Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1989, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1989, Blaðsíða 13
.esei ÍJIJL .ðí SUOAQflAOUAJ LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 1989. Guðrún segir fjármólaráðherrann alltal verða jaln glaðan þegar hvítlaukskryddað lambalæri með bökuöutn kartöflum er á boröum. DV-mynd JAK Lambalæri - Guðrún Þorbergsdóttir, eiginkona fjármálaráðherra, gefur uppáhaldsuppskrift „Þessi réttur er í sérstöku uppá- haldi hjá fjölskyldimni," segir Guö- rún Þorbergsdóttir, fyrrverandi at- vinnurekandi. Guörún, sem er eig- inkona Ólafs Ragnars Grímssonar íjármálaráöherra, segir ráðherr- ann alltaf verða himinlifandi þegar grillað lambalæri er á boröum en hún gefur okkur uppskrift aö hvít- laukskrydduðu lambalæri. „Ég kaupi ailtaf lambalæri sem hefur veriö pakkaö í lofttæmdar umbúöir og læt það þiðna í 3-4 sól- arhringa í ísskápnum. Þannig veröur þaö meyrt og fínt og skorp- an veröur haröari og betri. Eg reyni að veija frekar þykk lambalæri til að tryggja aö kjötið sé meyrt og safaríkt. Eftir að læriö heflir verið í 10 mínútur inni í griUofhinum þá ber ég á þaö hvitlaukssalt og læt þaö grillast í 1 1/2-2 tíma. Mér finnst alveg nauösynlegt að nota Kjötmæli og stinga í kjötið til aö fylgjast með steikingunni. Meðan á steikingunni stendur strái ég hvít- laukssalti í 2-3 skipti yfir kjötiö. Með lambalærinu hef ég bakaðar kartöflur. Ég áætla eina meðalstóra bökimarkartöflu á mann og baka þær í örbylgjuofni í 5 mínútur á hvorri hlið. A eftir pakka ég þeim inn í álpappír svo þær haldist heit- ar. Ef notast er við venjulegan ofh þá eru kartöflur bakaöar í l klst Loks sker ég raufar í kartöflumar og strái salti í þær. Svo ber ég fram með þeim snýör og salt. Hér á heimflinu er bearnessósan vinsælust með og hefur pakkasós- an gagnast mér ágætlega en ég nota alltaf smjör í hana í stað smjörlíkis. Og ekki má gleyma sal- atinu. Þaö ber ég fram á litlum diski, þvi mér finnst síöra að það blandist bragöinu af kjötinu og sós- unni.“ Aðspurð segir Guðrún aö upp á síðkastið hafi htið gagn veriö af ráöherranum við matargerð en hún segist sjálf hafa mjög gaman af því að elda. „Ég eyði sjaldnast miklum tima í matargerð. En þar sem tíminn hefur yfirleitt ekki veriö mikili er ég oröinn snfllingur í hraðri matar- gerð,“ segir Guðrún. -RóG. SI U3 Rafverktakar - rafvirkjar Rafmagnsverkstæði úti á landi til sölu. Góður lager, mikil vinna. Á sama stað er til sölu íbúðarhús. Uppl. í síma 96-81168 og 985-24868. Lýtalækningar Hef opnað lækningastofu í Domus' Medica, Egilsgötu 3. Viðtalsbeiðnum veitt móttaka virka daga í sima 16160. Sérgrein: Lýtalækningar Rafn Ragnarsson Barnaskólinn á Selfossi Staða yfirkennara við Barnaskólann á Selfossi er laus til umsóknar. Umsóknafrestur er til 28. júlí nk. Upplýsingar gefur formaður skólanefndar, Sigríður Mattíasdóttir, heimasími 98-22409 og vinnusími 98-21467. Skólanefnd Sandvíkurskólahverfis Hestamenn Melgerðismelamót Helgina 29.-30. júlí verður haldin opin gæðinga- keppni og opnar kappreiðar á Melgerðismelum. Keppnisgreinar verða þessar: A og B flokkur gæðinga. Eldri og yngri flokkur unglinga. 150 og 250 metra skeið. 250 og 350 metra stökk og 300 metra brokk. Skráning fer fram í Hestasporti, sími 96-21872, milli kl. 14 og 19 til fimmtudagsins 20. júlí. Ekkkert skrán- ingargjald en væntanlegir knapar eru minntir á trygg- ingarskyldu sína. Dagskrá mótsins verður auglýst síðar. Hestamannafélögin Funi, Léttir og Þráinn FYRIRTÆKITIL SÖLU * Barnafataverslun: Frábærstaðsetning. Upplagttæki- færi til að kaupa sér örugga at- vinnu. * Keilusalur: Líflegt og gróskumikið fyrirtæki. Starfsemi í öruggum farvegi, mikl- ir vaxtarmöguleikar. * Matvöruverslun: Góð tæki og nýjar innréttingar. Ársvelta ca 100 millj. Þetta er ein af þeim verslunum sem hvorki kemur né fer. Hún er og verður. Nokkur fjöldi annarra fyrirtækja á söluskrá. VARSLAHF FYRIRTÆKJASALA Skipholti 5, 105 Reykjavík, Sími 622212

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.