Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1990, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1990, Blaðsíða 4
LAUGARDAGUR 17. MARS 1990. Fréttir Jarðgöngin 1 Ólafsfl arðarmúla: Þeir slösuðust illa en komu báðir aftur Félagarnir Birkir Fossdal og Steinar Odnes fögnuðu mjög er sprengivinnu i göngunum lauk og þeir gleyma senni- lega ekki þeim tíma sem við þau var unnið. DV-mynd gk Menntamálaráðherra kynnir nýtt frumvarp til útvarpslaga: Hætt við af notagjöld af íbúðum og að leggja niður útvarpsráð Menntamálaráðherra hefur lagt fram á Alþingi nýtt útvarpslaga- frumvarp. Frumvarpið byggist með- al annars á áliti nefndar undir for- ystu Ögmundar Jónassonar sem skilaði áliti síöastliðið vor. Greinilegt er að frumvarpinu hefur verið breytt verulega í þingflokkum stjórnar- flokkanna síðan nefndin skilaði af sér. Tvö athyglisverð ákvæði eru til dæmis horfin en annað þeirra gekk út á að tengja afnotagjöld við íbúðir landsmanna en frá því er horfið og verða þau greidd sem hingað til. Þá var lagt til aö útvarpsráð yrði lagt niður en einnig hefur verið horfið frá því. Mun það veröa kosið áfram af Alþingi sem hingað tiL Einnig hefur verið hætt við að setja á stofn fjöl- miðlasjóð en síðar er gert ráö fyrir að komi frumvarp um sérstakan menningar- og fjölmiðlasjóð. Nokkrar breytingar eru þó til stað- ar í frumvarpinu og má þar á meðal nefna að Útvarpsréttarnefnd verður lögð niður. Mun menntamálaráö- herra sjálfur veita leyfi til útvarps- rekstrar. Á svokölluð Útvarpsnefnd að vera ráðherra til ráðuneytis í því máli. Úr því að Menningarsjóður út- varpsstööva veröur lagður niöur verður um leið létt þeirri kvöð af Ríkisútvarpinu að það greiði hluta af rekstrarkostnaði Sinfóníuhljóm- sveitar Islands. Menntamálaráð- herra boðar nýtt frumvarp um Sin- fóníuna sém staðfestir þetta. Þá eru í frumvarpinu lagðar til breytingar á yfirstjórn Ríkisútvarps- ins þannig að útvarpsráð fái fyrst og fremst rekstrar- og fjármálalegt eftir- litshlutverk. Framkvæmdastjórn mun fá veigameiri hlut í stjórninni. Þá er lagt til að skipunartími yfir- manna stofnunarinnar verði fram- vegis fimm ár. Einnig má nefna ákvæði um ábyrgð á útvarpsefni en þar er gert ráð fyrir að skylt verði að láta þeim sem telja misgert viö sig í útsendingu í té afrit af upptöku þeirrar útsend- ingar. -SMJ Frávísunarkrafa Þýsk-íslenska: Hafnað í Hæstarétti - málið aftur í hendur Sakadóms Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Sakadóms Reykjavíkur í frávísun- arkröfumáli Þýsk-íslenska. Tveir menn, Ómar Kristjánsson, forstjóri fyrirtækisins, og Guðmundur Þórð- arson lögmaður eru ákærðir fyrir brot gegn lögum um tekjuskatt og eignaskatt. Lögmenn Ómars og Guömundar óskuðu þess að málinu yrði vísað frá, þar sem þeir telja að rannsókn málsins sé ábótavant. Frávísunar- kröfunni hefur verið hafnað og málið þar með komið til meðferðar hjá Sakadómi. Samkvæmt ákærunni er þeim gefiö að sök að hafa, í ársreikningi fyrir árið 1984, gefiö upp rangar tekjur fyrir árið, alls rétt tæpar 92 milljónir króna. Á árinu 1984 var óútskýrð eignaaukning fyrirtækisins 45,5 milljónir. í þeim lið ákærunnar sem snýr að skattabrotum eru talin upp íjölmörg atriði þar sem rakin eru brot á skattalögum. Ómar Kristjánsson og Guðmundur Þórðarson undirrituðu skattframtal fyrirtækisins fyrir árið 1984. í nóv- ember 1985 hóf rannsóknardeild rík- isskattstjóra rannsókn á skattskilum og bókhaldi félagsins. Rannsóknin leiddi í ljós stórfelldan undandrátt á tekjum og eignum. Ríkissaksóknari krefst þess að báð- ir ákærðu og Þýsk-íslenska verði dæmdir til að greiða sektir, allt aö tiu sinnum þá fjárhæð sem svikun- um nam. Þá er þess krafist að Ómar og Guðmundur verði dæmdir til refs- ingar og að Ómar og Þýsk-íslenska verði svipt verslunarleyfi. -sme Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii: Þegar síðasta sprengingin haföi kveðið við í Ólafsfjarðarmúla í fyrra- dag voru mikil fagnaðarlæti í her- búðum Kraftaksmanna sem hafa unniö verkið. Þeir skáluðu í koniaki, sungu og hlógu, enda mikilvægum áfanga náð. í þessum hópi voru tveir menn sem hafa lent í alvarlegum vinnuslysum á meðan á jarðgangageröinni stóð. Þetta eru þeir Birkir Fossdal og Norðmaðurinn Steinar Odnes, og var ekki annað að sjá en að þeir væru manna kátastir. „Ég lenti í því að það hrundi grjót úr göngunum á bakið á mér í byijun júní á síðasta ári og auk þess að meiðast á baki þá fótbrotnaði ég,“ sagði Birkir. En Birkir mætti strax aftur í slaginn þegar hann var búinn að ná sér að fullu. Birkir var siðan að vinna við hlið Steinar Odnes í byrjun nóvember þegar Norðmaðurinn varð undir stórum grjóthnullungum sem hrundu úr lofti ganganna. „Ég og annar maður vorum að vinna með honum þegar þetta gerðist og það var óhuggulegt að verða vitni að þessu. Við bundum um fótinn á lionum og tókst að stoppa blóðrennsli, en þetta var vægast sagt óskemmti- legt,“ sagði Birkir. Meiðsli Norðmannsins voru þess eðlis að hann missti fót neðan við ökkla. Þegar Steinar hafði jafnað sig fór hann heim til Noregs, en birtist svo skömmu síðar og vildi taka þátt í lokabaráttunni með félögum sínum. „Það var ekki hægt að vera lengur heima," sagði sá norski þegar hann birtist í Ólafsfirðinum á gervifæti sínum, klár í slaginn að nýju. Og þegar fagnaðarlæti starfs- manna Krafttaks stóðu sem hæst á fimmtudaginn var það enginn annar en Steinar Odnes sem var hrókur alls fagnaðar og virtist skemmta sér manna best og hló svo undir tók í göngunum. Vestlendingar vilja álver við Hvalijörðinn: Ætlum að snúa okkur beint til forstjóranna - segir Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akranesi „Við ætlum að snúa okkur beint til álfyrirtækjanna til að koma skoðunum okkar á framfæri. Við ætlum ekki að bíða eftir því að iðn- . aðarráðuneytið geri eitthvað í mál- inu,“ sagði Gísli Gíslason, bæjar- stjóri á Akranesi, en að sögn hans eru Akurnesingar og aðrir Vest- lendingar óhressir með að Hval- fjöröurinn skuli ekki fá möguleika þegar rætt er um staðsetningu nýs álvers. Gísli sagði að það væri engu lík- ara en menn í ráðuneytinu væru búnir að afskrifa þennan stað þannig að eina leiðin væri að fara fram hjá ráðuneytinu og snúa sér beint til álforstjóranna. Sagði Gísli að þeim yrðu sendir kynning- arbæklingar um aðstöðuna í Hval- firði. - En af hverju teljið þið að Hval- íjöröurinn sé besti staðurinn? „Við teljum nú aö bestu meðmæl- in séu Grundartangaverksmiðjan. ■Þessi staður er feikilega vel í sveit settur. Þarna er nóg landrými og afbragðshöfn. Þá er nóg af vinnu- afli í nágrenninu. Við erum mjög óhressir með það hvemig þessi staður hefur verið sniðgenginn en hann fékk til dæmis mikil með- mæh í skýrslu staðarvalsnefndar frá 1984. Þeirri skýrslu virðist hafa verið stungið undir stól,“ sagði Gísli. Hann sagði að þaö þyrfti óveru- legar framkvæmdir til að höfnin við Grundartanga gæti einnigþjón- að nýju álveri. Þarna væri dýpið einstakt og því aðstaða til hafnar- gerðar óvíða betri. Sagði Gísli að Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi ættu höfnina og sjálfsagt myndu þau bæta hana eins og þyrfti fyrir álverið. Sagði hann að kostnaður við það yrði óverulegur miðað við þær 500 milljónir sem kostar að gera höfn í Eyjafirði. \3MJ Höfn: Svört kómedía í Mánagarði - frumsýmng 1 kvöld Júlía Imsland, DV, Höfn: Leikfélag Hornaíjarðar hefur undan- farnar vikur æft leikritiö Svarta kómedíu eftir Peter Shaffer í þýðingu frú Vigdísar Finnbogadóttur og verð- ur frumsýningin i dag, laugardag, i Mánagarði. Leikarar eru átta og leikstjóri Kristín Gestsdóttir. Þetta er fyrsta leikritið sem Kristín leikstýrir og flestir leikararnir eru þama í sínum fyrstu hlutverkum. Meðal boðsgesta leikfélagsins á frumsýningu verða allir skólastjórar í Áustur-Skafta- fellssýslu og bæjarstjórnin á Höfn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.