Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1989, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1989, Qupperneq 24
36 LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 1989. Knattspyma unglinga / n>v 2. flokkur karla: FramararíA-riðil Framarar báru sigurorö af ÍBV í keppni 2. flokks um sæti í A-riðli að ári. Spilað var í Vestmannaeyjum og unnu f'ramarar, 4 0. Mörkin gerðu þeir Ríkarður Daðason, Haukur Pálmason, Helgi BJörgvinsson og Steinar Guðgeirsson. Þaö veröa þvi Framarar og UBK sem færast upp í A-riðil og hþota gull- og silfurverð- laun að auki en KR og ÍBK falla í B-riðilinn. Rétt er að komi fram að í B-riðla í 2. flokkl er dregið og iuö rétta er að Brelðabllk sígraöi í B-riöli I, Framarar unnu B-riðil II og ÍBV urðu efstir í B-riöli nt. ÍR og Höttur hættu þátttöku og var það slæmt þvi leikjum fækkaði til muna. Vonandi bætast þesri lið i hópinn að ári. Sigurvegaramir í fyrrnefhdum riðlum léku síðan tvöfalda umferð um sætin í A-riöli og varð lokastaðan þessi: Fram ........ 4 2 118-55 UBK .......... 4 12 16-64 ÍBV .......... 4 112 4-73 UMSK-mótið, 2. flokkur: Stjaman vann ÍK 20-0 ÍK er með allt of góða liðsheild í 2. flokki til að tapa með 20 marka mun, jafhvel á móti Uði með þann gæða- stimpil sem Stjaman hefur. En þessi úrsUt eru nú kannski skiljanleg þrátt fyrir aUt því Magnús Harðarson, for- maður knattspyrnudeildar ÍK, hefur marglýst þvi yflr að álagið i yngri flokkum á islandi sé of mildö og úr- sUtin séu nánast aukaatriöi. Aðalat- riöið sé að leikmenn forðist af flæmsta megni að leggja sig um of fram í leikjum því allt slíkt geti veriö afar hættulegt sálartetrinu. Leikur ÍK-strákanna hlýtur því að hafh faUið í góöan jarðveg hjá forystumanni ÍK. Það er aftur á móti skoðun unglinga- síðu DV að þetta stóra tap drengjanna sé klaufaskapur og hreinar öfgar því liðið er mun betra en markatalan gefur til kynna. UBK-ÍK, 7-1 Stjaman-UBK, 2-1 Meö þessum sigri tryggði Stjam- an sér efsta sætið í UMSK-mót- ina- • -Hson. Fjölnir með góðan 7. flokk Pegar Uð stendur sig jafhvel og B-Uð 7. flokks Fjölnis gerði í Stjömumót- inu í sl. mánuöi er það fyrir neöan allar heUur að fara rangt með nöfn leikmanna eins og átti sér staö á ungl- ingasíðu DV sl. mónudag. f texta meö mynd af strákunum er rangt Jarið með nöfh þriggja drengja, þeirra Hin- riks Araarssonar, Gísla Þórs Jóns- sonar og Hlyns Olafssonar, og eru þeir beðnir veivirðingar á mistökun- um. -Hson Haustmeistarar KR-inga í 5. flokki 1989. - Strákarnir hafa staðið sig vel í sumar því þeir náðu einnig 4. sætinu í íslandsmótinu. í B-liðinu eru eftirtaldir leikmenn: Þórarinn Olafsson, Arnar Sigurgeirsson, Kristján Þorsteinsson, Björn Rafnsson, Björn Jakobsson, Andrés Björnsson, Tómas Sigmundsson, Guðjón Guðmundsson, Hallgrímur Þormarsson, Harry Gunnarsson, ívar Meyvantsson, Edilon Hreinsson og Gunnlaugur Thorarensen. A-liðið er þannig skipaö: Andri Sigþórsson, Vilhjálmur Vilhjálmsson, Sverrir Viðarsson, Henry Gunnarsson, Eiríkur Gestsson, Höskuldur Ólafsson, Jakob Hrafnsson, Grím- ur Sigurðsson, Óskar Sigurgeirsson og Haraldur Þorvarðarson. Hinn frábæri markvörður A-liðs KR-inga, Ágúst Jóhannsson, gat ekki leikið með vegna meiðsla og kom það i hlut Haraldar Þorvarðarsonar að taka stöðu hans og skilaöi hann því hlutverki með sóma. Þjálfari iiðsins er Einar Sigurðsson og liðstjórar þau Viðar Guðmundsson, Margrét Sverrisdóttir, Guðrún Óskarsdóttir og Sigurgeir Jonsson. DV-mynd Hson Haustmótið - 5. flokkur: KR vann báða leikina í úrslitaleik gegn Fram - Prúðmannleg framkoma leikmanna einkenndi keppnina Haustmóti 5. aldursflokks lauk sl. sunnudag með leikjum um sæti. Spil- aö var á gervigrasinu og leikið eftir reglum KSÍ, þ.e. að árangur A- og B-liða var lagður saman og gefur sig- ur í A-liði 3 stig en í B-liði 2 stig. Til úrslita að þessu sinni léku KR og Fram og sigruðu KR-ingar í báð- um liðum, 1-0 í B-liði og 2-1 í A-liði. Leikir liðanna voru mjög hraðir og góðir og markvarsla frábær. Fjöl- margir áhorfendur fylgdust með aö vanda og höfðu mikla skemmtan af. Það var virkilega gaman aö fylgjast með krökkunum og sjá hvað allir voru afslappaðir. Viðbrögð þeirra sem biðu lægri hlut voru einnig mjög jákvæð og óskuðu þeir sigurvegur- um til hamingju með handabandi og heillaóskum. Þetta er reyndar ekki nýlunda því þannig hefur keppnin í allflestum tilvikum gengið fyrir sig á því skemmtilega keppnistímabili sem nú er að ljúka. -Hson Keppnin um sæti 1.-2. sæti: KR-Fram (B) 1-0 Mark KR skoraði Tómas Sigmundsson. KR-Fram (A) 2-1 Mörk KR: Andri Sigþórsson og Sverrir Þór Viðarsson. Mark Fram skoraöi Lárus ívarsson. 3.-4. sæti: Fylkir-ÍR (B) 3-4 Fylkir-ÍR (A) 2-4 5.-6. sæti: Valur-Víkingur (B) 8-1 Valur-Víkingur (A). 6-3 7.-8. sæti: Fjölnir-Leiknir (B) 1-10 Fjölnir-Leiknir (A) 0-10 Valur vann í 4. flokki A og B Til úrshta í haustmóti 4. flokks A-liða léku Valur og KR. Valsstrákamir héldu uppteknum hætti og sigruðu í spennandi leik, 3-2. Mörk Vals gerðu þeir Ari All- ansson, 2, og Örvar Rúdólfsson, 1. Mörk KR: Andri Sveinsson og Jón Halldórsson. Umsjón: Halldór Halldórsson - Valsdrengimir hafa þá unnið allt sem hægt er að vinna á einu keppnistímabili: Reykjavíkur- og íslandsmót og svo nú haustmót. Glæsilegu keppnistímabili er því að ljúka hjá þessu frábæra hði. B-lið Vals sigraði einnig í haustmótinu og unnu strákamir m.a. KR, 4-1. -Hson Urslit leikja 13. flokki: KR-Fram 2-0 Valur-KR 0-3 KR-Fjöínir 11-0 ÍR-Fram 0-8 Fylkir-ÍR 4-0 Víkingur-ÍR 9-1 ÍR-Fjölnir 6-0 Víkingur KR 4-2 Mikilvægur sigur Víkinga yfir nýbökuð- um íslandsmeisturum KR-inga. 2. flokkur: Fylkir-Valur 0-1 KR-Leiknir 5-2 Víkingur-Valur 3-3 KR-Valur 0-0 Vegna framkvæmda á Valssvæðinu leik- ur liðið alla leiki haustsmótsins á útivelli. Keppni í haustmóti 2. og 3. flokks stend- ur til 14. október. Engin B-lið eru i 2. og 3. flokki. Spilað er i einum riðli i þessum flokkum, allir viö alla. -Hson Til hamingju, Akureyringar! „Áttiég að útiloka drenginn frá keppni?" - athugasemd frá þjálfara 5. flokks Gróttu Akureyrarliðið KA braut blað í knattspymusögu 1. deildar þegar það náði þeim frábæra árangri á dögun- um að sigra í 1. deild íslandsmótsins. Þetta var í fyrsta skipti en áreiðan- lega ekki það síðasta sem lið frá Akureyri sigrar í hinni hörðu keppni. Það skyldi þvi engan undra þótt gleði KA-manna yrði mikil þegar Islandsbikarinn hafði loks viðkomu norðan heiða. Það er oft erfitt að ryðja brautina og segir mér svo hug- ur að næstu ár verði mikill upp- gangstími hjá Akureyrarliðunum. Þau eru komin á bragðið og þegar þannig háttar til gæti það orðið vana- bindandi að skipa efsta sæti, að minnsta kosti af og til. Einnig má bóka að KA-menn láta ekki titilinn af hendi baráttulaust að ári. Akureyrarfélögin eiga sér langa knattspymuhefð en lengi vel léku félögin undir merki ÍBA. Þess má geta að 1969 varð ÍBA bikarmeistari eftir 3-2 sigur gegn ÍA. 1977, að mig minnir, hættu félögin aö leika undir merki bandalagsins og veikti þaö aö sjálfsögðu framgöngu Akureyringa í fyrstu. En málin hafa rpjög þróast til betri vegar og eitt er víst að þessi sigur KA í ár á áreiðanlega eftir aö hleypa auknu lífi í knattspymu yngri flokka á Akureyri. Óbeint er þessi sigur KA-manna einnig lyftistöng fyrir Þór þvi Þórsar- ar hafa engan sérstakan áhuga á að vera eftirbátar KA-manna. Það má því búast viö harðsnúnum Þórsumm í 1. deildinni á næstu árum. Ein aö- alástæða þess er aö sjálfsögðu hinn sterki 2. flokkur félagsins en strák- arnir náðu 3. sæti á íslandsmótinu og hlutu 19 stig. Veganesti Þórsara er þvi gott fyrir næstu keppnistíma- bil. Yfir heildina má segja að þessi sigur norðanmanna sé merki þess aö knattspyman sé á uppleið á íslandi. Það er ekki lengur hægt að bóka fyr- irfram hver muni sigra í íslandsmóti 1. deildar. Þannig á það líka aö vera. Öllum er í fersku minni þegar Akur- nesingar komu, sáu og sigruöu í ís- landsmótinu 1951. Skagamenn hleyptu miklu fjöri í íslandsmótið því skapast hafði mikil ládeyða þar sem keppnin haföi einungis staðið milli Reykjavíkurfélaganna. Næstu árin á eftir hafa verið nefnd gullaldarár knattspymunnar á Akranesi. Það bendir allt til þess að álíka tímabil sé að renna upp á Akureyri. - Til hamingju, Akureyringar! -Hson Mig langar til aö leiðrétta þann mikla misskilning sem ég hef orðið var við hjá forráðamönnum hinna ýmsu félaga um aö ég hafi vísvit- andi haft rangt viö í úrslitakeppni 5. flokks sem fór fram í Hafnaríirði í sl. mánuði. Sannleikurinn í.málinu er sá að í fyrsta leiknum gegn KR, þann 25. ágúst, vantaði mig 2 af fastamönn- um í A-liöið þar sem þeir vom staddir erlendis. Vegna þessa lét ég tvo leikmenn úr B-liðinu spila með A-liöinu. Báöir þessir leik- menn hafa verið fastamenn í B- liðinu í allt sumar. Daginn eftir (laugardag) kom annar drengjanna óvænt til landsins og stillti ég hon- um upp í A-liðið og færði annan B-liðsmanninn til baka til sinna félaga. Sá ágæti drengur hefur ver- ið leikmaður með B-liðinu í allt sumar. Ég hef hingað til haft þann skilning á málinu að 7 leikjahæstu leikmenn A-liðsins tilheyri því hði. Annars er það furöulegt hversu mikil leynd hefur hvílt yfir þessum svokölluðu lögum sem samþykkt vom á síðasta KSÍ-þingi þar sem segir m.a. að aðeins ein leikskýrsla, fyrir fyrsta leikinn, skuli gilda alla úrslitaíkeppnina. Það var eins og að leita að nál í heystakk að finna þessar örfáu smáleturslínur í mótabókinni. Þessi nýju lög em þó ekki gallalaus, langt því frá. Hefði ég til aö mynda átt að útiloka drenginn frá keppni, bæði með A- og B-liðinu, þegar hann kom til landsins á laugardeginum? Það finnst mér ekki réttlátt. Hann hefur verið fastamaður með A-liðinu í allt heila sumar. Svo er það annað sem vekur upp spurningar varð- andi fyrrnefnda úrslitakeppni því þvert ofan í þessa nýju reglugerð varð að útfylla leikskýrslu fyrir hvem einasta leik, eins og gerí var á sl. ári. Hver útilokar að þjálfarar hafi ekki rokkað með leikmenn milli liða? Hver fylgdist með aö svo yrði ekki gert? Það er von mín að á næsta KSÍ- þingi verði til réttlátari lög um þessa keppni en nú em við lýði. Með knattspyrnukveðjum. Lárus Grétarsson, þjálfari 5. flokks Gróttu Klukkan er fajlin Lagasmiöja KSÍ virðist ekki vel mönnuö um þessar mundir því þessum ágætu mönnum hefur ekki enn tekist aö koma á framfæri full- nægjandi reglum varöandi úrslita- keppni í 5. flokki. Klukkan er búin að ganga á þá í rúm tvö ár og er því kolfallin. Þaö er því ef til vill besta og ein- faldasta leiðin aö láta íslandsmót í 5. flokki vera meö sama sniði og pollamót KSÍ í 6. flokki en þar leika A- og B-lið aöskilin. Þar þykir einn- ig meiri háttar vegsauki að sigra í B-liði. Eflaust myndi slík lausn gleðja marga, sérstaklega þá sem búa í fámennum byggðarlögum. Þessir fámennu staðir, margir hverjir, hafa ekki haft bolmagn til aö senda tvö hð til keppni í íslands- mótið. Þess í stað hafa þau sent eitt lið og keppir það í hópi A-liöa. Einungis þau félög, sem tefla fram báðum liðum, hafa þátttökurétt í úrslitum. Þetta er ranglátt, gætu sumir sagt - og létt er að taka und- irþauorð. -Hson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.