Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1989, Page 25
ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1989.
25
Hrappur og Skotta
á heimsenda
Á laugardag var frumsýnt nýtt, ís-
lenskt bamaleikrit í Iönó. Höfundur
er Olga Guðrún Ámadóttir en for-
vinna var í höndum SMÁ-hópsins
hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Félagar
í SMÁ-hópnum sáu líka um leik-
mynd, leikstjóm, tónlist og fleira.
Þrír krakkar lenda fyrir tilviljun í
miklum ævintýrum í ævintýra-
landinu. Hrappur galdrakarl hefur
komist yfir verndargripinn Geisla-
glóö sem álfamir í Ljósalandi eiga.
Hrappur ætlar að nota Geislaglóð til
að komast inn í Ljósaland og sækja
galdrabókina sína en án Geislaglóðar
eru álfamir varnarlausir. Aðstoðar-
maður Hrapps er Skotta og á hún
ekki sjö dagana sæla með Hrappi.
Hann rífst í henni og skammar en
það er mest í nösunum á honum því
hann reynist besti karl inn við
beinið.
Þremenningamir ná gripnum og
ætla að skila honum til prinsessunn-
ar í Ljósalandi sem bíður á Fjalli
fjallanna. Tíminn er naumur og því
verða þau að leggja sig alla fram við
að koma gripnum til skila í tíma.
Húsfylhr var á sýningunni og var
aðstandendum hennar vel tekið.
Ævintýralandiö heillar börnin og
mátti sjá marga krakka iðandi af
spenningi þegar leikurinn stóð sem
hæst.
Hrapp galdrakarl leikur Kjartan
Bjargmundsson en Margrét Áma-
dóttir leikur Skottu. Hlutverk krakk-
anna eru í höndum Eddu Björgvins-
dóttur, Ásu Svavarsdóttur og Stefáns
Sturlu Siguijónssonar.
Hrappur og Skotta eru félagar í göldrum og ná Geislaglóð af álfunum í
Ljósalandi. Margrét Árnadóttir og Kjartan Bjargmundsson í hlutverkum
sínum i leikritinu Ferðin á heimsenda sem frumsýnt var í iðnó á laugardag.
Ása Hlín Svavarsdóttir, Rósa Guðný Þórsdóttir og Edda Björgvinsdóttir fá
sér kaffi og konfekt í lok frumsýningar.
I hléi er nauðsynlegt að slappa af
og fá sér hressingu.
Leikarar og stjórnendur að sýningu
lokinni. Fremst situr Ása Hlín Svav-
arsdóttir en hún leikur Sissu. Við
hlið hennar er Ólöf Söebeck en hún
lék álfaprinsessuna á frumsýningu.
Ólöf leikur á móti Margréti Guð-
mundsdóttur aðra hverja sýningu.
Fyrir aftan standa Ásdís Skúladóttir
leikstjóri og Soffía Vagnsdóttir, höf-
undur tónlistar.
DV-myndir KAE Kjartan að hreinsa af sér gervi Hrapps galdrakarls.
Sviðsljós
Fólk skemmti sér vel á þorrablóti íslendingafélagsins í S-Virginiu, hér
kætast þau Halla Pétursson og Gunnar Guðjónsson yfir matnum.
DV-myndir Ransy Morr
Þorramaturinn bragðaðist vel, allavega er ekki hægt að lesa annað út
úr svip Maríu Kristjánsdóttur Hitchings.
Þorrablót í
Vesturheimi
íslendingafélagðið í Suður-Virgi-
níu hélt árlegt þorrablót sitt þann
4. febrúar síðasthðinn í Norfolk og
fór það hið besta fram. Á blótið
mættu um 140 manns, þar af var
um það bil helmingurinn íslend-
ingar.
Þorramatur kom frá íslandi en
konur í íslendingafélaginu sáu um
að skreyta salinn og útbúa þorra-
matarbakkana.
íslendingafélagið í Suður-Virgi-
níu fagnar 5 ára afmæli sínu þann
17. júní næstkomandi. Meðlimir
þess reyna að hittast mánaðarlega
til skrafs og ráðagerða og til aö
styrkja tengslin á milli íslending-
anna sem búa á þessum slóðum en
þeir eru um 50 talsins.
Meðal hátíða hjá félaginu fyrir
utan þorrablótið er alparósarhátíð
í apríl, 17. júní-mót og ágústhátíð.
Þann 9. október er lagður krans við
styttu Leifs Eiríkssonar í Newport
en hún er afsteypa af styttunni á
Skólavörðuhæð. Loks má geta þess
að félagið heldur svo jólaboð í des-
ember.
Formaður félagsins er Sessefa
Siggeirsdóttir.