Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1990, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1990, Blaðsíða 26
34 l.AL'G.yPjAGUl^ 17^ M^RS^JO, Sérstæð sakamál Hefndi hún sín eftir dauðann? Ritcliio Sebastian og unnusta hans, Dyane Coyle, voru nýkomin út úr kránni og voru á leiö aö bíln- um sínum þetta íostudagskvöld, 22. apríl 1988, þegar þau uröu vitni aö óhugnanlegum atburöi á bílastæð- inu. „í Guös bænum ekki gera það!“ hrópaöi maöur einn í örvæntingu skyndilega viö annan enda stæöis- ins. Ritchie kom þá auga á konu sem stóö fyrir framan óttaslegna manninn. Hún beindi skammbyssu að brjósti hans. Á einu augabragði þreif Ritchie í unnustu sína og kast- aði henni á malbikið en fleygði sér síöan niöur við hiiöina á henni. Hann ætlaði þannig að reyna að tryggja aö þau yrðu ekki fyrir skoti. Þar lágu þau svo og heyrðu manninn biöja sér griða. Dyravöröurinn í kránni haföi komið út í dyrnar um sama leyti og þetta var aö gerast. Hann sá einnig manninn og konuná með skammbyssuna. Hann kallaöi á Ritchie og Dyane og sagði þeim að hreyfa sig ekki því hann ætlaði aö hringja á lögregluna. Aðeins nokkrum augnablikum eftir aö dyravörðurinn gekk aftur inn fyrir heyröust fimm eöa sex skothvellir. Ritchie og Dyane sáu að maðurinn, sem skotiö var á, féll aftur á bak og lá síðan hreyfmgar- laus á malbikinu. Nær magnlaus af skelfingu biðu Ritchie og Dyane nú eftir því hvaö konan gerði næst. Myndi hún beina skammbyssunni að þeim til að koma í veg fyrir að nokkur vitni að atburðinum gætu gefið sig fram? Konan stóð hins vegar kyrr með skammbyssuna í hendinni sem hún hafði nú viö hægri mjöðm sér. Fáeinum mínútum síðar komu lög- reglubílar á íleygiferð með síren- urnar vælandi. „Hún stendur þarna,“ hrópaði Ritchie er lögregluþjónarnir stigu út úr bílnum. „Hún stendur þarna, konan sem skaut hann.“ Lögregluþjónarnir gáfu Ritchie og Dyane merki um að hreyfa sig ekki. Síðan gengu þeir með skammbyssur i hendi að líkinu. Nokkrum mínútum síðar sneru þeir aftur. „Náðuð þið henni?" spurði Ritc- hie. „Hverri?" spurði lögregluþjónn- inn undrandi. „Konunni sem skaut hann. Hún stóð þarna.“ „Ertu búinn að drekka mikið í kvöld?“ spurði þá einn lögreglu- þjónanna. Ritchie, sem hafði aðeins drukkið tvo bjóra, gekk nú með lögreglu- þjóninum að þeim látna. Hann beindi geisla frá vasaljósi að líkinu. En á brjóstinu, sem kúlurnar hefðu átt að lenda í, var ekkert sár aö sjá og ekkert blóð. Framburður dyravaróarins Undrandi leit Ritchie í kringum sig. Hvar gat konan með skamm- byssuna verið? Hvernig gat hún hafa komist undan, fram hjá þrem- ur vitnum og tveimur lögreglubíl- um? Eina leiðin út af bílastæðinu var sú sem lögreglubílarnir höfðu farið. „Spyrðu dyravöröinn," sagði Ritchie þá. „Hann sá það sem gerð- ist.“ Lögregluþjónunum til mikill- ar undrunar staðfesti dyravörður- inn, Alexander Dennis, allt þaö sem Ritchie og Dyane. Ritchie hafði að segja um atburð- inn. Alexander haföi einnig heyrt manninn biðja sér vægðar, séð konuna með skammbyssuna og heyrt skothvellina. Hvort sem sag- an var ímyndun ein eða ekki var það staöreynd að á bílastæðinu lá lík. Eftir nokkra stund voru Ritchie, Dyane og dyravörðurinn færð á næstu lögreglustöð þar sem gerð var skýrsla um atburðinn og kom í henni fram allt það sem vitnin höíðu séð og heyrt. Kirk Hepner var nafn þess látna. Hann var tuttugu og níu ára og búsettur í Tulsa í Oklahomaríki í Bandaríkjunum ,en þar gerðist at- burðurinn. Hann hafði veriö sendi- boði og bjó í íbúð við 11. stræti í austurborginni. Tveir lögreglu- þjónar fóru heim til hans og þar skýrði húseigandinn frá því að sá látni hefði búið einn. Lögregluþjónarnir fóru inn í íbúðina og reyndu þar að kynna sér hverjir væru nánustu ættingjar Hepners. Þeir urðu einskis vísari um þaö en aftur á móti fundu þeir óyggjandi sannanir fyrir því að Kirk Hepner hafði veriö nauðgari og morðingi. Laugardaginn 9. apríl um kvöld- ið, hálfum mánuði áöur en atburð- Andrea Marlin. urinn á bílastæðinu gerðist, haföi Andreu Marlin, tuttugu og fimm ára einkaritara, verið nauðgað og hún síðan myrt. Þar til lögreglu- þjónarnir rannsökuðu íbúð Hepn- ers var ekkert um það vitað hver morðinginn var og hafði lögregl- unni í Tulsa ekkert orðið ágengt í rannsókn málsins. Nú fékk hún í hendurnar allt sem hún þurfti með, greiðslukort Andreu, númer á bankareikningi hennar og lyklana að íbúðinni sem hún hafði búið í. Hjartabilun Þræðir úr fatnaði, sem fundust í klæðaskáp heima hjá Kirk Hepner, voru eins og þræðir sem tækni- fræðingar lögreglunnar höföu fundið á líkinu af Andreu Marlin. Þá svaraði blóðflokkur hans til sæðisins sem fundist hafði í líki ungu konunnar og fingrafór hans á tösku hennar tóku loks af allan vafa um að það hefði verið hann sem nauðgaði henni og myrti. Það var því ljóst hver ódæðis- maðurinn var en þó var málið afar dularfullt. Þeirri spurningu var enn ósvarað hvort dauði Hepners væri morð eða ekki. Er lík hans hafði veriö krufið lá fyrir að hann hafði dáið af hjarta- bilun. Skýringin, sem lögreglan hélt sig við, var sú að hann hefði verið á gangi yfir bílastæðið og skyndilega hefði hjartað gefiö sig. Auðvitað gat slíkt gerst þótt það væri heldur óvenjulegt að svo ung- ur maður létist þannig. Lögreglan vildi því líta svo á að mál Andreu Marlin væri nú að fullu upplýst og ljóst væri hvernig Kirk Hepner hefði dáið. Stóðu fast á sínu Vitnin þrjú voru þó ekki á því að draga framburð sinn til baka. Þau héldu því enn sem fyrr fast fram að þau hefðu séð konu skjóta Kirk Hepner. En lögreglan sýndi vitnis- burði þeirra ekki neinn áhuga leng- ur. Enginn dómstóll hefur enn tekið afstöðu til þess hvort Hepner var myrtur eða ekki. Hvernig má líka höfða mál þegar enginn sakborn- ingur finnst? Hvað gerðist í raun á bilastæð- inu? Richie, Dyane og Alexander eru enn sammála um það sem þau segjast hafa séð. Var það allt hrein ímyndun, eins og lögreglan telur, eða geröist það í raun og veru? Ritchie og Dyane viðurkenna að engin eðlileg skýring sé til á því sem þau sáu fyrir nær tveimur árum. Þeim hefur því helst komið til hugar að um yfirnáttúrulegan atburð hafi verið að ræða. Hefnd eftir dauðann? Getur það verið, hafa vitnin þrjú spurt sig hvaö eftir annað, sem og ýmsir aðrir, að Andrea Marlin hafi birst hálfúm mánuði eftir að hún var myrt til þess að drepa morð- ingjann? Var síðasta hugsun henn- ar í lifanda lífi sú að koma fram hefnd fyrir ódæðisverkið? Heyrst hafa sögur af því að látnir hafi birst sem lifandi væru ættingj- um, jafnvel á fjarlægum stöðum. Gat það verið að á meðan Kirk Hepner var að kyrkja Andreu hafi hún hugsað svo sterkt um hefnd að henni hafi síðar tekist að snúa aftur til þessa heims nógu lengi til að koma ætlunarverki sínu í fram- kvæmd? x Dó Hepner eðlilega? Eitt af því sem þykir benda til þess að Hepner hafi ekki látist af venjulegri hjartabilun er hvernig hann lá þegar að honum var kom- ið. Fólk, sem deyr af hjartabilun, finnst oft með hönd við brjóst. Venjulega fellur það fram á við eft- ir að hafa fyrst lagst á hnén. Hepn- er lá hins vegar á bakinu með hend- urnar út til hliðanna eins og sá sem skotinn hefur verið. Annað sem styður ofangreinda kenningu er að Hepner var aðeins tuttugu og níu ára og ekkert hafði komiö fram sem benti til þess að hann væri heilsutæpur. Þvert á móti virtist hann hafa verið vel á sig kominn líkamlega. Hafi það verið konan sem hann myrti hálfum mánuði áður sem stóð skyndilega ljóslifandi fyrir framan hann er hins vegar ekki undarlegt þótt hann hafi fengið svo fyrir hjartað að þaö hafi kostað hann lífið. Hann getur hreinlega hafa dáið af hræðslu. Engar aðrar skýringar Sá hann því ekki þaö sama og Ritchie, Dyane og dyravörðurinn, konu með skammbyssu um tvo metra frá honum? Reyndi hann ekki að biðja sér griða, áður en hann féll fyrir „ósýnilegu kúlun- um“ hennar? Læknarnir hefðu að- eins getað greint hjartabilun en í raun kann að hafa verið um að ræða hefnd Andreu Marlin eftir dauðann. Þessi óvenjulegi atburður í Tulsa hefur vakið athygli margra þeirra sem þykjast sannfærðir um að yfirnáttúrulegir atburðir eigi sér stað enda hafa engar aðrar kenn- ingar verið settar fram en þær sem getið hefur verið. Og ekkert hefur komiö fram um að vitnin þrjú, Ritc- hie, Dyane og Alexander, hafi þjáðst af ofskynjunum og ljóst er að ekkert þeirra var í annarlegu ástandi er atburðurinn gerðist. Lögreglan hefur, eins og fyrr seg- ir, komist að sinni niðurstöðu en vitnin þrjú eru ekki í neinum vafa um hvaö þau sáu. Þau telja því, eins og margir aðrir, að um hefnd látnu konunnar kunni að hafa ver- ið að ræða. Og margir eru þeim sammála.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.