Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1989, Síða 26
26
ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1989.
*
J
}
I
J
Sviðsljós
Krístnihaldið
komið á kvikmynd
Ólyginn
sagöi...
Diana Ross
yfirgaf Motown fyrirtækið í
vonsku 1980 en þar hafði hún
verið drottningin sem öllu réð og
manneskjan er uppgötvaði Jack-
son fjölskylduna á sínum tíma.
Nú eru breyttar aðstæður hjá
Motown. Stofnandinn, Berry
Gordy, er búinn að selja fyrirtæk-
ið og Diana Ross komin „heim“
aftur og nú sem meðeigandi auk
þess að hafa gert vænlegan plötu-
samning við fyrirtækið.
Jesse Jackson
hefur hafið baráttu fyrir því að
söngvaranum fræga, James
Brown, verði sleppt úr fangelsi
sem allra fyrst. Hann hefur ný-
lega heimsótt hann í fangelsi í
Suður-Karólínu þar sem hann
dvelur, en Brown var dæmdur í
sex ára fangelsi í desember og
samkvæmt lögum á hann ekki
möguleika á að sleppa út fyrr en
í september 1991. Jackson vonast
til að geta beitt áhrifum til að
þessi frægi og dáði soulsöngvari
fái náðun fyrr.
Linda Gray
er orðin leið á Sue Ellen. Hún
hefur ákveðið að hætta að lokinni
þeirri þáttaröð sem er verið að
gera núna en þar er skilnaður
þeirra JR enn einu sinni á dag-
skrá. Þetta kom framleiðendum
þáttanna á óvart og segja þeir að
þeir vonist til að hún endurskoði
ákvörðun sína. Sjálf segist hún
ætla að einbeita sér aö öðrum
verkefnum. Um Sue Ellen sagöi
hún að sú persóna væri búin að
ganga í gegnum allt sem hugsast
getur í hjónabandi og utan þess.
Til-
bú-
inn í
slag-
inn
Kristján Jóhannsson
óperusöngvari hefur verið á
heimaslóöum undanfama
daga. Á laugardaginn hélt
Kristján tónleika í Háskóla-
bíói og var þessi mynd tekin
af honum og undirleikara
hans, Láru Rafnsdóttur, rétt
áður en tónleikarnir hófust.
Húsfyllir var hjá honum og
kunnu áhorfendur vel að
meta það sem Kristján bauð
upp á.
Guðný Halldórsdóttir leikstjóri og Kristín Pálsdóttir sem er ein úr Umbahópn-
um og sér um klippingu á Kristnihaldi undir Jökli.
Valur Arnþórsson bankastjóri ræðir við Þorstein Hannesson sem leikur lít-
ið hlutverk i myndinni.
Kristnihald undir Jökli var frum-
sýnt við góðar undirtektir áhorfenda.
Kristnihaldiö er einhver allra vin-
sælasta skáldsaga Halldórs Laxness
og hefur áöur verið gert leikrit eftir
sögunni sem sýnt var við miklar vin-
sældir í Iðnó fyrir mörgum árum.
Það vill svo skemmtilega til að leik-
stjóri kvikmyndarinnar Kristnihald
undir Jökli er Guðný Halldórsdóttir
en hún er dóttir skáldsins.
Myndirnar, sem birtar eru hér á
síðunni, eru frá hófi í Risinu á Hverf-
isgötu sem aðstandendur sýningar-
innar héldu fyrir þá sem tóku þátt í
gerð myndarinnar.
Stærsta hlutverkið i Kristnihaldi undir Jökli, Umba, leikur Sigurður Sigur-
jónsson.