Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1989, Blaðsíða 23
LATJ&ÖtÐÁGUR 48 JÚLÍ 1989.
23
DV
Lífsspegill
Unglingsstúlkur
og
hamingjan
Þjóðsagan segir að unglingsstúlk-
ur séu upp til hópa geðvondar, pirr-
aðar og óánægðar meö sjálfar sig.
En nýleg könnun leiðir í ljós að svo
er alls ekki. Eða svo segja ungu stúlk-
umar sjálfar að minnsta kosti.
Vinsælt bandarískt tímarit fyrir
unglingsstúlkur gerði könnun á líö-
an og viðhorfum lesenda sinna. Um
5000 stúlkur svömðu spumingalista
blaðsins. Af þeim sögðust 81%
stúlknanna vera hamingjusamar.
Aðeins 14% sögðust vera óhamingju-
samar og 5% töldu sig bara stundum
finna fyrir hamingjunni.
En þótt stúlkurnar væm ham-
ingjusamar þá var ekki þar með sagt
að hlutirnir mættu ekki vera dálítið
öðruvísi. Það kom ekkert mjög á
óvart en tæpur helmingur stúlkn-
anna, eða 45%, vildi losna við nokkur
aukakíló og svipaður íjöldi myndi
gjaman vilja breyta útliti sínu á ein-
hvem hátt. Um 13% stúlknanna ósk-
uðu meiri gáfna en aðeins 16% vom
fullkomlega sáttar við sjálfar sig.
Þær stúlkur sem vom í sátt við
útlit sitt og andlegt atgervi gátu auð-
veldlega nefnt hluti sem þær héldu
mest upp á varðandi útlit sitt. Yfir-
leitt var þá um að ræða hæð, þyngd,
freknur og nef. En stúlka sem til-
heyrði óhamingjusama hópnum taldi
gjaman útlitið gera sér lífið erfiðara.
„Hvers vegna er sífellt lögð áhersla
á útlitið en ekki hvem innri mann
þú hefur að geyma?“ spurðu óham-
ingjusömu stúlkumar.
Helgin
búin?
Hver kannast ekki við að mæta í
vinnuna á mánudagsmorgni dauð-
þreyttur og kvartandi yfir því að
ekkert hafi orðið úr helginni? Helg-
amar vilja oft líða hratt og lítið verð-
ur úr því sem ráðgert var. Fyrir-
hugaða afslöppunin breyttist í hörku
hreingemingar og tíminn, sem átti
að eyða til útivistar, var notaður í
endalausa gestamóttöku. Úrvinda af
þreytu er vinnuvikan hafin á ný.
Bandaríkjamenn hafa kannað
þetta eins og allt annað. Niðurstöður
kannana, sem gerðar hafa verið á því
í hvað fólk ver helgunum, sýna að
að meðaltali eyðir hver manneskja
minnst öðrum degi helgarinnar í
hreingerningar, verslun, elda-
mennsku og aðra vinnu heima við.
Fjölskylduhagir hvers og eins setja
þó strik í reikninginn. Barnafólk eyð-
ir mun meiri tíma við sýsl og störf
heima um helgar en þeir einhleypu
eða bamlausu. Fjölmargir taka og
einnig vinnuna með sér heim og eyða
drjúgum tíma í hana þegar komið er
heim í „helgarfrí“.
Læknar og sálfræðingar hafa
áhyggjur af þvi að fólk kunni ekki
að slappa af um helgar og nota þær
til að endumýja sköpunargáfuna og
sjálft sig. Bent er á eina leið til að
minnka vinnuna um helgar. Sú er
að nýta kvöldin og morgnana betur
í tiltekt og þvotta. Einnig er nauðsyn-
legt að skilja á milli vinnustaðar og
fjölskyldu, heimilis og áhugamáls
o.s.frv. Annars getur reynst erfitt að
starfa af heilum hug við hvert verk-
efni — ekki síst við tómstundimar
sem öllum eru nauðsynlegar en sum-
ir vilja gleyma.
Ef vinnan er tekin heim í hæginda-
stóhnn þá verður erfitt að ætla að
slaka á í þeim sama stól síðar. Hann
er til að láta sér líða vel í en ekki til
að vinna í. Frekar er mælt með því
að unnið sé í matartímanum eða að-
eins lengur fram á kvöld heldur en
að ætla að klára verkefnin heima.
En hvað myndi fólk gera ef það
hefði meiri tíma til aflögu um helgar?
Konur segjast myndu lesa meira
og fara oftar út að borða en karlarn-
ir vildu verja meiri tíma við áhuga-
máhn. Hjón með börn myndu gera
meira fyrir börnin.
Fóstur og sápuóperur
Aðdáendur sápuópera verða sífellt
yngri. Nú hefur komið í ljós að fóstur
í móðurkviði getur orðið háð ákveðn-
um sápuóperum. En það er ekki efn-
isinntakið sem það hrífst af og venst
heldur tónhstin sem leikin er í þátt-
unum.
írskur sálfræðingur hefur gert
rannsókn á þeim börnum sem í móð-
urkviði sátu mikið fyrir framan sjón-
varpið þegar ákveðnar sápuóperur
voru á dagskrá. Samkvæmt niður-
stöðum hans þekkja bömin vel þá
tónlist sem leikin var í þessum þátt-
um og virðist sem hún hafi róandi
áhrif á þau eftir að þau eru fædd.
Mæðurnar höfðu haft það notalegt
og slappað af fyrir framan skjáinn
þegar viðkomandi þáttur var á dag-
skrá og gerir barnið shkt hið sama
þegar það heyrir tónlistina. Það róast
og líður vel við tónana.
Sálfræðingurinn fylgdist með og
rannsakaði sjö bamshafandi konur
sem allar voru mikhr aðdáendur
sápuóperu sem sýnd var tvisvar á
dag í sjónvarpinu, fimm daga vik-
unnar. Eftir að börn þeirra voru
fædd gerði hann tilraunir á ungvið-
inu. Við það að heyra tónhstina úr
sápuóperunni hættu börnin að gráta
nærri því á stundinni og sýndu önn-
ur merki þess að þau róuðust. Mæð-
urnar sjálfar tóku í sama streng. Þær
voru yfir sig hissa á þeim viðbrögð-
um sem bamið sýndi þegar uppá-
haldssápuóperan þeirra byijaði í
sjónvarpinu.
Getur veriö að loksins sé komin amann. Lyfiö á einnig að breyta efninu geti haft önnur áhrif á bæði
auðveld leið til aö losa likamann fitu i vöðva. kynin. Þaö er að segja að of mikil
við offitu? Nú em vísindamenn aö Gerðar hafa verið tilraunir meö kvenhormón hefðu óæskileg áhrif
þróa nýtt lyf sem miklar vonir eru lyfið sem allar lofa góðu. Um er aö á karlmenn og öfugt Því er enn
bundnar við. Lyfið á að koma í veg ræöa ákveðna tegund hormónalyfs verið að fullvinna lyfið og er ekki
fyrir aö fita safnist á likamann. Öll sem nefnt hefur veriö DHEIA. Enn vitað hvenær það kemur á markað.
umframorka, sem neytt er, veröur sera komið er þykir þó eitthvað -RóG.
aö hita í stað fitu sera safnast á lík- henda til aö of stórir skammtar af
Á tiu sekúndna fresti er tilkynnt yggiskerfi eða með varðhund innan
um innbrot eða þjófhað af öðru tagi dyra. Um 41 % myndi finna sér ann-
í Bandaríkjunum. Hvernig er hægt að „fórnarlamb“ í nágrenninu. Ívíð
að koma í veg fyrir eða fækka inn- fámennari hópur taldi hús í öðru
brotum? Gerð var könnun á meðal nágrenni æskilegastan kostinn og
600 manna sem allir hafa verið um 20% myndu koma aftur seinna.
teknir fyrir þjófiiað. Þeir voru En 7% þjóíánna sögðust ekki láta
spurðir hvemig þeir myndu veija neitt hindra sig.
sín eigin hús gegn þjófum. Flestir Þjófarnir, sem beönir voru um
sögðustmyndutreystabestöryggi- álit sitt, voru að meðaltali 26 ára
skerfum sem væru í sambandi við gamhr. Meira en helmingur þeirra
lögreglu eða öryggisverði. Besti liafði framiö sinn fyrsta glæp fyrir
vinur mannsins, hundurinn, var í 14 ára aldur. Um 36% þeirra sögðu
öðru sæti yfir æskilega þjófavöm. áfengi og vímuefni oftar en ekki
Þjófarnir voru einnig spurðir leiða sig til afbrota. Stór hópur
hvaö þeir gerðu ef þeir ætluðu að sagði að hrein peningavandræði
brjótast inn í hús en svo kæmi í væri aðalorsök glæpanna.
ljós að það væri buið traustu ör-
USEEraAR
ÖLVUNAR
akstub