Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1989, Qupperneq 35
LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 1989.
47
Lífestm
snjókomu og mitt í öllum látunum
brá svo við aö hár tók að rísa á höfði
fólks. Voru teknar myndir af at-
burðinum og á þeim sést hvar hárið
stendur beinstíft út í loftið. Þeir Ámi
og Páll höfðu samband við Veður-
stofu íslands og báðu um skýringar
á atburðinum en veðurfræðingar
gátu engar skýringar gefið. Svo enn
er óleyst gátan hvað olli þessum sér-
stæða atburði.
Sýndist stutt
En áfram var haldið á Bárði og
hann silaðist upp á jökulbrúnina, það
var raunar ákveðið að labba upp
fyrstu brekkima sem er allbrött til
að létta undir með Bárði en svo var
hoppáð um borð. Það sýndist stutt
og ekki mjög bratt upp á jökuhnn en
brattinn kemur manni á óvart og
smátt og smátt meðan sólin hnígur á
bak við fjallgarðana í vestri þokumst
við nær toppnum og um leið fórum
við að horfa ofan á tinda nærhggj-
andi fjalla.
Við ákveðum að fara ekki alla leið-
ina upp á toppinn heldur ganga síð-
ustu metrana svona til að komast í
betra samband við jökuhnn. Síðasti
spottinn er nokkuð brattur og ekki
laust við að menn mæðist nokkuð á
göngunni. En upp komust við í síð-
ustu geislum sólarinnar.
Áskíðum
Það stóð til að reyna að klífa Mið-
þúfuna en þegar þeir sem lögðu af
stað voru komnir hálfa leiðina upp
ákváðu þeir að snúa við þar sem
göngufærið var ekki upp á það ahra
besta. Þá var ekki annað að gera en
bíða eftir sólaruppkomunni sem var
mjög falleg og halda svo áleiðis heim.
Gunnar V. Andrésson ljósmyndari
og Páh ákváðu að renna sér niður
jökulinn á skíðum á meðan hinir lull-
uðu sér niður eftir á Bárði. Skíöin
eru spennt og lagt í hann. Skíðafærið
reynist vera eins og best verður ákos-
ið og gefur ekki eftir því sem best
gerist. Svo er hægt að renna sér
hundruð metra niður. Það væri því
ef th vih ekki svo vitlaust að bjóða
fólki að draga það upp á skíðum eða
fara með skíðin með sér svo það geti
rennt sér niður.
Jöklaferðin tók rúma ijóra tíma,
við komum aftur th Ólafsvíkur um
klukkan hálffjögur um morguninn
en höfðum lagt af stað þaðan upp úr
klukkan ehefu.
-J.Mar
Keilulaga
eldfjall
Jökulhnn er gamalt kehulaga eld-
fiah. í toppi hans er heljarmikill gíg-
ur eða öllu heldur lítil askja, að
mestu full af jökuhs. Þrír tindar
prýða koh jökulsins, hinar svoköll-
uðu Þúfur sém eru miklir bergstand-
ar á austur- og suðurbrún gígsins.
Hæst er Miðþúfan, 1446 metrar á
hæð, snarbrött og erfið uppgöngu
þegar harðfenni er. Suöaustan í
henni er mikið standberg sem oftast
er hulið ís og snjó fram á sumar.
Norðurþúfan, 1390 metra há, er mjór
klettastapi sem er einnig ofast hulinn
Það geta leynst jökulsprungur í jöklinum, því borgar sig að fara varlega.
snjó. Gígurinn er skeifumyndaður
og opinn th norðvesturs en umgirtur
snarbröttum jökulveggjum að sunn-
an og austan.
Það er því vissara að hætta sér
ekki of langt í þá áttina; raunar er
ekki laust við að mann hálfsundli
þegar maður htur niður þessa jökul-
veggi. Það er líka vissara að fara að
öllii með gát, því eins og á öðrum
jöklum geta leynst þar djúpar og
hættulegar jökulsprungur. Einkum
eru þær áberandi þegar líða fer á
sumar.
ísi fram á sumar. Vesturþúfan er
bunguvaxin og alltaf huhn jökh og
Ferðir
Það er afbragðs skíðafæri á jöklinum.
Páll og Árni, Bárður í baksýn.
Osló:
Meö nýjustu hugtækniaðferðura og velhðan í stað hræöslu, spennu,
á aö vera hægt að sigrast á flug- vanlíðunar og skelfingar.
hræðslu fyrir fullt og allt meö ein- Fræðslumiöstöðin Ægir stendur
katímum hjá NLP sérfræöingi. fyrir einkatímum af þessu tagi og
Fælni svo sem flughræðslu, loft- ábyrgist miðstöðin árangur og end-
hræðslu, innilokunarkennd og urgreiðir ef viðkomandi telur sig
önnur einkenni ofsahræöslu kvað ekki hafa fengiö bata við flug-
vera hægt að afmá og breyta þann- hræðslunni. Leiðbeinandi er Garö-
ig að viðkomandi upplifi ánægju arGarðarssonNPLpract. -J.Mar
Dýr eða ódyr
Samkvæmt upplýsingum í þýska
blaðinu Welt am Sonntag er Osló
ódýrasta höfuðborg á Norðurlönd-
um. Það er til dæmis ódýrara að eyða
helgarleyfi þar en Kaupmannahöfn
eða Stokkhólmi.
Góður málsverður fyrir tvo á fyrsta
flokks matsölustað er ódýrari í Osló
en Kaupmannahöfn, Zúrich, Milano,
Hong Kong eða New York.
Búist er við að verð á gistingu
lækki mjög á næsta ári í Osló þar sem
gistirými mun aukast um 23 prósent
á þessu ári. Því er jafnvel spáð að
gisting fyrir mann í tveggja manna
herbergi muni kosta um 400 norskar
krónur næsta sumar í stað 1000
norskra króna sem ferðalangurinn
greiðir í dag.
En upplýsingum um Osló ber ekki
saman, alþjóðlegt svissneskt fyrir-
tæki sem gerir úttekt á ferðakosnaði
birti niðurstöður einnar shkrar ekki
ahs fyrir löngu og þar á bæ segja
menn að Osló sér dýrasta borg Evr-
ópu og ef mið sé tekið af öhum
stærstu borgum heims þá sé Osló í
áttunda sæti.
Samkvæmt úttektinni munar ekki
miklu á verði að dvelja í Helsingfors
eða OeIó en mun ódýrara á að vera
að búa í Kaupmannahöfn og Stokk-
hólmi. -J.Mar