Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1990, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1990, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 17. MARS 1990. Skák Sveit Norðurlanda varð að sætta sig við neðsta sætiö í stórvelda- slagnum í Faxafeni en lauk keppn- inni þó með sæmd. Stórt tap í fyrri umferðinni gegn Bandaríkjamönn- um réð mestu um lokaniðurstöð- una. í síðustu umferðunum sótti norræna sveitin mjög í sig veðrið - sigraði bandarísku sveitina í seinni umferð með 6-4 og jafnt varð gegn Englendingum í lokaumferð- inni, 5-5. Þaö kostaði Englendinga sigurinn. Sovéska sveitin fékk 31,5 v., Englendingar 31 v., Bandaríkja- menn 30 v. og sveit Norðurlanda 27,5 v. Á þriðja borði tefldi Margeir góða skák við enska stærðfræðidoktor- inn John Nunn. Skákáhugamenn minnast eflaust yiðureignar þqirra á heimsbikarmóti Stöðvar tvö, haustið 1988. Nunn var taplaus á mótinu, allt fram í 14. umferð, en þá mætti hann Margeiri, sem gerði sér lítið fyrir og vann sannfærandi sigur. Sagan endurtók sig í Faxafeni á fimmtudag. Margeir var aftur með hvítt gegn eftirlætisbyrjun Nunns, kóngsindverskri vörn. Aftur beitti Margeir afbrigði Averbakhs en nú valdi Nunn aðra varnaraðferð. Margeir var þó við öllu búinn. Nýr leikur hans sló Nunn út af laginu, sem fór á flan með drottningu sína. Það kostaði hann mann og Mar- geiri varð ekki skotaskuld úr því að innbyrða vinninginn. Hvítt: Margeir Pétursson (Norður- lönd) Svart: John Nunn (England) Kóngsindversk vörn. 1. d4 RfG 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4 d6 5. Be2 04) 6. Bg5 Margeir hafði góða reynslu af þessu afbrigði, sem kennt er við sovéska stórmeistarann Júrí Aver- Margeir Pétursson: „Hefur hann eitthvert tak á Nunn?“ Stórveldaslagur VISA og IBM: Margeir vann Nunn aftur - og Englendingar misstu af efsta sætinu bakh, síðast er þeir Nunn tefldu. Því ekki að reyna aftur? 6. - Ra6 En Nunn er fljótur að breyta út af. í skák þeirra á heimsbikarmót- inu lék hann 6. - h6 7. Be3 c5!? og eftir 8. e5! dxe5 9. dxe5 Dxdl + 10. Hxdl Rg4 11. Bxc5 Rxe5 12. Rd5 Ra6 13. Bxe7 He8 var staðan u.þ.b. í jafnvægi. Margeiri tókst hins vegar að knýja fram sigur í endatafli, eft- ir ónákvæmni stærðfræðidoktors- ins. 7. I)d2 e5 8. d5 c6 9. Bd3!? Líklega ný tilraun í stöðunni. Svartur hyggst þrýsta aö e-peði hvíts með riddurum sínum og Mar- geir treystir það í sessi, þótt það kosti hann leik. . 9. - Rc5 10. Bc2 Db6 11. Hbl Db4? Vafalaust hefur Nunn talið sig hafa ráð á þessu drottningar- flandri, þar eð hvítur sólundaöi tíma með biskupnum í 9. leik. En áætlunin stenst ekki. Aö skákinni lokinni veltu þeir fyrir sér mögu- leikunum eftir 11. - cxd5 12. cxd5 Bd7, sem er betra en hvítur virðist þó hafa komið ár sinni vel fyrir borð. 12. Rge2! a5 13. a3 Dxc4 Svartur á afar slæma stöðu ef hann hörfar meö drottinguna. Þetta peðsrán kostar mann en Nunn kýs að freista gæfunnar. 14. Bxfl6 Bxfl6 15. b4 axb4 16. axb4 cxd5 Ef riddarinn hörfar, kemur 17. Bd3 og við sjáum að svarta skessan verður að steini. 17. bxc5 d4 18. Rd5 Bd8 19. Bb3 Da6 20. 04) dxc5 Nunn hefur fengiö þrjú peð fyrir manninn en hann kemur peðunum ekki á skrið. Óhætt er að segja að staða hans sé þegar töpuð. Hins vegar verður Margeir vitaskuld að tefla gætilega. 21. Hfcl Dd6 22. Bc4 Kg7 23. f4! exf4 24. Rexf4 He8 25. Dc2 Ha5 26. Hfl Dc6 27. Rd3 06 28. R5f4 b6 29. Hbel Dd6 30. Df2 Ha7 31. e5! fxe5 32. Rxe5 Hae7 33. Rf7! Hvítur átti ýmsa freistandi mögu- leika en þetta er snyrtilegasta leið- in. Stærfræðigáfur Nunns nægja ekki til aö leysa þessi vandamál! Eftir 33. - Db8 er 34. Rh5 + ! bráð- drepandi. Svartur er glataður. 33. - Hxfl 34. Hxe8 Og Nunn gafst upp. Karpov með vinningsforskot Anatoly Karpov vann fyrstu ein- vigisskákina við Jan Timman í Kuala Lumpur í Malasíu og nú, er þeir hafa teflt fimm skákir, hefur hann enn vinningsforskot. Fjórðu skákinni var reyndar enn ekki lok- Skák Jón L. Árnason ið er þetta er sett á blað, en hún fór í bið í tvísýnni stöðu í endatafli, sem flestir spáðu þó að myndi lykta með jafntefli. Karpov beitti spænska leiknum í fyrstu skákinni, sama afbrigði og reyndist honum svo vel gegn Jó- hanni í Seattle í fyrra. Timman, sem hefur sænska stórmeistarann Ulf Andersson sér til aðstoöar, mátti búast viö þessu af Karpovs hálfu, en í ljós kom aö hann haföi ekki unnið heimavinnuna nægi- lega vel. Karpov fór létt með aö hrekja nýjan leik Timmans í 18. leik, vann peð og eftir slaka tafl- mennsku hollenska stórmeistar- ans, vann Karpov skákina auðveld- lega. í fimmtu skákinni fannst Timm- an tími til kominn að reyna af- brigðið aftur. Nú breytti hann út af í 18. leik og virtist ná ákjósanleg- um sóknarfærum. En Karpov gaf ekki höggstað á sér. Með snjallri taflmennsku sneri hann vörn í sókn og Timman varö að gefa tvö peð til aö verjast hótunum. í lok setunnar var hins vegar komið aö Karpov aö skila ávinningnum til baka. Honum yfirsást lagleg flétta, sem hefði gefið honum vinnings- stöðu í endatafli. Þess í stað gaf hann Timman færi á að þráskáka með drottningu sinni og úrslitin voru jafntefli, eftir spennandi skák. Hvítt: Jan Timman Svart: Anatoly Karpov Spænskur leikur. 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. 0-0 Be7 6. Hel b5 7. Bb3 d6 8. c3 04) 9. h3 Bb7 10. d4 He8 Þetta er Zaitsév-afbrigðiö, nefnt eftir Igor, helsta aðstoðarmanni Karpovs. 11. Rbd2 Bf8 12. a4 h6 13. Bc2 exd4 14. cxd4 Rb4 15. Bbl bxa4 Karpov heldur tryggö við þessa leikaðferð en 15. - c5 16. d5 Rd7 „ræddu“ þeir félagar Kasparov og Karpov í tvígang í einvíginu í Lon- don og Leningrad 1986. 16. Hxa4 a5 17. Ha3 Ha6 Þessi staða var á borðinu í fyrstu skákinni og einnig í fimmtu skák Karpovs við Jóhann í Seattle. Jó- hann lék 18. Rh2 g6 19. Rg4 Rxg4 20. Dxg4 c5 21. dxc5 dxc5 22. e5 en eftir 22. - Dd4! náði Karpov gagn- færum og skákinni lauk með jafn- tefli. Timman reyndi að endurbæta þetta í fyrstu skákinni og lék 18. Rh4? sem er ekki til eftirbreytni. Skákin tefldist 18. - Rxe4! 19. Rxe4 Bxe4 20. Bxe4 d5! 21. Hae3 Hae6 22. Bg6? Dxh4 23. Hxe6 Hxe6 24. Hxe6 fxe6 og Karpov hafði unnið peð og í 36. leik gafst Timman upp. 18. Hae3!? Rökréttur leikur. Hvítur kemur hróknum í leikinn og undirbýr jafnframt b2-b3 og setja biskupinn á hornalínuna. Karpov hindrar þetta meö næsta leik. 18. - a4 19. Rh4 c5 20. dxc5! dxc5 Karpov hugsaði sig lengi um í þessari stöðu. 21. Rf5 Bc8 22. e5 Rfd5 23. Hg3 Rf4 24. Df3 Er hér var komið sögu leyst áhorfendum vel á stöðu Timmans en Karpov sýnir í næstu leikjum að málin eru ekki einföld. 24. - Bxf5! 25. Bxf5 Re6 26. Bbl Rd4 27. Dg4 Rbc2! 28. De4 f5! 29. Dd3 Rxel 30. Dxa6 Hxe5 Nú er ljóst að Karpov hefur gert meira en að bægja hættunni frá. Hann á nú mun betra tafl og Timm- an má hafa sig allan við. 31. He3 Dg5 32. Kfl Hxe3 33. fxe3 Dxe3 34. Dc4+ Kh7 35. Ba2 35. Rd3?? En nú leikur Karpov taflinu nið- ur í jafntefli. Hann átti völ á miklu sterkari leið, 35. - Dd3 +! og þvinga fram drottningakaup. Honum virð- ist hafa sést yfir að hvítur má alls ekki taka riddarann. Eftir 36. Kxel Rc2+ 37. Kf2 (37. Kdl Re3+ og vinnur drottninguna) kemur ein- faldlega De3+ 38. Kfl Del mát! 36. Dg8 + Kfl 37. Df7 + Kh7 38. Dg8+ Og kapparnir sættust á jafntefli. Þarna slapp Timman fyrir horn en afbrigði Karpovs stendur enn traustum fótum. -JLÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.