Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1990, Blaðsíða 18
18
Veiðivon
Skelfirinn
fékkverðlaun
Árshátíð 'Stangaveiðifélags
Rangæinga var haldin fyrir fáum
dögum ög var feikilega vel heppn-
uð. Veitt voru verðlaun fyrir
stærstu flskana og fékk Skel-
firinn, Jón R. Ársælsson, tvenn
verölaun á samkomunni, meðal
annarra, fyrir stærstu bleikjuna
og stærsta laxinn á flugu. Það
hefði kannski enginn trúað þessu
fyrir fáum árum er Jón notaði
eingöngu maðk og spón. En svona
geta menn breyst á stuttum tíma.
Ósmeð
Hítárá efri
Nýjasta veiðifélagið, Ós, sem
hefur Blöndu á leigu, hefur ný-
lega bætt viö sig veiðisvæði efst
í Hítárá. Þeir í Os virðast frekar
bæta við sig en hitt, viö höfum
frétt að næstu daga bæti þeir við
sig nýrri veiðiá. Það voru Ár-
menn sem voru með þetta svæði
í Hítárá sem Ós er með núna.
Þetta er nokkuð gott bleikjuveiöi-
svæði og einn og einn lax í bónus.
Dorgveiði-
keppn-
in á Geitabergs-
vatni í dag
„Við eigum von á miklu flöl-
menni upp að Geitabergsvatni á
laugardaginn en veðurfarið mun
spila mikiö inn í þetta, við vonum
að veðrið verði gott,“ sagði Jón
G. Baldvinsson, formaður
Stangaveiðifélags Reykjavíkur, í
vikunni, en í dag verður haldin
fyrsta dorgveiðikeppnin á vatn-
inu.
Fjölskyldur geta mætt og allir
geta dorgað, veiðileyfið kostar
ekkert. Góð verðlaun verða veitt
og veiðihúsið við vatnið verður
afdrep.
Hverjir ætla ekki að mæta, það
veit ég ekki. Vonandi sem fæstir
-G.Bender
Valgeir Guðjónsson bítur veiðiuggann af maríulaxi sínum við Laxá í Kjós. DV-mynd Ásgeir Heiðar
Hve margir fá
maríulax í sumar?
Draumur margra veiöimanna er
að fá maríulaxinn næsta sumar,
fyrsta laxinn á ferlinum. Það er eld-
skírn veiðmannsins að fá þennan
lax, hvort sem fiskurinn tekur maök
eða flugu. Síðasta sumar fengu marg-
ir veiðimenn sinn fyrsta lax og þeim
flölgar örugglega í sumar. Valgeir
Guðjónsson var einn af mörgum sem
veiddi fyrsta laxinn sinn í Laxá í
Kjós og beit af honum veiðiuggann.
Það verður að gera við maríulaxinn.
En hvað skyldu margir fá maríulax-
inn í sumar?
-G.Bender
Grettir Gunnlaugsson, formaður LS:
Helsta málið er laxakvótakaupin
Grettir Gunnlaugsson, formaður
Landssambands stangaveiðiféíaga.
DV-mynd G.Bender
„Við höfum fylgst vel með Orra
Vigfússyni og mikið af okkar orku
hefur farið í laxakvótamálið", sagði
Grettir Gunnlaugsson, formaður
Landssambands stangaveiðifélaga, í
viötali við DV í vikunni. „Það er
ýmislegt á döfinni hjá okkur í LS,
eins og formannafundurinn sem
haldinn verður í Gerðubergi núna í
lok mars. Þar verða umhverfis- og
útivistarmál rædd og Orri mun ræða
um laxakvótamálið. NSU fundur
verður hér um miðjan júní og munu
erlendu fundarmennirnir renna fyr-
ir lax í Norðurá einn dag. Þetta er
um 20-25 manna fundur og eflaust
verður margt rætt þar, eins og laxa-
kvótamálið. Veiðidagur flölskyld-
unnar verður svo haldinn eins og
venjulega. Ég vona að laxveiðin verði
góð í sumar og margir laxar veiðist
í ánum okkar,“ sagði Grettir í lokin.
-G.Bender
LAUGARDAGUR 17. M^RS 1990..
Þjóðar-
spaug DV
Ertu nýr?
Fyrir borgarstjórnarkosning-
arnar i Reykjavík 1982 lagði einn
af frambjóðendum leið sína á
Klepp, svona til að kynnast að-
búnaði vistmanna þar, svo og að
reyna að næla í atkvæði starfs-
fólks. Er liann hafði gengið um
húsakynnin dágóða stund þurfti
hann að bregða sér á klósettið.
Vatt hann sér því að eínum
starfsmanninum og spurði hvar
snyrtingin væri. Starfsmaðurinn
virti hann fyrir sér um stund en
spuröi svo:
„Ert þú nýr hérna?“
Syndin
Gömul kona, sem var vön aö
fara alltaf til kirkju á sunnudög-
um, komst þangað ekki einn
sunnudaginn sökum veikinda.
Bað hún því mann sinn, sem ekki
var mjög kirkjurækinn, að fara í
sinn staö, sem hann og gerði.
Er karlinn kom til baka úr
messunni spuröi konan um hvað
presturinn hefði nú talað.
„Hann talaði um syndina,“
svaraði karlinn.
„Og hvað sagði hann nú um
syndina, blessaður?" spurði kon-
an þá,
„Hann var á móti henni,“ ans-
aði karlinn hróöugur.
100 krónur,
takk
Jóhannes Kjarval hitti eitt sinn
auðugan mann á götu og spurði:
„Ekki vænti ég þess að þú sért
með 100 króna seðil á þér sem þú
ert hættur að nota.“
Alltaf slöpp
Maður einn var eitt sinn spurð-
ur aö því hvernig konan hans
hefði það.
Hann svaraöi:
„Æ, hún er búin að vera slöpp
lengi. Hún er annaðhvort með
hettusótt eöa ólétt.“
Finnur þú flmm breytingai? 46
Nafn:........
Heimilisfang:
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í ljós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á hægri myndinni og
senda okkur hana ásamt nafni
þínu og heimilisfangi. Að
tveimur vikum liðnum birtum
við nöfn sigurvegara.
1) Hitateppi fyrir bak og
hnakka, kr. 3.900,-
2) Svissneska heilsupannan,
kr. 2.990,-
Vinningarnir koma frá Póst-
versluninni Príma, Hafnar-
firði.
Merkið umslagið með
lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 46
c/o DV, pósthólf 5380,
125 Reykjavík
Sigurvegarar fyrir fertu-
gustu og íjórðu getraun
reyndust vera:
1. Birna Sveinbjörnsdóttir,
Karlsbraut 2, Dalvík.
2. Sesselja Þórðardóttir,
Faxabraut 36b, 230 Keflavík.
Vinningarnir verða
sendir heim.