Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1990, Qupperneq 24
24
LAUGARDAGUR 17. MARS 1990.
Mun
ekki
starfa
eins og
Bogdan
- segir Þorbergur Aðalsteinsson
sem er tilbúinn að taka að sér
þjálfun landsliðsins í handbolta
„Eg get ekki neitað að þetta boð
kom mér á óvart. Ég átti von á að
samið yrði við Bogdan að taká að
sér liðið næstu tvö árin. Reyndar
frétti ég þetta fyrst í gærkvöldi og
við hjónin ræddum þetta lengi. Við
höfum komist að þeirri niðurstöðu
aö ílytja heim og að ég taki þetta
starf að mér. Aö vísu er eftir að
gera samninginn en það verður
gert í Osló um næstu helgi," sagði
Þorbergur Aðalsteinsson, þjálfari
og leikmaður með sænska liðinu
Saab, í samtali við DV.
Er blaðið hafði samband viö hann
á fimmtudag var hann á leið til
fundar með liði sínu ogblaðamönn-
um en þá vissi einungis formaður
liðsins um þetta óvænta boð frá
íslandi.
Þorbergur hefur búið í Svíþjóð
undanfarin fimm ár ásamt fjöl-
skyldu sinni, Ernu Valbjörnsdóttur
og börnum sem eru fimmtán og
átta ára. Þorbergur, sem verður
34ra ára í maí, mun Ijúka hagfræði-
próíl frá háskólanum í Linköping
í haust. Eiginkona hans, sem var
við nám í tölvufræðum, starfar nú
á skrifstofu. Þau hjónin höfðu
hugsað sér að dvelja eitt ár í viðbót
í Svíþjóð. Þau eru þó alveg tilbúin
að breyta því.
Byrjaði ungur
Þorbergur sagðist hafa veriö ell-
efu ára þegar hann byrjaði að
stunda handbolta með Víkingslið-
inu. Hann segist aldrei hafa verið
fyrir fótbplta enda verið lélegur í
honum. „Ég var heppinn að komast
inn i liö með strákum sem voru
aðeins eldri en á þessum tíma var
ekki mikið um barna- og unglinga-
starf í handboltanum. Mikil þróun
hefur átt sér stað í þá átt á undan-
fórnum árum og ég er viss um aö
sá mikli áhugi, sem hefur vaknað
hjá smástrákum, er velgengni
landsliðsins að þakka. Maður sá
það hér í Svíþjóð hversu mikill
uppgangur var í tennisíþróttinni
þegar Björn Borg átti mestri vel-
gengni að fagna. Fyrstu árin mín í
handboltanum skaraði ég ekkert
fram úr og það var ekki fyrr en ég
var 13-14 ára sem maður náði tök-
um á þessu.“
Þorbergur starfaði með landslið-
inu á árunum frá 1976 til 1988 og á
að baki 160 landsleiki. Hann segist
þekkja handboltann vel og tlesta
þá stráka sem með liðinu keppa.
„Það er helst að ég þekki ekki yngri
leikmennina," segir hann.
Herþotur
og handbolti
Liðið, sem Þorbergur æfir með
úti og hefur þjálfað síðastliðin þrjú
ár, er rekið af Saabverksmiðjunum
en starfsmenn fyrirtækisins eru
unt átta þúsund. „Fyrirtækið fram-
leiðir herþotur, bíla og trukka og
handboltadeildin er bara ein af
deildunum. í upphafi byrjaði það
þannig að mörg sænsk fyrirtæki
komu upp íþróttadeildum fyrir
starfsmenn sína. Handboltalið Sa-
ab var í upphafi ein slík deild en
þróaðist íljótlega og náði miklum
árangri. í dag er liðið þriðja besta
liö Svíþjóðar," segir Þorbergur.
Áður en Þorbergur fór til Sví-
þjóðar spilað hann handbolta í
Þýskalandi en kom heim til íslands
í millitíðinni. „Mig langaði að halda
áfram námi og Svíþjóð var sá stað-
ur sem við vildum helst flytja til.
Ég leitaði fyrir mér í Svíþjóð um
atvinnumennsku. Ég fékk tilboð
frá þremur liðum en leist best á
Saab og þá sérstaklega staðsetning-
una,“ sagði Þorbergur.
Þeir sem þekkja Þorberg eru
sammála um að hann hafi rifið
Saabliðið upp. Þegar hann kom til
starfa var liðið í annarri deild en
fór upp í fyrstu deild veturinn eftir
að hann byrjaði að spila með því.
Fyrir stuttu varð liðið bikarmeist-
ari í Svíþjóð og náði sér í réttindi
til að spila á Evrópukeppni bikar-
hafa í haust. „Ef úr verður að ég
taki við aö þjálfa íslenska hand-
boltalandsliðið er ljóst að ég verð
ekki með liðinu þá,“ sagði Þorberg-
ur. Má til gamans geta þess að Þor-
bergur hefur fengið tilboð frá liðum
annars staðar á Norðurlöndunum
á hverju ári.
Hann sagðist stefna á að koma
heim í júní en hann hefur ekki séð
dagskrá handboltalandsliðsins fyr-
ir sumarið. „Ætli ég verði ekki
fram á haust. Ég mun fara aftur
utan í haust til að ljúka námi og
verö í um það bil tvo mánuði. Síðan
mun ég koma heim aftur.“
Strembið starf
Þorbergur segir að starfið í Sví-
þjóð hafi verið mjög erfitt, strangar
æfingar og löng rútuferðalög. Á
milli æfinganna stundar hann skól-
Þorbergur Aðalsteinsson hefur verið í Sviþjóð undanfarin fimm ár þar sem hann hefur spilað með og þjálf-
að handboltalið Saab í Linköping.
ann af kappi. „Maður er oft mikiö
að heiman en ég reyni þó alltaf að
eiga frí á laugardögum og slappa
þá af með fjölskyldunni," sagði
hann. Allir fjölskyldumeölimir
hafa kunnað vel við sig í Linköping
en þar hafa þau íbúð á leigu. Hér
heima bíður þeirra eigin íbúð sem
þau hyggjast flytja í.
Þorbergur hefur í gegnum tíðina
fylgst vel með okkar mönnum í
handboltanum. Tvö ár eru síðan
hann hætti að leika með landslið-
inu. Síðast spilaði hann æfingaleiki
meö liðinu fyrir ólympíuleikana í
Kóreu. Það var sérstaklega atvinna
hans í Svíþjóð, fjölskyldan og skól-
inn sem var ástæða þess að hann
hætti. „Aldurinn spilaði þar
kannski líka inn í,“ sagði hann. „Ég
var búinn að vera lengi að og kom-
inn tími til að hverfa af vettvangi.
Hins vegar hef ég fylgst vel með
strákunum, fengið alla leiki senda
hingað á myndböndum og lesið allt
sem um þá hefur verið skrifað í
blöðum. Að vísu hef ég ekki séð
leikina frá heimsmeistarakeppn-
inni en þeir eru á leið til mín. En
ég hef lesið allt sem um þá hefur
verið skrifað. Reyndar fylgdist ég
vel með Svíunum á leikunum, enda
mikið um þá fjallaö hér,“ segir
hann.
Verðum aftur A-þjóð
Þorbergur segist gera sér grein
fyrir að það verði erfitt að taka við
af Bogdan. „Hann hefur gert mjög
góða hluti og ég vil alls ekki gagn-
rýna hann þótt maður sé ekki alltaf
sammála honum. Ég veit að þetta
starf er mikið gagnrýnt og þá er
sama hvort vel er gert eða ekki.
Mér finnst þetta samt mjög spenn-
andi starf og hvetjandi og kvíði því
alls ekki að takast á við verkefniö.
Ég er viss um aö handboltaliðið
okkar verður aftur A-lið og það
þarf að byrja strax á undirbúningi
fyrir B-keppnina.“
Þegar Þorbergur var spurður
hvort hann myndi nota leikmenn
liðsins öðruvísi en Bogdan gerði
játaði hann þvi. „Að vísu eru
nokkrir yngri liðsmenn sem ég
þekki lítið og á eftir að kynna mér
persónuleika þeirra, hæfni og hvað
í þeim býr. Ég mun ekki starfa eins
og Bogdan gerði og á frekar von á
miklum breytingum ef ég verð ráö-
inn. Það er víst betra að hafa allan
varann á þó að ég búist við að
samningar takist,“ sagði hann.
Þorbergur mun fara til Oslóar í
næstu viku en þangað kemur
landsliðið, sem mun spila æfinga,-
leik við Norðmenn, og stjórnar-
menn í HSÍ, Jón Hjaltalín Magnús-
son og hjónin Arnþrúður Karls-
dóttir og Gunnar Þór Jónsson, til
fundar við hann. Á þeim fundi
verður væntanlega' gengið frá
ráðningu Þorbergs sem þjálfara
handboltaliðsins en stjórn HSÍ
samþykkti einróma að fá hann í
starfBogdans. -ELA