forsætisráðherra. Vona ég
að fólki sé nú ljóst hvílík firra máls-
höfðun Halldórs Ásgrímssonar á
hendur forseta Hæstaréttar var. All-
ur hans málatilbúningur ber þess og
vitni að hann kann ekki skil á gmnd-
vallaratriöum stjómkerfis okkar.
Hringið
í síma
27022
milli kl.
10 og 12
eða skrifið
Dauðagildra
í Kópavogi?
Kópavogsbúi skrifar:
Mikill hiti er í íbúum Kópavogs
vegna þess sem ég kalla ólögleg
vinnubrögð bæjarstjórans við að út-
vega kunningja sínum lóð nr. 54 við
Sunnubraut hér í bænum. Félags-
málaráðherra sá ástæðu til að stöðva
þessa lögleysu og þannig stendur því
máhð í dag.
En eftir stendur húsgrunnur fyrir
þessa 600 fermetra höll og er þar
óvarinn 4 metra þverhníptur bakki
með klettagólfi. Bam sem þama fell-
ur niður á ekki lífsvon.
Þannig hefur þetta staðið í heilan
mánuð og þegar samband hefur verið
haft við bæjarstjórann fáum við allt-
af sama svarið. - Hann segist ekki
hafa heyrt þetta áður og skuh athuga
máhð. - En ekkert skeður.
Er virkhega beðið eftir að böm
okkar detti í þessa hrikalegu dauða-
ghdm? Mér finnst kunningsskapur
bæjarstjórans við húsbyggjandann
ekki geta gengið út yfir umhyggjuna
fyrir lífi bama þama í hverfinu -
Við krefiumst tafarlausra aðgerða.
Fargjöld og önnur gjöld
Hómfríður hringdi:
Samgönguráðherra segist munu
skipa nefnd (rétt eina enn!) til að
fylgjast með fargjaldaákvörðunum
Flugleiða hf. og koma í veg fyrir of
há flugfargjöld. Þessi framtakssemi
ráðherrans er þakkarverð en hvem-
ig væri að þessi sami ráðherra, sem
einnig er landbúnaðarráðherra,
skipaöi nefnd til að kanna verðá-
kvarðanir á landbúnaðarvörum.
Það mætti t.d. byrja á því að láta
kanna verðákvarðanir á kjúkhnga-
kjöti sem er á margföldu verði miðað
við það sem annars staðar þekkist.
Það er staðreynd að matarkostnað-
ur hér á íslandi er orðinn ógnun við
lífskjör almennings og er það langt-
um alvarlegra mál en fargjöld með
Flugleiðum. „Matarkostnaöur er orðinn ógnun við I ífskjör almennings," segir Hólmfriður.
Vantar ömmu
í stundina
Móðir skrifar:
Ég á ungan son sem hefur mikla
ánægju af „Stundinni okkar". Hann
er hrifinn af brúðunum og fer með
mér á mihi leikvaha á sumrin til að
fylgjast með Brúðubílnum.
Það er aðeins eitt sem hann er
ósáttur við. Honum finnst vanta eina
skemmtilegustu persónuna, nefni-
lega ömmuna. - Ámma og Lilli fara
saman á kostum eins og flestir
krakkar þekkja.
Sem móður finnst mér samtöl
þeirra hafa gott uppeldislegt gildi.
Amman leiðréttir og leiðbeinir htla
apanum sem er svolítið ráðvhltur í
veröldinni.
Vonandi sér Sjónvarpið sér fært að
bæta úr þessu sem fyrst, ótal mörg-
um th meiri ánægju. Annars vhdi ég
þakka Helgu fyrir góða bamaþætti
og vona að hún verði sem lengst með
þá.
Ennþá angrar
vísindadellan
Konráð Friðfinnsson skrifar:
Hvalurinn angrar landsmenn enn-
þá. Þjóðverjar hafa, hver á eftir öör-
um, sagt upp viðskiptasamningum
við íslendinga. Sá skaði, sem þegar
er orðinn, kvað nema tveimur mhlj-
örðum króna samtals. „Aldi“-menn
ásamt lagmetiskaupmönnum gerast
þreyttir á þrákelkni stjómvalda.
Rækjuverksmiðjum verður lokað á
næstunni með thheyrandi fiöldaupp-
sögnum starfsfólks.
Háttvirtur sjávarútvegsráðherra
er enn við sama heygarðshornið og
lætur hiklaust hafa eftir sér að allt
sé í himnalagi. Ráöherrann segir
einnig að landinn muni bera sigurorð
af „þessu fólki" að lokum. Og á þar
vitaskuld við Greenpeacesamtökin.
Ýmislegt hyggjast valdamenn vorir
aðhafast í máhnu. Öflug og kostnað-
arsöm áróðursherferð er í bígerð.
Bæklingum, er innihalda víst fátt
nema myndir af fiöhum er baða sig
í kvöldsólinni að sumarlagi ásamt
lofgjörðalesningu varðandi heh-
næmt og tært andrúmsloft íslands,
verður dreift th helstu kaupenda og
stofnana þýskra. En því miöur mun
árangur erfiðisins láta á sér standa.
Við höfum misst af vagninum. Hve-
nær ætla menn að skhja þessa stað-
reynd?
Ég hefi lengi haft þá skoðun að
okkur beri að hætta ahri úlfuð gagn-
vart grænfriðungum. Bjóða þeim
þess í stað útrétta sáttahönd og jafn-
vel að reisa sínar aðalbækistöðvar
hér á landi. Flestöll baráttumál Gre-
enpeace eru eins og sniðin handa
þegnum lands elds og íss th að ghma
við. - Og þá meina ég baráttu samtak-
anna gegn mengun úthafanna. Þar
svífast iðnaðarríkin einskis en græn-
friðungar hafa lyft þar Grettistaki,
hvað sem hver segir.
Margir telja að verði núna slakað
á muni náttúruvemdarfólkið næst
beina spjótum sínum að þorskinum.
Mitt áht er að slík hræðsla sé ástæðu-
laus. Grænfriðungum er fuhkunnugt
um á hverju landsmenn lifa. Þeir
vita líka að við þraukum þótt hval-
veiðamar leggist af. Markmið þeirra
er ekki að gera ísland að eyðieyju
eins og æfla mætti af ummælum ein-
stakra ræðumanna. En ekki er öh
nótt úti á meðan hugsjónamenn á
borð við Áma Gunnarsson og hans
hka starfa á Alþingi.
áskilur sér rétt til
að stytta bréf og
símtöl sembirt-
ast á lesendasíð-
um blaðsins