Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1989, Blaðsíða 35
bfceí JltSHJVrtUríilCl íi
LAU.GARDAGUR 23. DESEMBER 1989.
Upp-
gjör
ársins
Prince gerði það gott á árunum
1986-‘87.
Nú þegar aðeins er eftir rúm vika af árinu 1989 setja skríbentar um
allan heim sig í stellingar í þeirri tilraun að gera upp afrek liðinna tólf
mánaða með ýmiss konar listagerð og fáum við að sjá árangur þess kon-
ar pælinga á síðum DV á næstu vikum. Ofan á bætist að nú er farið að
síga á seinni hluta 9. áratugarins og bætir þá í listafárið, valdar verða
bestu plötur áratugarins, besta hljómsveit áratugarins o.s.frv. Á meðan
beðið er niðurstaðna úr ársuppgjörum er rétt að hita upp með því að líta
á hvaða breiðskífur og smáskífur hafa lent í hæstu hæðum í ársuppgjöri
blaðamanna New Musical Express síðasthðin 9 ár.
Bestu breiðskífur NME
1980 Joy Division ...............................Closer
1981 Grace Jones.........................Nightcl'ubbing
1982 Marvin Gaye............................Midnight Love
1983 Elvis Costello.......................Punch the Clock
1984 Bobby Womack.................................Poet II
1985 Jesus & Mary Chain ....Psychocandy (og) Tom Waits ....Rain Dogs
1986 Prince & The Revolution.....................Parade
1987 Pubhc Enemy...................Yo ! Bum Rush the Show
1988 Public Enemy.It Takes a Nation of Milhons to Hold Us Back
1989 ............................................... ?
Bestu smáskífur NME
1980 Joy Division .............
1981 The Specials..............
1982 Grandmaster Flash.........
1983 Michael Jackson...........
1984 Womack & Womack...........
1985 Jesus & Mary Chain........
1986 Prince & The Revolution...
1987 Prince- & The Revolution..
1988 Nick Cave & The Bad Seeds
1989 ..........................
.Love Will Tear Us Apart
............Ghost Town
...........The Message
.............Bihie Jean
..............Love Wars
.......Never Understand
...................Kiss
.......Sign of the Times
.........The Mercy Seat
?
U
Þess má að lokum geta að rás 2 býður hlustendum sínum að velja bestu
plötu ársins, eins og hún hefur reyndar gert frá árinu 1984. Hlustendur
eiga að hringja inn miðvikudaginn 27. desember mihi klukkan 15 og 17
og nefna þrjár bestu plötur ársins 1989 að eigin mati (íslenskar jafnt sem
erlendar).
43-:
Helaarpopp
Tilbrigði við ferðalag
Bob Dylan.
Bob Dylan, sem sendi frá sér plöt-
una Oh, Mercy fyrr á árinu og hlaut
lof fyrir, ætlar að gleðja aðdáendur
'sína í Lundúnum með söng og hljóð-
færaslætti á nýju ári. Hetjan ætlar
að troða upp í hinu viðkunnanlega
Umsjón
Snorri Már Skúlason
Hammersmith Odeon dagana 3.-8.
febrúar að báðum dögum meðtöld-
um. Þeir sem hrifust af nýju plötu
kappans, sem líklega er hans besta
síðan Desire kom út 1978, ættu að
hugsa sig Msvar um áður en þeir
afskrifa þennan tónlistarviðburð í
Lundúnum. Þann 8. febrúar verður
Daniel Lanois nefnilega með tónleika
í Royal Festival Hall í sömu borg en
Lanois útsetti einmitt nýju plötu
Dylans og þykir eiga drjúgan þátt í
að gamli maðurinn er aftur kominn
á stall. Sjálfur sendi Lanois frá sér
plötu í haust, þá fyrstu á ferlinum,
og tókst dægilega upp svo ekki sé
fastar að orði kveðið.
Ef þú ert á leið til Lundúna...
Árangur erfiðis
Á útmánuðum greindi poppsíðan
frá því að þrír óhkir herramenn
rokksins hygðust rugla saman reyt-
um á væntanlegri sólóplötu Bern-
ards Albrechts, söngvara og gítar-
leikara New Order. Hinir tveir voru
Neil Tennant úr Pet Shop Boys og
rytmagítarleikarinn Johnny Marr.
Nú hefur samstarfið loksins borið
ávöxt og hann fremur ljúfan ef
marka má viðtökur bresku popp-
blaðanna. Lagið, sem kallast Getting
Away With It og er eftir þá félaga
Albrecht og Sumner, var valið smá-
skífa vikunnar bæði í Sounds og
Melody Maker nú á dögunum. Hér
ku vera á ferð skotheld melódía sem
þríeykið hefur farið um meistara-
höndum. Um framhaldið veit popp-
síðan lítt en upphaflegt markmið
hópsins, sem kallar sig Electronic,
var að koma út stórri plötu og verður
að vona að það sé enn leiðarljós
þeirra félaga.
Neil Tennant úr Pet Shop Boys, Bernard Albrecht úr New Order og rytmagitarleikarinn Johnny Marr.
Fyrír jólín - um jólin - eflír jólín
URVAL - TIMAEIT FYWR AIIA
Hét Qö elsVuðu n
batm & .^asta t»-
«Mí, ottdiaV
ÚRVAL - TÍMARIT í JÓLAFÖTUNUM
*!