Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1990, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1990, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 17. MARS 1990. 13 Ofát og aukakíló Takk fyrir síðast. Við gerum ráð fyrir því að flestir hafi komist klakklaust fram hjá bolludegi og lifað af sprengidag. Enda veitir nú ekki af öllum vopnfærum mönnum til að takast á við fermingarveisl- urnar áður en sjálf páskahelgin gengur í garð með sinni dymbil- viku. Við ætlum ekki að einangra okkur frá samkvæmislífmu þó við höfum breytt um mataræði. Fermingarveislur Fólk er nú víða að búa sig undir fermingarnar og við gerum ráð fyr- ir einni eða tveimur veislum á okk- ar leið. Ef við sitjum veislu í heima- húsi með hefðbundnu borðhaldi þá setjum við gestgjafann inn í vanda okkar. Hann mun glaður hafa þann viðbúnað sem ofætan þarf umfram aðra gesti. Enginn má vera feiminn við að ræða opinskátt um vanda sinn og mataræði við vini og fé- laga. Öðruvísi gengur dæmið ekki upp. Gestgjafmn skilur okkur mætavel og setur metnað sinn í að við njótum veislunnar eins og aðr- ir. Það fylgir því lítil fyrirhöfn. Kalt borð Ef þaö er hins vegar boðið upp á kalt borö þá tökum viö sjálf til óspilltra málanna. Við veljum úr þann mat sem hentar okkur best. Til dæmis laxinn og sleppum öllu majonesi. Tökum í staðinn eggjabát og agúrkur og tómata ef gúrkurnar eru ferskar en ekki sýrðar. Tökum rækjurnar úr hlaupinu en skiijum hlaupið eftir á disknum okkar. Sleppum öllum þykkum sósum og frönskum kartöflum úr dós. Líka grænmetissalati og ávaxtasalati í majones. Að skylmast við þungbúin veislu- borð Loðvíks 14. - hvemig ofætan býr sig undir fermingarveisluna Af kjötmeti sleppum við helst hangikjöti og skinku. Allt í lagi að borða bæði lambasteik og róstbíf og nautatungu en skera fituna af lambinu. Þá borðum við kjúklinga en skerum í burtu húðina og alla fitu. Kemur varla að sök þó við tökum með hálfa rúgbrauðssneið svona upp á grín. Nörtum létt í ostabakkann en leggjum áherslu á ávaxtakörfuna. Borðum annað meðlæti svona eftir eyranu og af flngrum fram. Ef boðið er upp á kökur og tertur þá vandast málið. Þær eru jafnan löðrandi í sykri og hveiti og rjóma. Við tökum því stóran sveig fram hjá öllu bakkelsinu. En ef rætt er um ís í eftirrétt þá er okkur óhætt að sperra eyrun í tilefni dagsins. Við verðum stundum að leyfa okk- ur svolítinn munað því lífið er jú munaður. Mjólkurís er betri en rjómaís fyrir okkur og bestur er jógúrtís. Engar þykkar súkkulaðis- ósur eða ávextir úr sírópslegi í dós. Aðeins ferskir ávextir. Þá erum við á grænni grein. Létta þarf til Eftir að hafa þurft að skylmast viö margréttuð svona veisluborð og haldið samt lífi og limum ásamt hæfilegri líkamsþyngd að mestu þá vaknar oft sú spurning; Af hverju þarf veislumatur alltaf aö vera svona djöfull þungur? Það er nú það! Veislumatur þarf alls ekki að vera svona þungur. Umsjón: Ásgeir Hannes Eiríksson Alls ekki. Þessi þungbúni veislu-, matur er sjálfsagt arfur frá tímum Loðvíks íjórtánda eða gömlu Róm- verjanna og því lifir áfram hjá okk- ur draumurinn um konunglegar móttökur. En í dag eru þessir gömlu nautnaseggir komnir undir græna torfu þó matseðill þeirra lifi því miður áfram. Einkum eru leifar Loðvíks Qórtánda lífseigar á borð- um hjá opinberum gestgjöfum sem skrifa veislur sínar hjá ríkissjóöi. Þessi opinberi flottræfilsháttur er ekki til fyrirmyndar. Það er skelfileg reynsla að breyta nauð- synlegri máltíð fyrir líkamann í sex stunda þrekraun fyrir meltingar- veginn. Eða rétti þeir upp hönd sem líður vel og skemmta sér í svona margrétta átveislum? Þetta er upp- skrift að ofáti en hvorki skemmtun né vellíðan. Veislur eru því áfram mjög fastar í farinu. Þær eru lagðar eftir því sem gestgjafinn heldur að við vilj- um en ekki því sem við þurfum. Því bragð er munaður en ekki nauðsyn. Ofát er bæði óþægilegt og lífshættulegt. En samt er haldið áfram að sveigja veisluborð með krásum. Með óþarfa vellystingum praktuglega. Léttari veisluföng Við göngum jafnánægð frá veislu með fábrotnum kosti eins og svignandi borðum. Kannski ennþá ánægðari þvi okkur líður betur eft- ir hæfúegan mat en mikinn mat. Þetta er ekki spurning um magn heldur vellíðan, eða hvað? Þess vegna þarf að breyta hugarfarinu á bak við veisluna. Þá vinnum við meðbræðrum okkar ómetanlegt gagn. Vinnum þeim líf. Næst þegar við höldum veislu þá lögum við hana eftir okkar höfði. Tökum fitu og salt og sykur út af matseðlinum strax. Engar löðrandi hveitikökur með þykkum rjóma eða djúpsteikta rétti með vellandi majones. Smjörsteiktar pylsur eða kryddlegnar kjötbollur. Engar unnar kjöt-eða fiskvörur sem ekki er hægt að greina í sundilr. Hvorki sykurbrúnaðar né franskar kart- öflur. Ekki puru af steik eða kjúkl- ingi. Ekki einu sinni sultutau. Burt með þetta allt saman. Bjóðum frekar upp á það sem við teljum okkur þurfa og hver veit nema það sé einmitt það sem gest- imir vilja þegar upp er staðið: Ríkulega búið borð af ferskum ávöxtum og nýju grænmeti. Vænan bakka með léttum osti. Hreint kjöt og hreinan fisk á borðið ásamt hvít- um kartöflum eði ofnbökuðum. Allt á léttu nótunum. Við eigum næsta leik. í næsta þætti fjöllum við um minni háttar heimboð og afganga. ptttrg rÆ felauáturfSp Hádegistilboð alla daga Pizzasneið og bökuð kartafla kr. 390,- Laugavegi 73, sími 23433 Veiðileyfi í Blöndu Veiðileyfi í Blöndu til sölu. Uppl. í síma 678927 Stangaveiðifélagið ÓS ÍBR ______________________ KRR REYKJAVÍKURMÓT MEISTARAFLOKKUR KARLA ÁSUNNUDAGSKVÖLD KL. 20.30 FRAM - ÞRÓTTUR Á GERVIGRASINU í LAUGARDAL Fjölskylduvernd Framhaldsstofnfundur Fjölskylduverndar verður haldinn í dag, laugardaginn 17. mars 1990, kl. 16 í Langholtskirkju. Markmið félagsins er að standa vörð um hagsmuni fjöl- skyldunnar gegn afskiptum barnaverndarnefndar. Fundarefni: 1. Erindi um barnaverndarmál. 2. Umræður. 3. Stjórnarkjör. 4. Önnur mál. Þeim sem vilja tilkynna þátttöku sína er bent á síma 91-72296 og 91-78281. Allir velkomnir. Undirbúningsstjóm m Alþingi ÍSLENDINGA Útboð Skrifstofa Alþingis óskar eftir tilboðum í tölvubúnað: þjónustustöð, netbúnað og einkatölvur. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri að Vonar- stræti 8, annarri hæð. Tilboðum skal skilað á sama stað eigi síðar en þriðju- daginn 27. mars 1990 kl. 12.00. Þau verða þá opnuð að Vonarstræti 12 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Skrifstofa Alþingis - Tölvudeild GÆÐASÓL í WORLD CLASS HÚSINU Skeifunni 19, 2. hæð Þá er Gæðasólin komin upp. Ein glæsileg- asta sólbaðsstofa landsins hefur opnað í World Class húsinu, Skeifunni 19: Við bjóðum upp á: 1. Stærstu sólarbekki landsins 2. 43 pera bekki (3 andlitsljós) 3. Sérkælingu i bekkjum 4. Fyrsta flokks loftræstingu 5. Fyrsta flokks sturtur 6. Fyrsta flokks hreinlæti 7. Góða þjónustu 8. Afslappandi umhverfi Takið vorið með stæl og verið brún um hæl Pantið tíma í síma 679099 Verið velkomin. Gæðasól skilar árangri GÆÐASÓL

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.