Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1990, Qupperneq 27
FÖSTUDAPUR 23. FEBRÚAR 1990.
35
Fólkífréttum
Sveinn Hjörtur Hjartarson
Sveinn Hjörtur Hjartarson, hag-
fræöingur LÍÚ, var í DV-fréttum á
miðvikudaginn vegna kostnaðar við
loðnukvóta.
Sveinn Hjörtur fæddist í Reykja-
vík 15.10.1952 en flutti á fyrsta árinu
með foreldrum sínum í Kópavoginn
þar sem hann ólst upp. Hann lauk
stúdentsprófi frá MR1975 og prófl í
rekstrar- og þjóðhagfræði frá Gauta-
borgarháskóla 1979.
Sveinn var hagfræðingur hjá fjár-
laga- og hagsýslustofnun fjármála-
ráðuneytisins 1979-82, rekstrarráð-
gjafi hjá Hagvangi hf. frá 1982-85 og
hefur verið hagfræðingur LÍÚ frá
1985.
Sveinn er stjómarformaður Sam-
ábyrgðar íslands á fiskiskipum, for-
maður Verðlagsráðs sjávarútvegs-
ins og formaður Sjálfstæðisfélags
Kópavogs. Þá er hann varamaður í
Verðjöfnunarsjóði fiskiðnaðarins.
Sveinn kvæntist 30.8.1975 Sigur-
veigu Huld Sigurðardóttur, yfirfé-
lagsráðgjafa við Öldrunarlækning-
ardeild Landspítalans, en hún er
fædd 1.9.1954, dóttir Sigurðarlng-
varssonar, framkvæmdastjóra í
Reykjavík, og Sigrúnar Valdimars-
dóttur, bankafulltrúa í Reykjavík.
Sigurður og Sigrún slitu samvistum.
Stjúpfaðir Sigurveigar er Björn
Dagbjartsson framkvæmdastjóri en
eiginkona Sigurðar er Vélaug
Steinsdóttir húsmóðir. Sveinn og
Sigurveig eiga þrjú börn. Þau era
Hjörtur Friðrik Hjartarson, f. 8.11.
1973, nemi við MR; Valdimar Gunn-
ar Hjartarson, f. 15.4.1982, og Sigrún
Huld Hjartardóttir, f. 26.7.1987.
Sveinn á þijú systkini. Þau eru
Stefanía, f. 21.10.1950, húsmóðir í
Hafnarfirði; Þórunn Ingibjörg, f.
17.4.1958, húsmóðir í Reykjavík, og
Axel Garðar, f. 11.8.1959, banka-
starfsmaður í Svíþjóð.
Foreldrar Sveins era Hjörtur
Hjartarson, fyrrv. aðalféhirðir
Ferðaskrifstofu ríkisins og er nú aö
ljúka guðfræðinámi við HI, f. 8.12.
1930, og kona hans, Unnur Axels-
dóttir, fulltrúi í félagsmálaráðu-
neytinu, f. 31.5.1931.
Föðursystkini Sveins: Hermann,
útgerðarmaður í Ólafsvík; Finn-
bjöm, prentari ogframkvæmda-
stjóri Hagprents; Kolbrún, kennari
í Hrísey; Matthías, búsettur í
Reykjavík; Sveingerður, húsmóðir í
Mosfellsbæ, og Elísabet, húsmóðir í
Danmörku.
Hjörtur er sonur Jóns Hjartar,
prentar á ísafirði og síðar í Reykja-
vík, bróður Árna, fyrrv. fram-
kvæmdastjóra Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna. Jón Hjörtur vár
sonur Finnbjarnar, verslunar-
manns á ísafirði, Hermannssonar,
b. á Læk í Aðaldal, Sigurðssonar, b.
í Kjós og á Læk, Sigurðssonar, b. í
Þverdal, Jónssonar.
Móðir Finnbjamar var Guörún
Finnbjörnsdóttir, b. í Sæbóli, Gests-
sonar. Móðir Jóns Hjartar var Elísa-
bet Guðný Jóelsdóttir, b. á Vals-
hamri í Borgarfirði, Jónssonar.
Móðir Elísabetar var Margrét
Snorradóttir, b. í Álftartungukoti á
Mýrum, Ámasonar.
Móðir Hjartar, föður Sveins, er
Jensína Sveinsdóttir, b. á Gillastöð-
um í Reykhólasveit, Sveinssonar frá
Brjánslæk, Ólafssonar. Móðir Jens-
ínu var Valgerður Bjamadóttir, af
Beruijarðarætt, systir Eyjólfs
„bóka“áísaflrði.
Móðursystkini Sveins: Gunnar,
píanóleikari, en hann er látinn; Ax-
el, skipstjóri í Hafnarfirði, og Ingi-
björg, gjaldkeri í Reykjavík.
Unnur er dóttir Axels, sjómanns
og síöar verkamanns í Reykjavík,
bróöur Þórunnar, ömmu Ingibjarg-
ar Guömundsdóttur, formaður
Landssambands íslenskra verslun-
armanna. Axel er sonur Gunnars í
Gunnarshúsi á Eyrarbakka, bróður
Gísla, b. á Högnastöðum, langafa
Sigurðar E. Guömundssonar, for-
stjóra Húsnæðisstofnunar. Gunnar
var sonur Jóns, b. í Efra-Langholti,
Magnússonar, b. þar, bróðúr Helga,
langafa Magnúsar Guðmundssonar
ráöherra, afa Magnúsar Thorodd-
sen. Helgi var einnig langafi Sigur-
bjargar, móður Björgvins, fram-
kvæmdastjóra VSÍ. Systir Magnús-
ar var Ingunn, ættmóðir Reykjaætt-
arinnar, langamma Sigríðar, móður
Ólafs Skúlasonar biskups. Ingunn
var einnig langamma Magnúsar,
prófasts og alþingismanns, fóður
Péturs ráðherra. Önnur systir
Magnúsar var Margrét, langamma
Stefáns í Núpskoti, afa Brynjólfs
Bjamasonar, heimspekings og ráð-
herra. Magnús var sonur Eiríks, b.
í Bolholti, ættfoður Bolholtsættar-
innar, Jónssonar. Móðir Gunnars
var Kristín Gísladóttir. Móðir Krist-
ínar var Ástríður, systir Einars,
langafa Önnu, móður Ingólfs Jóns-
sonar ráðherra. Ástríður var dóttir
Gunnars, hreppstjóra í Hvammi á
Landi, Einarssonar og Kristínar
Jónsdóttur yngra, b. að Vindási,
Bjarnasonar, hreppstjóra að Vík-
ingslæk, ættfóður Víkingslækjar-
ættarinnar, Halldórssonar.
Móðir Axels var Ingibjörg, systir
Margrétar, móður Ólafs Gíslasonar
stórkaupmanns, foður Gísla læknis.
Ingibjörg var dóttir Guðmundar á
Eyrarbakka, bróður Aldísar,
langömmu Manfreðs Vilhjálmsson-
ar arkitekts. Önnur systir Guð-
mundar var Ingigerður, langamma
Þorgerðar Ingólfsdóttur söngstjóra.
Guðmundur var sonur Þorsteins,
b. í Vorsabæ, Jörundssonar.
Móðir Unnar var Stefanía Stefáns-
dóttir, sjómanns í Reykjavík, bróður
Jóns Odds, afa Önnu Margrétar
Jónsdóttur fegurðardrottningar.
Stefán var sonur Jóns, b. og hrepp-
stjóra í Galtarholti í Borgarhreppi,
Jónssonar, bróður Jóns, pósts í
Sveinn Hjörtur Hjartarson.
Galtarholti, langafa Guðmundar
Sigþórssonar, skrifstofustjóra í
landbúnaðarráðuneytinu. Systir
Jóns í Galtarholti var Sesselja,
amma Kristófers Stefánssonar, b. í
Kalmanstungu. Móðir Jóns í Galtar-
holti var Þórunn Kristófersdóttir,
b. og bókbindara á Stóraijalli í Borg-
arhreppi, Finnbogasonar, bróður
Jakobs, prests í Steinnesi, langafa
Vigdísar forseta og Ásgeirs, bók-
bindara á Lambastöðum, langafa
Önnu, móður Matthíasar Johann-
essen skálds og ritstjóra. Móðir Þór-
unnar var Helga, systir Stefáns í
Hlöðutúni, langafa Jónasar Rafnar,
fv. bankastjóra. Þórunn var dóttir
Péturs, sýslumanns i Svignaskarði,
Ottesen, Oddssonar dómsmálarit-
ara Stefánssonar, hálfbróöur Ólafs
stiftamtmanns, forföður Stephen-
senættarinnar. Móðir Stefaníu var
Ingibjörg Jónsdóttir.
Indriði Kristjánsson
Indriði Kristjánsson, bóndi og
skólabílstjóri, Syðri-Brekkum,
Sauðaneshreppi í Norður-Þingeyj-
arsýslu, er fimmtugur í dag.
Indriði fæddist að Syðri-Brekkum
og hefur átt þar heimili alla tíð.
Hann var í skóla hjá séra Sigurði
Guömundssyni á Grenjaðarstað
1954-56. Indriði var sautján ára er
hann missti föður sinn og varð hann
þá að sjá um búið ásamt móður
sinni. Árið 1965 tók Indriði síðan
alfarið við búinu á Syðri-Brekkum
og hefur stundað það síðan.
Indriði var póstur á Langanesi og
í Þistilfirði 1965-82 og hefur verið
skólabí lstj óri fyrir sama svæði frá
1984.
Þess má geta að sama ættin hefur
búið á Syðri-Brekkum óshtið frá
1795 og er Indriði í fimmta ætthð frá
Halldóri Helgasyni sem þangað
flutti fyrir hundraö níutíu og fimm
árum.
Indriði kvæntist 6.12.1968, Sess-
ælju Þóroddsdóttur, húsfreyju á
Syðri-Brekkum, f. á Grímsstöðum í
Þistilfírði, 4.6.1949. Sesselja er dóttir
Þórodds Björgvinssonar og Sigríðar
Árnadóttur en þau bjuggu á Gríms-
stöðum, Hermundarfelli og víðar í
Þistilfirði.
Indriði og Sesselja eignuðust sex
börn en misstu einn son nýfæddan.
Börn þeirra: Kristjana, f. 25.4.1968,
búsett á Syöri-Brekkum; Sóley, f.
2.12.1969, búsett á Akureyri, en
sambýlismaður hennar er Rúnar
Óli Aðalsteinsson; Harpa, f. 12.11.
1970, búsett að Syðri-Brekkum, en
sambýhsmaður hennar er Þórarinn
Stefánsson; Dagur, f. 28.10.1976;
Brypjar Geir, f. 27.12.1985, d. 28.12.
1985, og Sólveig Brynja, f. 13.5.1988.
Systkini Indriða eru Dýrleif, f.
20.10.1941, búsett á Þórshöfn, gift
Óla Þorsteinssyni útgerðarmanni
og eiga þau fjögur börn; Kristín, f.
29.10.1943, búsett á Syðri-Brekku n,
gift Úlfari Þórðarsyni, bónda þar og
eiga þau þrjú börn, og Eymundur,
f. 12.10.1945, búsettur á Húsavík,
kvæntur Lilju Skarphéðinsdóttur
og eiga þau þijú börn.
Foreldar Indriða: Kristján Hall-
dórsson, f. 10.8.1884, d. 21.11.1957,
bóndi í Syðri-Brekkum, og kona
hans, Sólveig Indriðadóttir, f. 13.5.
1910, húsmóðir á Syðri-Brekkum.
Kristján var sonur Hahdórs, b. á
Syðri-Brekkum, Guðbrandssonar,
b. á Syðri-Brekkum, Halldórssonar,
sem hóf búskap í Syðri-Brekkum
1795, Helgasonar, b. á Smyrlafelh,
Halldórssonar, b. á Langanesi, HaU-
dórssonar, b. á Skálum, ættföður
Skálaættarinnar Jónssonar. Móðir
Guðbrands var Sigurborg Ey vinds-
dóttir, b. á Skálum, Ólafssonar.
Móðir Hahdórs var Margrét Jóns-
dóttir eldra, b. í Norðurskálanesi í
Vopnafirði, Kollgrímssonar. Móðir
Kristjáns var Dýrleif Kristjánsdótt-
ir, b. á Bægisstöðum í Þistilfirði,
Þorgrímssonar.
Bróðir Sólveigar er Indriöi
Indriöason, ættfræðingur og rithöf-
undur. Sólveig er dóttir Indriða Þór-
kelssonar, b., skálds, ættfræðings,
hreppstjóra og oddvita á Ytra-Fjalh
í Aðaldcd og konu hans, Kristínar
Indriði Kristjánsson.
Sigurlaugar Friðlaugsdóttur. Föð-
urbróðir Sólveigar var Jóhannes,
faðir Þorkels háskólarektors. Ind-
riði var sonur Þorkels, b. á Syðra-
Fialli, Guðmundssonar, b. á Sílalæk,
Stefánssonar, b. á Sílalæk, Indriða-
sonar, b. á Sílalæk, Ámasonar, ætt-
föður Sílalækjarættarinnar. Kristín
var dóttir Friðlaugs, b. á Hafralæk,
Jónssonar, af Hólmavaðsættinni,
bróður Friöjóns, föður skáldanna
Guðmundar á Sandi og Sigurjóns á
Litlu-Laugum.
Andlát
Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir
Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir, síð-
ast til heimihs að Kumbaravogi, lést
miðvikudaginn 14.2. sl. en hún verð-
ur jarðsunginn frá Fríkirkjunni í
Hafnarfirði í dag, föstudaginn 23.2.
klukkan 15.
Jónína fæddist á Neistastöðum í
Vilhngaholtshreppi 20.10.1899 en
ólst upp að Vælugeröi hjá fósturfor-
eldrum sínum, Guðmundi Guð-
mundssyni, bónda þar, og konu
hans, Sigríði Einarsdóttur. Meöal
uppeldissystkina Jónínu var Matt-
hías Guðmundsson, lögregluþjónn í
Reykjavík. Jónína stundaði öll al-
menn sveitastörf að Vælugerði og
fór snemma að fást við handavinnu,
en hún var alla tíð mikil hannyrða-
kona.
Jónína giftist Þorbergi Pétri Sig-
uijónssyni, bifvélavirkja í Keflavík
og síðar kaupmanni í Reykjavík, f.
11.10.1904, en foreldrar hans voru
Sigurjón Einarsson, b. í Litla-Hólmi
í Leiru við Keflavík, og Kristín
Brýnjólfsdóttir frá Akranesi. Jónína
og Þorbergur shtu samvistum.
Jónína og Þorbergur eignuðust
fimm syni en einn þeirra lést ung-
ur. Synir þeirra sem upp komust eru
Gunnar,-f. 6.10.1929, landmælinga-
stjóri hjá Orkustofnun; Freysteinn,
f. 12.5.1931, kennari, útgerðarmaðúh
og fyrrv. skákmeistari Norður-
landa, en hann er látinn, en kona
hans var Edda Þráinsdóttir hús-
móðir og eignuðust þau tvær dæfur;
Sigurjón, f. 17.1.1934, forstjóri Let-
urs hf. í Reykjavík, kvæntur Þór-
unni Gróu Gunnþórsdóttur hús-
móður og eiga þau tvo syni, og
Bragi, f. 7.7.1935, yfirkennari við
Þingholtsskóla í Kópavogi, kvæntur
Eddu Þráinsdóttur og eiga þau eina
dóttur.
Systkini Jónínu: Guðjón Gunnars-
son, fátækrafulltrúi og skósmiður í
Hafnarfirði, f. 1889; Guðbrandur
Gunnarsson, f. 1891, drakknaði í
Löngudæld á Stokkseyri; Frey-
steinn Gunnarsson, f. 1892, skóla-
stjóri og rithöfundur; Jón Gunnars-
són, f. 1893, b. í Villingaholtshreppi;
Guðbjörg, f. 1894, húsfreyja á Græn-
hóli í Ölfusi, og Guðrún, f. 1906,
húsmóðir í Hafnarfirði.
Foreldrar Jónínu voru Gunnar
Jónsson, b. á Neistavöllum, og Guð-
björg Guðbrandsdóttir.
Gunnar var sonur Jóns, b. á Arn-
arhóli í Flóa, Jónssonar, b. í Vælu-
gerði í Flóa, Magnússonar, í Önund-
arholti, Magnússonar, b. í Gröf,
Gissurarsonar.
Guðbjörg var dóttir Guðbrands,
b. í Kolsholti í Flóa, Brandssonár,
Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir.
b. í Holtsmúla, Jónssonar. Móðir
Guðbrands var Guðrún Erlends-
dóttir, b. í Holtsmúla á Landi, Ei-
ríkssonar, b. á Ægisíðu, Bjarnason-
ar, b. og hreppstjóra á Víkingslæk,
ættföður Víkingslækjarættarinnar,
Halldórssonar.
Afmæli
Til hamingju með daginn
95 ára
Árni J. Sigurðsson, Hringbraut 50, Reykjavík.
80 ára
Indlaug Bj ömsdóttir, Hraunbúðum, Vestmannaeyjum. Sigríður G. Petersen, Oddagötu 16, Reykjavík.
70 ára
Karl Jónsson, Leiratanga 4lÁ, Mosfellsbæ. Guðrún Eliasdóttir, Hábæ II, Djúpárhreppi. Svava Imsland Jóhannsdóttir, Skeljánesi 2, Reykjavík.
60 ára
Helga G. Guðmundsdóttir, Höskuldsstöðum, Vindhælis- hreppi. Þuríður Skeggjadóttir, Geitageröi, Fljótsdalshreppi.
50ára
Margrét Ólafsdóttir, Brekkugötu30, Akureyri. Ólafur Agnar Guðmundsson, Borgarsandi 7, Rangárvalla- hreppi. Kári Hartmannsson, Túngötu 11, Grindavík.
40 ára
Ágúst Ármann Þorláksson, Sæbakka 12, Neskaupstað. Helga Einarsdóttir, Skipasundi 10, Reykjavík. Ólafur Þór Þorgeirsson, Selsvöhum 7, Grindavík. Steinn ólafsson, Öldugerði 11, Hvolsvelh. Sverrir Guðmundsson, Hvammi, Norðurárdalshreppi. Lilja Benediktsdóttir, Tjamarstíg 13, Seltjarnarnesi. Halldóra Kristín Hjaltadóttir, Tunguvegi2, Selfossi.