Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1990, Síða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1990, Síða 30
38 LAUGARDAGUR 17. MARS 1990. Lífsstni Rómantíkin blómstrar í bátsferðum á Vlatava. gefur út rit einu sinni í mánuði þar sem hægt er að fá upplýsingar um hvaðeina sem er á dagskrá þann og þann mánuðinn. Upplýsingaritinu er dreift ókeypis og það er hægt að nálg- ast það í gestamóttökum hótela og á upplýsingaskrifstofum fyrir ferða- menn. Ritið er gefið út á ensku, þýsku og frönsku. Pragbúar eru miklir tónlistar- og leikhúsaðdáendur og á hverju kvöldi er hægt að velja um marga mismun- andi tónlistar- og leikhúsviðburði, gildir þar einu hvort fólk er unnend- ur klassískrar tónlistar eða þeirrar sem léttari er talin, sígildra leikverka eða gamanleikja. Miðaverð á tón- leika og í leikhús er lágt þar sem rík- ið hefur til dagsins í dag greitt miða- verð verulega niður. Næturklúbbar eru margir og fjör- ugir og yfirleitt opnir til klukkan 2 eða 3 á nóttunni. Þar er hægt að sjá kabarettsýningar af ýmsum toga, svo er hægt að skella sér á diskótek, fara á notalegan píanóbar eða á vínveit- ingahús (vinárny) þar sem hægt er að sitja við kertaijós og hlusta á lág- væra tónlist. Svo er hægt að bregða sér í skoðun- arferðir um borgina, en bæði er boð- ið upp á að verja til þess heilum degi eða hálfum, svo má hugsa sér sigl- ingu á ánni Vlatva, annaðhvort með leiðsögn eða leigja sér bát. Fá hótelherbergi Það er ekki auðvelt að verða sér úti um hótelherbergi í Prag. Það eru einugis um 8000 herbergi þar en borgina heimsækja um þrjár milljón- ir ferðamanna á ári. Það er því vitur- legra að bóka hótelherbergi með fyr- Veðrið í útlöndum HITASTIG IGRÁÐUM -10 •&« Isgra Otil-S 1 tll 5 StlllO 11 tll 15 16 tll 20 20 tll 25 Byggt á veöurfróttum Vööurstotu Islands kl. 12 á hádegi, föstudag lelsinki 5° StqKkhólmuMO0 iannahófn 12' lamborg 1 Berlín 1 Barcelona Irid 17 íontreal Léttskýji Chicago 5‘ Los Angeles 13 Bergen Reykjavík 2° Þórshöfn 8° a Glasgow I New York 13 ta 17° Orlando 19° DVJRJ Rigning V Skúrir # Snjókoma [^, Þrumuveöur = Þoka Prag: Fegursta djás nið í krúnu heimsins Sá sem hefur ekki séð París þekkir ekki Frakkland, sá sem hefur ekki heimsótt London þekkir ekki Eng- land og það sama gildir um Moskvu og Sovétríkin, Róm og Ítalíu og það gildir einnig um Prag og Tékkósló- vakíu. Prag býður gestum sínum upp á stórbrotna menningararfleið og fagrar byggingar. Borgin slapp ótrú- lega vel við eyðileggingu síðari heimsstyrjaldarinnar enda er borgin náma fyrir þá sem .hafa áhuga á byggingarlist. Þar er að finna ein- hver fegurstu dæmi í gjörvallri Evr- ópu um byggingar af ýmsum stílteg- undum frá síðari öldum í bland við ópersónuleg kassalaga og kaldrana- leg stórhýsi eftirstríðsáranna. Enda er stundum sagt að Prag sé borg and- stæönanna. Þar eru og aldin minnismerki, stór- brotin söfn og íbúum borgarinnar er gjarnan lýst sem gestrisnum og vin- gjarnlegum. Sögu borgarinnar má rekja margar aldir aftur í tímann eða allt til sjö- undu aldar. Það var þó ekki fyrr en á miðöldum sem Prag varð að eigin- legri borg og síðan hefur hún vaxið' og dafnaö. í hjarta Evrópu Prag er í hjarta Evrópu. Meðalhæð borgarinnar yíir sjávarmál er um 200 metrar en hæsti staöur borgarinnar er Hvíta fjallið, Bílá Hóra, og stendur það í 383 metra hæð yfir sjávarmál. Leið árinnar Vlatava liggur í gegnum borgina og alls hafa verið byggðar fjórtán brýr yfir hana, sumar hverjar afar fagrar. 'Loftslag er fremur milt í Prag, meðalhiti í janúar er -5 gráður á Celsíus en meðalhitinn í júlí er 19,5 Ferðir gráður. íbúar borgarinnar eru rúm milljón en þaö eru um 20 prósent allra íbúa Tékkóslóvakíu. Menningarborg Það er ýmislegt hægt að taka sér fyrir hendur í Prag annað en skoða fagrar byggingar og rölta á söfn. Þar er hægt að fara á diskótek eða í óper- una, þar eru kabarettar, leiksýning- ar, ballett og fleira. Sá ferðamaður sem reynir að upplifa á skömmum tíma allt það sem borgin hefur upp á aö bjóöa verður uppgefinn löngu áður en honum hefur tekist að gera nema örlítið brot af öllu því sem hægt er að taka sér fyrir hendur. UpplýSingaþjónusta borgarinnar irvara allavega fyrstu nóttina sem á að dvelja í borginni. Annaðhvort er hægt að bóka herbergið í gegnum ferðaskrifstofu, sem er með ferðir á sínum snærum til Prag, eða að bóka í gegnum ríksisreknu ferðaskrifstof- una Cedok en hún stjórnar nær allri ferðaþjónustu í Tékkóslóvakíu. Það getur verið dálítið erfitt að eiga við Cedok því þar á bæ er enn við lýði mikið skrifræði og því kostar það minni vinnu og fyrirhöfn að bóka í gegnum ferðaskrifstofu. I Prag eru allir flokkar hótela bæði fimm stjörnu hótel og allt niður í eins og tveggja stjörnu hótel. Fimm stjörnu hótelin eru af svipuðum gæð- um og sambærileg hótel í Vestur- Evrópu og þar er hægt að skipta gjaldeyri og þar eru barir, veitinga- salir og kaffiteríur. Verð fyrir hótel- herbergi á fimm stjörnu hótelunum er frekar sanngjarnt, tveggja manna herbergi kostar um 6.200 krónur. Hótelin í næstu gæðaflokkum fyrir neðan eru enn ódýrari enda gæðin kannski ekki sambærileg, þannig er hægt að verða sér úti um tveggja manna hótelherbergi á tveggja stjömu hóteli fyrir um 1500 krónur nóttina. Þeir sem ævintýragjarnir eru geta bókað hótelherbergi fyrstu nóttina og farið svo á bari og veitingastaði og.spurst fyrir meðal borgarbúa um ódýra gistingu í heimahúsum. Marg-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.