Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1989, Side 24
24
ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1989.
LífsstíU
DV kannar verð í Breiðholti:
Að meðaltali 26%
munur á hæsta
og lægsta verði
- mesti verðmunur 64%
Straumnes er ein þeirra verslana í Breiðholti sem skipt hafa um eigendur
að undanförnu. DV-mynd KAE
Neytendasíða DV kannaði verð á 18
vörutegundum í 8 verslunum í Breið-
holtshverfi. Helstu niðurstöður voru
þær að meðaltalsverðmunur á hæsta
og lægsta verði var 26,6% eða allt frá
4% upp í 64%.
Sé litið á verð á 8 tegundum, sem
fengust alls staðar, kemur í ljós að
samkvæmt því er ódýrast að versla
í Gæðakjöri í Seljahverfi en þar kost-
aði pakkinn 912 krónur. Dýrust eru
innkaupin í versluninni Hraunbergi
við samnefnda götu en þar kostar
karfan 1.059 krónur. Munurinn er
rúm 16%.
Mestur verðmunur kom í ljós á
lauk en kílóið var dýrast í Hraun-
bergi á 78 krónur en ódýrast í Breið-
holtskjöri á 56 krónur. Munurinn er
þarna 64%.
Græn paprika kostaði minnst 266
krónur kílóið í Sparkaupi í Hólagarði
en mest 390 krónur kilóið i Selja-
kjöri. Munurinn er 46%.
Það þýðir að á ódýrari staðnum er
næstum hægt að fá eina og hálfa
papriku fyrir verð einnar á hinum
staðnum.
Ajax þvottaefni í 75 desilítra dunk-
um kostaði minnst 299 krónur í Spar-
kaupi en mest 454 krónur í Kron við
Eddufell. Munurinn er 51%.
Homeblest súkkulaðikex kostaði
mest 84 krónur í Breiðholtskjöri en
minnst rúmar 69 krónur í Spar-
kaupi. Munurinn er 20% sem þýðir
að fyrir sama verð fást 10 kexkökur
í Breiðholtskjöri en 12 kexkökur í
Sparkaupi.
Cocoa Puffs kostaði mest 181 krónu
pakkinn í Hraunbergi en minnst 140
krónur í Gæðakjöri. Munurinn er
Breiðholts- kjör Nýi- Garður Selja- kaup Ásgeir Gæöa- kjör Sparkaup Hólagarði Kron Eddufell Hraun- berg Munur á hæsta og lægsta
Cocoa Puffs 12 oz 162 174 165 161 140 155 160 181 29%
Morgungull 206 202 198 199 204 4%
Maggi kartöflumús 65 67 62 59,80 69 72 20%
Solgryn 950 g 111 129 121 118 119 119,80 121 137 20%
Libbystómatsósa 97,50 99 102 99 89 88 97 107 21%
Ora fiskibollur 210,50 229 210 219 215 210 231 243 15%
Ora maís 'A dós 103 109 108 111 106 97 99 119 22%
Kornax hveiti 2 kg 76 82 119 86 56%
Homeblestkex 84 81 79 76 69,80 71 20%
Frón kremkex 81 83 91 83 79 79,80 85 15%'
Ajax 75 dl 374 402 299 454 51%
Nescafé gull, stór 448 446 429 445 453 5%
Gunnars majones 400 g 98 99 103 99 98 99 102 108 10%
1 kg laukur 56 70 92 75 57 69 63 78 64%
1 kgkjötfars 270 270 320 298 298 340 290 26%
2 kg sykur 78 99 . 104 99 88 87 80 86 33%
HrísgrjónRiver454g 66 60 63 54 60 22%
Paprika græn 1 kg 355 390 359 289 266 306 337 46%
Verð8tegunda
sem fengust alls staðar 916 1008 1005 981 912 924 953 1059
„Handahófskennd vinnu-
brögð og illa unnar kannanir"
- segir eigandi verslunar á Akureyri sem neitar að taka þátt í verðkönnunum Neytendafélags Akureyrar og nágrennis
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Málið er einfaldlega það að mér
finnst þessar kannanir Neytendcifé-
lags Akureyrar og nágrennis illa
unnar og handahófskenndar," segir
Axel Valgeirsson, eigandi Verslunar-
innar Garðshoms á Akureyri, en
hann neitar að taka þátt í verðkönn-
unum sem félagið framkvæmir.
Neytendafélag Akureyrar og ná-
grennis var með verðkönnun á dög-
unum í þeim verslunum á Akureyri
sem teljast vera svokaUaðar minni
verslanir. Þegar sá sem framkvæmdi
þessa könnun kom í Verslunina
Garðshom hafði afgreiðslustúlka
samband við eiganda verslunarinnar
og hann neitaði þá að taka þátt í
könnuninni.
„Mér var aldrei sagt að þetta væri
einungis könnun hjá litlu verslunun-
um í bænum, það var ekki tekið
fram,“ segir Axel Valgeirsson. En
hyggst hann þá hunsa þessar kann-
anir í framtíðinni verði til hans leit-
að?
„Framtíðin verður aö skera úr um
það. Ef ég sé að það verður eitthvert
vit í þessum könnunum þá er ég til-
búinn að taka þátt, annars ekki. Það
hefur verið látið í það skína að ég sé
hræddur við að taka þátt í þessu
vegna þess að vömverð sé hátt hjá
mér, en það er firra. Verslun í Garðs-
horni hefur aukist eftir að ég tók við
versluninni, og mínir viðskiptavinir
eru ánægðir.
Ég er hins vegar ekki jafnánægður
með framkvæmd þessara verðkann-
ana. Það gerist t.d. hvað eftir annað
að teknir em fyrir vöruflokkar sem
hafa nýlega hækkaö og litlu verslan-
imar em settar í könnun með stóm
verslununum eins og Hrísalundi og
Hagkaup. Það hljóta allir að sjá að
litlu verslanimar hafa minni vöm-
lager og þurfa því fyrr að kaupa inn
vömr á nýja verðinu og þar af leið-
andi aö hækka vöraverðið.
Það hefur líka oft komið fyrir að
þeir sem framkvæma kannanir fyrir
NAN hafa gert vitleysur. Þær em svo
leiðréttar einhvers staðar úti í horni
mörgum dögum síðar og em þá þegar
búnar að valda viðkomandi verslun
skaða. Ef vinnubrögðin verða löguð
og vandað til þessara hluta þá skal
ekki standa á mér að taka þátt í
þessu,“ sagði Axel Valgeirsson.
„Þekki þessa gagnrýni“
Anna Soffia Þorsteinsdóttir hjá
Neytendafélagi Akureyrar og ná-
grennis sagði DV að hún hefði komið
í Garðshom og beðið um leyfi til aö
framkvæma þar verðkönnun. Þegar
haft var samband við eigandann hafi
hann neitað og ekki viljað við sig
tala. Það væri rétt að honum hafi
ekki verið tjáð að hér væri um könn-
un í „litlu verslununum" að ræða,
en hann hafi heldur ekki spurt hvort
svo væri.
„Ég kannast vel við þá gagnrýni
sem hann setur fram. Staðreyndin
er hins vegar sú að ég leitast við að
kanna verð á þeim vöruflokkum sem
segja má að seljist daglega, vörur sem
fólk er alltaf að kaupa. Ég hef heyrt
það frá kaupmönnum í minni versl-
ununum að þeir vilji fremur láta
kanna verð á vömm sem seljast lítiö
og þar hafa þeir vissulega meiri
möguleika á að standa sig gagnvart
stærri búðunum.
Varðandi það að taka saman stærri
og minni verslanirnar, þá er þvi til
að svara að það er þetta sem fólkið
vill. Fólk vill geta borið saman verð-
ið í stórmörkuðunum annars vegar,
og verðið í minni búðunum hins veg-
.ar. Ég hef tekið fram að e.t.v. sé ekki
raunhæft að bera þetta tvennt sam-
an, en þetta er einfaldlega það sem
fólkið vill fá að sjá,“ sagði Anna Soff-
ía Þorsteinsdóttir.
Neytendur
29% sem þýðir að í Hraunbergi greið-
ir neytandinn 181 krónur fyrir 340
grömm en ætti að fá um 438 grömm
ef miðað væri við sama verð og í
Gæðakjöri.
Á heÚdina litið virðast Breiðholts-
búar eiga ýmissa kosta völ í viðskipt-
um sínum við hverfisbúðirnar. í
flestum verslunum er gott úrval og
verðmunur milli þeirra er ekki ýkja
mikill þó miklu muni á einstökum
tegundum. Þó virðist Hraunberg
hafa nokkra sérstöðu en þar var
verðið í flestum tilfeUum hæst.
Kaupmaðurinn í Hraunbergi færðist
undan þátttöku í könnuninni og er
það ástæða þess að ekki er tíundað
verð á fleiri tegundum þar en raun
ber vitni.
-Pá
Akureyri:
Hólabúðin
kom
best út
Gyifi Kristjánaaan, DV, Akureyri:
Hólabúðin fékk hagstæðustu
útkomuna í verðkönnun sem
Neytendafélag Akureyrar og ná-
grennis framkvæmdi á dögunum
í fimm minni matvöruverslunum
á Akureyri.
Alls vom 18 vörutegundir með
í könnuninni, og var Hólabúöin
meö lægsta veröið í 9 tilfeUum,
Kjörbíll Skutuls í 4 tilfeRum,
Verslunin Brynja þrívegis, Versl-
unin Esja tvívegis og Verslunin
Síða í einu tilfelli.
Verðmunur var oft mikill á ein-
staka vörum milli verslana.
Þannig var munur á hæsta og.
lægsta verði 51% á Maarud pa-
prikuflögum, þær kostuðu 98
krónur í Hólabúðinni en 148
krónur í Síðu. Nesquik kakómalt
sem kostaði 119 krónur í Hóla-
búöinni kostaði 178 krónur í Esju
og munar þar 49%.