Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1989, Blaðsíða 31
m.\ aaaMaaaa .ss huoacííiaduaj
- -LAUGASÐ AGUR-23, UESEMBER 1988, - - - -
88
----39
Borgames:
Eðalfiskur
endurreistur
Gardar Guðjónsson, DV, Akranesi;
- „Við höfum aukið söluna hjá
okkur í kjölfar nýrra vinnu-
bragða í kynningu og dreifingu.
Salan er góð hjá okkur núna og
við ætliun okkur auðvitaö aukna
markaðshlutdeild," sagði Ragnar
Hjörleifsson, nýr framkvæmda-
stjóri Eðalfisks í Borgarnesi, í
samtali við DV.
Hlutafé Eðalfisks hefur verið
aukið um níu milljónir króna og
er Borgamesbær nú orðinn
stærsti hluthafmn. Samfara fjár-
hagslegri endurreisn var ráðinn
nýr framkvæmdastjóri og kosnir
nýir stjórnarmenn.
Eðalfiskur hefur 10-12 manns í
vinnu og framleiðir reyktan sil-
ung og lax, aðallega fyrir innan-
landsmarkað. Fyrirtækið hefur
átt erfitt uppdráttar lengst af og
orðið fyrir áfóllum, m.a. vegna
þess að markaðssetning hefur
ekki verið sem skyldi en að sögn
Ragnars eru menn nú bjartsýnir
á framhaldið.
Skagafiöröur:
Kaupfélagið
steypu-
Þórhatlur Ásmundsson, DV, Sauðárkr.:
Pálmi Friðriksson, kunnur
verktaki hér á Sauðárkróki sem
rekur meöal annars vélaleigu,
hefur keypt meirihlutann í
Steypustöð Skagafjarðar af
Kaupfélagi Skagfirðinga. Pálmi á
nú 79% í fyrirtækinu í stað 27%
áður. Byggingarfélagið Hlynur á
20% og einstaklingar eitt prósent.
Pálmi ætlar að sameina vélaleigu
sína rekstri steypustöðvarinnar.
Verulegur samdráttur hefur
veriö í steypusölu í Skagafirði
síöustu þijú árin og Pálmi reikn-
ar með að tvö erfið ár séu fram-
undan í steypunni en er þó bjart-
sýnn á rekstur steypustöðvarinn-
ar með þeirri hagræðingu sem
gerð verður.
Neikvætt
fyrir
Skagamenn
Garðar Guðjónsson, DV, Akranesi:
Samningur ríkis og sveitarfé-
laga um að sveitarfélögin taki aft-
ur á sig þriðjung tannlækna-
kostnaðar getur þýtt að útgjöld
Akraness aukist um 3-4 milljónir
króna. Guðbjartur Hannesson,
formaður bæjarráðs, sagði í sam-
tah við DV að ný verkaskipting
ríkis og sveitarfélaga gæti komið
neikvætt út fyrir Akranes.
„Við getum ekki séð annað en
að við höfum staðið á núlli áður
en við fengum tannlæknakostn-
aðinn aftur. En að vísu eru marg-
ir óvissuþættir í þessu,“ sagöi
Guðbjartur.
„Þegar á heildina er htið kemur
ný verka- og tekjuskipting sveit-
arfélögunum vel en þetta kemur
mjög misjafnlega út og gæti orðið
neikvætt fyrir okkur á Akra-
nesi.“
„Við erum mjög óánægöir með
að fá tannlæknakostnaðinn aftur
í hausinn. Nýja verkaskiptingin
átti að vera til bóta fyrir okkur
en virðisaukaskattur og samn-
ingur um tannlæknakostnað eru
að naga það niður,“ sagði Óli Jón
Gunnarsson, bæjarstjóri í Borg-
amesi, í samtah við DV.
Fréttir
Verða orugglega
svolítið öðruvísi jól
- rætt við Steinunni Hannesdóttur á Hveravöllum
Þórhallur Asmundsson, DV, N1 vestra:
„Þetta verða örugglega svohtið öðru-
vísi jól hjá okkur núna. Það eru
ýmsar hefðir í sambandi við jóla-
haldið sem maður getur ekki haldið
í heiðri hér. Jú, það er þó nokkuð
síðan við fómm að huga að jólaund-
irbúningi, það þýðir ekki annað en
vera búin að vissum hlutum í tíma,“
sagði Steinunn Hannesdóttir, hús-
freyja á Hveravöllum.
Steinunn, 27 ára Rangæingur, og
sambýhsmaður hennar og jafnaldri,
Arnar Jónsson úr Reykjavík, tóku
við veðurathugunarstöðinni á
Hveravöhum í ágúst sl. Þau voru
valin úr hópi 28 umsækjenda, þannig
að þeir eru margir sem sækjast eftir
vist á Hveravöhum.
Steinunn og Amar teljast vart ný-
græðingar þarna því þau hafa verið
landverðir á Hveravallasvæðinu tvö
síðustu sumur. Innifahn í starfi
þeirra er umsjón með skálum Ferða-
félagsins á staðnum sem nú eru orðn-
ir tveir.
„Það er varla hægt að tala um að
þetta sé afskekkt lengur. Hér er orð-
in svo mikh umferð um helgar og
jafnvel gestakomur í miðri viku. Hér
hefur verið fólk um hverja einustu
helgi í allt haust, aht upp í 50 manns.
Enda er tíðin búin að vera svo ein-
stök og svo hefur verið óvenjumikiö
af rjúpu hérna á heiðinni,“ sagði
Steinunn.
Engin vandræði fyrir ykkur að
eyða tímanum þarna efra?
Nei, ekki vitund og okkur finnst
þetta hafa hðið fljótt. Það fara drjúg-
ar stundir í að hitta og spjaha við
fólk sem hingað kemur. Svo höfum
við notað tímann mikið til útiveru,
ýmissa útiverka og gönguferða. Við
höfum eiginlega ekki tímt að vera
mikið inni við, annars höfum við nóg
að lesa, getum hlustað á útvarp og
horft á video, en útsending sjónvarps
næst hér sjaldan og hla ef hún næst,
þannig að við látum yfirleitt fréttir
og veðurspá duga þar,“ sagði Stein-
unn.
Að hennar sögn er aðstaða fyrir
ferðamenn orðin mjög góð á Hvera-
vöhum. Annar skáhnn er upphitaður
og hreinlætisaðstaða með rennandi
vatni til staðar. Þá er einnig eldsneyt-
issala og viðgerðaraðstaða í gámi
sem félag vélsleðamanna kom upp.
Steinunn Hannesdóttir
Unglingalandsiiðið i knattspyrnu, 18 ára og yngri, heldur til ísrael i fyrramálið til þátttöku í sterku alþjóðlegu móti sem fram fer yfir jólin. Þeir hafa undir-
búiö sig vel fyrir keppnina allan þennan mánuð og verður skemmtilegt að fylgjast með árangri liðsins þar eystra um hátíðarnar. DV-mynd Hson
Óvenjulegar björgunar-
aðgerðir flugeldasala
„Það voru góö ráð dýr en einhvern
veginn varö að bjarga málunum og
úr þessu varð meiri háttar aðgerö,“
sagði Einar Sigurjónsson, fulltrúi
SVD flugelda, í samtah við DV. SVD
flugeldar eru samtök fjögurra björg-
unarsveita á suðvesturhorninu sem
árlega flytja inn flugelda fyrir slysa-
varnasveitir víða um land.
Það varð uppi fótur og fit þegar
uppgötvaðist að í seinustu sendingu,
sem SVD fékk frá Austur-Þýska-
landi, vantaði bengaleldspýtur og
stjörnuljós. Leitað var vítt um lönd
svo sem Holland, Frakkland og Dan-
mörku þar sem stjörnuljósin fundust
loks og komust með seinustu ferð
heim til íslands. Bengaleldspýturnar
fengust eftir mikla rekistefnu í Ham-
borg en of seint fyrir seinustu skips-
ferö til íslands.
„Við notuðum okkar víðfeðmu
tengsl við sjómenn og útgerðarmenn
og ræstum okkar menn,“ sagöi Einar
Siguijónsson. Gunnar Tómasson,
útgerðarmaður í Grindavík, frétti af
togaranum Má frá Ólafsvík þar sem
hann var að selja í Bremerhaven.
Haft var samband við útgerðina í
Ólafsvík sem samþykkti að kippa
gámnum um borð. Ekið var í hasti
til Bremerhaven og gámnum hent
um borð. Menn biðu með öndina í
hálsinum heima og fylgdust með
ferðum skipsins í gegnum Tilkynn-
ingaskylduna.
„Svo þegar ákveöið var að hann
legði að í Vestmannaeyjum var aht
sett í gang,“ sagði Einar:
Útgerðarmaður í Vestmannaeyjum
leysti farminn út, bíh var drifinn með
eldspýturnar um borð í Heijólf og í
vöruhúsi SVD flugelda í Hafnarfirði
biðu fjórar björgunarsveitir albúnar
að ráðast á hauginn. Fíölskyldu-
pakkar, sem selja átti úti á landi, biöu
tilbúnir og vantaði aðeins bengaleld-
spýtur og stjörnuljós.
Fjöldi manns vann langt fram á
nótt aðfaranótt fóstudags við að
pakka og ganga frá. Vöruflutninga-
bílar á leið th ísafjarðar og austur á
firði voru eltir uppi th þess að koma
góssinu um borð. Annar náðist uppi
í Hvalfirði en hinn fyrir austan fiall.
„Þetta er svo mikhvægur liður í
fjáröflun sveitanna að það varð aö
bjarga þessu,“ sagði Einar Siguijóns-
son. „Þetta var heilmikh og flókin
aðgerð en þar sem allir lögöu sig
fram tókst þetta með glæsibrag."
-Pá
Nýr kostur fyrir þá sem eiga í andlegum erfiðleikum:
Liflínan er í sambandi
Þeim sem eiga við erfiðleika að
etja gefst nú kostur á að hringja í
Líflínuna. Síminn er 623700. í símann
getur fólk hringt og fengið að hlusta
á uppörvandi efni. Þá hefur fólk val-
kosti, getur lagt inn bænarefni, nafn,
heimilisfang og símanúmer.
Síðar stendur til að koma upp upp-
lýsingabanka. Það eru óháð kristheg
samtök sem standa fyrir þessari
þjónustu.
Svipuð þjónusta og þessi er þekkt
víða um heim og hafa margir fengið
mikla hjálp með henni. Þessi ís-
lenska líflína er samt ekki sniöin eft-
ir erlendri fyrirmynd.
Þeir einir geta nqtiö þjónustunnar
sem eru með tónvalssíma. Hægt er
að hringja alls staðar af landinu og
eins úr farsímum.
Líflínan verður kostuð með fijáls-
um framlögum og sölu á pennum
sem merktir eru Líflínunni.
-sme