Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1989, Qupperneq 3
MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLl 1989.
3
dv Fréttír
stöðvun
Fyrirtældð Plasteinangrun M. á
Akureyri hefm- fengið greiöslu-
stöðvun til þriggja mánaða og
verður sá tími m.a. notaður til
að endurskipuleggja reksturinn
og fjárhag fyrirtækisins þannig
að tryggja megi sem best framtíð
þess svo og hagsmuni starfsfólks
og lánardrottna.
í íréttatilkynningu frá fyrir-
tækinu s^gir aö seinni hluta síð-
asta árs og fyrri hluta ársins í ár
hafi orðið verulegur samdráttur
í sölu Plasteinangrunar vegna
versnandi afkomu sjávanitvegs
og fiskvinnslu. Það ásamt því að
fyrirtækið hefur staðið í talsverð-
um íjárfestingum við þróun nýrr-
ar framleiösluvöru hafi leitt til
tapreksturs og greiðsluerfiðleika.
Því hafi verið óhjákvæmilegt að
fara fram á greiðslustöðvun.
Sigríður Jónsdóttir, fyrrver-
andi skrifstofustjóri fyrirtækis-
ins, hefur verið ráðin sem fram-
kvæmdastjórí, Sigurður Jó-
hannsson, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri, hefur snúið sér
alfarið að sölu- og markaðsmál-
um. Aðstoðarraenn Plasteinang-
runar á greiðslustöðvunartíman-
lun hafa verið ráðnir Þorsteinn
Kjartansson, löggiltur endur-
skoðandi, og Benedikt Ólafsson
hdl.
Fjölmenni á
Klatistri í steihj-
andi sólskini
Valgeir ingi Ótafsson, DV, Klaustri:
Á annað þúsund manns dvöldu
hér á Klaustri og næsta nágrenni
um síðustu helgi í hreint frábæru
veðri, steikjandi sólskini og hita
svo fólk hafði á orði að vindur-
inn, sem var, hafi aöeins verið
kærkomin kæling.
Tjaldstæöiö á Kleifum var þétt-
setið og einnig svæðiö í hólunum
fyrir sunnan Klaustur. Umferð
var geysimikil alla helgina, enda
fjöldi gesta í Skaftafelli, og án
óhappa að sögn lögreglu.
Skaftfellingar treysta á veður-
guðina því um næstu helgi verð-
ur haldinn styrktardansleikur í
félagsheimilinu Kirkjuhvoli til
fjáröfiunar fyrir flygilskaup í fé-
lagsheimilið. Þar leika ýmsar
Wjómsveitir, fyrrverandi og nú-
verandi i sýslunni, til styrktar
málefninu og má þar nefna nöfn
eins og Lögmenn, Barokk, Volvo
og síðast en ekki síst Tónabræð-
ur.
Herþotur 09
margt fleira
á FBugdegi
Gyffi Kristjánssm, DV, Akureyri;
Fjölbreytt dagskrá veröur á
Flugdegi sem haldinn verður á
Akureyrarílugvellink. laugardag
en þann dag verða 50 ár liöin frá
því að fyrsti Flugdagurinn var
haldinn á Akureyri.
Meðal atriða á laugardag verða
sýningar herþotna og þyrla frá
Keflavíkurflugvelli, listflug, fall-
hlífarstökk, flug fjarstýrða
flugmódela og Gmar Ragnarsson
sýnir svifflug á „Frúnni". Þá er
boðið upp á útsýnisflug.
Á föstudag kl. 16.30 til 17.30
verður happdrættismiðum dreift
úr flugvél yfir bænum, nánar til-
tekið í miðbænum, við Glerár-
skóla og Lundarskóla og verslun
Hagkaups. Veglegir vinníngar
eru í happdrættinu, ra.a. utan-
landsferðir.
Til þess að kynnast landi og þjóð er nauðsynlegt að leita út íyrir borgirnar.
Á bílaleigubíl, með lestum eða rútum, siglandi eftir skurðum og síkjum
eða jafnvel gangandi.
Norður-England og þjóðgarðarnir Lake District, North York Moors,
Yorkshire Dales og Peak District búa yfir heillandi ósnortinni
náttúrufegurð ásamt fjölskrúðugu jurta- og dýraríki sem löngum hafa heillað
göngugarpa og náttúruunnendur.
Cornwall. Að aka milli litlu fiskiþorpanna á Cornwallskaganum er eins
og að skjótast aftur í aldir. Myndræn fegurð t.d. Clovelly, Lynton og
Lynmouth er ógleymanleg og Jamaica-kráin á Bodmin Moor er jafn
, dulúðug og í samnefndri sögu Daphne de Maurier.
Suður-England hefur sannarlega margt að bjóða þeim sem njóta vilja
sólar og skemmtunar. Einkar milt loftslag, ljós strandlengja, pálmatré og
annar suðrænn gróður hafa gert suðurströndina að einum vinsælasta
sumarbaðstað í norðanverðri Evrópu.
Wales. Óvíða er að frnna jafnmarga sögufræga kastala og kastalarústir og
í Wales. I grasi grónum hlíðunum, innan um sauðfé á beit eða sitjandi við
\ lítið vatn með stöng, gætirðu haldið að þú værir eina manneskjan í
\ heiminum.
Skotland. Skosku hálöndin hafa árum saman dregið að ferðamenn, með
hinu dularfulla Loch Ness, undurfagra Loch Lomond og hinu sérstæða
Great Glen, ekki síður en hinir heimsþekktu skosku golfvellir.
Leitaðu ekki langt yfir skammt. Fáðu nánari upplýsingar hjá
söluskrifstofum Flugleiða, Lækjargötu 2, Hótel Esju og Kringlunni,
eða hjá ferðaskrifstofum og umboðsmönnum um iand allt.
FLUGLEIÐIR
BRESKA FERÐAMÁLARÁÐIÐ