Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1989, Page 4
4
FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ 1989.
Fréttir
Stykkishólmur:
Ferðamönnum
fer fjölgandi
- segir Svanborg Siggeirsdóttir
„Við höfum hug á að bjóða upp á skoðunarferðir meö leiðsögn um bæinn og eins upp á Helgafeil," segir
Svanborg Slggeirsdóttir, formaður ferðamálanefndar Stykkishólms. DV-mynd GVA
„Þeim ferðamönnum sem sækja
Stykkishólm heim fer stöðugt fjölg-
andi og ég er bjartsýn á að það
verði gott ferðamannasumar hjá
okkur í ár.
Flugfélög og ferðaskrifstofur eru
í vaxandi mæh famar að beina
ferðamönnum hingað og það færist
í vöxt að hingað komi ráðstefnu-
hópar að sunnan og eyði einum
degi eða tveimur við að skoða
markverða staði í Stykkishólmi og
nágrenni," segir Svanborg Sig-
geirsdóttir, formaður ferðamála-
nefndar Stykkishólms.
„Helsta vandamál okkar er að
Stykkishólmur og þeir möguleikar
sem bærinn býður upp á sem ferða-
mannabær hafa ekki verið kynntir
nægjanlega erlendis. Þó virðist sem
erlendar og innlendar ferðaskrif-
stofur og flugfélög séu smátt og
smátt að átta sig á því aö Stykkis-
hólmur býður upp á fjölbreytta
möguleika fyrir ferðamenn því er-
lendum ferðamönnum fer fjölg-
andi.
Við getum tekið við vaxandi hópi
ferðamanna því hér er ágæt gisti-
aðstáða. Hér er starfrækt fyrsta
flokks hótel, Hótel Stykkishólmur,
Gistihúsið Egilshús og hér er tjald-
stæði með allri þjónusj:u.
Hvað varðar afþré^ingu fyrir
ferðamenn er úr mörgu aö velja.
Það er til dæmis hægt að eyöa ein-
um degi í að keyra kringum Jökul,
héðan er hægt að komast í siglingar
um Breiðafjörðinn og út í Flatey
og svo er fjölmargt að skoða hér í
Stykkishólmi. Hér er til að mynda
mikið af gömlum húsum sem gam-
an er að skoða, minjasafn, góð
sundlaug, svo er hægt að fara í
gönguferð upp á Súgindisey en það-
an er mikiö víðsýni og ýmislegt
fleira væri hægt að týna til.
Draumur ferðamálanefndar er
samt sem áður að gera enn betur.
Við höfum til að mynda í huga fyr-
ir næsta sumar að bjóða upp á
skoðunarferðir með leiðsögn um
bæinn og eins upp á Helgafeh.
Minn framtíðardraumur er svo
að bæta gistiaðstöðu hér enn frekar
með byggingu sumarhúsa. Ef það
verður hægt gefur það okkur
möguleika á að hýsa hér stórar
ráðstefnur og flölga ferðamönnum
enn frekar," segir Svanborg að lok-
um. -J.Mar
Grátar Kristjánsson við togarann Gylli niðri á bryggju. DV-mynd Reynir
Skipstjórinn gerður
að útgerðarstjóra
Reynir Traustascm, DV, nateyri;
Grétar Kristjánsson hefur veriö
ráöinn útgerðarstjóri hjá Útgerðarfé-
lagi Flateyrar hf. sem er dótturfyrir-
tæki Hjáhns hf. Grétar hefur verið
skipstjóri á Gylh ÍS, togara félagsins,
frá því Gyllir kom nýr til Flateyrar
1976 og jafnan verið með aflahæstu
skipstjórum.
Hann sagðist í samtah við DV taka
ársfrí frá sjómennskunni til að byrja
með.
„Sjómennskan er htið spennandi
núna miðað við það sem var á meðan
fijáls samkeppni ríkti við veiðarn-
ar,“ sagði Grétar en hann hefur þeg-
ar tekiö við hinu nýja starfi.
Afkoma ríkissjóðs:
4 milljarða halli í ár
- vegna ákvarðana ríkisstj ómarinnar
Það stefnir nú í um 4 milljarða
haha á ríkissjóði í ár. Ástæður þess
má rekja beint til ákvarðana ríkis-
stjómarinnar um aukin útgjöld.
Þetta má sjá af uppgjöri fjármála-
ráðuneytisins á afkomu ríkissjóðs á
fyrstu fimm mánuðum þessa árs og
nýrri áætiun um afkomuna á árinu
í heild.
Samkvæmt fjárlögum var gert ráö
fyrir um 635 milljón króna tekju-
afgangi hjá ríkissjóði í ár. Eftir fyrstu
fimm mánuðina höfðu útgjöldin farið
800 milljónir fram úr frjárlögum.
Tekjuhhð fjárlaga hefur staðist og
örhtið meira en það.
Megniö af þeim ákvöröunum ríkis-
stjómarinnar, sem hafa aukin út-
gjöld í for með sér, vom teknar í
maí. Útgjaldaaukningin er því mun
meiri en 800 mihjón króna fra-
múrakstur á fyrstu fimm mánuðun-
um gefur th kynna.
Stærstu póstamir í útgjaldaaukn-
ingunni em ákvarðanir í tengslum
viö samninga og auknar útflutnings-
bætur.
-gse
Viðtalið
| Heilsugæsla
og hjúkrun
s é
Nafn: Ingibjörg R. Magnúsdóttir
Aldur 66 ár
Staða: Skrifstofusljóri i heilbrtgö-
is- og tryggingamálaráðuneytinu
„Heilsugæsla, málefni sjúkra,
menntun og störf hehbrigöis-
starfsraanna em í senn vinna
mín og áhugamái,“ segir Ingi-
björg R. Magnúsdóttir, nýráðinn
skrifstofustjóri í hehbrigöis- og
tryggingamálaráöuneytinu. „Ég
hef átt því láni aö fagna aö kynn-
ast góðu fólki í starfi mfnu með
hehbrigöisstéttum og yfirmenn
hér í ráðuneytinu eru einstakir
ágætismenn.“
Ingibjörg tók við starfi skrif-
stofúsfjóra 1. júh en svo skemmti-
lega vih til að þá vom nákvæm-
lega 18 ár frá því hún hóf störf í
ráðuneytinu sem dehdarstjóri.
Meö starfinu í ráðuneytinu hef-
ur hún aha tíð ke'nnt við Háskóla
íslands og hefur verið náms-
brautarsfjóri í bjúkrunarfræði
firá árinu 1976.
„Þetta aukastarf hefúr reynst
viðameira en mig óraði fyrir í
byrjun. Minn frítími hefúr farið
í að sinna þessu áhugamáh núnu
sem er menntun hjúirunarftjks.
Það var gaman að taka þátt í
undirbúningi og uppbyggingar-
starfi að námsbrautinni en ég fer
senn að hætta.“
Ingibjörg hefur starfað í mörg-
um ólíkum ráðum og nefndum á
8tarfisferh sínum. Fyrsta verk
hennar í ráöuneytinu var að
vinna að reglugerð um skóla
gæslusystra sem síðar varð
Þroskaþjálfaskólinn.
Menn! er máttur
Ingibjörg er fædd og uppalin á
Akureyri og var híúkrunarfor-
stjóri Fjórðungssjúkrahússins
þar í tíu ár áöur en hún tók til
starfa í ráðuneytinu. Á sínum
tima tók hún gagnfræðapróf frá
MA en hélt ekki áfram mennta-
skólanámi þá.
„Ég sá ahtaf eflir því að ljúka
ekki við menntaskólanám og því
dreif ég mig í öldungadeild MH
þegar hún var sett á laggirnar.
Aht nám gefúr manni aukinn
styrk og það eru engar ýKjur aö
mennt er máttur.
Ræktun manns og náttúru
Ingibjörg segist eiga fáar tóm-
stundir sem ekki tengist starfinu
á einn eða annan hátt. Þó hefúr
hún tekið þátt í ýmsum félags-
störfúm en þá sem óvirkur
styrktarfélagi eða eins og hún
segir sjálf, borgar félagsgjöldin
en hefur sjaldan tíma til að taka
þátt f starfi.
„Ég hef lengi verið félagi í
Zontasamtökunum, fyrst á Akur-
eyri og slöan hér I Reykjavík.
Skógræktogönnurræktunarmál *
eru mér hugleikin; það má segja
að aht sem snerti ræktun manns
og náttúru veki áhuga rninn.
Sund er eina íþróttagreinin sem
ég stunda núoröiö, áður fyrr
stundaði ég mikið íþróttir og var
íþróttakennari í flögur ár. Ég hef
ánægju af handavinnu og lestri,
slöast las óg Ragnars-sögu loö-
brókar á dönsku. Bókin er skrif-
uö fyrlr börn og myndskreytt af
Margréti Danadrottningu, sér-
staklega skemmtheg aflestrar.
-JJ