Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1989, Blaðsíða 30
LAUGARÐAGUE 15. JOLÍ 1989.
'42
Sviösljós
Bill Wyman
í hjónaband
- sonurinn býr með tengdamóðurinni
Bill Wyman, meðlimur hljómsveit-
arinnar Rolling Stones, gekk í það
heilaga á dögunum. Brúðurin,
Mandy Smith, er aðeins nítján ára
gömul en brúðguminn er 52 ára. Þau
hittust fyrir 5 árum og hafa haldið
af og til sambandi. Á sínum tíma olli
samband þeirra miklu hneyksli en
eftir brúðkaúpið hefur dregið úr
vandlætingaröddunum.
Nú eru það aðrir fjölskyldumeð-
hmir sem valda hneyksh og eru á
milU tanna fólks. Sonur Bills, Step-
hen 25 ára, og móðir Mandyar, Patsy
40 ára, hafa átt í ástarsambandi um
sex mánaða skeið. Flókið, segja sum-
ir - ekkert mál, segja hjónaleysin.
Stephen og Patsy hittust fyrst fyrir
fimm árum en sáust sjaldan í nokkur
ár. Síðustu mánuði hittust þau æ oft-
ar og búa nú saman í íbúð í London.
Og menn spyrja sig: Verður tengda-
móðir Bills tengdadóttir hans og þá
sonurinn stjúpi eiginkonunnar? Eða
verður stjúpsonur Mandyar stjúp-
faðir hennar og Mandy þá stjúp-
tengdamóðir mömmu sinnar? Fjöl-
skyldumái gerast víst ekki flóknari.
Tengdamamma með þeim nýgiftu, Bill og Mandy. Nú eru líkur á því að
tengdamamma verði tengdadóttir Bills.
'.V
Sonur Bills Wyman, Stephen, og tengdamamman, Patsy, búa nú saman í
London.
Getum ekki sofið fyrir hamingju
- segja nýbakaðir foreldrar, Janni Spies og Christian Kjaer
Nýbakaðir foreldrar sem varla geta sofið fyrir hamingju. Janni Spies og Christian Kjaer með litlu dótturina.
„Hún er svo stórkostleg og takið
eftir fallega sýarta hárbrúskinum,"
sagði Janni Spies við ljósmyndarana
þegar Utla dóttirin sást fyrst opin-
berlega. Faðirinn, Christian Kjaer,
var allur á hjólum kringum mæðg-
urnar og sönglaði: „Ég á fallegustu
dóttur í heimi.“
Litla dóttirin með svarta hárið og
stóru bláu augun fæddist 11. júní.
Hún er fyrsta barn Janniar en fyrir
á Christian einn son.
„Hún er einn yndislegur draumur,"
sagði Janni, „og ég get varla sofiö
fyrir hamingju."
Janni heilsast mjög vel og hefur
sjaldan eða aldrei litið betur út. Þrátt
fyrir alla hamingjuna ber einn
skugga á - fólk í þeirra stöðu þarf að
vera á varðbergi gagnvart barna-
ræningjum og öðrum sem vilja gera
fólki illt. Því víkja lífverðir ekki frá
litlu prinsessunni og faðirinn hefur
gert sérstakar ráðstafanir henni til
verndar.
Litla stúlkan hefur enn ekki hlotið
nafn en margar tillögur hafa komið
fram. Simone er eitt og þá auðvitað
í höfuðið á fyrri.manni Janniar, Sim-
on Spies. Ánnað nafn er Emma en
það er nafn móöur Simon Spies.
Yvonne eða Karen Elisabeth þykja
hins vegar líklegustu nöfnin -
Yvonne er móðuramma bamsins en
Karen Elizabeth er föðuramma.
Senrtilega fer skímin fram í sömu
kirkju og Janni og Christian voru
gefm saman í þann 20. ágúst í fyrra.
Ef marka má orð Janniar veröur
sú htla ekki lengi einkabarn.
„Þetta verður mitt fyrsta en ekki síð-
asta barn. Ég vil eignast mörg til við-
bótar.“
Janni Spies meö sitt fyrsta barn en ekki það síðasta, segir hún sjálf.