Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1989, Side 24
24
LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 1989.
Veiðivon
Veiðin í Laxá í Kjós hefur verið góð síóustu daga og á myndinni rennir Gunnar Gunnarsson fyrir laxa í Kvíslarfossinum, en þeir tóku ekki. DV-mynd G.Bender
Það er ekki aldurinn heldur áhuginn í veiðinni:
Ungi veiðimaðurinn
veiddi 6 punda bleikju
Silungsveiði getur verið skemmti-
leg og veiðin oft ágæt, þó heldur
mætti nú silungurinn vera stærri í
vötnum landsins. En silungamir eru
MitmmiiimmvmfmiKW
Steingrímur Hermannsson forsætis-
ráðherra hefur farið í nokkrar veiði-
ár til veiða þaö sem af er sumri eins
og Norðurá, Laxá í Kjós og Haffjarð-
ará. Steingrímur hefur fengið nokkra
laxa og hér er hann við Laxfossinn
í Kjósinni. DV-mynd JAK
til stórir og þeir taka stundum agn
veiðimanna.
Tveir feðgar voru fyrir skömmu
við veiðar í Elliðavatni og veiðin var
treg. Sá eldri og reyndari var meö
fluguna og bað þann yngri að vera
ekki fyrir, hann yrði að gefa eftir
stórt svæði. „Farðu inn með víkinni
og reyndu þar, silungurinn gæti tek-
ið þar,“ sagði sá eldri og sá yngri fór
eftir öllum fyrirmælum. Enda var
hann ungur að aldri og hafði ekki
veitt nema tvo smásilunga um ævina
á maðk og flotholt. Vinurinn fer inn
í víkina og rennir en eriginn silungur
bítur en sá eldri kastar ýmsum flug-
um en ekkert gengur.
Tíminn líður og sá yngri fær nokk-
ur högg en silungurinn festist ekki
á. Hann hefur fært sig nær þeim eldri
og allt í einu fær sá yngri feikna-
högg, silungur hefur tekið. Þetta var
engin smásilungur, stórfiskur á Ell-
iðavatnsmælikvarða. Hann kallar á
fóður sinn og spyr hvað hann eigi
að gera, faðir hans segir honum að
þreyta fiskinn. En ungi veiðimaður-
inn var ekkert að hika, heldur setti
stöngina á öxlina óg hljóp með fisk-
inn í land. Og þar var hann rotaður
og plastaður, 6 punda bleikja. Veiði-
mennimir skiptu um veiðistað
skömmu seinna, en þessi feikna faU-
egi silungur var sá eini sem veiddist
þennan daginn. Næst var ungi veiði-
maöurinn skilinn eftir heima en sá
eldri veiddi ekki neitt.
G.Bender
Veiðin er ekki bara iax og silungur, hér hefur þorski verið landað á bryggj-
unni á Grenivík. DV-mynd SK
Gunnar Magnússon við veiði úr ármótum Austurár og Núpár í Miöfirði fyr-
ir skömmu. DV-mynd Eyjólfur