Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1989, Blaðsíða 5
LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 1989.
Fréttir
Nicolae Ceausescu sagöur fallinn:
Fréttir herma að harðlínumanninum Nicolae Ceausescu, sem hélt um stjórn-
artaumana í Rúmeníu í rúma tvo áratugi, hafi verið velt úr sessi.
Simamynd Reuter
stjóra hrynur
Tuttugu og fimm ára einræði
Nicolae Ceausescu gekk til liös viö
kommúnistaflokkinn á fjóröa ára-
tugnum, ungur aö aldri eöa aðeins
fjórtán ára. A þeim tíma var flokkur-
inn bannaöur. En fljótlega eftir aö
Rauöi herinn réðst inn í landiö, í
ágúst 1944, náði flokkurinn sér á
strik. Tveimur árum eftir innrásina,
eftir þingkosningar, féllu mörg
valdamikil embætti í nýrri stjórn
kommúnistum í skaut.
Einræöistímabíl Ceausescus hófst
áriö 1965 þegar hann tók viö leið-
togaembætti kommúnistaflokksins
af Gheorghe Gheorghiu-Dej. Ceau-
sescu, þá aðeins 47 ára aö aldri, varö
þannig yngstur allra leiðtoga komm-
únistaflokks í ríkjum A-Evrópu.
En hann lét ekki þar við sitja held-
ur klifraöi æ hærra í valdastigann.
Áriö 1967, tveimur árum eftir að
hann varð flokksleiðtogi, tók hann
við embætti þjóðarleiðtoga af Chivu
Stoica. Og 1975 varö hann fyrstur til
aö bera hinn nýja titil forseta Rúm-
eníu, titil sem hann hélt þar til í gær.
Ceausescu þoldi enga andstöðu við
stjórn sína og bannaði öllum öörum
stjómmálaflokkum en kommúnista-
flokknum aö starfa í landinu. Ein-
ræði hans var tryggt með reglu-
bundnum hreinsunum innan flokks
og stjómar, neti njósnara í öllum
valdastofnunum og hinni illræmdu
öryggislögreglu, Securitate. Hann og
fjölskylda hans - ekki síst hin valda-
gráöuga eiginkona hans - höföu alla
stjóm í sinni hendi.
Ceausescu fordæmdi innrás aðild-
arríkja Varsjárbandalagsins í
Tékkóslóvakíu áriö 1968. Fyrir það
litu Vesturlönd á hann sem mann er
færi eigin leiðir. Hann neitaði að láta
rúmenska hermenn taka þátt í æf-
ingum Varsjárbandalagsins á er-
lendri gmnd.
Stjómarfar landsins byggðist á
persónudýrkun almennings á Ceau-
sescu og fjölskyldu hans og hann
harðneitaði að innleiða umbætur í
anda perestrojku Gorbatsjovs Sovét-
forseta. Þess í stað hélt hann fast í
harðlínustefnuna og ' einangraði
landið.
Strax og Ceausescu tók við stjórn-
artaumunum árið 1965 ákvað hann
að fylgja utanríkisstefnu er væri
óháð Moskvustjórninni. Vestrænum
þjóðarleiðtogum féll vel í geð sú
ákvörðun. En á níunda áratugnum
fóm samskipti forsetans við vest-
ræna þjóðarleiðtoga versnandi
vegna síendurtekinna mannrétt-
indabrota Ceausescus. Vaxandi efna-
hagsvandræði heima fyrir neyddu
hann til að leita æ meira á náðir
nágrannaríkjanna. Almenningur
Sigri hrósandi Rúmenar þyrptust
þúsundum saman út á götur borga
Rúmeníu í gær þegar fregnir bárast
um að harðlínumaðíirinn og einræð-
isherrann, Nicolae Ceausescu, sem
hafði verið við völd í rúma tvo ára-
tugi, væri fallinn. „Rotta, rotta,“
hrópaði manníjöldinn að Ceausescu
er hann reyndi aö flýja land fyrr um
daginn með því að fara um borð í
þyrlu á þaki bækistöðva kommún-
istaflokksins. Fyrir aðeins fimm dög-
um hélt Nicolae Ceausescu fast um
stjómartaumana í Rúmeníu en í
gærdag var sagt að hann heföi verið
hnepptur í gæsluvarðhald, aðeins
örfáum klukkustundum eftir að
fréttir hermdu að hann væri fallinn.
Á aðeins fimm dögum hrundi veldi
Ceausescu-fjölskyldunnar, þessarar
fjölskyldu sem haldið hafði Rúmeníu
í jámgreipum í tuttugu og fjögur ár.
Þegar DV fór í prentun í gærkvöldi
var enn barist í Búkarest, höfuðborg
Rúmeníu.
þurfti að herða sultarólina án nokk-
urs sjáanlegs árangurs.
En Rúmenar urðu þreyttir á ein-
ræði Ceausescus. Efnahagslífið batn-
aði ekki neitt og árið 1987 mótmæltu
þúsundir verkamanna í borginni
Brasov matarskorti og fóru fram á
mannréttindi.
Og síðastliðinn sunnudag gengu
tugþúsundir íbúa borgarinnar Timi-
soara fylktu liði um götumar til að
mótmæla brottvísun prests frá söfn-
uði sínum. Fljótlega snerist kröfu-
gangan upp í mótmæli gegn stjóm
Ceausescus. Stjórnvöld lokuðu
landamæmnum og fréttir bárust af
því að öryggissveitir forsetans hefðu
látið til skarar skríða gegn mótmæl-
endum. Óttast er tala látinna sé há.
Á fimmtudag reyndu hermenn að
bijóta á bak aftur mótmæli á stærsta
torginu í Búkarest. Hermenn skutu
úr vélbyssum á allt sem hreyfðist og
óku skriðdrekum yfir kröfumenn, að
sögn sjónarvotta. Þessi fjölmennu
mótmæli síðustu daga gætu reynst
upphafið að endinum fyrir Ceauses-
cu og fjölskyldu hans. í gær var sagt
að forsetinn væri fallinn.
Reuter
Veldi harð