Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1989, Page 16
16
ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1989.
ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1989.
17
Jþrottir
Blak:
Úrslit
hafin
Úrslitakeppnin í blaki er hafin.
Um helgina voru leiknar tvær
fyrstu umferðiraar, bæði í úr-
valsdeiid kvenna og karla.
Á laugardaginn var fyrri um-
ferðin leikin og þá áttust við
kvennalið Víkings og Þróttar
Nes. Þróttur Nes. kom á óvart
með því að vinna fyrstu hrinuna,
15-17, og átti Jóna Viggósdóttir
marga glæsilega skelli í gólf Vík-
inga en Víkingar gerðu út um
leikinn í næstu þremur hrinum
og unnu auðveldiega, 15-6, 15-5
og 15-6. Sigrún Sverrisdóttir,
uppspilari Víkinga, átti mjög góð-
an leik.
í Kópavogi léku Breiðablik og
Stúdínur. Urslit leiksins komu á
óvart þar sem UBK vann ÍS auð-
veldlega í þremur hrinum. Hrin-
urnar fóru 15-10, 15-10 og 15-5!
ÍS átti mjög slakan leik og gekk
illa að ná sókn. Breiöabliksliðið
náði hins vegar betur saman en
undanfarið. I karlaflokki mætt-
ust erkifjendurnir Þróttur R. og
ÍS. Skemmst er frá að segja að ÍS
sigraöi í leiknum, 3-1, og fóru
hrinumar 15-7, 9-15, 15-12 og
15- 13.
HK og KA áttust við í Digra-
nesi. Kópavogsliðið reyndist
deildarmeisturunum lítil hindr-
un. KA vann leikinn, 3-0, með þá
Stefán Magnússon og Stefán Jó-
hannsson sem bestu menn. Hrin-
ur fóru 15-9,15-8 og 15-9 og tók
leikurinn aðeins 50 mínútur.
Á sunnudag var svo önnur
umferð leikin. Viðureign dagsins
var leikur ÍS og KA. Lið Stúdenta
byrjaði leikinn af krafti og vann
fyrstu tvær hrinurnar, 15-10 og
16- 14, og spilaöi þá oft mjög
skemmtilegt biak. KA-menn voru
hins vegar dálítið hikandi þar til
í þriðju hrinu en í henni tókst
þeim að sigra með mikilli baráttu,
15-13, eftir að ÍS hafði haft for-
ystu framan af. Eftirleikurinn
reyndist Akureyringunum nokk-
uð auöveldur. I fjórðu hrinu var
allur vindur úr ÍS-mönnum og
KA-menn unnu hana 15-3 og þá
firamtu 15-7. Bestir hjá KA voru
Haukur Valtýsson og Kínverjinn
Ho Fei. Sigurður Þráinsson átti
góðan leik með ÍS.
Þróttarar léku gegn HK og
imnu þá ffekar auðveldlega, 3-1,
15-2,10-15,15-10 og 15-4. Þróttar-
liðið var jaftit, þjá HK átti hinn
ungi Stefán Sigurösson mjög góð-
an leik. Eftir helgina eru deildar-
meistarar KA efstir með 4 stig,
ÍS og Þróttur meö 2 stig hvort
félag en HK rekur lestina með 0
stig.
í kvennaflokki lék ÍS gegn
Þrótti Nes. ÍS vann fyrstu hrin-
una 15-0! Stúdínur unnu einnig
næstu hrinu, 15-8, en Þróttur
vann þriðju hrinu auöveldlega,
15-6. ÍS tryggöi sér svo sigurinn
með því að sigra í íjórðu hrinu,
15-12. Stúdínur urðu fyrir þvi
óhappi í leiknum að Þórey Har-
aldsdóttir meiddist á ökkla og er
óvíst hvort hún getur leikiö meira
meö í vetur.
Breiöablik og Víkingur léku um
kvöldiö og sigraði Víkingur í
þremur hrinum. Fyrstu tvær
hrinumar tóku næstum klukku-
tima og enduöu 15-11 og 15-13.
Þriðja hrinan vannst örugglega,
15-8. Særún Jóhannsdóttir var
best hjá Víkingum en Sigurlin
Sæmundsdóttir hjá UBK.
í kvennafiokki er staðan þannig
að deildarmeistarar Víkings eru
efstir með 4 stig, ÍS og UBK eru
með 2 stig en Þróttur Nes. hefur
ekkert stig hlotið.
Um helgina var svo dregið í
undanúrslit bikarkeppni BLÍ. í
karlaflokki mæta ÍS-menn HK-
ingum og Þróttarar leika gegn
KA. í kvennaflokki spila annars
vegar Völsungur og HK og hins
vegar Víkingur A og Víkingur B.
-B
Góð nýting
í heildina
- hjá landsliðinu í B-keppninni
Stefin Kristjánsson, DV, París:
íslenska liðið fékk samtals 307
sóknartilraunir í B-keppninni og
skoraði alls 176 mörk. Sóknarnýting-
in er 57,3% sem er mjög góður árang-
ur.
Frammistaða einstakra leikmanna
á mótinu var sem hér segir:
Kristján Arason skaut 47 skotum,
þar af tveimur vítaskotum. Hann
skoraöi 26 mörk og eitt úr víti. 14
skot voru varin, þar af 2 víti og 7
skot fóru fram hjá. Kristján tapaði
bolta 8 sinnum en vann hann tvíveg-
is. 4 víti fiskaði Kristján og hann átti
12 línusendingar.
Þorgils Óttar Mathiesen skaut 33
skotum og skoraði 23 mörk. 7 skot
voru varin og 3 fóru fram hjá. Þorg-
ils Óttar tapaði boltanum einu sinni
og vann hann einu sinni. Að auki
fiskaði fyrirliðinn 13 vítaköst.
Alfreð Gíslason skaut 44 skotum
og skoraði 23 mörk, þar af 3 úr víta-
köstum. Varin skot voru 17, þar af
eitt víti. Alfreð skaut 4 skotum fram
hjá. 7 boltum tapaði hann og vann
3, fiskaöi 3 víti og gaf 12 línusending-
ar.
Jakob Sigurðsson skaut 22 skotum
og skoraði 19 mörk, 3 skot voru var-
in. Jakob tapaði einum bolta en vann
2 og átti eina línusendingu.
Sigurður Sveinsson skaut 26 skot-
um, þar af 16 vítaskotum. Siggi skor-
aöi 21 mark, þar af 15 úr vítaskotum.
3 voru varin, þar af eitt víti og 2 fóru
fram hjá. Að auki fiskaði hann eitt
víti og átti tvær línusendingar.
Valdimar Grímsson skaut 25 skot-
um og skoraði 14 mörk, 9 skot voru
varin og 2 fóru fram hjá. Valdimar
tapaði 3 boltum, vann engan, fiskaði
eitt víti og átti enga línusendingu.
Héðinn Gilsson skaut 25 skotum og
skoraði 13 mörk, 8 skot varin og 4
fram hjá. Hann tapaði 7 boltum en
vann einn, fiskaði 4 víti og átti 4 línu-
sendingar.
Sigurður Gunnarsson skaut 28 skot-
um, þar af 3 vítaskotum. Hann skor-
aði 13 mörk, þar af 3 úr vítaskotum.
12 skot voru varin og 3 fóru fram
hjá. 11 boltum tapaði Sigurður, vann
engann, fiskaði ekkert víti og átti 11
línusendingar.
Guðmundur Guðmundsson skaut 12
skotum og skoraði 10 mörk, eitt skot
varið og eitt fram hjá. Tveimur bolt-
um tapaði Guömundur, vann einn,
fiskaði 2 víti og átti enga línusend-
ingu.
Bjarki Sigurðsson skaut 17 skotum
og skoraði 10 mörk, 6 voru varin og
eitt fór fram hjá. Bjarki tapaði einum
bolta, vann 2, fiskaði 2 víti og átti
eina línusendingu.
Júlíus Jónasson skaut 4 skotum og
skoraði 3 mörk, eitt skot fram hjá.
Geir Sveinsson reyndi eitt markskot
og það fór fram hjá. Hann tapaði ein-
um bolta og vann annan.
Einar Þorvarðarson varði samtals 56
skot og af því voru 8 vítköst.
Guðmundur Hrafnkelsson varði
samtals 27 skot.
wlÍke TySOnvarði heimsmeistaratitil sinn í þungavigt i hnefaleikum í
Las Vegas um helgina. Tyson sigraði Frank Bruno frá Bretlandi á tækni-
legu rothöggi í fimmtu hrinu. Tyson hafði talsverða yfirburði í viðureigninni
gegn hinum 22 ára gamla Englendingi. Þetta var 36. sigur Tysons i röð.
Símamynd/Reuter
Bjarni vann
bronsverðlaun
- á opna skoska meistaramótinu í júdó
Bjarni Friöriksson júdómaður vann til bronsverðlauna í sínum
flokki á opna skoska meistaramótinu í júdó. Mótið fór fram um síð-
ustu helgi.
Bjarni, sem vann bronsverðlaun á ólympíuleikunum í Los Angeles
árið 1984, fór hamfórum á raótinu í Skotlandi. Hann vann vann fimra
glímur, allar á ippon eða með fullnaðarsigri, en tapaði einni fyrir
skoskum júdómanni.
Sá kappi glímdi síðan til úrslita og beið þar lægri hlut fyrir Englend-
ingnum Dennis Stewart sem hreppti gullverðlaun á skoska meistara-
mótinu.
Þess má geta að Stewart þessi hafði betur í viðureign við Bjama á
ólympíuleikunum í Seoul í haust
Halldór Hafsteinsson glimdi einnig á skoska meistaramótinu og stóð
sig vel framan af en tapaði síðan sinni fyrstu viðureign í úrslitum.
-JÖG
Guðmundur Hrafnkelsson stóð fyrir sinu í B-keppninni í Frakklandi. Hann átti stórleik gegn Svisslendingum og varði þá eins
og berserkur. Hann varði síðan frábærlega vel undir lokin í leik íslendinga og Pólverja. í heildina varði Guðmundur 27 skot.
Hér ver hann eitt þeirra frá Dariusz Bugaj í pólska liðinu. Símamynd Reuter
FH missti dýrmætt stig
- Fram meö nauma forystu í 1. deild kvenna
FH missti af dýrmætu stigi í barátt-
unni um íslandsmeistaratitilinn í hand-
knattleik kvenna á föstudagskvöldið er
liðið gerði jafntefli við Stjömuna, 13-13,
í Hafnarfirði.
Stjömustúlkurnar geta þakkað frá-
bærri vöm sinni og markvörslu Fjólu í
síðari hálfleik fyrir annað stigið í leik
þeirra gegn FH á fóstudagskvöld. FH
byrjaði leikinn vel og leiddi í hálfleik
9-6. En með geysilegri baráttu náðu
Stjörnustúlkurnar að jafna leikinn.
Bæði liðin fengu gullin tækifæri til að
gera út um leikinn en markveröir lið-
anna, þær Halla og Fjóla, fóru á kostum
á lokamínútunum og sáu til þess að
mörkin yrðu ekki fleiri.
• Mörk FH: Heiða 5, Eva og Kristín
3, Rut og Sigurborg 2 hvor, Ingibjörg 1
mark.
• Mörk Stjörnunnar: Ragnheiöur 3,
Erla, Helga, Hmnd og Ingibjörg 2 hver,
Herdís og Guðný Guðnad. l mark hvor.
Valur
sigraði
Valur sigraði Tindastóll, 89-81, í
Flugleiðadeildinni í körfuknattleik
að Hlíðarenda í gærkvöldi. Valur
hafði forystu í hálfleik, 50-49. Leiku
inn var í jafnvægi lengst af en Vals-
menn voru sterkari á lokasprettin-
um. Tómas Holton var stigahæstur
Valsmanna með 26 stig en Valur Ingi-
mundarson skoraði mest hjá Tinda-
stóli 31 stig.
Sigurður Valur Halldórsson og Jón
Otti Ólafsson dæmdu leikinn vel.
-JKS
Tvö töp Eyjastúlkna
ÍBV stúlkurnar fóru ekki fengsæla ferð
til höfuðborgarinnar um helgina. Þær
spiluðu tvo leiki og töpuðu þeim báðum.
A fóstudag gegn Val, 25-16, og á laugar-
dag gegn Haukum, 30-19.
ÍBV liðið spilaði oft ágætlega í fyrri
hálfleik í leik þeirra gegn Val og var
munurinn aðeins þrjú mörk í hálfleik,
11-8. Valsstúlkurnar komu ákveðnar til
síðari hálfleiks og juku muninn jafnt og
þétt og þegar flautað var til leiksloka var
munurinn orðinn níu mörk, 25-16
Mörk Vals: Katrín og Guðrún 5 hvor,
Una og Kristín Anna 4 hvor, Lúlú 3,
Kristín P. 2 og nöfnurnar Ásta Elín og
Ásta Björk sitt hvort glæsimarkið.
• Mörk ÍBV: Andrea 6, Ingibjörg 3,
Arnheiður, Berglind og Stefanía 2 hver,
Ásdís 1.
Sigur Hauka var aldrei í hættu á laug-
ardag. Þær höfðu yfirhöndina allan leik-
inn og eftir að hafa haft sex marka for-
ystu í hálfleik, 15-9, juku þær enn á for-
skotið og endaði leikurinn með 11 marka
sigri þeirra, 30-19.
• Mörk Hauka: Þórunn 9, Margrét 7,
Ragnheiður, Hrafnhildur, Steinunn og
Inga 3 hver, Brynhildur og Elva eitt
hvor.
• Mörk ÍBV: Andrea 6, Ingibjörg 5,
Stefanía og Ólöf 3 hvor, Elísabet 2
Staðan í 1. deild er þannig:
Fram.............12 10 0 2 231-159 20
FH...............12 9 1 2 241-172 19
Haukar...........14 7 2 5 271-261 16
Valur............14 8 0 6 257-239 16
Víkingur.........15 7 1 7 277-265 15
Stjarnan.........12 6 2 4 247-212 14
Þór A..........13 1 0 12 190-297 2
ÍBV............12 1 0 11 165-274 2
-ÁBS/EL
Framganga
manna í tölum
Stefón Kristjánssan, DV, París:
Kristján Arason skoraði flest mörk
íslenska landsliðsins í B*keppninni en
Jakob Sigurðsson var með besta nýt-
ingu í skotura. Kristján skoraði 26/1
mörk en nýting Jakobs var 86,3%.
Hér er listinn yfir þá leikmenn sem
skoruöu mörk íslands hér 1 Frakklandi
og skotanýting einstakra leikmanna,
skot/mörk og nýting:
KristjánArason...........47/26 = 55,3%
Þorgils Óttar........
Alfreð Gíslason......
Sigurður Sveinsson...
(16 vítaköst)
Jakob Sigurðsson.....
ValdimarGrimsson.....
Héðinn Gilsson.......
' SigurðurGunnarsson...
Guðm. Guðmundsson...
BjarkiSigurðsson.....
JúliusJónasson.......
.33/23 = 69,6%
.44/23 = 52,2%
.26/21 = 80,7%
.22/19 = 86,3%
.25/14 = 56,0%
.25/13 = 52,0%
.28/13 = 46,4%
.12/10 = 83,3%
.17/10 = 58,8%
...4/3 = 75,0%
íþróttir
Arsenal vill
Sigga Jóns
- framkvæmdastjóri Arsenal sýnir Sigurði mikinn áhuga
Guimar Sveiribjönisson, DV, Englandi:
Breska dagblaðið News of the
World segir í gær frá því í stórri frétt
á baksíða blaðsins að Arsenal, efsta
liðið í 1. deild, hafi augastað á ís-
lenska landsliðsmanninum Sigurði
Jónssyni hjá Sheffield Wednesday.
George Graham, framkvæmda-
stjóri Arsenal, sagði í samtali við
breska blaðið að hann hefði mikinn
áhuga á Sigurði. Arsenal þyrfti að
styrkja hópinn fyrir lokaslaginn í
deildarkeppninni. Enski landsliðs-
maðurinn, Paul Davis, er meiddur
um þessar mundir og sagði Graham
að af þeim sökum væri áhugi hans á
Sigurði til kominn. Graham sagði
ennfremur að Sigurði gæti jafnframt
leikið sem bakvörður þó hann léki
sem miðjuleikmaður hjá Sheffield
Wednesday.
Ron Atkinson, framkvæmdastjóri
Sheffield Wednesday, hafnaði sem
kunnugt er tilboði frá skoska félginu
Celtic sem hljóðaði upp á 40 milljónir
íslenskra króna. Eftir tap Wednesay
gegn Wimbledon á laugardaginn var
er talið að Atkinson sé tilbúinn að
selja Sigurð, en samningur hans við
félagið rennur út í vor. Sigurður lék
ekki með Wednesday gegn Wimble-
don og vakti það mikla gremju stuðn-
ingsmanna liðsins.
News of the World sagði að ef Sig-
urður færi til Arsenal yrði annar ís-
lendingurinn sem léki með félginu.
Albert Guðmundsson hefði leikið
með Arsenal 1946-47 við góðan orðst-
ír.
• Sigurður Jónsson.
Haukar eru komnir í 2. sæti 2.
deildarinnar í handknattleik eftir
að hafa fengið fjögur stig á síð-
ustu dögum. Fyrri tvö voru ansi
ódýr því Afturelding mætti ekki
til leiks í Hafharfjörðinn og
Haukum var dæmdur sigur og
markatalan 10-0. Síöan sigruðu
þeir Keflvikinga, 28-20.
Selfyssingar bættu stöðu sína
verulega mn síðustu helgi með
góðum sigri í Njarðvík, 28-25, og
eru þar með sloppnir af hættu-
svæði deildarinnar. Staðan í
deildinni er nú þannig:
HK........14 12 1 1 371-277 25
Haukar.... 15 10 2 3 354-285 22
ÍR.......12 9 1 2 306-231 19
Ármann.. 14 9 1 4 327-325 19
Njarðvík. 13 6 1 6 327-314 13
Selfoss..13 6 0 7 332-327 12
Þór......14 4 0 10 282-357 8
Keflavík.. 14 4 0 10 306-341 8
Aftureld.. 14 3 0 11 296-338 6
ÍH.......13 2 0 11 245-351 4
Efstu Iiöin, HK og Haukar,
mætast í Digranesi annað kvöld
kl. 20. f
-ÆMK/VS
Reynir fær sæti
í úrvalsdeild
- Sandgerðingar öruggir upp
Kristján Bemburg, DV, Belgíu:
í nýjasta hefti knattspyrnu-
tímaritsins Votbal Magazin er
leitt aö því getum aö Standard
Liege kaupi Asgeir Sigurvinsson
frá vestur-þýska félaginu Stutt-
gart.
í grein um Ásgyir segir: „Slæ_m-
ar fréttir fýrir íslendingjnn Ás-
geir Sigurvinsson sem átti svo
mörg góö ár hjá Standard. Arie
Haan, þjálfari hans hjá Stuttgart,
mun trúlega verða að selja
Júrgen Klinsmann, sem er að
veröa einn besti sóknarmaöur í
Evrópu, en í hans stað hefur Ha-
an sagst vilja kaupa útlending.
Þar sem aðeins tveir útlendingar
eru leyfðir í hverju liði í Vestur-
Þýskalandi mun Ásgeir trúlega
verða að víkja þar sem hann er
mun eldri en Júgóslavinn Kat-
anec. Nú er kjörið tækifæri fyrir
Standard að ná í Ásgeir aftur.“
Ásgeir lék í átta ár með Stand-
ard, frá 1973 til 1981, og alla tíð
síðan hafa belgísk blöð skrifað
um hann reglulega og á mjög já-
kvæðan hátt - og jafnan getið
þess er hann hefur átt velgengiú
að fagna í Vestur-Þýskalandi.
Blaðamenn hafa ekki gleymt
honum og því síður stuðnings-
menn Standard, þó nú séu liðin
átta ár síðan hann fór frá félag-
inu. Þess má geta að þjálfari
Standard er Roger Henrotay sem
lék við hlið Ásgeirs með félaginu
á árum áður. Ásgeir verður 34 ára
í vor og á enn eitt ár eftir af samn-
ingi sínum við Stuttgart, fram-
lengdi honum til 1990 á dögunum.
Jw
Im ■■■ ■
kvold
Tveir leikir verða í Flugleiða-
deildinni í körfuknattleik í kvöld
kl. 20.00. Tindastóll frá Sauðár-
króki og ÍR leika á Sauðárkróki
og UMFN og Grindavík leika í
Njarðvík.
Reynir úr Sandgerði verður íjórða
Suðumesjaliðið í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik á næsta keppnistíma-
bili. Reynismenn unnu sinn skæð-
asta keppinaut, UÍA, með yfirburð-
um í Sandgerði á laugardaginn,
97-65, og eru þar með öruggir með
efsta sætið - nema þeir tapi öllum
sínum leikjum, gegn Létti, Skalla-
grími og Breiðabliki, og Breiðablik
vinni þá leiki sem hðið á eftir og
Reyni með 26 stiga mun!
Reynismenn léku fyrir skömmu
tvo frestaða leiki, unnu Víkverja
53-46 í Reykjavík og Snæfell með
77-59 í Sandgerði. Staðan í deildinni
er þannig:
Reynir..........11 10 1 745-567 20
UÍA.............12 8 4 847-737 16
Laugdælir......11 7 4 758-637 14
UBK.............10 6 4 704-669 12
Snæfell.........12 5 7 873-908 10
Léttir..........12 4 8 778-877 8
Skallagr........10 4 6 605-704 8
Víkverji........10 0 10 524-735 0
UÍA, Laugdæhr og Breiðabhk berj-
ast um annað sætið í deildinni en lið-
ið sem hreppir það mætir næstneðsta
liði úrvalsdeildar og á því möguleika
á að komast upp.
-ÆMK/VS
Iþróttafræði:
Bjarni Stefán Konráðsson
íþróttakennari hefur skrifað rit-
gerð um þjálfun þriggja íslenskra
knattspyrnuliða, Fram, KA og
Akraness, og er hún lokaverkefni
hans við íþróttaháskólann í Köln.
Rjarni hefur lengi unnið að rit-
smíðinni og er henni nú lokið.
Hann hyggst halda opna um-
ræðufundi hjá umræddum félög-
um og kynna þar efni ritgerðar-
innar og efna til umræðna um
það. Fyrsti fundurinn verður í
kvöld, hjá Fram, og er haldinn í
heimili félagsins í Safamýrinni
og hefst kl. 20.30.
-VS
INNLAUSNARVERÐ
VAXTAMIÐA VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
Í2.FLB1985
Hinn 10. mars 1989 er sjöundi fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra
spariskírteina ríkissjóðs með vaxtamiðum í 2. fl. B1985.
Gegn framvísun vaxtamiða nr. 7 verður frá og með 10. mars nk. greitt sem hér segir:
__________Vaxtamiði með 50.000,- kr. skírteini_kr. 3.124,30_
Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið
10. september 1988 til 10. mars 1989 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun
sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu 1239 hinn 1. september 1985
til 2346 hinn 1. mars 1989.
Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gialddaga.
Innlausn vaxtamiða nr.7 ferfram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka Islands,
Kalkofnsvegi 1, Reykjavík, og hefst hinn 10. mars 1989.
Reykjavík, febrúar 1989
SEÐLABANKIÍSLANDS