Dagblaðið Vísir - DV

Dato
  • forrige månedmarts 1990næste måned
    mationtofr
    2627281234
    567891011
    12131415161718
    19202122232425
    2627282930311
    2345678

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1990, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1990, Side 11
01. iciviiiiiiiiiiiiniifiifistm ivmniiiriitriiiina i 11 St. Bernharðsgrey hvilir sig hjá eigandanum. Það er engin smástærð á honum þessum. Á hundasýningu í London: Hvíti hálend- ingurinn vann Mikil hundasýning fór fram í Earls Court höllinni í London í febrúar. Sýningin er árlega en þetta var síö- asta skipti sem hún fór fram í Earls Court þar sem þessi risahöll er oröin of lítil fyrir sýninguna. Mjög mikil aðsókn er að hundasýningunni en um sextán þúsund hundar víðs vegar af Bretlandseyjum taka þátt í henni. Á undanförum árum hefur það auk- ist að íslenskir áhugamenn um hunda fari á sýninguna en í ár voru þeir' fimmtán. Þar á meðal var hundatemjarinn Ragnar Siguijóns- son sem tók þessar myndir. „Sýningin er byggð upp sem fjöl- skylduskemmtun og má sjá heUu tjölskyldurnar koma sér fyrir við hundabásana með nestið sitt,“ sagði Rágnar. „Á sýningunni eru hundrað og sex tegundir og í allt upp í þrjú hundruð af hverri tegund. Sýningin stendur yfir í fjóra daga. Keppt er daglega og þeir sem komast í úrslit keppa aftur síðasta daginn. Algeng- ast er að fjölskyldur komi með hund- inn þann dag sem keppt er í hans grein og koma síðan aftur ef hann kemst í úrslit," sagði Ragnar. „TiJ að komast á sýninguna þurfa hundamir að hafa náð stigi í meist- aratign. Akveðið punktakerfi er í gangi en það er ekki sama og við- gengst á Norðurlöndum. Á hverjum degi er keppt t.d. í hlýðni og fimi hundanna. í lok keppninnar er síðan einn hundur valinn sem yfirburða- sigurvegari. Að þessu sinni var það svokallaður hvíti hálendingur," sagði Ragnar. „Hundasýningar af þessu tagi hafa farið fram á Bretlandseyjum frá ár- inu 1928 - síðustu ár í Earls Court í London. Þó sú sýningarhöll sé mjög stór dugar hún ekki lengur þannig að á næsta ári verður hún haldin í Birmingham. Á sýningunni kynntu menn þaðan borgina fyrir gestum,“ sagði Ragnar ennfremur. Hann sagði að mjög skemmtilegt væri að heimsækja sýningu sem þessa þar sem allar þessar hundateg- undir væru til sýnis. „Maður kemst í samband við ræktendur og þjálfara á Englandi og fær upplýsingar um hvað sé nýtt að gerast.“ Ragnar dvaldi á Englandi í þrjá mánuði sl. haust og kynnti sér tamningu og ræktun hunda en hann hefur starfað mikið fyrir íslenska hundatamninga- skólann. -ELA Keppt í hundafimi. Sumir voru ekki mjög háir í loftinu en komust samt yfir. DV-myndir Ragnar Sigurjónsson Hvíti hálendingurinn vann hundasýninguna í London með miklum yfirburðum enda þykir hann afar fallegur. Hér sést fegurðardrottningin ásamt stoltum eigendum. FLUGLEIÐIR Aðalfundur Flugleiða hf. AÐALFUNDUR Flugleiða hf. verður haldinn fimmtudaginn 22. mars 1990 í Höfða, Hótel Loft- leiðum, og hefst kl. 14. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 10. gr. samþykkta félagsins. 2. Tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa og breyting á 4. gr. samþykkta því til samræmis. 3. Önnur mál, löglega upp borin. Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu vera komnar I hendur stjórnarinnar eigi síðar en 7 dögum fyrir aðal- fund. Dagskrá og endanlegar tillögur munu liggja frammi á skrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis, 7 dögum fyrir aðalfund. Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á aðalskrifstofu félagsins, Reykjavíkurflugvelli, hlutabréfadeild á 2. hæð, frá og með 15. mars nk. frá kl. 9.00 tii 17.00. Hluthafar eru vinsamlegast beðnir að vitja fundargagna sinna fyrir kl. 12.00 á fundardegi. Stjórn Flugleiða hf.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Værktype:
Samling:
Gegnir:
ISSN:
1021-8254
Sprog:
Årgange:
41
Eksemplarer:
15794
Registrerede artikler:
2
Udgivet:
1981-2021
Tilgængelig indtil :
15.05.2021
Udgivelsessted:
Nøgleord:
Beskrivelse:
Dagblað. Fréttablað. Tölublaðsnúmerin fylgja Dagblaðinu og Vísi til ársins 2002. Fyrsta tölublað sameinaðra blaðanna er því 262. tölublað 71. og 7. árgangs.
Sponsor:
Tidligere udgivet som:

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar: 65. tölublað - Helgarblað (17.03.1990)
https://timarit.is/issue/192726

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.

65. tölublað - Helgarblað (17.03.1990)

Handlinger: