Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1989, Blaðsíða 26
Biðin styttist:
Og allir
fá þá
eitthvað
fallegt...
Jólastemmningin í borginni hef-
ur verið geysimikil undanfarna
daga og vart hefur farið fram hjá
neinum að hátíð ljóss og friðar er
framundan. Verslunarfólk hefur
líklegast fundið mest fyrir álaginu
þvi mjög mikið hefur verið að gera
í verslunum allan þennan mánuð.
Þó allra mest síöustu daga eins og
venja er vikuna fyrir jól. í Kringl-
unni sl. laugardag var svo troöið
að nánast ómögulegt var að ganga
um með barnavagn og voru víst
margir sem flúðu vegna erilsins.
í dag er lengsti dagur hjá verslun-
armönnum á þessu ári og víst er
að nóg verður að gera í dag. Marg-
ir, sérstaklega karlmenn, hafa það
fyrir sið að fara ekki í verslanir
fyrr en á Þorláksmessu og kaupa
þá gjöf handa sinni heittelskuöu.
Bömin eiga erfiðan dag fyrir
höndum. Aöfangadagur er líkleg-
ast lengsti dagur á hveiju ári í
þeirra huga. Þó hefur sjónvarpið
stytt þeim stundir en áður en það
kom til sögunnar árið 1966 var bið-
in oft svo löng að lítil krili lögðust
til svefns eftir hádegi einungis til
að láta daginn líða.
Leyndarmál
barnanna
í desember er afar skemmtilegt
að fylgjast með bömunum, kannski
mest þeim sem trúa ekki á jóla-
sveininn en trúa samt. Skórinn er
settur út í glugga á hverju kvöldi
og í sumum gluggum eru það heilu
vaðstígvélin sem bíða þess að
sveinki komi. Lítill snáði, sem er
hættur að trúa á jólasveina en vill
samt græða, skrifaðijólasveininum
bréf. Þannig hljóðaöi það: „Kæri
jóli. Vilttu vera svo góður að gefa
mér hundraðgall í skóinn. Ekki
þinn vinur Steini.“
Svo er það litla stúlkan sem fékk
slíkt dálæti á Hemma Gunn. að hún
bætti nafni hans ávallt aftan við
sitt. í desember kom nýtt átrúnað-
argoð til sögunnar, jólasveinninn,
og nafnið breyttist.
Annað er mjög merkilegt með
bömin. Þau sem eru í leikskóla búa
til jólagjöf handa foreldmm sínum
og svo er einnig meö þau sem eru
í barnaskóla, ekki dettur þessum
litlu krílum í hug að segja frá hver
gjöfin sé. Það er alveg sama hvað
reynt er að plata upp úr þeim, svar-
ið er: Þú átt ekki að vera svona
forvitin, þú sérð það á jólunum. Það
er augljóst að fóstrur og kennarar
hafa einstakt lag á að gefa börnun-
um heilræði í sambandi við leynd-
armál.
Sumir gleyma sér
Svo era það jólakortin. Gamall
siður segir að adls ekki megi opna
Hvaöa bók ætlf hann langi mest aö fá I jólagjöf?
Jólasveinninn setur svip sinn á lifið i desember - sumir trúa alls ekki, aðrir eru smeykir og enn aörir eign-
ast nýjan aódáanda.
þau fyrr en á aðfangadag og víst
er að margir halda í þann sið. Svo
era aðrir sem geta ekki á sér setið
og laumast til að kíkja - það getur
alltaf komið upp sú staða að ein-
hver hafi gleymst. Skemmtilegustu
jólakortin eru þau sem í er skrifuð
einhver orðsending, endurminning
eða vísa og sumir era snillingar í
slíku. Hefðbundiö er þó þetta
venjulega: Gleðileg jól, gott og far-
sælt nýtt ár, meö þökk fyrir allt
liðið - Siggi, Jóna og börnin. Þetta
þekkja víst allir.
Sennilega era flestir búnir að
kaupa jólatréð en alltaf eru ein-
hverjir seinir ár hvert. Þannig hef-
ur t.d. alltaf komið fyrir í einni
stærstu blómaversluninni hér í
borginni að einhver grátklökkur
lemur og ber dyrnar klukkan íjög-
ur og spyr hvort nokkurt jólatré
sé eftir. Oftast er hægt að bjarga
málum enda sagði eigandi verslun-
arinnar aö það lægi viö að þyrfti
slysavakt til klukkan sex á að-
fangadag til að bjarga þeim sem
„gleyma sér“.
Sjálfsagt kemur þetta líka fyrir
með jólagjafimar hjá einhveijum
en við skulum vona að engir gleymi
sér þetta árið. í erlendu blaði birt-
ist um daginn grein fyrir þá sem
eru á síðustu stundu að kaupa jóla-
gjafir. Þar var sagt að ef þú værir
í erfiðleikum með að finna eitthvað
og tíminn að renna út væri alltaf
hægt að bjarga sér með því að
kaupa nærbuxur og sokka. Hver
þarf ekki á slíku að halda?
Mest um vert er aö enginn fari í
jólaköttinn. Jörð er orðin hvít og í
kvöld sjáum við fallega skreytt
jólatré við stofuglugga. Hvað er
fallegra og friðsamlegra? Er ekki
desember skemmtilegur mánuður?
Gleðileg jól.
-ELA
Það var ekki heiglum hent að
reyna aö komast áfram i Kringl-
unni sl. laugardag. Skyldi það vera
verra i dag?
Sumir fá litla pakka, aðrir mjög STÓRA.