Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1990, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1990, Side 20
LAUdARÐAGUli 17. M AJIS re90. í#0 Kvikmyndir Þegar My Left Foot fékk fimm óskarsverölaunatil- nefningar í febrúar kom það engum meira á óvart en þeim sem stóðu að gerð þessarar myndar. Þeir vissu að myndin var góð og nógu dramatísk til aö heilla akademíuna en að hún fengi tilnefningu sem besta kvikmynd, fyrir besta handrit, besta leikara í aðal- hlutverki, bestu leikkonu í aukahlutverki og besta leik- stjóra kom þeim sömu skemmtilega á óvart sem og mörgum öðrum. Langur aðdragandi My Left Foot var frumsýnd í febrúar á írlandi og hefur sjálfsagt engri írskri kvik- mynd verið jafnvel tekið. Hún var hafln upp til skýjanna af gagnrýnendum og fljótlega sló hún aðsóknarmet. Hvað fjallar svo þessi rómaða kvik- mynd um? Jú, hún er byggð á ævi skáldsins Christy Brown sem var svo fatlaöur frá fæðingu að læknar sögðu foreldrum hans að ef hann myndi lifa yrði hann aldrei annað en aumingi sem yrði fjölskyldunni fjötur um fót. Móðir hans neitaði samt að trúa þessu og lét hann strax vera einn af fjölskyldunni. Það var svo henni að þakka að það uppgötvaðist að innan í þessum farlama líkama leyndist íogur sál, mannleg vera sem bjó yfir miklum gáf- um og mannlegri hlýju. En Christy Brown gat að- eins tjáð sig með vinstri fætin- um eftir að foreldrar hans uppgötvuðu að hann var viti borin manneskja. Og með vinstri fætinum skrifaði hann skáldsögur og ljóð sem fær gagnrýnendur til að eyða stórum lýsingarorðum yfir snilli hins þjáða manns. Með- an Christy Brown lifði fékk hann öll helstu bókmennta- verðlaun Breta. Framleiðandi My Left Foot er Noel Pearson sem er þekkt- ur írskur leikhúsmaður. Hann þekkti Christy Brown í átján ár og var bæði vinur hans og umboðsmaður þar til Brown lést 1981, fjörutíu og níu ára gamall. Hann keypti strax kvikmyndaréttinn að sjálfsævisögu Brown og fékk' Shane Connaughton til að skrifa handrit fyrir sig. Eitt sinn þegar Pearson var íNewYorkhittihannlanda • sinn, leikstjórann Jim Sherid- an, sem hafði lokið námi í New York Film School en nær eingöngu leikstýrt í leikhús- um og var þegar þeir hittust að leikstýra leikriti utan Broadway. Pearson þekkti Sheridan af afspum og í fyrstu bauð hann honum að hjálpa Connaughton með handritið. Sheridan, sem hafði samið nokkur leikrit sem sýnd hafa verið, þáði starfið og fékk fljótlega áhuga á að leikstýra verkinu. Pearson áttaði sig einnig á að Sheridan væri lík- legast rétti maðurinn til verksins þótt ekki hefði hann leikstýrt kvikmynd áður. Þegar þeir voru tilbúnir með handritið fóru þeir á fund yfirmanna Granada sjón- varpsstöðvarinnar, sem hafði þá nýlega hafið framleiðslu kvikmynda, og voru stjóm- endur þar á bæ mjög hrifnir af hugmyndinni um að gera kvikmynd um ævi Christy Brown og töldu, sem rétt var, að My Left Foot myndi fá fólk til að trúa á þá sem kvik- myndaframleiðendur. Það var svo stuttu síðar að Noel Pearson hélt samkvæmi fyrir vin sinn, tónskáldið El- mer Bernstein (Hann átti síð- ar eftir að gera tónlistina við My Left Foot). Þá tók hann eftir ungum leikara, Daniel Day Lewis, sem á stuttum leikferli hafði þegar fengið mikið hrós fyrir góðan leik og var af mörgum talinn fremst- ur ungra breskra leikara. Pearson afhenti honum handritið og bað hann að lesa það með hlutverk Brown í huga. Daniel Day Lewis varð hugfanginn af handritinu og persónunni sem hann átti að leika og þrátt fyrir að hann væri með mörg freistandi til- boð eftir leiksigur sinn í The Unberable Lightness of Being Kvikmyndir Hilmar Karlsson henti hann öllum þeim tilboö- um frá sér og sagðist tilbúinn ef hægt væri að finna tíma og þyrftu þeir ekki að hafa áhyggjur af launum hans. Þrátt fyrir loforðið gat Dani- el Day Lewis ekki hætt viö það sem hann var samningsbund- inn að gera en með lagni var hægt að finna smátíma sum- arið 1988 og strax sett stefnan á að byrja tökur þá. Tíminn var naumur en allir lögðust á eitt og það tókst að klára tök- ur á tilsettum tíma. Var kvik- myndað í Dublin og þar í kring. Þáttur Daniels Day Lewis Það eru allir sammála um að það sé ekki síst að þakka Daniel Day Lewis að My Left Foot nálgast það að vera meistaraverk. Leikur hans er ótrúlega góður og hrífur hann áhorfandann með sér í stór- brotnum leik. Eru allir sam- mála, sem unnu með honum, um að hann hafi gefið sig all- an og aldrei kvartað þótt eitt- hvað færi úrskeiðis. Þá má ekki gleyma hlut hins unga Hugh O’Connor sem leikur Brown ungan. Sýnir sá dreng- ur mjög þroskaðan leik. í þeirri ætlun sinni að missa aldrei tökin á hlutverkinu eyddi Daniel Day Lewis öllum dögum meðan á kvikmyndun stóð í hjólastólnum, fór aldrei úr honum þótt hann væri ekki að leika. Það tók sex vikur að kvikmynda My Left Foot og það var aðeins örsjaldan sem samstarfsmenn Lewis sáu hann ekki í hjólastól. Þá þjálf- að hann vinstri fót sinn það vel að þegar tökum var lokið gat hann orðið skrifað og málaðmeð honum. Hinn þekkti írski karakter- leikari Ray McAnally, sem leikur stórt hlutverk í My Left Foot, segir um Daniel Day Lewis: „Égþekkti Christy nokkuð vel. Hann kom iðulega í Queens Thea- tre, þar sem ég lék, og ég get því dæmt um hvernig tekist hefur til. Daniel Day Lewis hefur náð því sem ég fyrir- fram taldi ekki mögulegt, að sýna i líflausum líkamanum það sem inni fyrir býr.“ My Left Foot eða Með vinstri fæti, eins og hún mun nefnast á íslensku, verður frumsýnd í Háskólabíói í næstuviku. -HK Daniel Day Lewis og Brenda Fricker hafa bæði verið tilnefnd til óskarsverðlauna. Með vinstri fæti KLAUS MARIA BRANDAUER leikur aöallúutverkið og leikstýr- ir kvikmyndinni George Elser sem Qallar um manninn sem reyndi að drepa Hitler. Maöur þessi, George Elser, sem 1939 reyndi að drepa Hitler á bjórkrá í Berlín, er ekki kunnugur mörg- um. Mjög lítið er vitaö um hann, enda var hann einfari og þekkti fáa. Það sem enn færri víta er að hann lést ekki fyrr en 1945. Var hann öll stríðsárin í útrýmingar- búðum nasista. Kvikmyndin hefur fengið góðar viðtökur og þykír raunsæ þótt ýmislegt sé skáldað til aö fylla upp í eyðurnar. Brandauer þykir standa sig vel, bæöi sem leikari og leikstjóri. ★ ★★ WOLFGANG PETERSEN, sem leikstýrði Das Boot á sínum tima og svo Never Ending Story, hefur nú gert sína fyrstu kvikmynd í Hollywood. Nefnist hún Shatte- red I þessar mynd, sem er saka- málamynd, hefur hann mikið úrval leikara og eru aðalleikar- arnir Tom Berenger, Bob Hosk- ins, Greta Scacchi, Joanne Whal- ley-Kilmer og Corbín Bernsen. JAMES CAMERON, sem Ieik- stýrði dýrustu kvikmyndinni á síðasta ári, The Abyss, mun sjálf- sagt einnig leikstýra dýrustu kvikmynd þessa árs, það er að segja ef byrjað verður á henni. Er það Tenuinator 2 en hann leik- stýrði fyrri myndinni, sem var mjög vel sótt, og gerði Arnold Scwarzenegger frægan. Bæði hann og Swarzeneggerhafa skrif- að undir samning um að gera mynd númer tvö og er áætlaður kostnaður viö hana sextiu milljón dollarar eða tiu milljónum betur en The Abyss kostaði. Ekkert hefur verið látíð uppi um efni myndarinnar en eitt er þó vitað að laun Swarzeneggers verða ekki undir tíu milljónum dollara. ★ ★ ★ ÞEGAR óskarsverðlaunin verða afhent í byrjun apríl verða að öll- um líkindum allar þær fimm kvikmyndir sem tilnefndar eru sem besta kvikmynd til sýningar í íslenskum kvikmyndahúsum. Þegar er verið aö sýna Driving Miss Daisy í Laugarásbiói. Verð- ur hún bráðlega færð í minni sal og sýningar á Born on the Fourth of July hefjast í aðalsalnum. Stjömubíó frumsýndi í gær Glory. Sýningar standa ennþá yfir á Dead Poet Society í Bíó- borginni og mun hún að öllum líkindum verða látin ganga fram yfir afhendingu verðlaunanna. Á þriðjudaginn mun svo Háskóla- bíó taka til sýningar íimmtu myndina, My Left Foot. Nánar er fjallað um hana annars staðar á síðunni. Það er af sem áður var þegar Reykvíkingar þurftu að bíöa í allt að þrjú ár eftir „nýrri'* kvilunynd. ★ ★ ★ EDWARD WOODWARD er næst- ur í langri röð leikara til að leika leynilögregluhetjuna Sherlock Holmes. Nýlega eru hafnar tökur á Hands of a Murder þar sem haim leikur konung leynilög- reglumannanna. Woodward er sjálfsagt þekktastur fyrir að leika Bjargvættimi (The Equalizer) sem nú er hætt að framleiöa. Sá sem leikur dr. Watson er einnig kunnugur íslenskum sjónvarpsá- horfendum, það er John Hiller- man sem lék breskan vin Tom Selleck í Magnum P.I. Aðalskúrk- inn leikur svo breski leikarinn Amlimn \ndrews

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.