Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1990, Qupperneq 48

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1990, Qupperneq 48
Fo cr im EZ l< O Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Simi 27022 LAUGARDAGUR 17. MARS 1990. Ferjuflugmaðurinn kominn að Borg- arspítalanum í þyrlunni stuttu eftir að honum var bjargað úr sjónum á Faxaflóa. DV-mynd S Nauðlenti á Faxaflóa Erlendum flugmanni var bjargaö úr tveggja hreyfla ferjuflugvél sem nauðlenti eldsneytislaus á Faxaflóa á áttunda tímanum í gærkvöldi. Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, bjargaöi manninum. Flugvélin missti afl á öðrum hreyfl- inum vestur af landinu - flugmaður- inn hafði einnig villst af leið. Var þá óskað eftir hjálp og fóru flugvél Flug- málastjórnar og þyrlan af stað til að leita að vélinni. Flugmenn á vél Flug- málastjórnar leiðbeindu síðan ferju- flugmanninum vegna bilunar í sigl- ingatækjum. Fyrst var ætlunin að fljúga til Rifs en frá því var horfiö og ákveðið að fara til Reykjavíkur. Þegar vélin átti aðeins eftir um tíu mínútna flug til Reykjavíkur varö hún eldsneytislaus og þurfti flug- maöurinn því að nauðlenda á sjón- um. TF-SIF, sem flaug á eftir, náði að bjarga manninum úr sjóiium. Flugmaðurinn var að ferja vélina, sem er af gerðinni Cessna, frá Banda- ríkjunum. Hann lagði af stað frá Grænlandi síðdegis í gær. Þetta er annar dagurinn í röð sem ferjuflug- maður lendir i hrakningum við landið. -ÓTT NÝJA SENDIBÍLASTÖÐIN 68-5000 Úti að aka í 40 ár' BÍLALEIGA v/FlugvaIIarveg - 91-61-44-00 LOKI „Hóflega drukkiö vín gleöur mannsins hjarta." Þrotabú Hermanns Björgvinssonar: 700 milljóna króna avisun einskis vrði - Sigurður Kárason laus allra mála sonar verður stórt. Kröfum, sam- veriö hægt að sannreyna hvemig tals að upphæð 309 milljónir króna, ávisunin er til komin. Bæjarþing var lýst í búið en samþykktar kröf- Reykjavikur hefur komist að þeirri ur eru tæpar 130 milljónir króna. niðurstöðu að Sigurður skuli sýkn- Engar eignir koma á móti þessum aður af kröfum þrotabúsins og þar kröfum. Því virðast þær vera tap- með leystur frá kröfunni um aðar. greiðslu á ávísuninni. Mál ákæruvaldsins gegn Her- Sigurður Kárason var nokkuð manniernúhjáHæstaréttiíslands. áberandi í fjármálalifinu á þeim Ávísunin, sem tekist var á um í tíma sem Hermann var handtek- bæjarþingi Reykjavíkur, vakti inn. Hann keypti við annan mann mikla athygli á sínum tima. Sigurð- Hótel Borg og setti á laggirnar tí- ur Kárason og Hermann hafa ekki volí, fyrst í Reykjavík og síöar í verið á eitt sáttir hvort hún haii Hveragerði. Sígurður er ekki eig- verið tilkomin vegna skulda Sig- andi þeirra fyrirtækja í dag. urðar við Hermann. Ekki hefur -sme Ðómur er fallinn í bæjarþings- máli þrotabús Hermanns Björg- vinssonar gegn Sigurði Kárasyni. Málið var höfðaö vegna ávísunar sem fannst í fórum Hermanns eftir að hann var úrskurðaður í gæslu- varðhald vegna meintrar okur- lánastarfsemi. Ávísunin var gefm út af Sigurði Kárasyni. Útgáfudagur var 27. nóv- ember 1985 og upphæöin, sem skrifuð var á ávisunina, var 182.950.000 krónur. Framreiknuð til dagsins í dag er ávísunin um 700 milljónir króna. Gjaldþrot Hermanns Björgvins- Nýtt hverfi sjávarréttaveitingahúsa, Marina South, er að rísa i Singapore. Þar stjórnar íslenski skipasmiðurinn Lárus Ingi Lárusson smíði heljarstórs víkingaskips sem verða mun inni á norrænum sjávarréttaveitingastað sem nefnist Viking Restaurant. Lárus Ingi sést þarna við smiðarnar en siðan verður byggt yfir skipið. Smiðunum mun Ijúka um mánaðamótin. Símamynd-TheNewPaper Fjölbraut í Breiöholti: Tólf nemendur sendir heim vegna drykkju Nú í vikunm var tólf nemendum við Fjölbrautaskólann í Breiðholti vikið úr skólanum í þrjá daga vegna drykkjuskapar þar eftir frumsýn- ingu á leikriti hjá leikfélagi skólans. „Það er rétt að þama kom .upp vandamál vegna drykkju. Áfengis- neysla er bönnuð í skólanum og ef nemendur verða uppvísir að því að neyta áfengis innan veggja hans þá varðar þaö brottrekstri. Hve lengi brottreksturinn gildir ræðst síðan af því hve alvarlegt brotið er,“ sagði Kristín Amalds, skólameistari Fjöl- brautaskólans. Skólameistari hefur áður orðið að víkja nemendum um lengri eða skemmri tíma úr skóla á skólaárinu vegna drykkju en þó aldrei eins mörgum í einu og nú. -GK Fjölmiðlaþróun drepur litlu blöðin - segir Þorbjöm Broddason „Hið eina byltingarkennda við þró- unina í fjölmiðlaheiminum verður mögulega að þrjú minnstu dagblöðin deyja,“ segir Þorbjörn Broddason lektor í samtali við fréttaritara Reut- ers sem DV hefur borist. í frétt Reuters kemur fram að heimih sem sjá bæði ríkissjónvarpið og Stöð 2 og kaupa auk þess tvö dag- blöð í áskrift greiða samkvæmt Þor- birni tæpar 68 þúsund krónur í áskriftargjöld á ári. í mörgum tilfell- um jafngildir þessi upphæð mánað- arlaunum einstaklings. Er haft eftir heimildum í íslenska fjölmiðlaheiminum að ekki sé pláss fyrir þrjár sjónvarpsstöðvar. Með til- komu Sýnar sé því lagður grunnur- inn að mjög harðri samkeppni einka- stöðvanna. „Sú stöð sem hefur bestú dag- skrána mun Ufa af, svo einfalt er það,“ segir Goði Sveinsson, sjón- varpsstjóri Sýnar, við Reuter. Þorbjörn Broddason heldur því fram að aukning á sjónvarpsefni geti haft alvarlegar afleiðingar fyrir minnstu dagblöðin. Þannig geti hugsast að margir segi upp einu blaði til að ná sendingum Sýnar. Þar að auki muni auglýsingafé fyrirtækja dreifast á enn fleiri fjölmiöla. -hlh Veörið á sunnudag ög mánudag: Norðanátt og kólnandi Framan af sunnudeginum verður fremur hæg suðlæg átt með élj um sunnanlands og vestan. Þurrt verður noröaustantil og hiti nálægt frostmarki. Síöan snýst vindur til norðaustanáttar með snjókomu norðvestanlands og kólnandi veðri. Á mánudag verður norðanátt og frost um allt land. É1 verða um norðanvert landið en bjart verður syðra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.