Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1989, Page 40
48
LAUGARDAGUR 30. DESEMRER 1989.
Afmæli
&
Alfred Möller
Alfred Möller, fyrrv. forstjóri,
Furulundi 11A, Akureyri, er áttræð-
ur í dag.
Alfred er fæddur í Miðhúsum í
Óslandshlíð í Skagafirði, en alinn
upp á Siglufirði. Eftir barnaskóla-
nám á Sigluflrði fer hann að vinna
hjá Síldarverkun ríkisins. Árið 1937
ílytur hann til Akureyrar og hefur
nám í vélsmíði og rennismíöi hjá
Vélsmiðjunni Odda hf. og í Iðnskóla
Akureyrar. Að námi loknu 1942
stofnar hann ásamt öðrum Véla- og
plötusmiðjuna Atla hf. og vann þar
til ársins 1985. Alfred starfaði mikiö
að félagsmálum járniðnaðarmanna
og var m.a. gjaldkeri í Iðnaöar-
mannafélagi Akureyrar í 25 ár. Á
meðan hann var á Siglufirði tók
hann virkan þátt í leik- og söngstarf-
semi, söng með karlakórnum Vísi í
mörg ár. Ennfremur söng hann i
fleiri ár með Karlakórnum Geysi á
Akureyri. Alfred sat í stjórn fleiri
fyrirtækja á Akureyri.
Alfred kvæntist þann 16.10.1937
Friönýju Sigurjónu Baldvinsdóttur
húsmóður, f. 16.20.1918, d. 22.4.1988.
Foreldrar hennar voru Baldvin
Benediktsson og Kristín Guð-
mundsdóttir. Þau bjuggu á Stóra-
Eyrarlandi við Akureyri.
Böm Alfreds og Friðnýjar eru:
Lucinda Gfgja, f. 25.4.1937, hús-
freyja og ritari, gift Halldóri Hall-
grímssyni skipstjóra, f. 8.7.1932;
Páll Geir rennismiður, f. 27.9.1940,
kvæntur Gerði Guðvarðardóttur, f.
10.1.1940; Súsanna Jóna skrifstofu-
maður, f. 7.9.1943, var gift Einari
Guðnasyni, f. 1939; Alma Kristín
húsmóðir, f. 21.91945, gift Birgi B.
Svavarssyni bankastarfsmanni, f.
3.1.1945; Erla Elva húsmóðir, f. 13.9.
1946, býr með Sverri Sigurvinssyni
bónda, f. 21.6.1941; Jóhann Gunnar
bankafulltrúi, f. 25.7.1955, býr með
Stefaníu Hauksdóttur, f. 15.5.1962
sjúkraliða.
Barnabörnin eru 14 og barna-
barnabörnin eru 17.
Systkini Alfreds: William Thomas,
f. 12.3.1914, d. 19.7.1965, kennari við
Skógaskóla, var giftur Guðrúnu Sig-
urðardóttur; Rögnvaldur Sverrir, f.
7.10.1915, kennari á Ólafsflrði,
kvænur Kristínu Helgu Bjarnadótt-
ur; Jóhann Georg, f. 27.5.1918, verk-
stjóri hjá Síldarverksmiðju ríkisins
á Siglufirði, kvæntur Tryggvu Hel-
enu Sigtryggsdóttur; Alvilda Frið-
rika María, f. 10.12.1919, húsfreyja
í Hrísey, gift Birni Kristinssyni;
Unnur Helga, f. 10.12.1919, húsmóð-
ir og iðnverkakona á Siglufirði, var
gift Jóni Ólafi Sigurðssyni, en þau
skildu; Kristinn Tómas, f. 8.7.1921,
verkamaður í Kópavogi, var kvænt-
ur Sigrúnu Björnsdóttur, en þau
skildu; Jón Gunnar, f. 27.7.1922,
verslunarmaður í Reykjavík, giftur
Nönnu Þuríði Þórðardóttur.
Foreldrar Alfreds voru Christian
Ludvig Möller, f. 5.4.1887, d. 11.8.
1946, verslunarmaður og lögreglu-
þjónn, og Jóna Sigurbjörg Rögn-
valdsdóttir, f. 18.3.1885, d. 6.2.1972.
Christian var sonur Jóhanns Ge-
orgs Möller, verslunarstjóra á
Blönduósi, sonur Christian Ludvig
Möller, kaupmanns í Reykjavík, og
konu hans, Sigríðar Magnúsdóttur
Norðfjörð.
Móðir Christians var Katrina Al-
vilda María Thomsen, dóttir Will-
iams Thomsen, Nicolaj Henrich
Thomsen, skipstjóra og kaupmanns
í Haderslev.
Móðir Williams var Cathrine
Margrethe Christensen. Móðir
Katrinu var Ane Margrethe Knuds-
en, dóttir Lauritz Michael Knudsen,
og Margrethe Andreu Hölter.
Jóna Sigurbjörg, móðir Alfreds,
var dóttir Rögnvalds, b. í Miðhúsum
í Óslandshlíð í Skagafirði, Jónsson-
ar, b. að Arnarstöðum í Sléttuhlíð,
Jónssonar. Móðir Rögnvaldar var
Gunnhildur Hallgrímsdóttir.
Alfred Möller.
Steinunn Helga Jónsdóttir, b. á
Þrastarstöðum á Höfðaströnd,
Hallssonar, b. í Tungu, Þorkelsson-
ar.
Móðir Jóns var Ingunn Þorgeirs-
dóttir. Móðir Steinunnar Hélgu var
Sigurbjörg Indriðadóttir, b. á Ljóts-
stöðum, Jónssonar, og Ingibjargar
Helgadóttur.
Alfreð tekur á móti gestum í Húsi
aldraðra, Lundargötu 7 á Akureyri,
Móðir Jónu Sigurbjargar var á afmælisdaginn milli kl. 15 og 17.
TiL hamingju með afmælið á gamlársdag
85 ára 60ára
Ármann G. Jónsson, Bólstaöáíiiuu 45, Rcykjavík. Hannes Páimason, Ægisgötu 28, Akureyri.
50 ára
80 ára
Alda Finnbogadóttir, Breiðvangi4, Hafnarfirði. Hólmar Bragi Pálsson, Minni-Borg, Grímsneshreppi. ÓlöfÁrnadóttir, Sólbrekku 12, Húsavík.
Guðrún Andrésdóttir, Hellukoti, Stokkseyri. Hóimfríður Hjartardóttir, Grettísgötu 77, Reykjavík. Sveinbjörg Árnadóttir, Álftamýri 48, Reykjavík. Vilborg Helgadóttir, Eystra-Súlunesi 2, Leirár- og Mela- hreppi.
40ára
Áskell Jónsson, Skipasundi 19, Reykjavik.
75ára Friðbjörn Friðbjamarson, Byggðarholti 22, Mosfellsbæ. Friðrik Marteinsson, Brekkubæ35, Reykjavík. Helgi Bergmann Sigurðsson, Vallholti 18, Selfossi. Hilmar Karlsson,
Sigurlaug Jónasdóttir, Kárastöðum, Rípurhreppi.
70 ára Heiöarlundi 2H, Akureyri. Magnús Ágúst Magnússon,
Halldór H. Þorvarðarson, Mýrarbraut 4, Blönduósi. Sigríður Þórðardóttir, Stigahlíð 36, Reykjavík. Þormóður Haukur Jónsson, Ugluhólum 12, Reykjavík. Hann tekur á mótí gestum á heimili sínu milli kl. 15 og 17 á gamlársdag. Nesbala 104, Seltjamamesi. Sigríður Adolfsdóttir, Hringbraut71, Keflavik. Sigríður Óladóttir, Hólavegi 42, Sauðárkróki. Tryggvi Karlesson, Hlíðargötu 25, Fáskrúðsfirði. Vilhjálmur Vilhjálmsson, Reynihlíð2, Reykjavík.
Ingvi Rafn Jóhannsson
Ingvi Rafn Jóhannsson rafvirkja-
meistari, Löngumýri 22, Akureyri,
veröur sextugur á nýársdag, 1. jan-
úar.
Ingvi Kafn er íæddui á Akureyri
og alinn upp þar og í Skógum á Þela-
mörk. Hann lauk prófi frá Iðnskóla
Akureyrar 1951, sveinsprófi í raf-
virkjun 1953 og fékk meistarabréf
1957. Árið 1954 hóf hann sjálfstæðan
atvinnurekstur með öðrum en síðan
1961 hefur hann rekið fyrirtækið
Raftækni einn. Ingvi Rafn var for-
maður í Rafvirkjafélagi Akureyrar
í nokkur ár, 1953-57, formaður í
Rafvirkjameistarafélagi Akureyrar
og síðar Félagi rafverktaka á Norð-
urlandi í 13 ár. Hann sat í stjórn LIR
í níu ár og hefur verið formaður í
Norðlenskum rafverktökum hf.
lengst af frá stofnun þess 1982. Ingvi
Rafn hefur starfað í söngkórum á
Akureyri óslitið frá árinu 1951, fyrst
í Kantötukór Akureyrar, síðan í
Karlakór Akureyrar í 17 ár, þar sem
hann var lengst af i stjórn og for-
maður í eitt ár. Síðan 1973 hefur
Ingvi starfað í Karlakórnum Geysi
og er núverandi formaður kórsins.
Með þessum kórum hefur hann oft
verið einsöngvari. Þá er ógetið
söngs með blönduðum kórum og
kirkjukórum á Akureyri og ná-
grenni, m.a. Passíukómum, Kirkju-
kór Akureyrar, Kirkjukór Lög-
mannshlíðaro.fl.
Ingvi Rafn kvæntist þann 19.8.
1952 Sólveigu Jónsdóttur húsmóður,
f. 18.8.1932. Hún er dóttir Jóns Sig-
fúsar Hermannssonar, b. í Sæbóli
og síöar á Læk í Aðalvík, og Elinóru
Guðbjartsdóttur húsmóður.
Börn Ingva og Sólveigar eru:
Þorbjörg, f. 18.1.1953, sjúkraliði,
búsett á Akureyri, gift Ólafi Tr.
Kjartanssyni og eiga þau þrjú böm.
Sólveig Sigurrós, f. 27.5.1954,
fóstra, búsett á Akureyri, ógift, á
eittbarn.
Svanfríður, f. 4.12.1955, danskenn-
ari, gift Steinari Þorsteinssyni, og
eigaþau eittbarn.
María Björk, f. 20.12.1959, félags-
ráðgjafi, búsett á Sauðárkróki, gift
Ómari Braga Stefánssyni og eiga
þau tvö börn.
Katrín Elfa, f. 5.2.1961, snyrtifræð-
ingur, búsett á Akureyri, ógift, á
eittbarn.
Eyrún Svava, f. 26.4.1964, tal-
meinafræöingur, gift Hólmari
Svanssyni, eru þau bamlaus.
Jóhann Ólafur, f. 18.12.1966, nemi
iHáskólaíslands.
Ingvi Rafn, f. 9.10.1970, nemi í
Menntaskólanum á Akureyri.
Foreldrar Ingva Rafns voru Jó-
hann Ólafur Haraldsson, f. 19.8.
1902, d. 7.2.1966, endurskoðandi og
tónskáld á Akureyri, og Þorbjörg
Stefánsdóttir, f. 11.7.1899, d. 11.12.
1931, húsmóðir.
Jóhann var sonur Haralds Páls-
sonar, b. og organista á Rauöalæk
efri á Þelamörk, síðar á Dagveröar-
eyri. Ingvi Rafn er sjötti liður frá
Árna biskupi Þórarinssyni.
Þorbjörg var dóttir Stefáns Hall-'''
dórs, b. á Refsstöðum í Laxárdal í
Húnavatnssýslu, Eiríkssonar, b. í
Ingvi Rafn Jóhannsson.
Blöndudalshólum, Halldórssonar,
stúdents og hreppstjóra á Úlfsstöð-
um, Sigurðssonar. Móðir Eiríks var
Hildur Eiríksdóttir.
Móðir Þorbjargar var Svanfríður
Bjarnadóttir, b. og hreppstjóra á
Vöglum, Arngrímssonar, prests að
Bægisá, Halldórssonar.
Móðir Bjama var Guðrún Magn-
úsdóttir. Móðir Svanfríðar var Sig-
urrós Þorláksdóttir, b. og hrepp-
stjóra á Vöglum, Þorlákssonar.
Hálíbróðir Svanfríðar var Frí-
mann B. Arngrímsson, fyrsti raf-
magnsverkfræðingur íslendinga, en
hann lærði í Ameríku.
Ingvi tekur á móti gestum í Lóni,
félagsheimili Geysis, á afmælisdag-
innmilli kl. 16ogl9.
Ólafur Magnússon
Ólafur Magnússon, fyrrv. um-
sjónarmaður Heilsuvemdarstöövar
Reykjavíkur, Austurbrún 6, Reykja-
vík, veröur áttatíu ára á nýársdag,
l.janúar.
Ólafur er fæddur á Mosfelli í Mos-
fellsdal og þar ólst hann upp. Hann
varð búfræðingur frá Hólum í
Hjaltadal 1927, starfaði við verslun-
arstörf 1936-53 og var umsj ónar-
maður Heilsuverndarstöðvar
Reykjavíkur 1955-80. Ólafur hefur
verið félagi í Karlakór Reykjavíkur
frá 1934 og var gerður heiðursfélagi
1960. Einnig er hann félagi Ein-
söngvarafélagsins og hefur komið
frcim sem söngvari við ýmis tæk-
ifæri. Þegar hann var 75 ára söng
hann inn á einsöngsplötuna, „Églít
íandaliðna tíð“.
Ólafur kvæntist þann 21.1.1944
Rósu Jakobsdóttur húsmóður, f.
22.10.1911 að Bessastööum á Álfta-
nesi. Foreldrar hennar voru Jakob
Sigbjömsson sjómaður og Ingibjörg
Einarsdóttir húsmóðir.
Börn Ólafs og Rósu eru:
Valgerður, f. 4.7.1944, kennari,
gift Gylfa Sigurjónssyni, f. 13.3.1936,
framkvæmdastjóra Bílvangs sf„ og
em þeirra böm: Sif, f. 13.3.1967,
nemi við Háskóla íslands, og Sigur-
jón, f. 1.1.1970, nemi í Menntaskól-
anumvið Sund.
Einar, f. 25.11.1945, rafeinda-
virkjameistari, kvæntur Emu F.
Oddsdóttur, f. 13.3.1947, reka Mið-
bæjarradíó, og em böm þeirra: Ól-
afur Magnús, f. 12.9.1967, verslunar-
stjóri hjá Þ. Þorgrímssyni; Kiistín
Ása, f. 18.9.1969, bakaranemi, og
RósaBjörk.f. 28.10.1979.
Magnús, f. 12.3.1950, viðskipta-
fræðingur, kvæntur Þórunni Sig-
uröardóttur, f. 18.8.1955, kennara,
reka verslunina Fífu, og eru böm
þeirra: Sigurður Jarl, f. 2.10.1982;
Lóa Bára, f. 19.9.1984, og Katrín
Þyrí, f. 12.7.1988.
Sonur Rósu frá fyrra hjónabandi:
Skúli Kjartansson, f. 3.10.1933,
fyrrv. stýrimaður, kvæntur Hrefnu
Hákonardóttur, og er sonur þeirra
ÁgústÞór.f. 13.9.1984.
Systkini Ólafs: Kristín, f. 5.6.1899;
Bergþór Njáll, f. 29.8.1900, b. í
Reykjavík; Þorsteinn, f. 31.10.1901,
starfsmaöur hjá Sláturfélagi Suður-
lands í Reykjavík; Matthildur, f.
19.8.1903; Ástríður Guðmunda, f.
18.9.1904; Margrét, f. 25.1.1906; Ámi,
f. 9.1.1912, verkstjóri í Reykjavík;
Guðrún, f. 6.4.1913, símstjóri á Brú-
arlandi.
Foreldrar Ólafs voru séra Magnús
Þorsteinsson, f. 3.1.1872, d. 4.7.1922,
prestur á Mosfelli, og Valgerður
Gísladóttir, f. 27.10.1873, d. 18.6.1940.
Magnús var sonur Þorsteins, hér-
aðslæknis í Vestmannaeyjum, Jóns-
sonar, b. á Miðkekki í Flóa, Þor-
steinssonar.
Móðir Þorsteins héraðslæknis var
Þórdís Þorsteinsdóttir, b. í Hærings-
staðahjáleigu, Runólfssonar. Móðir
Magnúsar var Matthildur Magnús-
dóttir, b. á Fjaröarhorni í Helgafells-
sveit, Þorkelssonar.
Valgerður, móðir Ólafs, var dóttir
Gísla Jónssonar, lausamanns í
Garði og á Miðnesi, og Kristínar
Gísladóttur ljósmóður.
Kristín var dóttir Gísla, b. að Býj-
Olafur Magnússon.
arskerjum í Miðdal, Jónssonar, b.
og hreppstjóra í Hlíð, Jónssonar.
Móðir Gísla var Ragnhildur Gísla-
dóttir ljósmóðir. Móðir Kristínar
var Þórunn Sigurðardóttir ljósmóð-
ir, dóttir Sigurðar, b. að Steig í
Mýrdal, Árnasonar og Þórunnar
Þorsteinsdóttur ljósmóður.