Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1990, Blaðsíða 10
10
LAUGARDAGUR 17. MARS 1990.
Ford-keppnin 1990:
Á leið til fraegðar
- Bryndís Ólafsdóttir, sigurvegarinn, á skemmtilegt sumar í vændum
Nítján ára Garðbæingur, Bryndís
Ólafsdóttir, sigraði í Ford-keppn-
inni en úrslit voru kynnt í hófi á
Holiday Inn hótelinu sl. sunnudag.
Það var Vibeke Knudsen, starfs-
maður Ford Models í New York,
sem valdi sigurvegarann. Bryndís
hlýtur í verðlaun ferö til Los Ange-
les í sumar þar sem liún tekur þátt
í keppninni Supermodel of the
World. Þá mun hún fá starfssamn-
ing við Ford Models skrifstofuna
en mjög erfitt er að fá samning við
hana. Má til gamans geta að á
hverjum degi berast hundruð
mynda af fallegum stúlkum inn til
Ford Models.
Vibeke valdi auk þess íjórar
stúlkur sem hún taldi að mögulega
gætu fengið starfssamning. í öðru
sæti varð Ingibjörg Gunnþórsdótt-
ir, í þriðja sæti Tinna Jónsdóttir,
þá Ásta Sigríður Kristjánsdóttir og
Svava Haraldsdóttir.
Fyrirrennurum
gengur vel
Bry ndís Ólafsdóttir fetar væntan-
lega í fótspor fyrirrennara sinna í
Ford-keppninni því aö Ágústa Erna
Hilmarsdóttir, Ford-sigurvegari
1988, og Lillí Karen, sem sigraði í
fyrra, eru báðar starfandi fyrirsæt-
ur á Ítalíu og voru því fjarri góðu
gamni á sunnudag.
Áhugamál Bryndísar er innan-
hússarkitektur og hún segist stefna
á að leggja það nám fyrir sig í fram-
tíðinni. Bryndís hefur teiknað hús
að innan sem utan allt frá því hún
var barn en að öllum líkindum
lætur hún námið bíða eitthvað
meðan hún leitar frægðarinnar
sem fyrirsæta. Foreldrar hennar
eru Sigurbjörg Rósa Þórhallsdóttir
og Olafur Torfason. Kærasti
Bryndísar heitir Arnar Laufdal.
Hann sagði að sér litist mjög vel á
framgang Bryndísar og inyndi
styðja hana á þessari braut.
Bryndís hefur starfað með skól-
anum í verslunum Hagkaups í
Kringlunni til að safna sér fyrir
ferðalögum. Húri segist stefna á að
minnsta kosti eina utanlandsferð á
ári.
Hæóin ræður öllu
Vibeke Knudsen er dönsk en hef-
ur starfað við fyrirsætustörf í tutt-
ugu ár og er enn að. Hún hefur
fengið það starf hjá Ford Models
þetta árið að ferðast til Evrópu og
velja stúlkur í keppnina Su-
permodel of the World. Vibeke
sagði að mjög erfitt væri að velja
sigurvegara úr þessum stóra hópi
glæsilegra stúlkna. Á hitt bæri að
líta að hæðin skipti öllu máli í fyrir-
sætuheiminum. Vibeke sagði að
stúlkur undir 174 sm ættu varla
Það fór vel á með þeim Ellert B. Scram, ritstjóra DV, og Vibeke Knud-
sen frá Ford Models. Það er Katrín Pálsdóttir, umboðsmaður Ford
Models á íslandi, sem fylgist með samræðum þeirra, ibyggin á svip.
Yfir hundrað manns fylgdust með úrslitunum, flestir aðstandendur stúlkn-
anna. Hér sjást nokkrir gestanna, meðal þeirra Steinunn Sigurðardóttir
rithöfundur en dóttir hennar var meðal keppenda.
mm er sjonvarpað um öll Banda-
ríkin og í Frakklandi. En eins og
Vibeke sagði þá er hér ekki um að
ræöa fegurðarsamkeppni heldur
keppni um eftirsóttustu fyrirsæt-
una.
Stúlkurnar tólf, sem kepptu í
Ford-keppninni, hafa vakiö mikla
athygli þeirra sem lesa DV og má
nefna að einni þeirra, Helgu Guð-
rúnu Guðnadóttur, var boðið í flug-
tíma hjá Flugtaki á Reykjavíkur-
flugvelli eftir viötal við hana í blað-
inu þar sem hún sagðist hafa hug
á fiugnámi. Helga Guörún sagði að
flugtíminn hefði sannfært sig enn-
betur um hvert yrði framtíðar-
starfið.
-ELA
Stúlkurnar tólf sem kepptu um titilinn Ford-sigurvegarinn 1990 ásamt Vibeke Knudsen frá Ford Models. Þær heita, frá vinstri: Tinna Traustadóttir,
Tinna Jónsdóttir, Svava Haraldsdóttir, Sara Guðmundsdóttir, Rut Stephens, Ingibjörg Gunnþórsdóttir, Hrefna Björk Hallgrímsdóttir, Helga Guðrún
Guðnadóttir, Guðrún Þráinsdóttir, Drifa Gunnarsdóttir, Bryndís Ólafsdóttir og Ásta Sigríður Kristjánsdóttir.
Nokkrar stúlknanna sem kepptu í Ford-keppninni á síöasta ári voru
meðal gesta. Lillí Karen Wdowiak er á Ítalíu og annar keppandi, Harpa
Sigmundsdóttir, starfar i Danmörku. Þá vantar einnig Sólveigu Franklíns-
dóttur. Á myndinni eru, frá vinstri: Unnur Margrét Halldórsdóttir, Anna
Lára Magnúsdóttir, Regína Jensdóttir, Margrét Grímsdóttir, Margrét
Knútsdóttir, Anna Guðný Hermannsdóttir og Sigurrós Jónsdóttir.
aðstandendum stúlknanna út á
hvað þessi keppni gengi og hvað
tæki við hjá sigurvegaranum. Má
geta þess að mjög mikil öryggis-
gæsla er í kringum þær stúlkur
sem taka þátt í Supermodel of the
World og þær eru ekki einar i mín-
útu þann tíma sem þær dvelja í Los
Angeles.
Keppnin
vekur athygli
Eileen Ford, stofnandi og eigandi
Ford Models, sem er ein virtasta
umboðsskrifstofa fyrirsæta í heimi,
hefur getið sér gott orð fyrir keppn-
ina Supermodel of the World og
hvernig að henni er staðiö. Keppn-
Bryndís Olafsdóttir, sigurvegarinn, ásamt foreldrum sinum, Ólafi Torfa-
syni og Sigurbjörgu Rósu Þórhallsdóttur.
DV-myndir Brynjar Gauti
möguleika á þessu starfi, að
minnsta kosti ekki í Bandaríkjun-
um. í Tokýo væru þær oft lægri og
því vonaðist hún til að geta kynnt
þær stúlkur sem hún valdi fyrir
japönsku skrifstofunum. í Japan
eru fyrirsætustörf mjög vel borguð
og oft talað um milljónir í því sam-
bandi.
Úrslitin í Ford Models keppninni
fóru fram á Holiday Inn að við-
stöddum gestum en aðeins var um
boðsgesti að ræða. Yfir hundrað
manns voru saman komnir í sal
sem nefnist Setrið og þáðu veiting-
ar og fylgdust með kynningum á
stúlkunum. Allir voru sammála
Vibeke um að stúlkurnar tólf væru
stórglæsilegar og valið því erfitt.
Vibeke útskýrði nákvæmlega fyrir