Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1990, Qupperneq 31
L AU GA RD. AGDR: 17. (MARS 1990. 39
DV Lífsstm
Fögur minnismerki og fagrar byggingar má víða sjá í Prag.
ir Pragbúar vilja gjarnan hýsa er-
lenda feröamenn fyrir lágar upphæð-
ir gegn því að þeir fái borgað í dollur-
um eða pundum. Með því að gista í
heimahúsum kynnist ferðamaður-
inn íbúum borgarinnar og fær annað
sjónarhorn á hana.
Veitingastaðir
Það er mikill íjöldi veitingahúsa í
Prag. Hefðbundin veitingahús eru
merkt, restaurance, og þar er oft að
finna alþjóðlega rétti í bland við hefð-
bundna tékkneska rétti en ferða-
menn ættu að hafa í huga að leita
einnig uppi staði sem eru merktir
Vinárny en þar er lögð áhersla á að
bjóða upp á góð vín jafnhliða góðum
mat. Pivnice, eru krár þar sem hægt
er að fá góðan kranabjór og ódýran
mat.
Kavénary eru kafiiteríur en þar er
hægt að fá ýmiss konar létt snarl svo
sem bökur og sætabrauð. Ef fólk er
mikið að flýta sér er hægt að bregða
sér á jídelna og fá þar snarl. Þessir
staðir eru ódýrir og á mörgum þeirra
verður fólk að standa upp á endann
meðan það snæöir.
Það er ekki dýrt að borða úti. Ekki
þarf að borga nema um 250 krónur
fyrir venjulega máltíð en ef farið er
á verulega fínan stað greiðir við-
skiptavinurinn um 500 krónur. Veit-
ingastaðir, sem eru reknir í tengslum
við hótel, eru venjulega dýrari og því
dýrari sem hótehn eru fínni. Það er
því í flestum tilvikum ódýrara að
borða annars staðar en á hótelinu
sem búið er á.
Apexmiði héðan og til Prag kostar
frá 45.000 krónum og upp í 50.000
krónur og er þá miðað við að flogið
sé um Kaupmannahöfn, Lúxemborg
eða Frankfurt.
Norræna ferðaskrifstofan hefur í
vetur boðið upp á ferðir til Prag, fjög-
urra daga ferð, þar sem flogið er um
Kaupmannahöfn, kostar rétt tæpar
60 þúsund krónur fyrir manninn.
Innfalið er flug báðar leiðir, gisting
á góðu hóteh, akstur til og frá flug-
velh, miði í öll almenningsfarartæki,
hálft fæði og ein skoðunarferð.
Vikuferð fyrir einn kostar rétt tæp-
ar 80.000 krónur, það sama er innfa-
hð í verðinu og í fyrra dæminu nema
að í vikuferðinni er boðið upp á tvær
skoðunarferðir í stað einnar. íslend-
ingar, sem ætla til Tékkóslóvakíu,
þurfa vegabréfsáritun þangað. Hana
er hægt að fá með stuttum fyrirvara
í Tékkneska sendiráöinu í Reykja-
vík.
-J.Mar
Um þessar mundir huga fjöl-
margh’ íslendingar að þvl hvernig
best verði að haga sumarleyfinu.
Helmingur landsmanna ferðast er-
lendis á hverju ári og eru ferða-
hættir íslendinga stöðugt að verða
fjölbreyttari.
Nú á vordögum er boðið upp á
námskeiðið „Á ferð og flugi“,
flug/sigling - bíll, en slík námskeið
hafa veriö haldin undanfarin þrjú
ár. Eftirtaldir aðilar standa aö þess-
um námskeiðum: Ferðaskrifstof
urnar Saga, Norræna, Úrval-Útsýn
og Félag islenskra bifreiðaeigenda,
Flugleiðír og Sióvá-Almennar
tryggingar hf. Umfcrðarráð er sam-
starfsaðili.
Námskeiðin verða á Hólel Loft-
leiðum, laugardagana 24. mars, 28.
april og 19. maí. Hefjast þau öll kl.
13.30 og standa í urn það bil 5
klukkustundir. Efni það sem tekið
er fyrir er fjölbreytt og má þar
nefna undirbúning ferðar, upplýs-
ingaöflun, þjónustu og fyrir-
greiðslu ferðaskrifstofa, notltun
öku-/landakorta og kortalestur og
fleira. Nánari upplýsingar er hægt
aö fá hjá ferðaskrifstofunum og
Félagi íslenskra bifreiðaeigenda.
-J.Mar
Prag þykir ein fegursta borg Evrópu.
Japan:
Ekki jafndýrt
og margir halda
Japanir eru orðnir þreyttir á þeim
orðrómi að stórborgir í landinu séu
þær dýrustu í heimi. Ferðamálaráð
Japan gerði fyrir skömmu könnun á
því hvort Tokýo væri dýrari en aðrar
stórborgir heims og þá kom á daginn
að hún er í fimmta sæti en ekki fyrsta
eins og margir hafa viljaö halda
fram.
í könnuninni var lagt til grundvall-
ar verð á gistingu eina nótt, kvöld-
verði þar sem snædd var steik og
drukkið rauðvín með, svo var reikn-
að með einum hamborgara, bjór,
viskídrykkjum og leigubílaferðum.
Verð á þessum þáttum kannað í alls
21 borg í heiminum.
Rannsóknin sýnir að þó að Tokýo
sé í dýrari kantinum þá er enn dýr-
ara að dvelja í París, Frankfurt, New
York og London og raunar trónir sú
borg á toppnum sem dýrasta borg
heims samkvæmt könnuninni.
Samtímis má lesa það út úr könn-
uninni að það er ódýrara að heim-
sækja Japan ef dvaliö er í öðrum
borgum en Tokýo, til að mynda er
litlu dýrara að heimsækja Sapporo
og Kyoto en Hong Kong. Og suður-
japanska borgin Fukuoka er einung-
is örlítið dýrari en Bangkok en hún
hefur lengi verið talin mjög ódýr. Svo
má varpa fram þeirri spurningu
hvort könnin sé marktæk þar sem
hún er gerð af Japönum sjálfum en
ekkióháðumaðila. -J.Mar
Á grafinu er verðlag í Tokýo sett á 100 og reiknað út frá þvi hvaða borgir er dýrara eða ódýrara að heimsækja.
Heimild Ferðamálaráð Japans.
Frábær sumrbús á góðu rerði
ÞÝSKALAND:
Feriendorf Hostenberg
steinsnar frá Luxemburg og Trier.
Veródæmi: Flug, bíll og hús
Fyrir 4 (2 fullorðna og 2 börn, 2-12 ára)
í 2 vikur í júní. _____________
Frá kr. 41.830,- pr. mann
HOLLAND: Zandvoort - örstutt frá Amsterdam
Athugið!
Hagstæóar sólar-
landaferðir til
fjölmargra staða.
Flogið um LONDON.
Verödæmi: Flug og hús
Fyrir 4 (2 fullorðna og 2 börn, 2-12 ára)
í 2 vikur í júní. __________________
Frá kr. 36.256,- pr. mann
Gerið verðsamanburð
Fcréáær
lliifmmínvti 2 - Shni 62-80-20