Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1989, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 19: JÚLÍ Í9Ö9.
11
Utlönd
Slysið á Chappaquiddick:
Mörgum spurningum
er enn ósvarað
I júlímánuöi áriö 1969 ók Edward
Kennedy bifreið fram af hrörlegri
brú á Chappaquiddick-eyju, suöaust-
ur af Massachussetts fylki í Banda-
ríkjunum, meö þeim afleiöingum að
farþegi i bílnum, Mary Jo Kopechne,
drukknaöi.
Slysiö á Chappaquiddick hefur
fylgt Kennedy öldungadeildarþing-
manni eins og skugginn og margir
segja að það hafi gert drauma hans
um að verða forseti að engm Víst er
aö þaö hefur ekki falhð í gleymsk-
unnar dá og nú, tuttugu árum síðar,
er þaö enn í sviðsljósinu.
Ósvaraðar spurningar
Þann 18. júh áriö 1969 voru
Kennedy og Kopechne, tuttugu og sjö
ára fyrrum ritari Roberts heitins
Kennedys, sem var myrtur í júní
áriö áður, í gleöskap ásamt fleirum
á Chappaquiddick-eyju. Þegar líða
tók á kvöldið yfirgáfu þau veisluna
saman í bifreið á leið til ferjuhafnar-
innar á eyjunni. Við yfirheyrslur
kvaðst Kennedy hafa tekið ranga
beygju og haldið í áttina að strönd-
inni. Hann segist hafa misst af beygju
við brú á eyjunni með þeim afleiðing-
Slysið á Chappaquiddick fyrir tutt-r
ugu árum hefur fylgt Edward
Kennedy sem skugginn.
um að bíllinn fór í vatnið. Að eigin
sögn komst hann út úr bifreiðinni
við illan leik og reyndi að bjarga
Kopechne en án árangurs.
Mörgum spumingum um slysið er
enn ósvarað. Þrálátust er hvers
Mary Jo Kopechne.
vegna Kennedy tilkynnti ekki um
slysið fyrr en níu eða tíu klukku-
stundum eftir að það gerðist. Við
yfirheyrslur kvaðst Kennedy ekki
geta útskýrt það en hann hafi verið
að vona að Kopechne hafi komist lif-
andi út úr bílnum með einhverjum
hætti.
John Farrar, sem fjarlægði lík
Kopechne úr bílnum, heldur því
fram að ef brugðist hefði verið við
strax hefði ef til vill verið hægt að
bjarga lífi hennar. Hún hafi ekki lát-
ist strax heldur lifað einhvern tíma
eftir að slysið átti sér stað.
Kennedy hlaut skilorðsbundinn
dóm fyrir að hafa yfirgefið slysstað
og töldu margir það endalok málsins.
En því fór fjarri. Tuttugu árum síðar
er enn verið að fjalla um þetta atvik.
Leshe Leland, fyrrum formaður
rannsóknardómsins sem hafði með
máhð að gera, sagði í samtali við
Reuter-fréttastofuna að honum heföi
verið meinað að rannsaka slysið
frekar en varð. Segir hann að dóm-
ari hafi komið í veg fyrir að nokkur
vitni í máhnu hafi verið kölluð th.
„Aðgangur bannaður"
„Aðgangur bannaður. Brúin lok-
uð“ segir á skilti við brúna á Dike
vegi á Chappaquiddick-eyju. Þrátt
fyrir það streyma forvitnir ferða-
menn árlega enn að brúnni.
Reuter
Ný bók um bandansku forsetakosnlngamar:
Quayle fær
slæma
Dan Quayle, varaforseti Banda-
ríkjanna, fær heldur slæma útreið í
nýrri bók um forsetakosningarnar
sem fram fóru í Bandaríkjunum í
fyrra. í bókinni er vitnað í nokkra
repúblikana sem unnu með varafor-
setanum í kosningabaráttunni sem
og nokkra er stóðu utan hennar og
bera þeir honum ekki vel söguna.
Hann er sagður vera með athygligáfu
á við barn, óþroskaður og barnalegur
maður sem hvað eftir annað hafi
verið settur á skólabekk til að læra
en síðan verið hafður „í taumi líkt
og hvolpur".
útreio
í bókinni, sem sett verður í sölu í
næsta mánuði, er m.a. vitnað í fyrr-
um ráðgjafa Quayles, Joseph W.
Canzeri. Fátt jákvætt er sagt um
varaforsetann í bókinni. Þeim repú-
blikunum, sem studdu við bakið á
honum, er lýst þannig að þeir hafi
verið aö bjarga Quyale frá honum
sjálfum.
Bush Bandaríkjaforseti vísaði
þessari gagnrýni á bug í gær og sagði
ummælin í bókinni móðgandi.
Að bókinni standa Jack Germond
og Jules Witcover blaðamenn.
Dan Quayle; varaforseti Bandaríkjanna, fær heldur slæma útreið í nýrri bók
um forsetakosningarnar sem fram fóru í Bandaríkjunum á síðasta ári.
' Teikning Lurie
9
i 11 II N (. I II A N l.
'llljl II III 11 111
SUMARTILBOÐ
ÁPfANÓUM
greiðast á allt að 2 árum
HLJÓÐFÆRAVERSLUN
PÁLMARS ÁRNA HF
HLJÓÐFÆRASALA - STILLINGAR - VIÐGERÐIR
ÁRMÚLI38.108 REVKJAVlK, SlMI 91 -32845
SiMNEFNI: PALMUSIC-FAX: 91-82260
ÖLVUNARAKSTUB
ÚISF3***
ALLT FYRIR
GLUGGANN
2 Gardínubrautir
hafa sameinast
ÁLNABÆ og flutt í
SÍÐUMÚLA 32.
pinabæp
-an//mstnt-
SÍÐUMÚLA 32, REYKJAVÍK,
S.31870.
TJARNARGÖTU 17,
KEFLAVÍK.S. 92-12061.
HEIMSMET SEM KEMUR ÞÉR TIL GÓÐA!
Á siðasta ári seldust hvorki meira né mínna en 400 Chrysler bilar á fslandí og markaðshlutdeild Chrysler var sú hæsta í heimin-
um utan Bandaríkjanna. Vegna þessa árangurs náðust sérsamníngar um verð á einni sendingu á Dodge Aries bilum sem nú eru
komnir til landsins.
DODGE ARIES - fjölskyldubíllhin sem slegíð hefur i gegn á Íslandí enda vel útbúinn rúmgóður bill á
frábæru verði, frá kr. 977.200,-
Bunaður m.a.:
Sjálfskipting * aflstýri * aflhemlar * 2,2L 4 cyl. vél með beinni innspýtingu * framhjóladrif * Iitað gler * stereo útvarp með 4 hátölurum og stöðvaminni JOFUR HF
Nýbýlavegi 2 • Sími 42600
JÖFUR-ÞEGAR ÞÚ KAUPIR BÍL
o.fl. o.fl.
VERÐ FKA KR. 977.200,-