Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1989, Page 31
LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 1989.
Bridge
EM í Finnlandi:
Sætir sigrar og súr
töp skiptast á
Þegar þetta er skrifaö heílr ís-
lenska sveitin á Evrópumótinu í
Turku í Finnlandi lagt að velli þijár
af þeim þjóðum, sem eru í toppbarát-
tunni - Austurríki, Pólland og Dan-
mörk. Vissulega athyglisverður ár-
angur, en strákarnir hafa orðið að
þola mótlæti á milli, s.s. tap gegn
Finnlandi, Sviss og Portúgal. Hafa
ber þó í huga að enginn leikur á svo
sterku móti er unninn fyrirfram og
löngu liðin tíð að tala um veiku þjóð-
irnar, sem við eigum að vinna. Við
skulum líta á leikferil sveitarinnar
að 17 umferðum loknum:
Þýskaland......................16
Sovétríkin...................17,5
Holland.........................8
Ítalía..........................2
írland.........................12
Tékkóslóvakía..................19
Belgía..........................6
England........................22
Noregur........................18
Austurríki.....................22
Finnland.......................10
Pólland........................18
Tyrkland..................... 16
Sviss......................... 7
Portugal........................8
Danmörk........................22
Bridge
Stefán Guðjohnsen
Eins og sést á þessari upptalningu,
hefir sveitin unnið 9 leiki en tapað
8, sem er ágætt. Sigrarnir hafa hins
vegar veriö naumari en töpin og því
hefir sveitn ekki náð 50% vinninga.
Hún hefir hins vegar tæp 14 stig úr
leik að meðaltali og ástæðulaust að
örvænta um, að markmið fyrirliðans
um að sveitin hafni í miðjum flokki,
náist.
En við skulum skoða eitt spil frá
mótinu. Það kom fyrir í leik íslands
við Tyrkland.
A/ALLIR
* D653
¥ -
♦ ÁKG85
+ 10632
♦ 97
¥ ÁG83
♦ 432
+ K874
* G
¥ K10942
♦ 976
+ ÁDG5
♦ ÁK10842
¥ D765
♦ D10
+ 9
Með Ragnar Magnússon og Aðalstein
Jörgensen á a-v gengu sagnir á þessa leið:
Austur Suður Vestur Norður
lhjarta 1spaði - pass pass
dobl pass 2 spaðar pass
31auf pass 41auf pass
pass pass
Útspilið var spaöaás, síöan skipt í tígul-
tíu, drepið í blindum á ás og laufi svínað.
Ragnar grunaði hið versta, þegar nían
kom frá suðri. Hann spilaði aftur tígli og
eitt vandamálið leystist þegar drottning-
in kom frá suðri. Laufi var síðan svínað
aftur og legan staðfestist þegar suður lét
lítinn-spaða.
Ragnar tók nú laufaás, spilaði tigli á
gosann og hélt síöan áfram með tíguláttu
sem norður gaf. Þegar síðasta tíglinum
var spilað var staðan þessi:
* 9
¥ ÁG8
♦ -
+ K
* -
¥ K1094
♦ -
+ 5
♦ K108
¥ D7
♦
¥ -
♦ 5
Það er sama hvað noröur gerir, Ragnar
fær alltaf 10 slagi. Ef hann gefur tígulinn,
þá fást tveir slagir á tromp, ef hann
trompar og spilar spaða, þá verður spaða-
drottningin slagur. Norður trompaöi með
laufakóng og spilaði litlu hjarta, en Rapi-
ar var vandanum vaxinn og setti kónginn
upp. Þar með var spilið unnið, en ekki
bjöminn, þvi á hinu borðinu fundu n-s
hjarta- samlegima eftir að austur hatði
passað í fyrstu hendi. Hjartalegan gerði
hins vegar Ðjótt út um spilið og n-s töp-
uðu 300. Stefán Guðjohnsen
Bikarkeppni:
Eurocard
og Útsýn
Tveimur leikjum úr fyrstu umferð
hefur verið frestað þar til um miðjan
júlímánuð vegna anna. Það eru leikir
Sameindar og Brynjólfs Gestssonar
og Sigmars Jónssonar gegn Ásgrími
Sigurbjörnssyni. Vegna tafa af þessu
tagi er þátttakendum í bikarkeppni
Eurovard og Útsýnar bent á að
skipuleggja leiki sína í tima og helst
innan settra tímamarka.
Úrslit hafa borist úr einum leik úr
annarri umferð. Sveit Guðlaugs
Sveinssonar vann sigur á sveit
Huldu Hjálmarsdóttur með 30 impa
mun. Guðlaugsmenn náðu að skora
43 impa gegn 8 í annarri lotu leiksins
og það bil náðu Hulda Hjálmars-
dóttir og félagar ekki að brúa þrátt
fyrir góðar tilraunir.
Þátttakendur í bikarkeppninni eru
vinsamlegast beönir um að tilkynna
úrslit leikja hið fyrsta til Bridgesam-
bandsins svo hægt sé að tilkynna þau
og skipuleggja framhaldið. Stefnt er
að því að dregið verði í þriðju umferð
20. júlí og til þess að það verði unnt
þarf leikjum úr annarri umferð helst
að vera lokið.
EM í bridge:
SlæmttapgegnSvíum
- Pólverjar með 14 stiga forystu
íslenska landsliðiö í bridge tapaði
illa gegn því sænska, 7-23, í 23. um-
ferð Evrópumótsins í Finnlandi. Pól-
verjar fengu á sama tíma 16 stig og
munar þtfí 14 stigum á tveimur efstu
þjóðunum. íslendingar áttu leik gegn
Grikkjum í síðari umferð dagsins en
Grikkir eru í sjötta sæti. í síðustu
umferð, sem spiluð er í dag, fær ís-
lenska landsliðiö 18 stig fyrir yflr-
setu.
Tvær efstu þjóðirnar á EM í bridge
vinna sér rétt til að taka þátt í heims-
meistarakeppninni í bridge og eins
og staðan er núna, þegar tveimur
umferðum er ólokið, verður að telj-
ast líklegt að Pólverjar og Svíar
hreppi hnossið. Staðan á toppnum
er þannig að Pólverjar eru með 428
stig, Svíar með 412 stig í öðru sæti
og Frakkar í-því þriðja með 402,5 stig.
Austurríkismenn, Danir og Grikkir
eru allir skammt undan og gætu
nælt í hið eftirsótta HM-sæti ef úrsht
verða óvænt á toppnum.
-ÍS
: A3
fþróttapistill
Keppni í 1. deild íslandsmótsins er nú hálfnuð og baráttan er í algleymingi. Það verður áreiðanlega mikil
spenna í síðari umferðinni enda hefur aldrei verið eins jafnt á með liðum deildarinnar.
Toppslaguiinn
aldrei eins jafn
Nú er keppnin í 1. deild íslands-
mótsins í knattspyrnu hálfnuð en
þessi pistill er skrifaður fyrir leik
KR og Vals í gærkvöldi. Það er mál
manna að deildin hafi hingað til
verið skemmtileg og boltinn verið
ágætur í heildina. Línur eru farnar
að skýrast í deildinni og þá aðallega
bilið á milli topp- og botnliðanna.
Það er nokkuð víst að sjaldan eða
aldrei hefur mótiö verið eins jafnt
og spennandi og nú. Fyrirfram var
búist við að Valur og Fram væru
með langsterkustu liðin en hin
harða barátta á toppnum sýnir að
það eru fleiri sterk lið í 1. deildinni
og það verður fróðlegt aö fylgjast
með seinni umferðinni. Það er því
tilvalið að fara aðeins yfir gang
mála og spá örlítið í spilin.
Þrjú stig skipta sköpum
Til marks um hina gífurlegu
spennu á toppnum þá voru KR-
ingar í 5. sæti 1. deildar fyrir leik-
inn gegn Val. Ef KR hefur náð öll-
um þremur stigunum í gærkvöldi
þá er liðið komið í efsta sætið. Þrjú
stig til eða frá muna öllu og það er
algert tap aö ná einungis jafntefli.
Það má alla vega lítið út af bregða
ef lið ætlar að halda sæti sínu.
Sex lið í einum hnapp
Sex lið hafa búið um sig í efri hluta
deildarinnar og eins og stendur eru
öll þessi lið í einum hnapp. Valur,
Fram, KR, FH, KA og Akranes eru
öfl við toppinn og geta blandað sér
verulega í baráttuna um titilinn.
Hin liðin, Víkingur, Fylkir, Þór og
Keflavík eru hins vegar við botninn
og þar er líkt og í toppbaráttunni
allt í járnum. Aðeins örfá stig skilja
þessi lið að og það verður fróðlegt
að fylgjast með hvort þetta gífur-
lega jafnræði heldur áfram í síðari
hluta mótsins.
Valur og Fram halda
sínu striki
Valur og Fram voru eins og áður
sagði þau lið sem flestir bjuggust
við að yrðu í baráttunni. Islands-
meistarar Fram fóru rólega af stað
og gekk illa í fyrstu leikjunum. Nú
virðast Framarar hins vegar vera
komnir á skrið og ætla augljóslega
ekki að gefa titilinn eftir. Framarar
hafa mjög marga snjalla leikmenn
og þrátt fyrir |élega byrjun hefur
liðið náð að rífa sig upp og það sýn-
ir „karakterinn" í flðinu. Framarar
geta því verið hættulegra en oft
áður.
Valsmenn fengu mikinn liðsstyrk
fyrir sumarið og það var því ekki
skrítið þó að þeim væri spáð góðu
gengi. Öfugt við Framara fóru
Valsmenn mjög vel af stað en hafa
dalað dáfltið í undanförnum leikj-
um en í liðinu eru margir reyndir
leikmenn sem eiga eftir að reynast
liðinu mikilvægir í leikjunum sem
eftir eru. Aðall Valsliðsins hefur
verið sterk vörn en liðinu hefur
gengið frekar illa að skora.
KR-ingar hungraðir í titil
Margir gamflr KR-ingar hafa mikla
trú á aö sigurstundin sé nú runnin
upp og að árið 1989 verði gott og
farsælt ár hvað snerir knattspyrn-
una. KR-ingar hafa ekki unnið
meistaratitilinn í 21 ár eða síðan
1968 og því eru vesturbæingar
orðnir hungraðir í titilinn. Vestur-
bæjarliðiö er mjög sterkt um þessar
mundir og hefur sýnt meiri kraft
styrkleika en á undanfórnum
árum. Ian Ross er greinilega á
réttri leið með flðið og það er því
til alls líklegt í sumar.
Annað lið, sem sýnt hefur mikinn
styrk í sumar, er KA. Akureyrar-
liðið er mjög sterkt og þá sérstak-
lega á heimavelli sínum þar sem fá
lið fara með stig til sinna heima.
KA hefur mátt þola að vera í
skugga nágranna sinna, Þórsara,
þar til í fyrra að KA-menn náðu
betri árangri í deildinni. Stóra tæk-
ifæri KA-manna er runnið upp og
eins og einhver harður aðdáandi,
liðsins orðaði það á leik á dögun-
um: „Það er nú eða aldrei“.
FH-ingar hafa komið
mest á óvart
Fimleikafélag Hafnarfjarðar hefur
sennilegá komið allra liða mest á
óvart í sumar. FH-ingar hafa veriö
hálfgert jójó lið í gegnum árin og
allt frá því að liðið vann sig fyrst
upp í 1. deild þá hefur Hafnarfjarð-
arliðið mátt vera í botnbaráttunni.
Nú virðist ætla að verða breyting
á og FH hefur gengið mjög vel það
sem af er íslandsmótinu. Það er
meira að segja orðið svo gott að
hafnfirskir áhorfendur eru farnir
að þora að mæta á völlinn.
Á sama tíma og stöðugleika er
farið að gæta hjá FH-ingum þá hafa
Skagamenn átt í erfiðleikum með
að ná tveim góðum leikjum í röð.
Akurnesingar hafa sýnt skínandi
góða knattspyrnu í sumar en þess
á milfl dottið niður og tapað illa.
Óstöðugleikinn er vandamál liðs-
ins og kemur það líklega vegna
þess hve ungt liðið er. Margir bráð-
efnilegir piltar skipa liðið og eru
þeir þegar farnir að láta að sér
kveða. Liðið þarf samt dálítið lengri
tíma til að mótast en það hefur
framtíðina fyrir sér. Skagamenn
leika mjög áferðarfallega knatt-
spyrnu og leikir liðsins hafa verið
með því skemmtilegasta á þessu
móti.
Botnbaráttan verður hörð
Þau fjögur flð sem eftir eru munu
að öllum líkindum kljást í botn-
baráttunni og þar verður hart bar-
ist. Fyrirfram var búist við þessum
liðu'm í fallbaráttu og sú er nú
raunin.
Nýflðar Fylkis fóru þokkalega vel
af stað en nú er baráttuandinn sem
einkenndi liðið í fyrstu leikjunum
horfmn á braut. Liðið hefur fengið
þrjá slæma skelfl og það vermir nú
botnsætið. Róðurinn verður mjög
þungur hjá Árbæjarliðinu en öll
nótt er ekki úti enn.
í herbúðum Þórsara ríkti mikil
óvissa fyrir mótiö. Þór missti
marga góða leikmenn og blóötakan
var mikil en í staðinn komu tveir
Júgóslavar sem hafa verið burðar-
ásar liðsins. Þórsurum var spáð
erfiðu tímabili og framundan er
löng og ströng barátta upp á líf og
dauða.
Víkingar eru komnir í fallsæti
eftir misjafna leiki að undanförnu.
Þó má segja að Víkingar hafi verið
mjög ólánsamir í mörgum leikjum.
Þeir hafa verið síður lakara liðið í
mörgum leikjum í sumar en samt
sem áður mátt þola að tapa stigum.
Liðið hefur góðum einstaklingum á
að skipa, s.s. júgóslavneska leik-
manninum Goran Micic. Hæðar-
garðsliðinu tókst að halda sér uppi
í fyrra og það er áreiðanlega á
stefnuskrá Rússans, Júrí Sedov, að
gera svo einnig í ár.
Loks skal minnst á lið Keflvík-
inga sem hefur sótt nokkuö á brat-
tann í síðustu leikjum. Keflvíking-
ar eru með mikið baráttulið sem
gefst ekki upp þó á móti blási. Það
er mikill kostur fyrir Suðurnesja-
flðið og baráttan á örugglega eftir
að fleyta Keflvíkingum langt í
seinni hlutanum.
Það verður spennandi og fróðlegt
að fylgjast með næstu umferðum
og mörg óvænt úrslit eiga eflaust
eftir að flta dagsins ljós. Urslit sem
gætu heldur betur breytt gangi
mála á toppi jafnt sem botni.
-Róbert Róbertsson